Morgunblaðið - 29.08.2008, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 29.08.2008, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ Vonandi dettur ekki neinum í hug að láta banna pólitískar rassskellingar. Samgöngunefnd Alþingis hefuropnað nýja vídd í starfsháttum. Í liðinni viku gistu allir nefndar- menn samgöngunefndar Alþingis nema tveir á hótelinu Kríunesi við Elliðavatn á kostnað þingsins eftir að hafa farið ferð um höfuðborgar- svæðið til að skoða umferðarmann- virki.     Þingmennirnirí nefndinni eru frá höfuð- borgarsvæðinu og utan af landi og fá þeir síð- arnefndu styrk til að halda heim- ili í Reykjavík haldi þeir heimili úti á landi.     Steinunn Valdís Óskarsdóttir,formaður samgöngunefndar (sem reyndar gisti ekki í á Kríu- nesi), var spurð að því í Morgun- blaðinu í gær hvort ekki hefði mátt spara ríkinu peninga með því að nefndarmennirnir hefðu gist heima hjá sér: „Það má kannski til sanns vegar færa í þessu tilfelli, en þarna vorum við með fund um kvöldið og strax morguninn eftir og tókum einfaldlega þá ákvörðun að vera þarna á staðnum líkt og við værum í ferð annars staðar.“     Líkt og við værum í ferð annarsstaðar?     Þetta er vitaskuld gríðarlegvinnuhagræðing. Með sama hætti mætti hagræða þegar fundir Alþingis standa fram á kvöld og hefjast aftur að morgni með því að láta þingmenn gista á Hótel Borg. Ef einhver gerir athugasemd væri hægt að segja að ákveðið hefði ver- ið að láta líkt og Alþingi væri ann- ars staðar en það er.     Hið óheppilega í þeirri röksemda-færslu er að Alþingi er því mið- ur þar sem það er og Elliðavatn er ekki annars staðar. STAKSTEINAR Steinunn Valdís Óskarsdóttir Að vera annars staðar                      ! " #$    %&'  (  )                     *(!  + ,- .  & / 0    + -                           12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (            !  ! ""# $$%    #$ $#""  &" &        #$ $# :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).? &   & & &    & &  & &   & &    &                               *$BC                                !  "  #"$  %  &  *! $$ B *! '( ) "  "( "    * <2 <! <2 <! <2 ') $#"+ $% ,"-#$.  CDB E                    '( !)     *+         +,- *  " 2  .   "(  / % 0          # %    /      " %         *+   1!     1   # %  2  *+!)    /0## ""11  $#""2  "+ $% VEÐUR SIGMUND Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ FRÉTTIR SLÁTURFÉLAG Suðurlands hefur hækkað afurðaverð til bænda um 16,5% frá verðskrá fyrirtækisins 2007. Auk þess var gerð sérstök 17,8% hækkun á R3-matsflokki á dilkakjöti. Ákvörðun um hækkun var tekin á stjórnarfundi SS á þriðjudag og er ástæðan sögð mikil hækkun fram- leiðslukostnaðar milli ára. Miðað við flokkun SS í september og október 2007 er vegið meðalverð 427,3 kr/kg sem er 16,9% hækkun frá fyrra ári. SS segir að afurðalán og vaxtagjöld standi ekki undir staðgreiðslu og ef borinn er saman kostnaður við stað- greiðslu og það fyrirkomulag sem vaxtagjöld miðast við er ávinningur bænda að jafnaði rúmlega 2% af staðgreiðslu og verði að hafa það í huga er samanburður er gerður við verðskrá LS. Sauðfjárbændur settu í sumar fram kröfu um 27% hækkun. Þeir telja að þær hækkanir sem slát- urleyfishafar hafa ákveðið nú leiði til þess að forsendur fyrir rekstri bú- anna séu brostnar. Á vef Búnaðarsambands Íslands segir að verð á R3 í viðmiðunar- verðskrá LS sé 458 kr. en 423 kr. í verðskrá SS. Afurða- verðið hækkað Allt að 17,8% hækkun til bænda frá í fyrra BORGARRÁÐ samþykkti á fundi sínum í gær að heimila veitingahúsunum Óðali og Vegas að bjóða upp á nektardans innan sinna vébanda. Borgar- ráðsfulltrúar Vinstri grænna og Samfylkingar lögðu fram tillögu að umsögn sem var felld. Samkvæmt upplýsingum frá Svandísi Svavars- dóttur, borgarfulltrúa VG, var lögð fram sameig- inleg ályktunartillaga borgarráðs þar sem skorað er á Alþingi að gera þær breytingar sem þarf á lagaumhverfinu til að koma megi í veg fyrir starf- semi af þessu tagi. Segir Svandís þetta vera stórtíðindi ef marka megi fyrri umræðu hægrimanna um nektardans og meint atvinnufrelsi tengt slíkri starfsemi. Ályktunin er eftirfarandi: „Nýlegur úrskurður dómsmálaráðuneytisins varðandi nektardans á veitingastaðnum Goldfing- er í Kópavogi vekur áleitnar spurningar um hvort 4. mgr. 4. gr. laga nr. 85/2007, sem kveður á um bann við slíkri starfsemi, sé gagnslítil. Í borgarstjórn ríkir þverpólitísk samstaða um að vinna beri gegn klámvæðingu, því skorar borgarráð á Alþingi Íslendinga að breyta lögum þannig að sem fyrst fáist skýrar lagaheimildir til að koma í veg fyrir starfsemi nektardansstaða.“ Í umræddum úrskurði dómsmálaráðuneytisins var talið ósannað að fullyrðingar lögreglustjóra LRH þess efnis að nektardansmeyjar væru oftast þolendur misneytingar, mansals og glæpa, ættu við um starfsemi Goldfinger. Þess vegna felldi ráðuneytið úr gildi ákvörðun sýslumannsins í Kópavogi um að synja Baltik ehf. um heimild í rekstrarleyfi til þess að fram fari nektardans í at- vinnuskyni á Goldfinger. Lögreglustjóri LRH var umsagnaraðili vegna leyfisumsóknar Goldfingers fyrir nektardansi. Leyft að bjóða upp á nektardans Óðal og Vegas fá grænt ljós en borgarráð skorar á Alþingi að breyta lögum Eftir Gunnar Kristjánsson Grundarfjörður | „Við höfum þetta ár sem ég hef verið formaður ráðsins lagt mikla vinnu í að vekja athygli á því að markvisst verði hugað að þeirri vá sem hugsanlega getur hlotist af stöðugt vaxandi skipaum- ferð um norðurhöfin þ.e í kringum löndin sem skipa vestnorræna ráð- ið,“ segir Karl V. Matthíasson. Menn verða að vera undir það búnir í björgunarmálum ef til slyss kæmi á þessum slóðum, bætir Karl við. Ársfundur Vestnorræna ráðsins hefur staðið í Grundarfirði í vikunni. Karl V. Matthíasson kvað fund- armenn, sem voru um 30 talsins, hafa verið ánægða með veru sína í Grundarfirði og alla aðstöðu þar. Vestnorræna ráðið skipa þingmenn frá Færeyjum, Grænlandi og Ís- landi, 6 frá hverju landi, en auk þeirra mæta á ársfundinn fulltrúar frá hinum Norðurlöndunum auk fulltrúa frá norðurlandaráði. Karl sagði að allar samþykktir ársfund- arins færu síðan fyrir lögþing þjóð- anna til að öðlast staðfestingu. Með- al þess sem ársfundurinn samþykkti að þessu sinni var tillaga um sam- eiginlegan hátíðisdag vestnorrænu þjóðanna í ágústmánuði ár hvert. Þá var einnig að sögn Karls samþykkt tillaga um stuðning við uppbygg- ingu björgunarsveita í Grænlandi auk ályktunar um að opnaðar verði vestnorrænar kynningarskrifstofur í aðildarlöndunum sem hefðu dipló- matíska stöðu. Á ársfundinum lét Karl af formennsku en ársfund- urinn kaus Færeyinginn Kára P. Højgaard sem formann næsta starfsár, en formennskan færist milli þjóðanna og gegnir hver for- mennsku í eitt ár. Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson Björgunarmál í norður- höfum efst á baugi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.