Morgunblaðið - 19.08.2008, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 19.08.2008, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF      ! !  ("      ! ! #$%  &        ! ! ()*+ #,       ! !  )  "-      ! ! ÞETTA HELST ... *+,             ! "## -./    /! ,  ./0 , 123/0 "11 423/0 +5 /0 2  61/0 0+137 8  9. 23/0 :3;"1/0 <618 /0  /0 *=>& * ?"@(A@060/0 B/0 0! 1 .  *  ,  .,$C ,  .=  =D( +1"1 (EC" &F/ A/0 ) C/0 )C 4/0 G  4/0 -  "   2 $ H  C,  "2/0 3A/0    ,                                                                              G13   ) 6 :3*  0 -0IJ K0LM0 MJ0I I0I  L 0ML-0 J MK 0 MJ0MM 0LKL ? LK-0-I 0 MK JKI0 JJ0K - 0MJ0- L 0L 0JL- M 0KM 0-KK 0-L-0I J0  LJ 0KI -0J I0III ? ? ? ? L0L 0 ? ? ML- - IL I I M - L LM -- JJ KJL IL I   M L  -I -- ? ? ? ? KJI   ? MLI -I K  IM L -K LL LI - JJ- KI IL I   I LK    -L  I ? ? J KI    (A4  13  - - I  ? MM K I KL L ?  K ? ? ? ? ? ? # 10  J0J0 J J0J0 J J0J0 J J0J0 J J0J0 J J0J0 J 0J0 J J0J0 J J0J0 J J0J0 J J0J0 J J0J0 J J0J0 J -0J0 J J0J0 J J0J0 J J0J0 J M0L0 J K0J0 J M0 0 L K0M0 J J0J0 J -0J0 J L0K0 J ,) ,) ● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallarinnar hækkaði um 1,9% í var og var loka- gildi hennar 4.398 stig. Exista hækkaði um 6,8%, Föroya Banki um 4,6%, Straumur um 4% og Eik Banki um 3,8%. Bakkavör lækkaði hins vegar um 0,3%. Velta með hlutabréf nam 3,5 milljörðum króna, þar af mest með bréf Landsbankans, Kaupþings og Glitnis. Gengi krón- unnar veiktist um 0,13% í gær og var lokagildi gengisvísitölunnar 157,8 stig. Gengi Bandaríkjadals var við lokun markaða 82,1 króna, evru 121 krónur og pundsins 153,4 krónur. bjarni@mbl.is Úrvalsvísitala Kaup- hallarinnar hækkar Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is HEILDARVELTA Icelandair á öðrum ársfjórðungi jókst um 79% frá sama tímabili í fyrra og nam 29 millj- örðum króna. Er áberandi aukning í tekjum félagsins af starfsemi tengdri leigu á flugvélum og áhöfn- um, en þær hafa aukist úr 3,7 millj- örðum á öðrum ársfjórðungi 2007 í 12,9 milljarða á sama tíma í ár. Segir Björgólfur Jóhannsson, for- stjóri Icelandair Group, að það skýr- ist að stærstum hluta vegna inn- komu félaga eins og Travel Service í samstæðuna, en það félag sé með töluverðan rekstur á þessu sviði. „Um 75% af tekjum okkar eiga uppruna sinn erlendis frá og fjár- streymi fyrirtækisins er mjög gott. Við núverandi aðstæður horfum við hins vegar frekar til þess að sleppa í gegnum yfirstandandi efnahagslegt öldurót en á frekari vöxt. Ég er mjög bjartsýnn á að þær hagræðingarað- gerðir sem við höfum gripið til muni skila fyrirtækinu heilu og höldnu í gegnum hremmingarnar og að fram- tíð þess sé björt til lengri tíma litið.“ Velta Icelandair eykst um tæp 80% milli ára Í HNOTSKURN » Hagnaður Icelandair áöðrum ársfjórðungi nam 395 milljónum króna, saman- borið við 205 milljóna króna hagnað á sama tíma í fyrra. » Á fyrri helmingi ársinsvar 1,3 milljarða króna tap á rekstri félagsins, saman- borið við eins milljarðs króna tap á sama tíma 2007. » Eignir Icelandair jukustum 23 milljarða á fyrstu sex mánuðum ársins og eru nú 89,8 milljarðar króna. » Eiginfjárhlutfall félagsinsvar 30% í lok júnímánaðar. Morgunblaðið/Ómar Gengisáhrif Vegna þess hve stór hluti tekna Icelandair kemur nú frá út- löndum hefur veiking krónu í ár haft jákvæð áhrif á afkomu samstæðunnar. Þrír fjórðu tekna koma frá útlöndum ALMAR Örn Hilmarsson hefur aft- ur tekið við starfi forstjóra danska flugfélagsins Sterling. Almar steig úr forstjórastólnum fyrr á þessu ári en í millitíðinni gegndi Bandaríkja- maðurinn Reza Taleghani starfi forstjóra. Á vef danska viðskiptablaðsins Børsen er haft eftir fréttatilkynn- ingu að endurkoma Almars komi í kjölfar breytinga á eignarhaldi Sterling, en fjárfestirinn Pálmi Haraldsson situr nú einn að baki eignarhaldsfélaginu Northern Travel Holding, félaginu sem á Sterling. halldorath@mbl.is Almar Örn aft- ur til Sterling Pálmi Haraldsson einn að baki félaginu BANDARÍSKIR bankar og fjármála- fyrirtæki þurfa á næstu mánuðum að endurfjármagna starfsemi sína og hleypur fjármögnunarþörfin á milljörðum dala. Segir í frétt Financial Times að mörgum bönkum hafi gengið svo illa að fá lánsfjármagn að þeir hafa neyðst til að hækka umtalsvert vexti til fjárfesta og mun það eðlilega hafa áhrif á afkomu þeirra þegar fram líða stundir. Þá sé ekki ólíklegt að bankarnir hækki sjálfir vexti á útlánum sínum, sem auka muni enn áhrif yfirstandandi hremminga á láns- fjármörkuðum á efnahagslífið allt. Í síðustu viku tóku bankarnir Citigroup, JPMorgan Chase og American International Group lán upp á um 20 millj- arða dala, en bankarnir þurfa að auka enn á lántökur sínar á næstu mán- uðum þar sem tíu stærstu bankastofnanir Bandaríkjanna þurfi að greiða upp lán að upphæð 208 milljarða dala fyrir áramót. bjarni@mbl.is Bandarískir bankar eiga í vanda með fjármögnun Greiðslur Lán að upphæð 208 millj- arðar dala koma til greiðslu á árinu. Eftir Sigrúnu Rósu Björnsdóttur sigrunrosa@mbl.is PENINGAMÁLASTEFNA Seðla- bankans virkar ekki og því er ákjós- anlegra að taka upp evru hér á landi til að tryggja verðstöðugleika sagði Jón Steinsson dósent í hagfræði við Columbia-háskólann í New York. Þetta kom fram á fyrirlestri sem Jón hélt í Háskóla Íslands í hádeginu í gær um stöðu efnahagsmála. Hann sagði vandamál íslenskra stjórn- valda tvíþætt. Annars vegar þyrfti að ná niður verðbólgu og draga úr þenslu, og hins vegar að auka trú- verðugleika íslensks fjármálalífs, þar sem Seðlabankinn væri lánveit- andi til þrautavara. Evra og háir stýrivextir Hvað verðbólgu og þenslu varðaði, sagði Jón fullkomna samstöðu meðal þeirra sem vinna að peningamálum í heiminum, um hvað ætti að gera í slíkum aðstæðum. Peningalegt að- hald, það er mjög hátt raunvaxtastig, væri nauðsynlegt til að ná niður verðbólgu. Það væri óvinsælt og leiddi til samdráttar. Að víkja frá peningamálastefnunni myndi samt gera illt verra. „Niðursveiflan er óhjákvæmileg,“ sagði Jón og í raun væri algjört glap- ræði að lækka stýrivexti nú. Þá væri verðbólgumarkmiðið ekki nógu sterkt verðlagsakkeri. Því þyrfti að finna nýja leið og evran væri þar ákjósanlegur kostur. Með því væri unnið gegn því að gengissveiflur krónunnar skiluðu sér í verðbólgu- skotum, líkt og gerðist við gengisfall hennar í ár. Dýrt að stækka Jón taldi að eðlilegt væri að ríkis- stjórnin tæki sér tíma til að ákveða erlenda lántöku. Hann sagði það geta kostað ríkissjóð 5 til 15 millj- arða á ári að taka 500 milljarða króna lán til að stækka gjaldeyris- varaforðann. Í raun væri það niður- greiðsla skattgreiðenda á starfsemi banka svo þeir gætu gengið að hag- stæðari fjármögnun í útlöndum. Því mætti jafnvel hugsa sér þrautavara- skatta á bankana til uppbyggingar gjaldeyrisvarasjóðs. Peningamálastefna Seðlabankans þarfnast endurskoðunar Glapræði væri að lækka stýrivexti Morgunblaðið/Ómar Hagmál „Það er ekkert allt að far- ast,“ sagði Jón í fyrirlestri sem bar yfirskriftina Er kollsteypa í nánd? Í FRÉTT um uppgjör Marels hf. var sagt að hagnaður fyrirtækisins hefði verið 145 milljónir króna, en hið rétta er að hagnaðurinn nam 145 milljónum evra. Er beðist velvirð- ingar á þessum mistökum. LEIÐRÉTT Vegna uppgjörs Marels

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.