Morgunblaðið - 29.08.2008, Page 12
12 FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
E
N
N
E
M
M
/S
ÍA
/N
M
35
17
2
Í Núllinu þarf fjölskyldan ekki að borga krónu þegar hún hringir
úllSkráðu fjöl-skylduna í síma800 7000eða ásiminn.isán tafar!
FRÉTTASKÝRING
Eftir Unu Sighvatsdóttur
unas@mbl.is
SÁ Íslendingur er varla til sem ekki
hefur hrifist með handboltabylgjunni
síðustu vikur. Handbolti hefur enda
gjarnan verið kallaður þjóðaríþrótt
Íslendinga þótt hann sé að vísu aðeins
fjórða fjölmennasta íþróttagreinin
samkvæmt tölfræði ÍSÍ frá 2006. Fá-
ar íþróttir hafa hins vegar jafnoft
hrundið af stað viðlíka æði og þjóðin
er haldin þessa dagana og má gera
ráð fyrir að áhuginn skili sér í fleiri
iðkendum.
Liðum hefur fækkað á landsvísu
„Þegar við stöndum okkur vel á
svona stórmótum þá er alltaf mikil
bylgja af ungu fólki sem kemur inn og
nú er bara vonandi að það verði aftur
og sem flest af því unga fólki verði
áfram,“ segir Guðmundur Ágúst
Ingvarsson, formaður HSÍ.
Handboltinn hefur átt undir högg
að sækja síðustu ár rétt eins og aðrar
íþróttagreinar og ef litið er til baka
um tvo áratugi má sjá að á landsvísu
hafa 17 handboltalið hætt starfsemi
frá leiktímabilinu 1985-1986. Það er
sérstaklega á landsbyggðinni sem
ástundunin virðist hafa dalað og eru
nú þónokkur bæjarfélög sem áður
voru virk þar sem handbolti er nú
ekki stundaður að neinu ráði.
Að sögn Guðmundar er þó stöðugt
unnið að því innan HSÍ að viðhalda
áhuganum. Þar er starfrækt fræðslu-
og útbreiðslunefnd sem hefur unnið
að útbreiðslu íþróttarinnar en auk
þess var í mars síðastliðnum stofnuð
ný staða hjá sambandinu þegar Krist-
ján Halldórsson var ráðinn íþrótta-
stjóri og er hlutverk hans m.a. að efla
námskeiðahald og fræðslu um hand-
boltann.
Sigurganga handboltaliðsins nú
ætti að gefa því starfi byr undir báða
vængi. „Ég hef fulla trú á því að þessi
árangur eigi eftir að skila sér. Við
vonum að sem flest ungt fólk skelli
sér á æfingu hjá félögunum og sjái
gildi þess og ánægjuna sem fylgir því
að vera virkur í íþróttum.“
Handboltahreyfingin styrkt
Eins og fram hefur komið hefur
HSÍ hlotið umtalsverða styrki í kjöl-
far ólympíusilfursins. Ríkisstjórnin
ákvað að veita 50 milljónir til starfs-
ins. Þá hefur Reykjavíkurborg stofn-
að sjóð sem styrkja á kynni ung-
menna af íþróttinni næstu fjögur ár.
Það stefnir því ekki í annað en að
handbolti verði þjóðaríþrótt með
rentu.
Handboltajárnið hamrað
Handboltaiðkun
gengur í bylgjum
og nú má enn eiga
von á aukningu
Morgunblaðið/Kristinn
Grunnurinn Margir íþróttamenn taka sín fyrstu skref á sumarnámskeiðum eins og því sem þessir krakkar sóttu í
ágúst hjá meistaradeild Vals í handbolta. Mörg íþróttafélög héldu handboltanámskeið í sumar við góðar undirtektir.
Í HNOTSKURN
»Íslenska handboltaliðiðhefur oft náð undraverð-
um árangri á stórmótum sem
virkar jafnan eins og vítamín-
sprauta fyrir íþróttaiðkun
ungmenna í landinu.
»Síðasta vetur voru allstuttugu og fimm meist-
araflokkslið í deildarkeppni
karla og kvenna í handknatt-
leik, en tímabilið 1985-1986
voru þau 42.
ÍÞRÓTTAKENNURUM ber al-
mennt saman um að handbolta-
áhuginn hjá krökkunum hafi verið
mikill þessa fyrstu skóladaga.
Þórunn Erlingsdóttir, íþrótta-
kennari hjá Grunnskóla Grindavík-
ur, segir að undanfarin ár hafi allt-
af verið vaxandi áhugi í kringum
stórmót og þá kvikni alltaf einhver
vilji til að æfa. Í íþróttakennslunni
sé reynt að koma til móts við það,
enda ekki annar vettvangur fyrir
krakkana því undanfarin ár hefur
ekki verið handboltalið á Suð-
urnesjum. Það stendur þó vonandi
til bóta því áhugamenn í Reykja-
nesbæ stefna nú að stofnun nýrrar
handboltadeildar fyrir yngstu
flokkana eins og fréttir bárust af
fyrr í vikunni.
Grunnskólamót í Grafarvogi
Í Rimaskóla er handboltinn líka
stundaður af kappi þessa dagana.
Eyrún Ragnarsdóttir íþróttakenn-
ari ætlar að leggja kennslu næstu
viku alfarið undir handboltann,
m.a. til að búa krakkana undir ár-
legt skólamót í handbolta sem hald-
ið verður í september.
Það er handknattleiksdeild
Fjölnis sem stendur fyrir mótinu
meðal grunnskóla í Grafarvogi og
er þetta þriðja árið sem það er
haldið. Nú í lok sumars var líka
endurvakinn handboltaskóli Fjölnis
í fyrsta skipti í mörg ár og segir
Ragnheiður Þórarinsdóttir að að-
sóknin hafi farið fram úr vonum.
Eins er meistaraflokkur Fjölnis ný-
vaknaður úr sex ára dvala og mun
því keppa í fyrstu deildinni í fyrsta
skipti síðan árið 2002. unas@mbl.is
Vinsæll lið-
ur í leikfimi-
kennslunni