Morgunblaðið - 29.08.2008, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÞVÍ miður er
sviðin jörð eftir
marga sem kom-
ið hafa beint inn
af götunni til að
starfa við fast-
eignasölu án
þess að hafa til
þess neina kunn-
áttu, segir Ingi-
björg Þórðar-
dóttir, formaður
Félags fasteignasala.
Ingibjörg segir að það sé mikið
skref aftur á bak þegar löggiltir
fasteignasalar séu farnir að
leggja inn leyfi vegna kostnaðar
sem því fylgir að halda þeim.
Óréttlátt sé að þeir séu að borga
fyrir eftirlit með sjálfum sér. Það
sé réttlætismál að opinber aðili,
t.d. Fjármálaeftirlitið, annist
þetta eftirlit.
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
ÞAÐ sem af er þessu ári hafa 32 lög-
giltir fasteignasalar skilað inn leyf-
um sínum til sýslumannsins í Hafn-
arfirði, sem gefur leyfin út.
Ætla mætti að helsta ástæðan sé
samdráttur í fasteignasölu en svo er
ekki, að sögn talsmanna Félags fast-
eignasala. Segja þeir aðalástæðuna
þá að löggiltir fasteignasalar sjái
ekki ástæðu til þess að greiða 100
þúsund krónur á ári hver í eftirlits-
gjald þegar sumar fasteignasölur
komist upp með að hafa aðeins einn
löggiltan fasteignasala en allt að 40
ófaglærða sölufulltrúa. Grétar Jón-
asson, framkvæmdastjóri Félags
fasteignasala, segir að lögum sam-
kvæmt eigi löggiltir fasteignasalar
að annast fasteignasölu, enda sé í
flestum tilfellum um að ræða
stærstu viðskipti sem einstaklingar
geri á lífsleiðinni. Stórar og öflugar
fasteignasölur hafi kosið að hafa 10-
12 löggilta fasteignasala saman í
vinnu. Þessar fasteignasölur séu að
borga meira en milljón á ári til eft-
irlitsnefndar með fasteignasölum.
Stofur með einum löggiltum fast-
eignasala og kannski 20–30 sölu-
fulltrúum séu að borga 100 þúsund
krónur á ári. Stóru stofurnar séu því
í raun að borga fyrir eftirlitið með
hinum stofunum.
Grétar segir að á fasteignamark-
aðinum séu mál ekki í því horfi sem
gera má kröfur um og Félag fast-
eignasala hafi af því miklar áhyggj-
ur. Það gangi hreinlega ekki upp að
fólk starfi við fasteignasölu, sem viti
jafnvel minna um fasteignir en
kúnninn sem leitar til stofunnar.
Dæmi séu um að fasteignasölur hafi
haft 20–30 sölumenn sem starfa
mjög sjálfstætt og þetta fólk borgi
háar fjárhæðir mánaðarlega fyrir að
fá að vinna við fasteignasölu. Einn
löggiltur fasteignasali hafi svo eft-
irlit með öllum viðskiptunum og því
sem fram fer milli sölumannanna og
neytendanna. Það segi sig sjálft, að
hann geti ekki með nokkrum hætti
haft yfirsýn yfir allt sem gerist.
Nýtt frumvarp um fasteignasölu
er til meðferðar í þinginu og segir
Grétar að mikilvægt sé að styrkja
stöðu fasteignasalans. Hann segir
Björgvin G. Sigurðsson viðskipta-
ráðherra hafa tekið vel í ábendingar
Félags fasteignasala.
Fasteignasalar leggja inn leyfin
Finnst dýrt að borga 100 þúsund krónur
fyrir eftirlit þegar aðrir sleppa við það
Morgunblaðið/Árni Torfason
VILJI er innan
allsherjar-
nefndar Alþingis
til að gera meiri
breytingar á lög-
um um nálg-
unarbann en fel-
ast í laga-
frumvarpi
dómsmálaráð-
herra. Þetta seg-
ir Birgir Ár-
mannsson, formaður nefndarinnar,
en hún ræddi frumvarpið á fundi
sínum í gær. Tilgangur þess er ekki
að ná fram miklum efnislegum
breytingum heldur liggja að sögn
Birgis lagatæknilegar ástæður að
baki því. Felur frumvarpið meðal
annars í sér að ákvæði um nálg-
unarbann hverfa úr lögum um með-
ferð opinberra mála og verða að
sjálfstæðum lagabálki. Auk þess
inniheldur það breyttar málsmeð-
ferðarreglur.
Hugmyndir um að færa heimild
til að leggja á nálgunarbann frá
dómstólum til lögreglu eða ákær-
enda hafa verið ræddar en nefnd-
inni hafa borist fjöldamargar at-
hugasemdir í þá veru. Eins er til
skoðunar hvort þurfi að endur-
skoða skilyrði nálgunarbanns.
Að sögn Birgis þurfa lög um
nálgunarbann að taka gildi ekki
síðar en um áramót. Þá falla nú-
gildandi ákvæði í lögum um op-
inber mál úr gildi. Hann segir of
snemmt að segja til um hvort frum-
varpið verði að lögum áður en þingi
lýkur um miðjan september næst-
komandi. skulias@mbl.is
Vilji til
breytinga
Birgir
Ármannsson
FIMM manna starfshópi verður
gert að ljúka gerð siðareglna fyrir
kjörna fulltrúa Reykjavíkur-
borgar. Borgarráð samþykkti í
gær tillögu borgarstjóra þess efn-
is. Síðastliðið haust var skipuð rit-
stjórn um starfs- og siðareglur en
hún náði ekki að klára vinnu sína.
Fyrir liggja þó drög að siða-
reglum, auk ýmissa undirbúnings-
gagna.
Í tilkynningu frá skrifstofu
borgarstjóra kemur fram að sam-
staða hafi ríkt um mikilvægi siða-
reglna fyrir kjörna fulltrúa á kjör-
tímabilinu. Ekki náðist í Regínu
Ásvaldsdóttur, skrifstofustjóra
borgarstjóra, vegna málsins en
telja má víst að tekið verði á ýms-
um álitamálum með reglunum.
Hópurinn á að skila niðurstöðu
sinni fyrir 1. desember nk.
Siðareglur
að veruleika
FLAGGAÐ var í hálfa stöng við opinberar
byggingar í gær vegna andláts dr. Sigurbjörns
Einarssonar biskups, meðal annars við Þjóð-
menningarhúsið á Hverfisgötu. Þar voru menn
staddir að mála húsið og hlífa það þannig fyrir
veðrum og vindum.
Morgunblaðið/Ómar
Flaggað í hálfa stöng
BORGARRÁÐ samþykkti á fundi
sínum í gær að fela framkvæmda-
og eignasviði að endurskoða reglur
um lóðaúthlutanir, í ljósi núverandi
efnahagsástands. Samkvæmt til-
lögu borgarstjóra verður miðað að
því að létta greiðslubyrði hús-
byggjenda. Unnið verður hratt og
endurskoðaðar reglur á að leggja
fyrir borgarráð ekki síðar en 1.
október nk.
Fulltrúar Samfylkingar og
Vinstri grænna komu að auki með
tillögu um að sérstaklega yrði hug-
að að lóðaúthlutunum fyrir leigu-
íbúðir, og var tillagan samþykkt.
Fleiri mál voru tekin fyrir, m.a.
niðurskurður hjá Strætó bs.
Fulltrúar Samfylkingar og VG
lögðu fram tillögu um að ráðið
samþykkti að námsmenn sem ættu
lögheimili utan Reykjavíkur fengju
einnig frítt í strætó, auk þess að
fara fram á að fulltrúi Reykjavíkur
í stjórn Strætó beitti sér fyrir að
skipt yrði um formann stjórnar.
Þeim tillögum var frestað.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks bókuðu að eftir
umræðu í borgarstjórn yrði und-
irbúinn sérstakur vinnufundur allr-
ar borgarstjórnar. andri@mbl.is
Greiðslubyrði hús-
byggjenda verði létt
Reglur um lóðaúthluanir verða endurskoðaðar fyrir 1. okt.
Í HNOTSKURN
»Ólafur F. Magnússon,fyrrverandi borgarstjóri,
óskaði eftir upplýsingum um
ferða- og dagpeninga, veislu-
og risnukostnað sérhvers
borgarstjóra árin 2005-2008.
»Hann vill auk þess aðgerð verði grein fyrir
símakostnaði borgarfulltrúa
og varaborgarfulltrúa sömu
ár.
Ingibjörg
Þórðardóttir
Sviðin jörð
eftir marga
LÖGREGLUNNI á höfuðborgar-
svæðinu barst tilkynning um innbrot
í einbýlishús í Seljahverfi laust eftir
hádegið í gærdag. Húsráðendur
voru við vinnu þegar brotist var inn
og að sögn lögreglunnar voru mikil
verðmæti tekin, aðallega rafmagns-
tæki og skartgripir. Enginn hafði
verið handtekinn í gærkvöldi en mál-
ið er í rannsókn.
Segja má að innbrotahrina hafi
gengið yfir höfuðborgarsvæðið í
fyrrinótt en þá var brotist inn í fjög-
ur fyrirtæki, tvö í Kópavogi og tvö í
Hafnarfirði. Fyrirtækin sem um
ræðir eru skyndibitastaðir og ein
vídeóleiga. Einhverjum fjármunum
var stolið á öllum stöðunum og taldi
lögregla í gær ekki útilokað að málin
tengdust. andri@mbl.is
Innbrot í
Seljahverfi