Morgunblaðið - 29.08.2008, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir,
annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson,
Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
„ÞAÐ mun draga úr framkvæmdum
hjá okkur,“ segir Loftur Árnason,
forstjóri Ístaks. Fyrirtækið til-
kynnti um uppsagnir 300 starfs-
manna til Vinnumálastofnunar í
gær, en starfsmenn fyrirtækisins
eru tæplega 1.000 talsins. Á sama
tíma tilkynnti Pósthúsið, sem dreifir
m.a. Fréttablaðinu, um uppsagnir
129 blaðbera hjá fyrirtækinu.
„Þetta er með stærstu uppsögnum
sem við sjáum,“ segir Gissur Pét-
ursson, forstjóri Vinnumálastofn-
unar.
Varrúðarráðstöfun
„Það verður ekkert unnið við
Hraunaveituvirkjun í vetur. Við er-
um einnig með verkefni á Græn-
landi og það verður ekkert unnið
þar eftir áramót. Þessi verkefni eru
árstíðarbundin. Við erum líka með
verkefni í Kárahnjúkum sem er að
ljúka tímabundið en þar verður aft-
ur unnið í vor,“ segir Loftur. Ístak
mun ekki daga úr framkvæmdum á
höfuðborgarsvæðinu. Að sögn Lofts
er tilkynningin til Vinnumálastofn-
unar varúðarráðstöfun, til uppsagna
þurfi ekki að koma ef fyrirtækið fái
stór verkefni á næstunni.
Ístak er með marga erlenda
starfsmenn á sínum snærum en
ekkert liggur fyrir um hverjum
verður sagt upp. Aðspurður sagði
Loftur að ef til þess kæmi að erlend-
um starfsmönnum yrði sagt upp
myndi félagið standa við skuldbind-
ingar sínar gagnvart þeim og greiða
fyrir ferð þeirra til síns heima.
Uppsagnirnar Ístaks taka gildi
31. október nk. en starfsmenn fá
uppsagnarbréf fyrir 1. október.
Flestir starfsmenn fyrirtækisins
eru á eins mánaðar uppsagnarfresti.
Fréttablaðið ekki heim í hús
85 blaðberum Pósthússins hefur
þegar verið sagt upp, verða þeir 129
í heildina. Í kjölfarið mun blaðburð-
ur Fréttablaðsins í heimahús að
mestu leggjast af á landsbyggðinni
og verða settir upp sérstakir stand-
ar þar sem fólk getur nálgast blöð.
Áfram verður dreift í hús á Ak-
ureyri og á höfuðborgarsvæðinu.
„Með stærstu uppsögnum“
300 starfsmönnum Ístaks verður sagt upp 129 starfsmenn Pósthússins missa vinnuna Svartsýni
hjá stéttarfélögum Ístak mun greiða fyrir fargjöld heim ef erlendu starfsfólki verður sagt upp
Morgunblaðið/Kristinn
Viðgerðir Ístak sér um viðhald Hallgrímskirkju. Fyrirtækið mun draga úr
framkvæmdum í kjölfar uppsagna, en klárar sín verkefni í höfuðborginni.
„ÞEIR sem eru
með þriggja
mánaða upp-
sagnarfrest fá
uppsagnarbréf
núna 1. sept-
ember,“ segir
Hannes Hann-
esson, fram-
kvæmdastjóri
Pósthússins.
Aðrir eru með styttri frest og 85
hafa þegar fengið bréf. Það er mis-
jafnt eftir svæðum hvar útburð-
urinn breytist, er það háð uppsagn-
arfresti. „Við erum að bregðast við
breytingum á dreifingarfyrir-
komulagi viðskiptavina okkar,“
segir Hannes, á hann þar við 365
ljósvakamiðla, móðurfélag Frétta-
blaðsins.
Í kjölfar uppsagna blaðbera Póst-
hússins mun Íslandspóstur verða
eina fyrirtækið í dreifingu mark-
pósts á landsbyggðinni, utan Ak-
ureyrar. „Íslandspóstur mun sitja
einn að kökunni,“ segir Hannes.
Samkeppnin
hverfur
Hannes Hannesson
„ÞAÐ ER vissu-
lega áfall þegar
svona stórt fyr-
irtæki eins og Ís-
tak er að segja
upp í þetta mikl-
um mæli,“ segir
Sigurður Bessa-
son, formaður
stéttarfélagsins
Eflingar. Sig-
urður segist fyrst hafa heyrt af
uppsögnum í gær. „Þetta mun hafa
mikil áhrif á byggingamarkaðinn,“
segir Sigurður. „Ef það er engin
hreyfing á þessum markaði og
hann frystir svona niður þá leiðir
það til algjörrar stöðnunar.“ Sig-
urður segist búast við fleiri upp-
sögnum frá öðrum smærri fyr-
irtækjum sérstaklega þegar svona
stórt fyrirtæki er að segja upp í
jafn stórum stíl.
Hann segist jafnframt vonast til
þess að Ístak finni leið til þess ráða
til baka einhvern hluta af þeim
mannskap sem verður sagt upp.
Stéttarfélagið
svartsýnt
Sigurður Bessason
Eftir Þorbjörn Þórðarson og
Halldór Armand Ásgeirsson
„ÞETTA snýst um að verið er að auka nýt-
ingu lóða og byggja hærra en deiliskipulag
gerir ráð fyrir,“ segir Sigurður Þór Sigurðs-
son, íbúi í Lindahverfi í Kópavogi.
Íbúar í Lindahverfi eru óánægðir með bæj-
aryfirvöld vegna fyrirhugaðra framkvæmda í
hverfinu. Búið er að samþykkja að reisa 10
hæða háhýsi í Bæjarlind 8-10 með aðkomu að
Fífuhvammsvegi og til stendur að reisa annað
8-9 hæða hús við verslunina Elko í Skógar-
lind. Samkvæmt tillögu að aðalskipulagi Gust-
svæðisins mun þar rísa 130.000 ferm. skrif-
stofuhúsnæði.
„Það er verið að auka umferð inn í Linda-
hverfið og þegar umferðin verður svona mikil
þá eykst mengun og öryggi skólabarna við
Lindaskóla er ógnað. Við höfum áhyggjur af
öryggi barna okkar,“ segir Sigurður.
Um 300 manns mættu á íbúafund í Linda-
skóla í gærkvöldi vegna framkvæmdanna.
Íbúarnir eru ósáttir með hversu illa breyt-
ingar á deiliskipulagi eru kynntar og hversu
lítið samráð er haft við íbúa.
Atvinnuhúsnæði á kostnað lífsgæða
„Auglýsingunum [er] lætt að fólki þegar
það eru mestar líkur á að það sjái þær ekki,
yfirleitt í byrjun sumars,“ segir Pétur Valdi-
marsson, annar íbúi í Lindahverfi. „Kópavogs-
bær fórnar grænum svæðum inni í grónum
hverfum fyrir atvinnuhúsnæði og umferðar-
mannvirki,“ segir Sigurður. Ætlunin er að
turninn, sem rísa á við Bæjarlind, og sá sem
ætlunin er að reisa við Skógarlind, muni hýsa
um 25.000 fermetra skrifstofuhúsnæði. „Það
er verið að byggja meira atvinnuhúsnæði og
umferðaræðar á kostnað lífsgæða íbúanna,“
segir Sigurður. „Það byggingamagn sem nú
þegar hefur verið samþykkt á svæðinu hefur í
för með sér gífurlega aukningu á umferð, með
tilheyrandi mengun og rýrnun á lífsgæðum
íbúa Lindahverfis. Teljum við, íbúar í Linda-
hverfi, að nóg sé komið. Við mótmælum harð-
lega og skorum á bæjaryfirvöld að láta staðar
numið við uppbyggingu á svæðinu umfram
það sem kveðið er á um í þegar samþykktu
deiliskipulagi svæðisins,“ segir í einni af
mörgum ályktunum íbúafundarins frá því í
gærkvöldi.
„Höfum áhyggjur af öryggi barna okkar“
Mikil óánægja meðal íbúa í Lindahverfi vegna
framkvæmda „Fórna grænum svæðum“
Turn Óánægja íbúa snýr meðal annars að þessum turni sem mun rísa í Skógarlind.
„VIÐ vorum búin
að reikna með
þessu. Stóru fyr-
irtækin eru að
taka til í sínum
rekstri. Það er
eðli verktakafyr-
irtækja að þenj-
ast út og dragast
saman enda háð
stórum verkum,“
segir Gissur Pétursson, forstjóri
Vinnumálastofnunar. Tilkynningar
sem háðar eru lögum um hóp-
uppsagnir eru sendar til Vinnu-
málastofnunar.
„Framundan er aukið atvinnu-
leysi og ástæðulaust að draga úr
því. Góðu heilli hefur það samt
gerst hægar en við reiknuðum
með,“ segir Gissur. Flugleiðir voru
með fjöldauppsagnir fyrr á árinu.
Margir misstu vinnuna um síðustu
mánaðamót þegar Just 4 Kids og
Mest lögðust á aðra hliðina. Ræsir
hefur jafnframt sagt upp öllum
starfsmönnum og hætt rekstri.
Atvinnuleysi
fer vaxandi
Gissur Pétursson
„ÞAÐ ER ákveð-
inn samdráttur í
þjóðfélaginu og
við höfum ekkert
farið varhluta af
honum. […]
Menn hafa [líka]
hikað í stór-
iðjufram-
kvæmdum,“ seg-
ir Loftur Árna-
son, forstjóri Ístaks.
Loftur bendir á að umhverfis-
ráðherra hafi ákveðið að bæði álver
og virkjun við Bakka fari í sameig-
inlegt umhverfismat, sem tefur
framkvæmdir um eitt ár. Ákveðið
hafi verið að fara ekki í prufubor-
anir í Gjástykki. Hann vísar líka til
þess að stækkun við Straumsvík
hafi verið felld í íbúakosningu.
Verklok við Kárahnjúka og árs-
tíðabundin verkefni sem tekið er
hlé í yfir veturinn eru þó aðal-
ástæður fyrirhugaðra uppsagna.
„Hafa hikað í
stóriðjufram-
kvæmdum“
Loftur Árnason
Upplýsingar Samtaka atvinnulífs-
ins og Samtaka iðnaðarins frá að-
ilum á byggingamarkaði bentu til
þess árið 2006 að verktakar
myndu draga úr framkvæmdum á
árinu 2007.
Fyrirhugaðar uppsagnir Ístaks
núna snúa þó aðallega að stórum
framkvæmdum en helmingur af
veltu fyrirtækisins er vegna stór-
iðjuframkvæmda. Minna af smærri
verkefnum helst þó í hendur við
versnandi stöðu fyrirtækja á þess-
um markaði, en spáð er miklum
þrengslum með haustinu.
Upplýsingar frá bygging-
arfulltrúum sveitarfélaga stað-
festu hvert stefndi. Þeir greindu
minni spennu á markaðnum árið
2006 en á árinu 2005. Strax á
árinu 2006 var algengt að lóð-
arhafar hæfu ekki framkvæmdir
þrátt fyrir að vera með bygg-
ingaleyfi.
Fyrirséður samdráttur á byggingamarkaði