Morgunblaðið - 29.08.2008, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2 9. Á G Ú S T 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
235. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
Leikhúsin í landinu
Komdu
í leikhús
Janis Joplin >> 35
BLAÐAUKI UM GÓÐA HEILSU
BETRA ER HEILT
EN VEL GRÓIÐ
DAGLEGTLÍF
2 aukatímar í sólar-
hring úti á landi
Dr. Sigurbjörn Einarsson biskup andaðist í gærmorgun, 97 ára að aldri.
Genginn er brautryðjandi og boðberi breytinga í íslensku kirkjulífi að mati
guðfræðinga. Sigurbjörn var áhrifamikill guðfræðingur og kennimaður sem
miðlaði af fróðleik sínum og persónulegri trú í ræðu og riti. Þegar Sigur-
björn talaði hlustaði þjóðin – áhrif hans náðu langt út fyrir hóp hinna kirkju-
ræknu. | 8 og forystugrein
Morgunblaðið/Golli
Brautryðjandi í íslensku
kirkjulífi og trúarleiðtogi
Sigurbjörn Einarsson biskup látinn
VERK Fridu Kahlo verða sýnd í
fyrsta skipti á Íslandi í vor þegar
Listasafn Íslands heldur stóra yfir-
litssýningu á verkum mexíkóskra
listamanna. „Þarna verða líka
Diego Rivera, Jose Clemente
Orozco, David Alfaro Siqueiros og
fleiri,“ segir Halldór Björn Runólfs-
son safnstjóri, en verkin eru úr
frægu listaverkasafni kvikmynda-
jöfursins Jacques Gelmans. Nú er
það í eigu Metropolitan-safnsins.
„Okkur tókst að klófesta það með
ótrúlegri lempni.“ Á sama tíma
verður sett upp leikverk um ævi
listakonunnar í Þjóðleikhúsinu. | 16
Frida í fyrsta
sinn á Íslandi
Frida Kahlo Sjálfsmynd.
Á fjórða tug fasteignasala hefur
skilað inn leyfi sínu til sýslumanns-
ins í Hafnarfirði það sem af er ári.
Ekki er um að kenna samdrætti í
sölu fasteigna, en löggiltir fast-
eignasalar sjá ekki ástæðu til þess
að greiða eftirlitsgjald á meðan
fasteignasölur komast upp með að
vera með einn löggiltan fast-
eignasala en tugi ófaglærðra sölu-
fulltrúa. » 6
Ekki sama löggiltur fast-
eignasali og sölufulltrúi
Húsnæði Greiða þarf fyrir eftirlit.
Fjórar heim-
ildir til her-
gagnaflutninga á
vegum íslenskra
flugrekenda hafa
verið gefnar út á
síðustu tólf mán-
uðum. „En við
höfum auðvitað
oft heimilað
erlendum
flugrekendum að fljúga hérna yfir.
[…] Við gefum í heildina út leyfi
svona tvisvar í mánuði,“ segir Val-
dís Ásta Aðalsteinsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi Flugmálastjórnar Ís-
lands. Leyfisveitingar Flugmála-
stjórnar eru ekki bornar undir
aðrar stofnanir. » 20
Fjórar heimildir til her-
gagnaflutninga á einu ári
Reykjavíkurborg tekur yfir verk-
efni Straumhvarfa, átaksverkefnis
við geðfatlaða á vegum ríkisins, um
uppbyggingu þjónustu og húsnæðis í
borginni. Framkvæmdum verður
flýtt og lýkur á næsta ári, í stað árs-
ins 2010. Með því leysist húsnæð-
isvandi 44 geðfatlaðra einstaklinga,
sem hafa m.a. búið á stofnunum eða
hjá aðstandendum. Samningur þess
efnis var undirritaður í gær.
Sveinn Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Geðhjálpar, fagnar
því að Reykjavíkurborg skuli taka
yfir verkefni ríkisins og segir það af-
ar mikilvægt skref í baráttunni. » 8
Leyst úr húsnæðisvanda
44 geðfatlaðra árið 2009
„ÞESSUM hlutum hefur ekki miðað nægilega hratt og
við þurfum að gera betur,“ segir Hanna Birna Kristjáns-
dóttir borgarstjóri um frístundastarf skólabarna í borg-
inni eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur.
„Minna skutl“ með börnin var meðal þess sem flokk-
arnir sem mynda meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur
höfðu á stefnuskrá sinni fyrir síðustu kosningar. Stefnt
skyldi að því að fella í meira mæli saman skólastarf og
tómstundastarf. Í dag er staðan sú að 1.700 börn bíða eft-
ir plássi á frístundaheimili.
Hanna Birna segir að mönnun heimilanna sé lykilþátt-
ur í að hægt sé að bjóða þeim sem það kjósa upp á
frístundastarf fyrir börnin í heimahverfi. Hún segir ljóst
að leita þurfi fleiri leiða en að auglýsa til þess að fjölga
starfsmönnum frístundaheimilanna.
Samnýta eða fá aðra til samstarfs
Hún hefur boðað sviðsstjóra leikskólasviðs, mennta-
sviðs og ÍTR á sinn fund snemma í næstu viku, þar sem
nýjar leiðir verða ræddar. „Ein leiðin getur verið sú að
skoða möguleika á aukinni samnýtingu eða fá aðra aðila
til samstarfs,“ segir borgarstjóri. | 11
„Þurfum að gera betur“
Reyna á nýjar leiðir til að leysa vanda frístundaheimila
„Minna skutl“ með börnin var á stefnuskrá flokkanna
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
„MENN eru svartsýnir og telja að
þetta sé eitthvað sem haldi áfram inn
í haustið,“ segir Gunnar Páll Páls-
son, formaður VR. Ístak tilkynnti í
gær uppsagnir 300 starfsmanna,
sem er þriðjungur starfsmanna fyr-
irtækisins. Pósthúsið, sem dreifir
Fréttablaðinu, tilkynnti uppsagnir
129 blaðbera.
„Þetta er með stærstu uppsögnum
sem við sjáum,“ segir Gissur Péturs-
son, forstjóri Vinnumálastofnunar.
„Það er framundan aukning í at-
vinnuleysi og ástæðulaust að draga
úr því,“ segir Gissur jafnframt.
Hann býst því við frekari hópupp-
sögnum, öll merki bendi til mikils
samdráttar í atvinnulífinu.
Það sem koma skal
„Þetta er þróunin sem við horfum
upp á. Gjaldþrot Mest og Just 4 Kids
um síðustu mánaðamót gáfu for-
smekkinn,“ segir Gunnar Páll. Einn-
ig má minnast á Ræsi, sem hefur
hætt starfsemi, en þar var öllum sagt
upp í júlí. Sigurður Bessason, for-
maður Eflingar, segir að búast megi
við frekari uppsögnum hjá bygging-
arfyrirtækjum.
Svartsýnir og
búa sig undir
það versta
Búast má við frekari hópuppsögnum
429 sagt upp hjá Ístaki og Pósthúsinu
Í HNOTSKURN
»Ef erlendum starfs-mönnum Ístaks verður
sagt upp mun fyrirtækið
greiða fargjöld þeirra sem
snúa til síns heima.
» Ístak mun draga úr fram-kvæmdum. Forstjóri fé-
lagsins segir blikur á lofti um
breytta afstöðu til virkjana.
» Í kjölfar uppsagna blað-bera mun Íslandspóstur
sitja einn að dreifingu mark-
pósts á landsbyggðinni.
„Með stærstu“ | 2
„FRAMLEIÐENDURNIR mínir ætluðu varla að trúa
þessu, að ég hefði fengið hann,“ segir Baltasar Kormák-
ur sem hefur fengið tónskáldið James Newton Howard
til þess að semja tónlistina fyrir sína nýjustu mynd, Run
For Her Life. Howard er eitt virtasta tónskáldið í Holly-
wood, en hann hefur samið tónlist fyrir myndir á borð
við Alive, King Kong, The Sixth Sense, The Fugitive og
nýjustu Batman-myndina, The Dark Knight.
Times velur Mýrina með bestu glæpamyndum
Baltasar fær fleiri góðar fréttir þessa dagana því vef-
útgáfa breska dagblaðsins The Times hefur valið Mýrina eina af tíu bestu
glæpamyndum allra tíma. jbk@mbl.is | 35
James Newton Howard semur tónlistina
fyrir nýjustu kvikmynd Baltasars Kormáks
Fær Batman-tónskáld
Baltasar
Kormákur