Morgunblaðið - 29.08.2008, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ferðamálaskóli Íslands • www.menntun.is • Sími 567 1466
Meðal námsefnis:
• Mannleg samskipti.
• Helstu áfangastaðir
erlendis í máli og
myndum.
• Mismunandi
trúarbrögð.
• Saga landsins,
menning og listir.
• Frumbyggjar og saga
staðarins.
• Þjóðlegir siðir og hefðir.
• Leiðsögutækni og ræðumennska.
Ferðalandafræði: Evrópa, Asía, Africa, Ameríka og Eyjaálfan.
Námið fer fram í formi fyrirlestra og reynslu fararstjóra
í leiðsögn á erlendri grund.
Leiðbeinendur eru: Kjartan Trausti Sigurðsson, Pétur Björnsson, Jóhanna
Kristjónsdóttir, Höskuldur Frímannsson, Sigurður A. Magnússon, Magnús
Björnsson, Pétur Óli Pétursson, Bjarni Randver Sigurvinsson, Bjarni Karlsson.
Fararstjórn erlendis
FRÉTTASKÝRING
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
VELFERÐARRÁÐ Reykjavíkur-
borgar hefur samþykkt að slíta við-
ræðum við Heilsuverndarstöðina/
Alhjúkrun (HA) um rekstur búsetu-
úrræðis með félagslegum stuðningi.
Var sviðsstjóra velferðarsviðs falið
að skoða málið frá grunni, þar með
talið að ræða á ný við þá fjóra aðila
sem sóttust eftir samstarfi. Auk HA
eru þetta SÁÁ, Ekron og Samhjálp.
Að sögn Jórunnar Frímannsdóttur,
formanns velferðarráðs, er vonast
eftir nýrri tillögu á næsta fundi
ráðsins, 10. sept. Hún telur ekki
óeðlilegt að rætt sé aftur við HA,
jafnræðis verði að gæta í málinu.
Jórunn segir það vissulega slæmt að
ekki sé þegar búið að opna þetta bú-
setuúrræði. Brýn þörf sé fyrir
áfangaheimili á borð við þetta. Vel-
ferðarráð hafi á sínum tíma enga
vitneskju haft um greiðsluerfiðleika
eigenda húsnæðisins og talið að HA
gæti útvegað húsnæði, enda hafi það
verið einn af mörgum þáttum sem
hafði áhrif á ákvörðun velferðarráðs
um að semja við HA. Nú þurfi að
ræða aftur við þessa aðila og kanna
aðstæður hjá þeim, enda nokkuð um
liðið síðan tilboðin voru lögð fram.
Velferðarráði barst yfirlýsing frá
HA þar sem m.a. kom fram að fyr-
irtækið gæti ekki staðfest að fyr-
irhugað húsnæði undir starfsemina
yrði fyrir hendi. Um er að ræða rað-
hús við Hólavað 1-11 í Norð-
lingaholti í Reykjavík. Eigandi
húsanna varð gjaldþrota og leysti
Byr sparisjóður eignirnar til sín.
Treystu aðstandendur HA sér ekki
til þess að útvega húsnæðið innan
þess tímaramma sem borgaryfirvöld
gerðu kröfu um, eða fyrir 1. ágúst
sl.
Með annað húsnæði í sigtinu
Gestur Pétursson, stjórn-
arformaður HA, segir að óskað hafi
verið eftir samningum við viðkom-
andi banka. Það hafi ekki tekist og
því sé húsnæðið ekki lengur til taks.
Aðspurður telur Gestur eðlilegt að
rætt verði við HA aftur þó að svona
hafi farið, fyrirtækið hafi ekki gert
neitt rangt. Það standi við alla aðra
þætti í tilboðinu og sé komið með
annað húsnæði í sigti.
Málið hófst með með því að í nóv-
ember á síðasta ári auglýsti velferð-
arsvið, í samstarfi við félagsmála-
ráðuneytið, eftir samstarfsaðilum til
að reka búsetuúrræði með fé-
lagslegum stuðningi fyrir allt að 20
einstaklinga. Um er að ræða fólk
sem var áður m.a. hýst hjá Byrginu
og hefur glímt við mikinn áfengis-
og vímuefnavanda auk geð-
sjúkdóma.
Fjórir aðilar svöruðu auglýsingu
um samstarf, sem fyrr segir. Rætt
var við alla aðilana og þeir taldir
uppfylla faglegar kröfur. Það var
síðan á fundi velferðarráðs 9. apríl
sl. að ákveðið var að ganga til sam-
starfs við Heilsuverndarstöðina/
Alhjúkrun. Var tillagan samþykkt
samhljóða af öllum fulltrúum ráðs-
ins. Þótti útfærsla hugmynda fyr-
irtækisins best mótuð á grundvelli
faglegra forsendna sem fram komu í
auglýsingunni, og húsnæðið þótti
ennfremur hentugt.
Fólkið á hrakhólum
Þorleifur Gunnlaugsson, fulltrúi
VG í minnihluta velferðarráðs, hefur
hins vegar gagnrýnt málsmeðferð-
ina eftir að upp komst um húsnæð-
isvandræðin. Hann bendir á að dag-
inn áður en tillaga um samstarf við
HA var samþykkt í velferðarráði
hafi eigandi húsanna í Hólavaði ver-
ið tekinn til gjaldþrotaskipta. Þetta
hafi komið í ljós síðar, þegar við-
ræður við þessa aðila voru hafnar
fyrir alvöru. Hann telur SÁÁ hafa
verið með hagkvæmasta tilboðið og
segir nú í samtali við Morgunblaðið
að eðlilegast sé að velferðarsvið
borgarinnar hefji viðræður við SÁÁ.
Óeðlilegt sé að hefja aftur viðræður
við HA. Þorleifur segir mikinn
skaða hafa hlotist af málinu, engin
úrræði hafi verið fyrir þetta fólk og
það verið á hrakhólum síðustu mán-
uði. Hann bindur vonir við að málið
leysist á næstu tveimur vikum.
Morgunblaðið/Frikki
Húsnæði Raðhúsin við Hólavað 1-11 í Norðlingaholti voru ekki til reiðu í tæka tíð. Eigandinn varð gjaldþrota.
Byrjað upp á nýtt
Heilsuverndarstöðin/Alhjúkrun gat ekki útvegað húsnæði
með félagslegum stuðningi í tæka tíð Viðræður hefjast á ný
Í HNOTSKURN
»Auglýst var fyrst eftir bú-setuúrræðum með fé-
lagslegum stuðningi í nóv-
ember sl.
»Velferðarráð samþykkti íapríl sl. að ganga til við-
ræðna við Heilsuverndarstöð-
ina/Alhjúkrun.
»Viðræðunum hefur veriðslitið og aftur verður rætt
við alla tilboðsgjafa.
OPINBER heimsókn Geirs H.
Haarde forsætisráðherra til Grikk-
lands hófst í gær með viðhöfn og átti
hann langan fund með Kostas Kar-
amanlis, forsætisráðherra Grikk-
lands. Þeir ræddu samstarf og sam-
skipti ríkjanna, m.a. leiðir til að auka
gagnkvæm viðskipti og fjárfestingar.
„Það er gaman að því að hér, rétt
eins og í Albaníu, eru aðalgöturnar
skreyttar með íslenska fánanum í til-
efni heimsóknarinnar,“ segir Geir.
Í lok fundarins var gríska forsætis-
ráðherranum boðið að sækja Ísland
heim og tók hann vel í það boð að
sögn Geirs. unas@mbl.is
Götur Aþenu voru prýddar íslenska fánanum við komu forsætisráðherra
Ræddu
samstarf
ríkjanna
Ljósmynd/Gréta Ingþórsdóttir
Móttaka Geir H. Haarde fundaði með Kostas Karamanlis og ræddu þeir m.a. leiðir til að auka gagnkvæm viðskipti.
TÓMAS H. Heiðar, þjóðréttarfræð-
ingur hjá utanríkisráðuneytinu, seg-
ir að það þjóni engum tilgangi fyrir
einstök ríki að skila greinargerð til
landgrunnsnefndar Sameinuðu þjóð-
anna um landgrunn á umdeildum
hafsvæðum á borð við Hatton
Rockall-svæðið, líkt og Bretar
hyggjast gera.
Stefnt að viðræðufundi í
Reykjavík innan skamms
Bretar hafa farið fram á það við
landgrunnsnefnd SÞ að þeir fái full
yfirráð yfir Hatton-Rockall svæðinu.
Breska dagblaðið Guardian hefur
eftir breskum embættismönnum, að
viðræður þeirra og Íra við Íslend-
inga og Dani um skiptingu svæðisins
hafi siglt í strand. Þessu vísar Tómas
Heiðar á bug og segir, að stefnt sé að
því að halda næsta viðræðufund í
Reykjavík innan nokkurra vikna.
Tómas segir að fyrir liggi að land-
grunnsnefndin geti ekki og muni
ekki fjalla um greinargerðir ríkja um
kröfur nema öll ríki, sem geri tilkall
til viðkomandi svæðis, samþykki
það.
„Ísland mun ekki fallast á að
nefndin fjalli um greinargerðir ein-
stakra deiluaðila að Hatton Rockall-
málinu. Þar við bætist að almennir
frestir til að skila greinargerðum til
landgrunnsnefndarinnar gilda ekki
um landgrunn á umdeildum haf-
svæðum á borð við Hatton Rockall-
svæðið,“ segir hann.
Ísland mun á næsta ári skila
greinargerð um landgrunn í syðri
hluta Síldarsmugunnar og á Reykja-
neshrygg en bíða með greinargerð
um Hatton Rockall-svæðið, enda
þjónar slík greinargerð engum til-
gangi við núverandi aðstæður að
sögn Tómasar.
Ótvíræð afstaða Íslands
Hann segir aðila Hatton Rockall-
málsins, Ísland, Bretland, Írland og
Danmörk, fyrir hönd Færeyinga,
vera sammála um að halda áfram
viðræðum um málið sem snúast m.a.
um skiptingu svæðisins. „Afstaða Ís-
lands er ótvírætt sú að rétt sé að
stefna að því að aðilarnir fjórir nái
fyrst samkomulagi sín á milli um
skiptingu landgrunns á Hatton-
Rockall-svæðinu en skili að því loknu
sameiginlegri greinargerð til land-
grunnsnefndarinnar um ytri mörk
landgrunnsins.“ jonpetur@mbl.is
Greinargerðin
er tilgangslaus
Tómas Heiðar segir að viðræður um
Hatton-Rockall hafi ekki siglt í strand
BJÖRGVIN G. Sigurðsson við-
skiptaráðherra hefur óskað eftir
upplýsingum um þróun verðlags
frá Samkeppniseftirlitinu og Neyt-
endastofu, sökum ábendinga frá
samtökum neytenda og fleiri að-
ilum.
„Bent hefur verið á að smá-
söluverð á bifreiða- og vélaelds-
neyti hafi ekki fylgt að fullu nýleg-
um lækkunum á heims-
markaðsverði á hráolíu eða
innflutningsverði á eldsneyti. Þar
af leiðandi hafi álagning í olíu-
verslun farið hækkandi síðustu
mánuði,“ segir á vefsvæði ráðu-
neytisins.
Þar segir einnig að þar sem um
er að ræða brýnt hagsmunamál
fyrir almenning, og skoðanir séu
mjög skiptar, telji ráðuneytið
nauðsynlegt að varpa skýrara ljósi
á staðreyndir málsins.
andri@mbl.is
Skoðanir
mjög skiptar