Morgunblaðið - 19.08.2008, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 19.08.2008, Blaðsíða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Hún er með mjög skemmti-legan bakgrunn, byrjaðiseint að æfa, hún var 16ára þegar hún byrjaði og er ekki nema 21 árs í dag. En hún er alveg með bakgrunn í módern, fim- leikum, samkvæmisdönsum og hvað- eina,“ segir Nanna Ósk Jónsdóttir, framkvæmdastjóri DanceCenter Reykjavík og skipuleggjandi Dans- festivals, um dansarann Sabra John- son. Johnson þessi fór með sigur af hólmi eftir geysiharða útslátt- arkeppni í einum vinsælasta sjón- varpsþætti heims, So You Think You Can Dance, í fyrra. „Ástæðan fyrir því að hún vann þessa keppni er að hún getur gert hvað sem er, dansað alla stíla,“ segir Nanna. Mik- ið sé lagt á keppendur, bæði lík- amlega og í lærdómi, þ.e. að læra dansverk og dansspor með hraði, í mikilli tímaþröng og með dans- félaga sem þeir hafa ekki unnið með áður. Nanna hefur fengið dansara úr þættinum til kennslu á Íslandi áð- ur, danshöfundana Dan Karaty og Shane Sparks nú síðast,sem gegnt hafa hlutverkum dómara og dans- höfunda í þættinum. Johnson kemur í næstu viku og segir Nanna að til standi að fá annan fyrrverandi keppanda, Danny Tid- well, sem lenti í öðru sæti í þáttaröð- inni sem Johnson sigraði í. Það er því ástæða fyrir dansiðkendur og -unnendur að hlakka til. Fjölbreytt kennsla „Þetta er náttúrlega fólk með því- líkan metnað og bakgrunn og finnst gaman að geta miðlað sinni reynslu til annarra dansiðkenda í heim- inum,“ segir Nanna. Johnson kennir jazzfunk, street, djassballett og modern/lyrical dans, dagana 28.-31. ágúst. Nanna segir mjög fjöl- breyttan hóp eiga eftir að sækja Dansfestival að þessu sinni þar sem ólíkar danstegundir verði teknar fyrir. „Það hefur verið alveg uppselt,“ segir Nanna um gengi þessara nám- skeiða eða hátíða, en Dansfestivalið verður haldið fjórða sinni nú undir lok mánaðarins. Nanna segist hafa þurft að vísa fólki frá þegar Dan Ka- raty kom til landsins í fyrsta skiptið, slík hafi verið ásóknin á námskeið hátíðarinnar. Í seinna skiptið kom Karaty með Shane Sparks. „Þeir eru vanir að kenna allt að 500 manns í einu og þetta snýst alfarið um hæfni kennara í að skipta í hópa og skipta röðum þannig að allir fái að njóta sín,“ segir Nanna. Sviti og tár Spurð að því hvort ekki sé erftt að fá þetta fólk til landsins vegna vin- sælda þáttarins svarar Nanna því að það sé vissulega „sviti og tár“ en hún hafi náð að mynda góð sambönd við þekkta dansara og danshöfunda vestanhafs undanfarin sex ár. „Ef þetta væri fótbolti þá væri Beckham á leiðinni hingað,“ segir Nanna til samlíkingar. Þótt þetta fólk sé vel launað sé það allt af vilja gert að koma og kenna Íslendingum. Sabra Johnson á Dansfestivali  Sigurvegari úr þættinum So You Think You Can Dance? í fyrra kennir Íslend- ingum að dansa  „Getur gert hvað sem er,“ segir skipuleggjandi danshátíðar AP Í sjónvarpinu Johnson með dansaranum Dominic Sandoval. Nanna Ósk Jónsdóttir Johnson Alsæl eftir að úrslit lágu fyrir í fyrra í sjónvarpsþættinum So You Think You Can Dance? Shane Sparks Dan Karaty Hvar fer Dansfestival fram? Í DanceCenter Reykjavík í nýrri við- byggingu Laugardalshallar. Hvernig skráir maður sig? Skráning fer fram á vefsíðu Dance- Center, www.dancecenter.is. Dag- skrá er einnig að finna þar sem og upplýsingar um námskeið almennt. Hvað er DanceCenter Reykjavík? DanceCenter Reykjavík er dansskóli fyrir alla þá sem hafa ástríðu fyrir dansi, byrjendur sem lengra komna. Á vefsíðu skólans segir að kennarar á hátíðunum séu með virtustu dans- höfundum í heiminum. Hver er Sabra Johnson? Hún heitir fullu nafni Sabra Elise Johnson, fædd 29. júlí 1987. John- son er sigurvegari þriðju þáttaraðar So You Think You Can Dance?. Hún fæddist í Hollandi, bjó í níu ár í Þýskalandi og svo níu í Utah. Hún býr nú og starfar í New York sem dansari. Hvenær byrjaði hún að æfa dans? Þegar hún var 16 ára, í skólanum Dance Impressions í bænum Bounti- ful í Utah. Johnson hefur æft ólíkar tegundir dans, m.a. djass, ballett og nútímadans en auk þess æfði hún fimleika, þ.e. áður en hún hóf dans- nám. S & S Menningarnótt verður haldin á laugardaginn og er niðurtaln- ingin hafin. Prjónaskapur kem- ur við sögu á hátíðinni því „Menningarnæturtrefillinn“ verður prjónaður líkt og í fyrra, frá kl. 10-23 og stefnt að því að hafa hann enn lengri en þann sem prjónaður var í fyrra. Til þess þarf margar hendur og marga prjóna. Prjónaskapurinn fer fram í hannyrðaversluninni Nálinni þar sem gestum verður einnig boðið að sauma út „Menningarnæturmyndina“. TROMMARINN og söngvarinn Phil Collins skildi á dögunum við eig- inkonu sína Orianne Cevey og þurfti að greiða henni rúma 3,8 milljarða króna af því tilefni. Reiknast mönn- um til að hann hafi þar með slegið met meðal frægðarmanna Bretlands og má í því samhengi nefna að Heather Mills fékk aðeins 3,7 millj- arða þegar hún skildi við Paul McCartney. Collins og Cevey eiga tvö börn, átta og fjögurra ára. Þau hafa verið saman í tólf ár og kynntust þegar hún var 22 ára og hann 44 ára og giftur fyrri konu sinni Jill Tavelman. Skilnaðurinn við þá eiginkonu var heldur ekki ódýr, þá varð Collins 2,6 milljörðum fátækari, en átti það ef til vill skilið þar sem hann sleit sam- bandinu við Tavelman, móður þriggja barna sinna, með því að senda henni fax. Betri tímar Phil Collins og eig- inkona hans á brúðkaupsdaginn. 3,8 milljörð- um fátækari / ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI WALL• E m/ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 LEYFÐ WALL• E m/ensku tali kl. 6:10 - 8:20 - 10:30 LEYFÐ LOVE GURU kl. 10:30 B.i. 12 ára KUNG FU PANDA kl. 1:30 - 3:40 m/ísl. tali LEYFÐ GET SMART kl. 1:30 - 3:50 - 5:50D - 8D - 10:30D LEYFÐ DIGITAL THE MUMMY 3 kl. 5:40 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára THE DARK KNIGHT kl. 2 - 5 - 8 - 10:50 B.i. 12 ára THE DARK KNIGHT kl. 2 - 5 - 8 - 10:50 B.i. 12 ára LÚXUS VIP MAMMA MIA kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 LEYFÐ GET SMART kl. 3:30D - 5:40D - 8D - 10:20D LEYFÐ DIGITAL X-FILES 2 kl. 8D - 10:10D B.i. 16 ára DIGITAL THE MUMMY 3 kl. 5:50 - 8 B.i. 12 ára WALL• E m/ísl. tal kl. 3:40D - 5:50D LEYFÐ DIGITAL DARK KNIGHT kl. 10:10 B.i. 12 ára KUNG FU PANDA m/ísl. tal kl. 3:40 LEYFÐ SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI “...WALL E fær óskarinn sem besta teiknimyndin, enda mynd sem fer fram úr því að vera fjölskylduteiknimynd og yfir í að vera fullorðinsteiknimynd.” “...full af nægum sjarma til að bræða hvert steinhjarta”. - L.I.B. topp5.is/Fréttablaðið ...umhugsunar- og athyglisverðasta teiknimynd í áratugi...” “WallE er aftur á móti frábær afþreying ætluð hinum almenna bíógesti, þá einkum stórfjölskyldunni...” S.V. MorgunblaðiðSÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í KRINGLUNNI Steve Carell fer hamförum í frábærri gamanmynd sem fór beint á toppinn í USA. Ekki missa af skemmtilegustu gamanmynd sumarsins - Get Smart. "ÓBORGANLEG SKEMMTUN SEM ÆTTI AÐ HALDA ÞÉR BROSANDI ALLANTÍMANN." -TOMMI - KVIKMYNDIR.IS „Duchovny og Anderson sýna gamla takta” -Þ.Þ. - DV

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.