Morgunblaðið - 19.08.2008, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 19.08.2008, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR „ÞAÐ trúði því enginn að við gætum gert safnið jafnglæsilegt og raun ber vitni – fyrr en safnið var opnað. Menn voru orðlausir yfir því sem fyr- ir augu bar og það var einstaklega gaman að sjá viðbrögð styrktaraðilana á opnunardaginn,“ seg- ir Pétur Bjarni Gíslason, safnstjóri Fuglasafns Sigurgeirs Stefánssonar á Ytri-Neslöndum við Mývatn. Safnið var opnað á sunnudag að viðstöddum 250 boðsgestum, þar á meðal Vigdísi Finn- bogadóttur fyrrverandi forseta Íslands og verndara safnsins. Minntist hún Sigurgeirs í ávarpi sínu en safnið er reist í minningu hans. Í forsetatíð Vigdísar var Sigurgeir bílstjóri henn- ar á ferð hennar um Suðurbotna og víðar. Sig- urgeir fórst við þriðja mann í sviplegu slysi á Mývatni árið 1999, aðeins 37 ára að aldri. Hann var mikill náttúruunnandi og á lífsleið sinni safn- aði hann 180 tegundum uppstoppaðra fugla auk 100 tegunda af eggjum. Fuglasafn Sigurgeirs er talið vera stærsta safn í einkaeigu sem vitað er um hérlendis. Árið 1985 kom hann hluta af safninu fyrir í litlum skúr á Ytri-Neslöndum sem opinn var al- menningi, en hann átti sér þann draum að reisa hús sem gæti hýst allt safnið. Fyrir nokkrum ár- um hófst síðan undirbúningur að hinu veglega safni með samstilltu átaki ættingja, vina og vel- unnara. Á safninu er að finna allar tegundir ís- lenskra varpfugla að undanskildum þórshana. Safnið verður opið alla daga frá kl. 11–19. Draumurinn varð að veruleika Sigurgeir heitinn Stefánsson safnaði uppstoppuðum fuglum af elju og skildi eftir sig stórt safn sem nú hefur verið sköpuð vegleg umgjörð í nútímalegu safni á Ytri-Neslöndum við Mývatn Í HNOTSKURN »Sigurgeir Stefánsson(1962–1999) var mikill áhugamaður um fugla og náttúru. Hann byrjaði snemma að safna eggjum og síðar komu uppstoppuðu fuglarnir. »Árið 1985 gáfu Jón Sig-tryggsson, Syðri-Nes- löndum, og Guðmundur Ingvi Gestsson Sigurgeiri gamlan 13 fermetra Kröfluskúr og hafa fuglarnir og eggin verið í honum síðan. »Sigurgeir lést af slysför-um á Mývatni við vinnu sína í Kísiliðjunni árið 1999. Morgunblaðið/Birkir Fanndal Fuglalíf Fuglasafn Sigurgeirs er nútímalegt og fellur vel að landslaginu við Neslandavík. Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is „ÞAÐ er ansi mikið landbrot í Viðey núna og aðgerðaleysi borgarinnar er algert,“ segir Örlygur Hálfdánarson bókaútgefandi. Við austurströnd Viðeyjar, sem snýr að Gufunesi, hef- ur brotnað það mikið úr eynni að svokölluð Grútarstöð, sem stóð inni á bakkanum og var nokkuð stór, er horfin með öllu í sjóinn. Lagðir voru göngustígar á bakk- ana við Kríusand, sem snýr að Sundahöfn, og þeir lágu tæpa fimm metra frá bakkabrúninni. Þeir eru horfnir í sjóinn. Sandurinn í fjörunni beggja vegna Þórsness, sem var vin- sæll baðstaður á fjórða áratug síð- ustu aldar, er horfinn með öllu. „Þarna er ekkert nema grjót,“ segir Örlygur. Byggðir voru miklir hafn- arbakkar fyrir móttöku skipa á sín- um tíma. „Þessir bakkar dýpkuðu sundin fyrir skipum og þeir valda því að sjólag hefur allt breyst verulega. Nú deyr aldan ekki úti á söndunum Reykjavíkurmegin heldur gengur hún til baka og lemur á eynni,“ segir Örlygur. Að sögn Örlygs er alltaf verið að deila straumnum meira og meira á eyjuna. „Reykjavíkurborg hafnar samt landbrotinu og sinnuleysið er algert,“ segir Örlygur. Að hans sögn mætti ef til vill fara þá leið sem Dan- ir hafa farið á Jótlandi og dæla sandi á strendur Viðeyjar í vetrarlok til að skapa mótspyrnu, en það sé þó ekki nóg. Byggja þurfi varnargarða til að verjast landbrotinu. Náttúrulegur ferill „Það landbrot sem hefur átt sér stað hefur verið að gerast á nokkrum áratugum, en engar ákvarðanir hafa verið teknar á þessum tímapunkti um hvernig eigi að bregðast við,“ segir Þórólfur Jónsson, garðyrkju- stjóri hjá umhverfissviði Reykjavík- urborgar. „Það eru fornleifar við Grútarstöð en byggð þarna er ekki í hættu. Ef við förum að grípa til þess úrræðis að byggja þarna varnargarða þá verð- um við ekki með náttúrulega strönd. Við höfum ekkert nákvæmt í hönd- unum um hvað veldur, en það er samt klárt mál að þetta er að hluta til náttúrulegur ferill,“ segir Þórólfur. Mikið landbrot í Viðey Ljósmynd/Örlygur Hálfdánarson Landbrot Torfurnar úr gangstígnum vestast á Kríusandi fallnar í fjöru. EFNT verður til alþjóðlegrar ráð- stefnu um olíuleit í Reykjavík í byrj- un næsta mánaðar. Ráðstefnan ber heitið Iceland Exploration Confer- ence 2008 og standa iðnaðarráðu- neytið og Orkustofnun að henni. Efnt er til ráðstefnunnar í fram- haldi af ákvörðun um upphaf útboða á sérleyfum í janúar 2009 til olíu- leitar á Drekasvæðinu. Þetta er fyrsta olíuleitarráðstefnan, sem haldin er á Íslandi. Fyrirlesarar verða kunnir sér- fræðingar frá Norðurlöndunum sem hafa mikla reynslu í jarðfræði- og ol- íurannsóknum á Norður-Atlants- hafi. Ráðstefnan er ætluð jarðfræð- ingum, oíuleitarsérfæðingum og stjórnendum hjá olíuleitar- og olíu- fyrirtækjum, sem annast olíuleit á nýjum og áður óþekktum svæðum. Fram kemur í fréttatilkynningu að miklar vonir eru bundnar við ol- íufund á Drekasvæðinu enda bendi rannsóknir til að þar sé að finna verðmætar olíulindir. Ráðstefna um olíuleit HARALDUR Þorgeirsson, á Hafsvölu HF 107, hringir hér inn afla dagsins til fiskmarkaðarins í Hafnarfirði. Hann landaði þarna ágætum afla, mest ýsu. „Ég hef lítið verið að í sumar, er bara rétt að byrja núna,“ segir Haraldur. „Við byrj- uðum fyrir tíu dögum og þetta er ágætis fiskur. Verðið fyrir ýsuna er þó heldur lélegt núna.“ Hann segir að á síðustu tveimur árum hafi verið gott verð á ýsunni á þessum árstíma. „Svo hefur verðið lækkað eftir því sem líður á tímabilið.“ Á sama tíma í fyrra segir Haraldur aflann hafa ver- ið ágætan, þess vegna byrjaði hann nú fyrr en undanfarin ár, en hann byrjar vanalega í lok sept- ember. Eftir uppboð á fiskmarkaði er fiskurinn ýmist seldur utan eða til innlendra fisksala. Morgunblaðið/G.Rúnar „Verðið fyrir ýsuna heldur lélegt núna“ HÁSKÓLINN í Reykjavík var settur í gær. Þar með hefst 11. starfsár skólans, en hann heldur upp á 10 afmæli sitt í haust. Alls hefja tæplega 700 nemendur grunnnám við skólann á þessu hausti. Nemendum er fyrstu tvo daga skólaársins kynnt starfsemi HR. Má þar m.a. nefna deildir skól- ans, alþjóðasvið, atvinnuþjónustu, siðareglur, þjónustudeild skólans og stúdentafélög einstakra deilda, félagslíf, stúdentaþjónustu HR (námsráðgjöf), rannsókn- arstarf HR, bókasafn og tölvu- og tækniþjónustu skólans. 700 í grunn- námi við HR LÖGREGLAN á Hvolsvelli vinnur enn að rannsókn máls er varðar ólöglegan flutning á farþegum milli Bakkafjöru í Landeyjum og Vestmannaeyja um versl- unarmannahelgina. Búið er að tala við vitni og munu nokkrir boðaðir í yfirheyrslur á næstunni. Lögreglan lítur málið alvar- legum augum og segir að það liggi ljóst fyrir að fólk var flutt á milli án nauðsynlegra leyfa og hafi það verið lagt í stórfellda hættu. Rannsókn á viðkvæmu stigi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.