Morgunblaðið - 19.08.2008, Side 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Einar Sigurðsson.
Ólafur Þ. Stephensen.
Forstjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal.
Útlitsritstjóri:
Árni Jörgensen.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/
Pervez Mus-harrafákvað í gær
að láta undan
þrýstingi og sagði
af sér embætti forseta Pakist-
ans. Musharraf rændi völdum
fyrir tæpum níu árum og
gegndi allt þar til á síðasta ári
bæði stöðu forseta og yf-
irmanns hersins og boðaði
stöðugleika í efnahagsmálum
og opnara samfélag.
Musharraf studdi og aðstoð-
aði í upphafi stjórn talibana í
Afganistan, en eftir hryðju-
verkin 11. september 2001
sneri hann við blaðinu og gerð-
ist einn helsti bandamaður
George W. Bush Bandaríkja-
forseta í baráttunni gegn
hryðjuverkum. Condoleezza
Rice, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði í gær að
Musharraf hefði verið „einn
ötulasti bandamaðurinn í
heiminum í stríðinu gegn
hryðjuverkum og öfgum“.
En var það svo? Pakistanar
léku tveimur skjöldum. Þetta
vissu Bandaríkjamenn þótt
þeir kysu að horfa fram hjá
því. Gömlu tengslin sem eink-
um og sér í lagi voru milli pak-
istönsku leyniþjónustunnar,
ISI, og talibana voru aldrei
rofin og uppgang talibana í
Afganistan á síðustu misserum
má að stórum hluta rekja til
stuðnings Pakistana. Talib-
anar hafa átt athvarf í landa-
mærahéruðum Pakistans og
Afganistans. Samhliða stuðn-
ingnum við Bush lét Mushar-
raf bókstafstrúar- og öfga-
mönnum lausan
tauminn. Sú stefna
fór úr böndum.
Musharraf hefur
lagt mikið á sig til
að halda völdum. Hann vék
forseta hæstaréttar frá og er
hann óttaðist að dómstólar
myndu kosta hann völdin rak
hann 60 dómara á einu bretti.
Óöldin í Pakistan var af-
drifarík fyrir Musharraf.
Öfgamönnum hefur vaxið ás-
megin og sprengjuárásir
hryðjuverkamanna, sem áður
þekktust vart, eru nú tíðar. Í
Pakistan rekur almenningur
óöldina til stuðnings Mushar-
rafs við Bush.
Musharraf gerði Ashfaq
Parvez Kayani að yfirmanni
hersins í sinn stað, en hann
launaði ekki forsetanum, sem
kvaddi í gær, framganginn,
heldur hélt sig til hlés. Það er
ef til vill kaldhæðnislegt að
Musharraf steypti á sínum
tíma af stóli Nawaz Sharif,
sem hafði skipað hann yf-
irmann hersins. Nú leiðir Sha-
rif annan stjórnarflokkinn.
Hinn leiðir Asif Ali Zardari,
ekkill Benazir Bhutto, sem
ráðin var af dögum í fyrra. Þá
greinir á um flest en samein-
uðust þó um að svipta forset-
ann embætti. Musharraf hafði
vit á að draga sig í hlé áður en
til þess kæmi.
Hver er svo arfleifð valda-
ræningjans? Óvissa og glund-
roði ríkir í kjarnorkuveldinu.
Musharrafs verður ekki sakn-
að, en þar með er ekki sagt að
betra taki við.
Pervez Musharrafs
verður ekki saknað}Óvissa í Pakistan
Mál ElvarsGuðjóns-
sonar viðskipta-
fræðings, sem
sagt var frá í
Morgunblaðinu í
gær, hlýtur að
vekja fólk til umhugsunar um
hvernig okkar rómaða heil-
brigðiskerfi hjálpar fólki að fá
heilsuna á nýjan leik.
Elvar var draghaltur og
lífsgæði hans skert vegna slits
í mjöðm. Læknirinn hans neit-
aði að setja hann á biðlista eft-
ir mjaðmaskiptaaðgerð, sem
hann hefði engu að síður þurft
að bíða eftir mánuðum saman.
Tryggingastofnun neitaði
að greiða fyrir Elvar aðgerð í
Finnlandi, sem byggist á því
að laga mjöðmina í stað þess
að skipta um. Ástæðan var sú
að læknir á Akureyri var
sagður gera slíkar aðgerðir.
Sá sagðist hafa litla reynslu
og biðtíminn væri 8-10 mán-
uðir.
Elvar pantaði sér þá aðgerð
hjá einkasjúkrahúsi í Finn-
landi og beið í tvær vikur eftir
aðgerðinni. Hann
hyggst nú stefna
íslenzka ríkinu,
neiti TR að greiða
aðgerðina, og láta
reyna á EES-
reglur sem kveða
á um að sjúkratryggðir eigi
rétt á að aðgerðir í öðrum
EES-löndum séu greiddar, fá-
ist þær ekki gerðar í heima-
landinu á skikkanlegum tíma.
Full ástæða er til að láta
reyna á þessar reglur hér á
landi. Að jafnaði er auðvitað
dýrara að fara utan í slíka að-
gerð en að hún sé gerð hér
heima. Reglurnar um frjálsan
og opinn markað fyrir heil-
brigðisþjónustu þjóna ekki
sízt þeim tilgangi að veita
heilbrigðisþjónustunni í
hverju EES-landi fyrir sig
hæfilegt aðhald.
Íslenzkir ráðamenn hafa
nefnt að tækifæri felist í þess-
um reglum fyrir íslenzka heil-
brigðisþjónustu til að gera að-
gerðir á útlendingum. En er
þá ekki ráð að hreinsa fyrst
upp biðlistana heima fyrir?
Reglurnar veita heil-
brigðisþjónustunni í
hverju EES-landi fyr-
ir sig aðhald}
Á biðlista eftir heilsunni
Á
kvennafrídaginn 1975 fannst mér,
þá 15 ára gamalli, áhugavert að
fara niður í miðbæ og fylgjast með
útifundinum. En ég var sannfærð
um að þetta tilstand væri nánast
óþarft. Var ekki alveg ljóst að allt yrði þetta úr
sögunni þegar ég færi á vinnumarkaðinn?
Varla væri launamunurinn verjandi lengur,
fyrst búið var að benda á hann með óyggjandi
hætti og allir virtust sammála um að hann væri
óréttlátur? Varla taldi nokkur að konan ætti að
sjá ein um heimilisstörfin fyrst hún starfaði líka
utan heimilis?
Auðvitað lýsti þessi trú mín einfeldnings-
hætti unglingsins. Á tímabili virtist okkur
reyndar miða ágætlega. Launamunurinn er þó
enn fyrir hendi og við rekumst sífellt á dæmi um að jafn-
rétti kynjanna hafi ekki verið komið á í raun. Samt virðist
oft sem aðeins vanti herslumuninn. En alltaf, einmitt þegar
bjartsýnin ætlar að taka völdin, slær í bakseglin. Við náum
til dæmis ekki að útrýma niðurlægjandi og kvenfjand-
samlegu orðbragði. Ungt fólk hefur kannski sér til afsök-
unar, að vera ekki búið að átta sig á að orð eru til alls fyrst.
Þess vegna þykir jafnvel sniðugt að segja hina undarleg-
ustu hluti. Allt í nafni gríns og gamans og án þess að leiða
nokkurn tímann hugann að því hvað sagt er, hversu öm-
urleg mynd er dregin upp. Mynd af kvenfólki sem hefur
aðeins það hlutverk að vera karlmönnum þóknanlegt. Og
ungar konur taka sumar undir og halda að jafnrétti felist í
að gera lítið úr kvenfólki, svo fremi sem þeim finnst það
sjálfum í fínu lagi. Rétt eins og þær gangi inn í
gamaldags hugmyndaheim með augum opin
og taki meðvitaða ákvörðun um að láta hæða
sig.
Hann er þó ekki svo ungur að hann hafi þá
afsökun, bankamaðurinn sem var spurður í
Viðskiptablaðinu á dögunum um áhuga ann-
arra „aðila á bankamarkaði“ á að sameinast
fyrirtæki hans. Hann var drjúgur með sig, við-
urkenndi vinsældirnar og kaus að taka mynd-
líkingu, sem hann var augljóslega mjög
ánægður með, a.m.k. teygði hann lopann þar
til aulahrollurinn hafði læst sig um allan líkam-
ann á meðan lesið var. Þetta sagði maðurinn á
besta aldri, með fjölda fólks í vinnu: „Við erum
svolítið eins og síðasta óspjallaða meyjan á
útihátíð og þriðji dagur útihátíðarinnar er runninn upp,
þannig að margir vilja inn í tjaldið. Það fara að verða fáir
uppistandandi sem vert er að fá í svefnpokann en við erum
hins vegar í þeirri stöðu að geta valið vel fyrir hverjum við
myndum opna tjaldið, ef við gerum það yfirhöfuð.“
Hvað kemur manni til að taka slíka samlíkingu? Ætli
þær hlæi að gríninu, ungu konurnar í höfuðstöðvum bank-
ans á Akureyri? Eða var brandarinn bara ætlaður strákun-
um, sem vita að þetta er bara grín?
Kannski hefur bankastjórinn gert sér grein fyrir að þessi
ummæli yrðu hent á lofti, en hugsað með sér að illt umtal
væri skárra en ekkert.
Af því bankarnir fá ekki nóg af illu umtali þessa dagana.
rsv@mbl.is
Ragnhildur
Sverrisdóttir
Pistill
Óspjölluð mey á útihátíð
Hlið í sandrifi gerir
höfnina mögulega
FRÉTTASKÝRING
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
L
andeyjahöfn, hin nýja
ferjuhöfn Vest-
mannaeyinga, er hönn-
uð út frá glufu eða hliði í
sandrifinu sem liggur
neðansjávar fyrir utan Landeyjas-
and. Þótt Vestmannaeyjar séu ellefu
kílómetrum frá ströndinni mynda
þær skjól til þess að þetta hlið helst á
sama stað.
Engin alvöruhöfn er á suðurströnd
landsins milli Þorlákshafnar og
Hornafjarðar. Ástæðan er vitaskuld
sú að á söndunum eru ekki hafnir frá
náttúrunnar hendi.
Árni Johnsen alþingismaður sagði
frá því við athöfn í Bakkafjöru sl.
fimmtudag, þegar skrifað var undir
verksamninga um gerð Landeyja-
hafnar, að hugmynd sín um ferjuhöfn
í Landeyjum hafi ekki fengið miklar
undirtektir þegar hann setti hana
fram fyrir tíu árum. Eftir að Alþingi
samþykkti þingsályktunartillögu
hans fóru Gísli Viggósson og sam-
starfsmenn hans hjá Siglingastofnun
að skoða málið og fundu lausnina.
Ekki þarf að rifja upp að Landeyja-
höfn er niðurstaða margra ára um-
ræðu og deilna um bót á samgöngum
milli lands og Eyja og er alls ekki
óumdeild framkvæmd.
Fundu hliðið fljótlega
Hér á landi hafa ekki áður verið
gerðar hafnir á hreinum sandfjörum
eins og Bakkafjöru. Þó er reynsla í að
vinna með sandburð í höfnunum í
Hornafirði og Grindavík.
Vísindalegur undirbúningur hafn-
argerðar í Bakkafjöru hefur staðið
frá árinu 2000. Miklum upplýsingum
hefur verið safnað um sjólag og aðrar
aðstæður á þessari átta kílómetra
strönd. Gísli Viggósson, forstöðu-
maður rannsókna- og þróunarsviðs
Siglingastofnunar, segir að fljótlega
hafi þeir séð hlið í sandrifinu sem ekki
breytti sér. Síðar var danska straum-
mælingastofnunin fengin til ráðgjafar
og aðrir sérfræðingar og eftir miklar
rannsóknir, meðal annars á því
hvernig hægt sé að fara með ferju í
gegn um brotin og inn til hafnar og á
sandburði, hafi niðurstaðan orðið sú
að gera höfn nákvæmlega á þessum
sama stað.
Sandrifin eru einn kílómetra frá
fjörunni og innan við þau er áll. Hlið
eru í þessum sandrifjum með reglu-
legu millibili en þau færast til og frá
eftir veðri og öðrum aðstæðum. Flók-
ið samspil krafta náttúrunnar veldur
því að hliðið sem Gísli og félagar
fundu hefur lengi haldist opið. Þar
ræður miklu að Vestmannaeyjar
veita skjól í ríkjandi átt. Þegar mikið
brim er í suðvestanátt hækkar brim-
garðurinn og botnstraumur myndast
innan við hann og leitar út um hliðið.
Opið er að meðaltali 6 metra djúpt en
getur við vissar veðuraðstæður lækk-
að í 5 metra en síðan getur dýptin
orðið 7 til 8 metrar í aftaka suðvest-
anbrimi sem að meðaltali kemur á 8
til 10 ára fresti. Ferjan mun rista 3,3
metra.
Fylgst með sandburði
Við hönnun hafnarinnar var reynt
að vinna með kröftum náttúrunnar en
ekki á móti þeim. Þannig eru hafn-
argarðarnir látnir ná 600 metra út, en
ekki alla leið út í sandrifið. Mark-
arfljót er rétt austan við fyrirhugaða
höfn og dælir sandi með ströndinni.
Áætlað er að það flytji fram um 150
þúsund rúmmetra af efni á ári. Sand-
urinn mun setjast að hafnargarð-
inum. Vitað er að sandur mun berast
inn í höfnina og talið víst að nauðsyn-
legt reynist að dýpka höfnina þegar
fram líða stundir. Hermann Guð-
jónsson siglingamálastjóri segir að
þótt Siglingastofnun hafi það hlut-
verk að gera höfnina muni hún fylgj-
ast áfram með sandburði og grípa inn
í ef innsiglingin fer að grynnka.
"11A
!
" +
C
"A
C
RÁÐAST þarf í gríðarlega efn-
isflutninga við gerð Landeyjahafnar
og tilheyrandi veg. Fluttir verða
rúmlega 500 þúsund rúmmetrar af
grjóti í hafnargarðanna og alls lið-
lega 1100 þúsund rúmmetrar af fyll-
ingarefni. Samsvarar þetta því að
þekkt kennileiti af þessum slóðum,
fjallið Stóri-Dímon, verði flutt í heilu
lagi niður í Bakkafjöru.
Verktakinn, Suðurverk hf. í Hafn-
arfirði, tekur grjótið úr Seljalands-
heiði en annað efni af Mark-
arfljótsaurum.
Hlaðnir verða tveir um 600 metra
langir brimvarnargarðir, út á 7
metra dýpi. Við hafnarmynnið verð-
ur um 450 metra löng, um 70 metra
breið og 7 metra djúp innsigling-
arrenna og þrengist hún í 50 metra
um 300 metrum innar. Inni í höfn-
inni verður ferjubryggja og þjón-
ustuhús.
Vegna mikils foksands á Land-
eyjasandi hefur verið unnið að um-
fangsmikilli uppgræðslu á þessu
svæði.
FLYTJA
FJÖLL
››