Morgunblaðið - 19.08.2008, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 19.08.2008, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is EVRÓVISJÓN, 24. maí 2008. Keppnin er haldin í Belgrad, Serbíu, í þetta sinnið og hefur rúllað sína leið tiltölulega hefðbundið, ætt- bálkateknó í bland við ofurballöður er uppistaðan í matseðlinum í ár eins og hin síðustu. En hvað gerist? Kemur ekki vel skeggjaður maður, íklæddur silf- urgráum jakka og hvítum buxum inn á svið – akandi á golfbíl. Hann held- ur á uppblásnu hnattlíkani og að baki honum eru kvenkyns bakradda- söngkonur með gerviskegg. Hann syngur sig með glæsibrag í gegnum ljúft, rafskotið og dægimelódískt popplag, „Divine“, og maður áttar sig ekki fyllilega á því hvort mann- inum sé dauðans alvara eða hvort þetta sé súrrealískt sprell út í gegn. Það eina sem maður veit með vissu er að innkoma hins franska Sebasti- ens Telliers í Evróvisjónkeppnina var hreinasta snilld og með þeim eft- irminnilegri í keppninni. Aldrei hef- ur utangarðsnálgun við poppformið verið pakkað svona listavel inn. „Ég ætlaði að koma inn á risastór- um bíl,“ sagðir Tellier síðar í viðtali. „En hann komst ekki fyrir á sviðinu þannig að ég valdi minnsta bíl sem mér datt í hug.“ Íslendingar, sem ávallt eru þokka- lega hallir undir netta sýru og ær- ingjahátt, launuðu Tellier með átta stigum í undanúrslitunum og lögðu sitt af mörkum svo að Tellier gæti brunað á golfbílnum góða alla leið í úrslit. Smekkur annarra Evr- ópuríkja var öllu hófstilltari og hefð- bundnari og snillingurinn skegg- prúði varð að láta sér nægja átjánda sætið. Ástaratlot í 11 þáttum Það þótti merkilegt þegar tilkynnt var um þátttöku þessa sérlundaða listamanns í Evróvisjón en hann hafði þá þegar náð að skapa sér orð fyrir glúrna popptónlist. Menn fóru þegar að spá og spekúlera í því hverju hann tæki upp á og segja má að þar hafi hann í engu valdið von- brigðum. Síðasta plata Telliers, Sex- uality, kom út í febrúar á þessu ári og var unnin með Guy-Manuel de Homem-Christo, öðrum helmingi hins vinsæla franska dúetts Daft Punk. Tellier lýsir plötunni sem hugleiðingu um ástaratlot í ellefu þáttum. Hinir framsýnu menn í við- burðafyrirtækinu Jóni Jónssyni standa fyrir innflutningi á Frakk- anum undurfurðulega hingað til lands en Tellier kemur hingað með hljómsveit sína – og vonandi golfbíl. Æringi og ugluspegill  Það styttist í tón- leika Sebastiens Tell- ier  Innslag hans í síðustu Evróvisjón- keppni var með mikl- um ólíkindum Tónleikarnir fara fram fimmtu- dagskvöldið 28. ágúst í Rúbín, Öskjuhlið. Miða má nálgast á midi.is. Hugsandi Það er ekki ofsögum sagt að Tellier fari eigin leiðir í lífi sínu og list. Flottur Tellier á golfbílnum góða á sviðinu í Belgrad.  Tellier fæddist árið 1975 í París og syngur á frönsku, ítölsku og ensku. Allt varð brjálað í heima- landinu er hann ákvað að syngja lag sitt, „Divine“, á ensku. Endaði rimman á því að Tellier dró í land að mestu.  Fyrsta plata Telliers kom út 2001 og kallast L’incroyable Vé- rité eða Hinn ótrúlegi sannleikur. Með plötunni fylgir skýr tilskipun um að plötuna eigi aðeins að hlusta á við kertaljós. Sofia Cop- pola notaði lag af gripnum í mynd sína Lost in Translation og Tellier fór í tónleikaferðalag með hinni þekktu frönsku sveit Air til að kynna plötuna.  Engar ljósmyndir eru til af Se- bastien Tellier skegglausum en hann hefur sagt í viðtali að án þess líti hann nákvæmlega eins út og hin fornfræga þýska tenn- isstjarna Steffi Graf. Talandi um Tellier Sími 551 9000Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum 650 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - Í ALLT SUMAR Þú færð 5 % endurgreitt í Háskólabíó Þú færð 5 % endurgreitt í BorgarbíóSími 462 3500Love Guru kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára Hellboy 2 kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára The Strangers kl. 6 - 8 - 10 B.i. 16 ára Mamma Mia kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ FRÁ VERÐLAUNA-LEIKSTJÓRA PAN´S LABYRINTH. eee - Tommi - kvikmyndir.is eeee - V.J.V./TOPP5.is/FBL650k r. SÝND SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI650kr . Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borga “Svona á að gera hrollvekjur!” - Stephen King X-Files kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára Skrapp út kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára The Dark Knight kl. 6 - 9 B.i. 12 ára Mamma Mia kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ X-Files kl. 6 - 8 - 10 B.i.16ára Skrapp út kl. 10:10 B.i.12ára Mamma Mia kl. 6 - 8 LEYFÐ 650k r. eeee - Ó.H.T, Rás 2 eee - L.I.B, Topp5.is/FBL 650k r. “...fílgúdd mynd. Húmorísk, elskuleg saga með góðum lyktum og breyskum persónum” - P.B.B., FBL SÝND SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI “...skemmtilega skrítin og öðruvísi mynd þar sem manni leiðist aldrei” - S.V., MBL “Fínasta skemmtun. Myndin er skemmtileg og notaleg.” - Mannlíf “Vel gerð, vel leikin... og Didda Jónsdóttir er frábær” - J.V.J., DV Stærsta mynd ársins 2008 74.000 manns. Stærsta mynd ársins 2008 74.000 manns. eeee - Ó.H.T, Rás 2 eee - T.V. - Kvikmyndir.is eee - L.I.B, Topp5.is/FBL -Kvikmyndir.is SÝND SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI „Duchovny og Anderson sýna gamla takta” -Þ.Þ. - DV - Ó.H.T., RÁS 2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.