Morgunblaðið - 29.08.2008, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 29.08.2008, Blaðsíða 44
FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 242. DAGUR ÁRSINS 2008 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Hundruð missa vinnu  Ístak hefur tilkynnt uppsagnir 300 starfsmanna og Pósthúsið upp- sögn 129 starfsmanna sinna. Búist er við frekari hópuppsögnum vegna samdráttar í atvinnulífinu. » 2 Tilgangslaus greinargerð  Tómas H. Heiðar þjóðréttarfræð- ingur segir að greinargerð Breta til landgrunnsnefndar SÞ vegna yfir- ráða á Hatton-Rockall-svæðinu þjóni engum tilgangi. » 4 Bandaríkin beri ábyrgð  Vladímír Pútín, forsætisráðherra Rússlands, sagði í viðtali við CNN í gær að Bandaríkin hefðu gert sitt til að efna til átakanna í Georgíu. » 14 FH náði jafntefli  Litlu munaði að FH næði sigri gegn Aston Villa í seinni viðureign liðanna í Evrópukeppninni í gær. Leikurinn endaði með jafntefli og eru FH-ingar því úr leik. » Íþróttir SKOÐANIR» Staksteinar: Að vera annars staðar Forystugreinar: Andlegur fjallgöngumaður Ljósvaki: Fíla ekki lengur Önnu Pihl UMRÆÐAN» Friðsamlegt mannúðarstarf í stað hernaðarleikja … örugga umferð um skólakerfið Orðsending til Matthíasar J. Betri tíð hjá bílveikum hundum Sparaðu með réttu viðhaldi Paul Newman kveður kappaksturinn Bílasýningin í Moskvu BÍLAR»  3  3 3 3  3 3  4  %5"' .$ "+ $% 6 $# $ $#""&"#! " 3  3  3 3 3  3 3 3  - 71 '  3 3 3 3 3    3 89::;<= '>?<:=@6'AB@8 7;@;8;89::;<= 8C@'7"7<D@; @9<'7"7<D@; 'E@'7"7<D@; '2=''@&"F<;@7= G;A;@'7>"G?@ '8< ?2<; 6?@6='2+'=>;:; Heitast 16 °C | Kaldast 10 °C  A og NA 15-23 m/s og talsverð rigning. Suðlægari og dregur heldur úr vindi og úr- komu er líður á daginn. » 10 Hjálmar Stefán Brynjólfsson veit nákvæmlega hvað skal gera á Akureyr- arvöku sem haldin er um helgina. » 39 AF LISTUM» Norðan- menn vaka KVIKMYNDIR» Tropic Thunder er frábær kvikmynd. » 38 Stórsveit Reykjavík- ur flytur á morgun lög eftir Björk Guð- mundsdóttur með stofnanda Bjork- estra. » 34 TÓNLIST» Björk í nýj- um búningi ÍSLENSKUR AÐALL» Nína Dögg vildi verða forseti Íslands. » 36 FÓLK» Konungur poppsins er fimmtugur í dag. » 37 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Reynt að ræna íslensku barni 2. Sólarhringsbið á Kastrup 3. Sigurbjörn Einarsson látinn 4. Pósthúsið og Ístak segja upp fólki  Íslenska krónan veiktist um 0,1% Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is ÁRNASTOFNUN, stofnun innan Háskóla Íslands (HÍ) sem vinnur að rannsóknum í íslenskum fræðum, mun eftir þrjú ár flytja starfsemi sína í nýbyggingu sem til stendur að reisa á lóðinni milli Þjóðarbókhlöðunnar og Hótel Sögu. Stofnunin er nú til húsa á nokkrum stöðum á háskólasvæðinu og í grenndinni. Hornsteinar – arkitektar báru sig- ur úr býtum í hugmyndasamkeppni en þeir hönnuðu einnig Háskólatorg- ið sem vígt var sl. vetur. Í vinnings- tillögunni er gert ráð fyrir tæplega 6.200 ferm. sporöskjulaga húsnæði með munstruðum stálplötum sem sækja fyrirmyndir sínar í gamlar handritasíður en stofnunin geymir fjölda handrita og fornbréfa. Gömlu skrínin innblástur Byggingin verður miðstöð fyrir kennslu og rannsóknir auk þess að hýsa og sýna gömlu handritin. „Við vildum búa til hús sem væri nógu heildstætt til að halda utan um þessa fjölþættu starfsemi. Þannig kemur hugmyndin um að útbúa einhvers konar skrín eins og þekktust á Ís- landi í gamla daga og menn settu gullin sín í. Þarna erum við að útbúa skrín fyrir dýrgripi okkar og lögunin á húsinu tekur mið af því,“ segir Ög- mundur Skarphéðinsson, arkitekt á Hornsteinum. Ögmundur segir að með boga- forminu sé húsið gert minna í um- hverfinu. Þá hafi þeim fundist mikilvægt að nota mjúkt form þar sem byggingarnar í kring eru kassa- laga, að fá byggingu „sem hefði ekki nein horn í síðu nágranna sinna“. Utan um bygginguna verður eins konar hlífðarkápa úr stáli. Á stálplöt- urnar verða stílfærð gömul handrit en plöturnar verða í um hálfs metra fjarlægð frá húsinu. „Þá myndast skemmtilegt skuggabil á veggflötinn. Þar fyrir aftan verður lýsing svo hús- ið mun glóa í rökkrinu og verða eins og glóandi skrín,“ segir Ögmundur. Byggingin er gjöf frá ríkisstjórn- inni, fjármögnuð af hluta sölu- andvirðis Símans, en þegar húsið verður vígt árið 2011 á HÍ 100 ára af- mæli auk þess sem 200 ár verða liðin frá fæðingu Jóns Sigurðssonar. Teikning/Hornsteinar Árnastofnun Byggingin verður klædd stálplötum sem sækja innblástur í gömlu handritin er stofnunin varðveitir. Skrín þjóðargulls Teikning/Hornsteinar Staðsetning Byggingin verður á lóðinni suðaustan við Þjóðarbókhlöðuna, milli bókasafnsins og Radisson SAS – Hótel Sögu.  Árnastofnun flytur í húsnæði sem til stendur að reisa við Þjóðarbókhlöðuna  Handrit og skrín veittu innblástur Í HNOTSKURN »Stofnun Árna Magnús-sonar í íslenskum fræðum er háskólastofnun með sjálf- stæðan fjárhag og heyrir und- ir menntamálaráðherra. »Hlutverk stofnunarinnarer að vinna að rann- sóknum í íslenskum fræðum og skyldum fræðigreinum og miðla þekkingu á þeim fræð- um. Þegar verðbólga mælist 14,5% er ljóst að flestar fjölskyldur á Íslandi þurfa að halda að sér höndum. Ein besta afþreyingin sem völ er á, og það ókeypis, er að leigja kvikmynd- ir á Borgarbókasafninu. Þar er að finna ágætt úrval af góðum kvikmyndum svo ekki sé tal- að um barnamyndir. Á föstudögum er hægt að fá myndir lánaðar á bókasafninu sem ekki þarf að skila fyrr en á mánudögum, eitthvað sem ekki er viðtekin venja á mynd- bandaleigum landsins. Algengt verð fyrir mynddisk á leigu er 650 krónur og því ljóst að það er hægt að spara umtalsverðar fjárhæðir ef mikið er horft. Mun dýrara er að fara í kvik- myndahús en þar er algengt verð á miða 900 krónur. Það kostar því fimm manna fjölskyldu 4.500 að fara saman í bíó en ekkert ef fjöl- skyldan velur sér mynd á bókasafn- inu. Svo ekki sé talað um ef poppað er ofan í mannskapinn. guna@mbl.is Auratal LEIFI Garð- arssyni var í gær- kvöldi sagt upp starfi þjálfara Fylkis í Lands- bankadeild karla þegar aðeins fjórar umferðir eru eftir af deild- arkeppninni hjá liðinu. Hermt er að Páll Einarsson og Sverrir Sverrisson taki við stjórnvelinum og stýri liði Fylkis úr keppnistímabilið. Fyrsta verkefni þeirra verður undanúrslitaleikur VISA-bikarsins á sunnudag við Fjölni. Fylkir er í 10. sæti Lands- bankadeildarinnar með 16 stig að loknum 18 leikjum og er aðeins fjór- um stigum á undan HK sem er í fall- sæti. Leifur er þriðji þjálfarinn sem verður að taka pokann sinn hjá liði í Landsbankadeildinni á þessu keppn- istímabili. Hinir eru Gunnar Guð- mundsson hjá HK og Guðjón Þórð- arson hjá ÍA. iben@mbl.is Leifi sagt upp í Árbæ Leifur Garðarsson Þrír dagar í undan- úrslit bikarsins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.