Morgunblaðið - 19.08.2008, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 19.08.2008, Qupperneq 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Í FRÉTTUM föstu- daginn 1. ágúst sl. var sagt frá karlmanni sem dæmdur var í fjögurra ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur dætrum sínum, stjúpdóttur og fjórum vinkonum þeirra. Ég ætla ekki að gera þyngd dómsins að umræðuefni heldur langar mig til að beina sjónum að því orðalagi sem viðhaft er um verknað mannsins í fjölmiðlum. Í Fréttablaðinu (bls. 6) er greint frá því að maðurinn hafi brotið gegn sjö stúlkum, þar á meðal gegn stjúpdóttur sinni, fæddri 1994. Brotin framdi hann á sex ára tíma- bili þegar telpan var á aldrinum átta til fjórtán ára. Um brotin gegn henni segir: „Hann hafði mök við hana að minnsta kosti þrisvar sinnum á sex ára tíma- bili, frá árinu 2002 til 2008.“ Í Morg- unblaðinu (bls. 2) er talað um að maðurinn hafi m.a. verið sak- felldur fyrir „að hafa haft kynferðismök“ við stjúpdóttur sína og í 24 stundum (bls. 2) segir um sama verknað: „var hann meðal annars sakfelldur fyrir að hafa átt kynmök við hana [stjúpdótturina] þrisvar sinnum.“ Það er orðalagið „að hafa mök við“ sem ég vil gera athugasemd við en það er iðulega notað í umfjöll- unum um mál af þessum toga. Ég þekki ekki það orðalag sem notað er um þessi brot í lögum en tel líklegt að blaðamenn noti þann orðaforða sem kemur fyrir í dómum. Á heima- síðu Héraðsdóms Reykjaness, sem dæmdi manninn, segir m.a. að hinn dæmdi hafi „haft samræði við stúlk- una eða önnur kynferðismök.“ Samkvæmt íslenskri orðabók er orðið „mök“ annað orð yfir kynmök. Þau eru skilgreind á eftirfarandi hátt: „kynferðisleg samskipti tveggja einstaklinga til að svala kynhvöt sinni.“ Sagnmyndin að „maka“ (maka sig, makast) merkir, auk þess að hafa kynmök, að finna sér maka. Maki er annað hjóna (para) eða sambúðarfólks og merkir auk þess jafningi. Samkvæmt ís- lenskri málhefð og venjulegum mál- skilningi á orðalagið „að hafa mök við“ ekkert skylt við þann verknað sem maðurinn var dæmdur fyrir gegn stjúpdótturinni. Mök eiga sér stað á milli jafningja sem með þeim svala kynhvöt sinni eins og skil- greining íslenskrar orðabókar gefur til kynna. Sama máli gegnir um orð- ið „samræði“ sem notað er í dóm- inum. Samræði er aðeins annað orð yfir kynmök. Það hlýtur öllum að vera ljóst, sem leiða að þessu hug- ann, að barnið hefur ekki verið að svala kynhvöt sinni með föður sín- um! Þegar karlmaður þvingar barn til samræðis er því ekki um eiginleg kynmök að ræða, hann einfaldlega nauðgar barninu. Orðalag sem þetta er til þess fallið að milda verkn- aðinn og draga athygli frá þeirri skelfilegu og svívirðilegu valdbeit- ingu sem barn í slíkum aðstæðum verður fyrir. Orð skipta máli og því er mikilvægt að þannig sé með þau farið að þau gefi rétta mynd af því sem þeim er ætlað að lýsa. Kynmök eða nauðgun? Nína Leósdóttir skrifar um notkun fjölmiðla á orðalag- inu „að hafa mök“ við einhvern » Þegar karlmaður þvingar barn til samræðis er því ekki um eiginleg kynmök að ræða, hann einfaldlega nauðgar barninu. Nína Leósdóttir Höfundur er guðfræðingur. Á DÖGUNUM var á Húsavík haldinn fund- ur þar sem Þórunn Sveinbjarnardóttir um- hverfisráðherra gerði grein fyrir úrskurði sínum um að fram- kvæmdir tengdar ál- veri á Bakka þyrftu í sameiginlegt umhverf- ismat. Allmargir hafa hallmælt Þórunni og sjá nú svart yfir því að hugsanlega verði einhver seinkun á því að enn ein mengandi ál- bræðslan verði að veruleika og æfir yfir því að náttúran fái að njóta vaf- ans. Heyrst hafa þau rök að þessi ákvörðun kveði á um aðgerð sem eigi sér ekki hliðstæðu á Íslandi, eins og það sé nánast guðlast að slíta sig úr viðjum vanans. Það er erfitt að sjá hvernig tímamótaákvörðun sem þessi geti verið annað en af hinu góða og ætti að lofa Þórunni fyrir þor hennar frekar en hitt. Ég vil kalla þetta framför í umhverfismálum á Íslandi, eitthvað sem við þurfum sár- lega á að halda enda er- um við, þvert á það sem margir halda, langt á eftir mörgum okkar ná- grannaþjóðum þegar kemur að virðingu fyrir náttúrunni, endur- vinnslu, sjálfbærri þró- un og öðru slíku. Hverj- um sem ferðast út fyrir hina íslensku land- steina verður þetta ljóst á skömmum tíma. Eins og Þórunn bendir á er það beinlín- is í starfslýsingu umhverfisráðherra að framfylgja lögum um nátt- úruvernd og augljóslega er það hlut- verk umhverfisráðherra að bera hag náttúrunnar fyrir brjósti. Þórunn segist með úrskurði sínum vera að framfylgja lögum en einhverjir hafa þó bent á að úrskurðurinn geti hugs- anlega verið ólögmætur. Ekki er ég nógu fróður um þau lög sem gilda í þessu sambandi og get því ekki dæmt um lögmætið. En ég tel hik- laust að ef úrskurður hennar í þessu tilfelli reynist brjóta í bága við lög sé rétt að breyta þeim sömu lögum hið snarasta. Auðvitað á að meta stórar framkvæmdir heildstætt og þannig gera mögulegt að meta heildaráhrif þeirra. Hvað sem úr verður mun þessi úrskurður koma af stað um- ræðu um lög sem að þessu snúa og hvernig þau beri að túlka og er það hið besta mál. Komið hefur fram að búið er að eyða um fimm milljörðum nú þegar vegna álvers á Bakka. Hvernig dett- ur mönnum í hug að henda svona gríðarlegum fjármunum í fram- kvæmd sem ekki er víst að verði nokkurn tímann af? Það er ekki einu sinni ljóst hvort næg orka finnst á svæðinu til að knýja álverið. Eitt er að leggja fé í að rannsaka svæði sem þarf hugsanlega að raska, gera for- athuganir og kanna hitt og þetta sem er jú nauðsynlegt til að meta um- hverfisáhrif af einhverju viti. En fimm milljarðar eru eitthvað meira en það, ekkert klink til að leika sér með. Undir venjulegum kring- umstæðum ætti þetta að koma manni verulega á óvart en gerir það því miður ekki í þessu tilfelli. Undanfarið hafa framkvæmdir verið keyrðar svo mikið áfram og í þær dælt svo mikl- um fjármunum að það virðist nánast ómögulegt að stoppa þær af vegna skriðþungans, hvað sem tautar og raular. Nú veit ég að á Húsavík eru ekki allir sáttir við hugmyndir um álver á Bakka. En lítið sem ekkert heyrist í því fólki. Getur verið að á Húsavík ríki sami andinn og á Reyðarfirði og nágrenni í aðdraganda og meðan á framkvæmdum við álverið þar stóð, að menn séu nánast útskúfaðir fyrir það eitt að andmæla ríkjandi skoð- unum eða voga sér að efast um eitt- hvað sem hinir mál(m)glöðu verk- smiðjuvinir predika um? Eins sorglegt og það nú er virðist umhverfismat einungis vera forms- atriði því jafnvel þótt það reynist nei- kvætt virðist það ekki skipta miklu máli eins og dæmin sanna svo glöggt hér á landi. Eins hafa friðlýsingar landsvæða lítið að segja, virðast nán- ast orðin tóm. Nú lítur út fyrir að Bitruvirkjun sé komin aftur á kortið þrátt fyrir neikvæðan úrskurð Skipulagsstofnunar sem sýnir að lítil virðing er borin fyrir úrskurði henn- ar svo ekki sé talað um metfjölda at- hugasemda frá almenningi í þessu tilviki. Ekki er hægt að sleppa því að nefna fyrirhugaða framleiðsluaukn- ingu í álverinu í Straumsvík, þrátt fyrir að stækkun hafi verið slegin út af borðinu í atkvæðagreiðslu íbúa Hafnarfjarðar. Nú eru blikur á lofti í orkumálum heimsins. Þegar hátæknifyrirtæki sem stunda lítt mengandi iðnað, til dæmis netþjónabú, sem ef marka má ráðamenn bíða í röðum eftir að fá áheyrn okkar og ekki síst þegar útlit er fyrir að orkuverð almennt fari ört hækkandi, er aldrei meiri ástæða en nú til að hinkra við og hugsa málin vandlega. Að ana út í hlutina með þvílíku offorsi og við Íslendingar höf- um gert á síðustu árum er nánast glæpsamlegt gagnvart komandi kyn- slóðum sem og okkur sjálfum. Það er því rík ástæða til að fagna tímamó- taúrskurði umhverfisráðherra og líta á hann sem stórt skref fram á við. Til varnar umhverfisráðherra, Íslandi og íbúum þess Björgvin Hilm- arsson skrifar um stóriðju »Hafa framkvæmdir verið keyrðar svo mikið áfram og í þær dælt svo miklum fjár- munum að það virðist nánast ómögulegt að stoppa þær af vegna skriðþungans? Björgvin Hilmarsson Höfundur er líffræðingur. KOLBRÚN hin ágæta skrifar um for- setann, Morgunblaðið 29/7 0́8, persónuna sem kennarar mínir sögðu þegar ég var barn og unglingur að væri samnefnari okk- ar Íslendinga og fulltrúi sem á að gæta virðingar okkar í öll- um háttum. Þeir sögðu og að þessi ein- staklingur ætti ekki að blanda sér í póli- tík, því við kjósum annað fólk til þess. Kolbrún setur mál sitt fram með sér- stökum hætti sem hennar er vísa og held ég að ýmsir hefðu gott af að skoða, jafnvel þó þeir telji sig ekki í hópi fá- mennra hávaða- seggja. Því að þegar hvatt er til þá leggjum við, þeir hljóðlátu, af stað. Ólög handa umdeildum Við vorum heppin með okkar þjóðarhöfðingja árum saman, enda sameinuð í upphafi um að láta áform okkar rætast. Á það setur engan blett þó að velviljuð kona leyfði sér að klappa á koll barna og gróð- ursetja tré, það er nú einusinni í eðli kvenna, og þurfa pirraðar snobbkerlingar ekkert að öfundast af því. En þar kom að við urðum óheppin, eins og hlaut að koma að. Lög um kjör þessarar persónu sem á að koma fram fyrir hönd okkar sem þjóðar eru gersamlega ónýt og hafa alltaf ver- ið. Verulega umdeildur pólitíkus getur ekki verið hlutlaust samein- ingartákn þjóðar. Án gæsku og virðingar Svo virðist sem Ís- lendingar hafi tilhneig- ingu til að láta forsetaembættið í friði og jafnvel lönd og leið. Jafnt efnaðir sem þurfandi brosa og veifa fánum þegar karlinn kemur, enda hafa Íslendingar ekki áður átt for- seta án gæsku og virðingar. Ekki einn einasti þingmaður hefur talað fyrir því að breyta lögum um kjör forseta til að halda virðingu þess embættis þar sem það á að vera. Þar með verður þetta einskonar af- gangsembætti. Brostnar forsendur Vegna þess sem kennarar mínir sögðu um embætti forseta Íslands áður en það missti virðinguna, og raunveruleikans sem blasir við, þá legg ég til að það verði lagt niður svo fljótt sem kostur er. Fengnar stórar jarðýtur og Bessastaðalandið gert að flugvelli ef hann þarf endi- lega að fara úr Vatnsmýrinni. Þar eru hvort sem er engin íslensk menningarverðmæti lengur. For- sætis-, utanríkis- eða mennta- málaráðherrar sem og forseti Al- þingis geta sem best farið með þetta embætti og hafa þá á bakvið sig einhverskonar kjörinn meiri- hluta, öfugt við það sem nú er. Það væri hlálegt ef svo er hjá þjóð sem þykist hafa forgöngu um lýðræði að hún sjálf þurfi að sitja í hljóði með forseta sem er ekki það sem hann á að vera. Hrólfur Hraundal skrifar um forsetaembættið Hrólfur Hraundal » Svo virðist sem Íslend- ingar hafi til- hneigingu til að láta forsetaem- bætið lönd og leið. Enda hafa þeir ekki áður átt forseta án gæsku og virðingar. Höfundur rekur vélsmiðju á landsbyggðinni. Lög eða ólög ÞAU ómálefnalegu sjónarmið Kaupþings- banka að telja sig ekki þurfa að taka tillit til athugasemda Fjár- málaeftirlitsins sem snúa að starfsemi bankans og að Fjár- málaeftirlitið sem er eftirlitsstjórnvald þurfi að sætta sig við það, vekur upp spurningar hvort Fjármálaeftirlitið sé að mismuna fjármálafyrirtækjum. Hér bendi ég á að Fjármálaeftirlitið geri kröfur til annarra eftirlits- skyldra aðila að þeir bregðist við at- hugasemdum þess strax enda sé það í samræmi við venjur á fjár- málamarkaði og í samræmi við al- þjóðlegar skuldbindingar íslenska ríkisins um að hér skuli starfa virkt fjármálaeftirlit. Það hlýtur að mega leiða hugann að því hvort Fjárálaeftirlitið brjóti ekki jafnræðisregluna með því að hafa mismunandi eftirrekni (eft- irfylgni) með því hvort fjár- málastofnanir geri eitthvað með at- hugasemdir og ábendingar þess þó að fyrirtækin öll starfi undir sömu lögum. Spron er eitt þeirra fjármálafyrirtækja sem hefur þurft að sætta sig við eftirlitshlutverk Fjármálaeftirlitsins. Nú þegar Fjármálaeftirlit- inu er ætlað að gefa álit á kaupum Kaupþing á Spron hlýtur að koma til álita hvort Fjármálaeft- irlitið sé ekki vanhæft til að fjalla um söluna þar sem Fjármálaeftirlitið hefur mis- munað fyrirtækjunum á grundvelli eftirlitsskyldu sinnar. Það hlýtur að mega gagnrýna það að 95 milljarða innlán í Spron renni inn í Kaupþing. Þessi innlán eru væntanlega með rík- isábyrgð að stórum hluta hvort sem þau eru hjá Spron eða Kaupþingi. Það hlýtur þó að vera nær almanna- hagsmunum að innlánin séu áfram hjá Spron frekar en Kaupþingi, alla- vega meðan Fjármálaeftirlitið hefur ekki aðstöðu til að beita eftirlitsheim- ildum sínum gagnvart KB banka. Ég er sjálfur þolandi vegna ofríkis KB banka gagnvart Fjármálaeftirlitinu og vísa ég í því sambandi til at- hugasemda Fjármálaeftirlitsins sem eftirlitið setti fram við bankann hinn 18. mars 2005. Áður en nefnd at- hugasemd var sett fram hafði bank- inn krafið Fjármálaeftirlitið um rök- stuðning fyrir hvers vegna eftirlitið kæmi að málinu. Í rökstuðningi sín- um til KB banka vísar Fjármálaeft- irlitið meðal annars til neyt- endaverndar, að bankinn eigi að starfa eftir eðlilegum og heilbrigðum viðskiptaháttum og bæta þurfi fjár- málastarfsemi bankans til framtíðar. Kaupþing gerði ekkert með at- hugasemdir Fjármálaeftirlitsins en lýsti því yfir að málinu væri lokið af þess hálfu. Viðleitni Fjármálaeft- irlitsins að sjá til þess að starfsemi KB banka samræmdist eðlilegum og heilbrigðum viðskiptaháttum og bæta fjármálastarfsemi bankans til framtíðar var því að engu orðin. Þorsteinn Ingason fjallar um samruna KB banka og Spron Þorsteinn Ingason »Kaupþing gerði ekkert með at- hugasemdir Fjármála- eftirlitsins en lýsti því yfir að málinu væri lokið af þess hálfu. Höfundur er fv. útgerðarmaður og fiskverkandi. Er FME vanhæft til að fjalla um kaup Kaupþings á Spron?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.