Morgunblaðið - 29.08.2008, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 29.08.2008, Blaðsíða 40
40 FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ / ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA VINSÆLASTA MYNDIN Í BANDARÍKJUNUM Í DAG - 2 VIKUR Á TOPPNUM TROPIC THUNDER kl. 3:40 - 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára TROPIC THUNDER kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára LÚXUS VIP SVEITABRÚÐKAUP kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ STAR WARS: CLONE WARS kl. 3:40 - 5:50 LEYFÐ GET SMART kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ THE MUMMY 3 kl. 8 B.i. 12 ára THE DARK KNIGHT kl. 5:40 - 8:30 - 10:20 B.i. 12 ára WALL• E m/ísl. tali kl. 3:40D LEYFÐ DIGITAL DARK KNIGHT kl. 6:20 - 8 - 10 sýnd í sal 1 B.i. 12 ára STAR WARS: CLONE WARS kl. 3:40D - 5:50D LEYFÐ DIGITAL GET SMART kl. 10:10D LEYFÐ DIGITAL WALL• E m/ísl. tali kl. 4:10D LEYFÐ DIGITAL WALL• E m/ensku tali kl. 5:50 - 8 LEYFÐ KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 3:40D LEYFÐ SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK SPARBÍÓ 550kr á allar sýningar merktar með appelsínugulu Í SAMB FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR „FINDING NEMO“ OG „RATATOUILLE“ SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI “...WALL E fær óskarinn sem besta teiknimyndin, enda mynd sem fer fram úr því að vera fjölskylduteiknimynd og yfir í að vera fullorðinsteiknimynd.” “...full af nægum sjarma til að bræða hvert steinhjarta”. - L.I.B. topp5.is/Fréttablaðið ...umhugsunar- og athyglisverðasta teiknimynd í áratugi...” “WallE er aftur á móti frábær afþreying ætluð hinum almenna bíógesti, þá einkum stórfjölskyldunni...” S.V. Morgunblaðið SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI -L.I.B.TOPP5.IS/FBL -DV FRÁ BEN STILLER KEMUR EIN KLIKKAÐASTA GRÍNMYND ÁRSINS! Eftir Ásgeir H. Ingólfsson asgeirhi@mbl.is „ÉG ER búinn að smíða heilmikið hér til að reyna að koma okkar drauga- gangi inn í þetta hús,“ segir Þórður Pálmason, Doddi, vert á Café Rosen- berg sem opnaði aftur í gær eftir um eins og hálfs árs hlé. Gamli staðurinn var meðal þeirra sem brunnu í brun- anum fræga í Lækjargötu hinn 18. apríl í fyrra og þrátt fyrir fjóra borg- arstjóra þá bólar enn ekkert á nýjum húsum þar þannig að nýi staðurinn verður á Klapparstíg 25. Rosenberg átti sér marga trygga fastagesti og tónlistarmenn sem spiluðu þar reglulega og héldu þeir stuðningstónleika í Loftkastalanum í kjölfar brunans. „Þetta var stór hóp- ur, bæði tónlistarmenn og starfsfólk, sem voru líka bara að peppa mig í gang, enda var þetta mikið sjokk og ég var ótryggður. Þau söfnuðu 530 þúsund með tónleikunum og fyrir það var ég að kaupa hátalara á sviðið, þannig að þetta kemur að hluta til baka til tónlistarmannana,“ segir Þórður og er þakklátur fyrir stuðn- inginn. „Já, og bara vinskapinn, að finna þegar eitthvað bjátar á að mað- ur sé ekki bara einhver veitingahúss- skratti sem öllum er sama um, þarna var ást og umhyggja líka og þetta ýtti mér í gang með að halda áfram.“ Síðan gamli staðurinn brann hefur Þórður unnið við smíðar, enda lærður smiður en þótt hann hafi kunnað því vel þá eru smíðarnar „ekki jafn spennandi og að vera með lífið í lúk- unum í veitingabransanum.“ Í bullandi afneitun En þrátt fyrir nýtt húsnæði breyt- ist ekki mikið. „Við erum bara í bull- andi afneitun og látum eins og ekkert hafi í skorist,“ segir Þórður og bætir við: „Gamla dótið brann ekki, þannig að við vorum bara með það í geymslu og höfum verið að þrífa og lakka, en lökkuðum samt ekki allt of mikið þannig að sum borðin eru pínu brennd og sviðin, það er smá-saga í dótinu ennþá. Það eina sem eyðilagð- ist voru bækurnar sem við áttum, en nú hafa nágrannar okkar í bókabúð Braga gefið okkur bækur af miklum höfðingsskap.“ Eldhúsið verður væntanlega opnað aftur eftir mánuð og staðurinn er fullbókaður af tónlist- armönnum fram yfir áramót. „Það kemur sama starfslið inn aftur og sömu tónlistarmenn að hluta til, svo vonast ég til að fá aftur krakkana úr FÍH til að kíkja við. Þetta var voða næs eins og þetta var, þannig að ég vona að það kvikni aftur.“ En hver er galdurinn sem þarf til þess? „Ég bara veit það ekki og er samt búinn að vinna við þetta alla ævi, er lærður þjónn og búinn að vinna sem hótelstjóri og þjónn og veitingastjóri og allt þar á milli. En þetta bara gerist, það kemur ákveð- inn hópur inn á þessa staði og hann leggur stemninguna til. Ég held reyndar að af því við vorum aldrei með opið til morguns og vorum alltaf með mat hafi það haldið öllu í ákveðnum skefjum,“ segir Þórður að lokum. Rosenberg rís úr öskunni Morgunblaðið/G. Rúnar Á nýja staðnum Þórður ásamt konu sinni, Auði Kristmannsdóttur. FYRSTA helgin á nýjum Rosen- berg verður undirlögð Melodica Acoustic Festival sem er í boði Undercover Music Lovers. Boðið verður upp á 18 atriði laugardag og sunnudag kl. 16-23 báða dag- ana. Þeir sem troða upp eru Jude, Kid Drecker og Eskimono frá Bretlandi, Owls of the Swamp frá Ástralíu, Þjóðverjinn Torben Stock og Íslendingarnir Svavar Knútur, Gunna Lára, Marlon Poll- ock og Bítur, Piknik, Myrra Rós, Helgi Valur, Binni P, Heiða Dóra, Stefán Örn, Siggi Palli, Myster- ious Marta, Bergþór Smári og Michael Pollock og Siggi Sig. Melodica-hátíðin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.