Morgunblaðið - 29.08.2008, Side 15

Morgunblaðið - 29.08.2008, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2008 15 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF  %  $     - .                   ' !  )"#     ÞETTA HELST ...  "/      !"#$" %"& '()*+,"-,*..+ 0!1    ! $% $&  ' ( )* $& '' +, ( )* $& - $& ( . ' $& /$& 0'* $1 2 3  4%   ( )* $& 5 )*62 ' $& 7 . ' 3  $&   $& 89  )0) ) : ; <; $&.& $& =) $& 2  0     %   >  % 8 )0 8? ' ' @ > A  < $& >0 $& B),: $&  )  3   C) > )0)0 C& / (  $& / 0*:<  $& 4 5                                         !"#  # ! $!# ! %$#  $$# ! &$# ! '(#  %'#  #  %(#  # ! &# % (!# ' !%# B  .: D '  5 )*  F##&G## !&#"#&### H"&"!!&I!# !G&FF"&!J" IK&"#!&#FK "&!I!&"#! HH& KF&FKI FK!&K J&HKI FG& !&! " &HKI&### G&KH!&### "G&G!G&GJ# # # HJ&IG#&GJH I"& "!&### GLGJ !L#! HGLF# ILII !LF# "LH# JLJ! I #L## H"L## K!L!# FL## JLHG J#LG# H##L## GF#L## HHKL## !IL## "#F#L## #L## GLIF !L#G HGL"! ILK# !LF! "L"# H#L # I "L## H"L ! K!LK# FL"! JLF# J L # H#FL## G!#L## HF!L## G#L## H LJ# LJ# KL!# " H!L## #L!# !L## <, + I I HF ! " "" # G # H G 2 +:'&+ : HK&K&H##K HK&K&H##K HK&K&H##K HK&K&H##K HK&K&H##K HK&K&H##K HK&K&H##K HK&K&H##K HK&K&H##K HK&K&H##K HK&K&H##K HK&K&H##K HI&K&H##K HI&K&H##K HI&K&H##K HI&K&H##K HK&K&H##K G&I&H##K H!&K&H##K F&G&H##K HK&K&H##K "&K&H##K I&F&H##K   ● ÚRVALSVÍSITALAN í kauphöllinni á Íslandi lækkaði um 0,2% í gær og er lokagildi hennar 4.233 stig. Heildar- viðskipti í kauphöllinni námu um 15 milljörðum. Þar af voru viðskipti með skuldabréf fyrir 14,1 milljarð og hlutabréf einungis fyrir um 800 millj- ónir. Mest lækkun varð á hlutabréf- um Eimskipafélagsins, 1,7%, en mest hækkun á bréfum Føroya Bank, 4,6%. gretar@mbl.is Lækkun í kauphöllinni ● TAP Sparisjóðsins í Keflavík nam 10,6 milljörðum króna eftir skatta á fyrri hluta ársins samanborið við 4,6 milljarða króna hagnað á sama tíma á síðasta ári. Eigið fé SPKef nam 12 milljörðum hinn 30. júní 2008 og var CAD eig- infjárhlutfall 10,31%. Hreinar vaxtatekjur sparisjóðsins námu 992 milljónum og hreinar þjón- ustutekjur 244 milljónum. Hreinar rekstrartekjur voru neikvæðar um 9,95 milljarða, m.a. vegna óheppi- legrar þróunar á hlutabréfamörk- uðum. bjarni@mbl.is SPKef tapar 10,6 milljörðum króna ● TAP HB Granda á fyrri helmingi þessa árs nam 3,2 milljörðum króna, en á sama tímabili í fyrra var 2,9 milljarða króna hagnaður á rekstri fyrirtækisins. Mikið munar um áhrif verðbólgu og gengisfalls krónunnar, en gengis- munur og verðbætur voru neikvæð upp á rúma 4,5 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum þessa árs, en á sama tímabili í fyrra var þessi liður jákvæður upp á tæpa tvo milljarða króna. Eigið fé félagsins dróst sam- an um 32,7% og var í lok tímabilsins 6,5 milljarðar. bjarni@mbl.is Gengi og verðbólga leika HB Granda grátt Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is MP Fjárfestingarbanki sker sig að mörgu leyti frá Icebank og VBS fjár- festingarbanka í frammistöðu sinni á fyrri helmingi ársins. Þegar bank- arnir þrír eru bornir saman sést að MP er ekki aðeins sá eini þeirra sem skilar hagnaði á tímabilinu, heldur jók bankinn hagnað sinn miðað við sama tímabil árið 2007. Fór hann úr 1,1 milljarði í 1,5 milljarða á milli ára. Hagnaður Icebank á fyrri helmingi árs 2007 var 4,2 milljarðar króna en á sama tímabili í ár var hins vegar 2,8 milljarða króna tap á rekstri bank- ans. VBS fór úr 1,1 milljarðs króna hagnaði á fyrri helmingi árs í fyrra í 870 milljóna króna tap í ár. Afskriftir og virðisrýrnun útlána aukast umtalsvert hjá bönkunum þremur milli ára. Hjá Icebank fer þessi liður úr 55 milljónum króna í 3,9 milljarða, hjá MP úr 3 milljónum í 44,9 milljónir og hjá VBS úr 35,9 milljónum í 777,1 milljón. MP sker sig jafnframt frá hinum bönkunum tveimur að því leyti að eigið fé hans jókst á fyrstu sex mán- uðum ársins úr 6,2 milljörðum í 7,5 milljarða. Eigið fé Icebank dróst hins vegar saman um 2,5 milljarða og var 10,8 milljarðar í lok tímabils- ins á meðan eigið fé VBS dróst sam- an um tæpa 1,2 milljarða og var 7,1 milljarður í lok júní. Misgóð afkoma smærri fjárfestingarbanka Í HNOTSKURN » CAD-eiginfjárhlutfall MPFjárfestingarbanka var 29,6% í lok júní, 16,9% hjá VBS og 10,9% hjá Icebank. » Eignir bankanna allrajukust á tímabilinu, en eignir VBS jukust um 58,2% og eru 55,7 milljarðar. Eignir MP jukust um 29,8% og eru 68,2 milljarðar og eignir Ice- bank jukust um 18% og eru 298 milljarðar króna. » Hreinar vaxtatekjur Ice-bank og MP jukust, en drógust hins vegar saman hjá VBS, þótt ekki hafi samdrátt- urinn í þessum lið uppgjörsins verið mikill. Morgunblaðið/Ásdís Lægð Yfirstandandi hremmingar á hlutabréfa- og fjármálamörkuðum hafa bitnað mjög illa á mörgum fjármálafyrirtæki, einkum þeim sem smærri eru. SAMSON eignarhaldsfélag, sem er í eigu feðganna Björgólfs Guðmunds- sonar og Björgólfs Thors Björgólfs- sonar, hagnaðist um 35,8 milljarða króna eftir skatta á fyrri helmingi þessa árs. Á sama tímabili á síðasta ári var hins vegar um 3,2 milljarða tap af rekstri félagsins. Mesta breytingin í uppgjöri fé- lagsins milli ára er sú að gengishagn- aður á fyrri helmingi þessa árs nem- ur 19,5 milljörðum króna. Í fyrra var hins vegar gengistap upp á 12,1 milljarð. Þá var tekjufærður tæplega 6 milljarða króna söluhagnaður vegna sölu á fjárfestingarfélaginu Samson Properties til Novator Properties. Hlutdeild í hagnaði Landsbankans var svipuð og í fyrra eða 12,5 milljarðar. gretar@mbl.is Hagnaður eykst mikið Mikill gengishagn- aður hjá Samson GREINING Glitnis hefur breytt spá sinni varðandi stýrivexti Seðla- bankans. Nú telur deildin að stýri- vextir bankans verði óbreyttir, 15,5%, út þetta ár. Í síðasta mánuði spáði hún því hins vegar að vext- irnir yrðu lækkaði í 15,0% í nóv- ember næstkomandi. Í Morgunkorni Greiningar Glitn- is segir að verðbólguhorfur það sem eftir lifir árs séu dekkri en Seðlabankinn gerði ráð fyrir í síð- ustu verðbólgu- og þjóðhagsspá sem birt var 3. júlí síðastliðinn. gretar@mbl.is Spá óbreyttum vöxtum út árið VERÐBÓLGUMARKMIÐ Seðlabanka Íslands er 2,5% með 1,5% vikmörkum í hvora átt. Þetta þýðir að bankinn hefur svigrúm upp á 1-4%, sem er meiri sveigjanleiki en hjá flestum öðr- um löndum, sem hafa verðbólgumark- mið. Í Hálffimm fréttum greiningar- deildar Kaupþings segir hins vegar að Seðlabankinn hafi frá 2005 látið sem þessi vikmörk séu ekki til þegar peningamálastefna bankans sé rök- studd og skýrð. Þess í stað miði hann einungis við einn punkt, 2,5%. Þannig hafi verið verulega þrengt að svigrúmi Seðlabankans til að styðja við stöðugleika og hamla samdrætti í efnahagslífinu. Telur greiningardeild Kaupþings að lykilatriði sé fyrir bankann að geta sýnt sveigjanleika án þess að glata trúverðugleika, sem sé einmitt það svig- rúm sem vikmörkin eigi að gefa. Því væri raunhæfara markmið fyrir Seðlabankann að ná verðbólgu niður fyrir 4% fyrir mitt ár 2010 í stað 2,5%. bjarni@mbl.is Nýtir ekki sveigjanleika verðbólgumarkmiðs SAMEINING prentfyrirtækjanna Odda, Gutenberg og Kassagerðar- innar undir nafni Odda, sem tilkynnt var um í fyrradag, er fyrst og fremst gerð til að straumlínulaga rekstur- inn og gera sameinað fyrirtæki betur í stakk búið til að sækja inn á mark- aðinn. Þetta segir Jón Ómar Erlingsson, sem hefur verið fram- kvæmdastjóri Kassagerðarinnar frá síðasta ári, en hann hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra hins sam- einaða fyrirtækis, Odda. „Við erum með þessu að ljúka sameiningu fyrirtækjanna sem hófst árið 2006,“ segir Jón Ómar. „Þau hafa verið í eigu sama aðila, Kvosar hf., síðan, en þá var byrjað að sam- eina framleiðsluna, stoðdeildir, tölvukerfi og annað þess háttar. Í raun var búið að sameina allt nema vörumerkin og markaðsstarfið, en nú er verið að stíga það skref.“ Jón Ómar segir að prentmarkað- urinn sé stöðugri en margt annað. Hann æði ekki upp í góðæri og taki ekki dýpstu dýfurnar þegar sam- dráttur gengur yfir. Engu að síður sé þetta ákveðin barátta, því það sé auðveldara en áður að leita út fyrir landsteinana eftir ýmiss konar vörum og þjónustu. „Við höfum lagt áherslu á að mæta þessu með því að auka þjónustuna í kringum sjálft prentverkið. Við er- um nær viðskiptavininum en erlendu samkeppnisaðilarnir og getum brugðist hraðar við og verið með persónulegra samband. Þannig hef- ur okkur tekist að standa okkur ágætlega í samkeppninni.“ Að sögn Jóns Ómars er markaðs- hlutdeild hins sameinaða fyrirtækis Odda á bilinu 35-40%. Hann segir að mannabreytingar verði óverulegar, stjórnunarstörfum muni fækka eitt- hvað en sölustörfum hins vegar fjölga. Þá segir hann að fjárhagur fyrirtækisins sé traustur og verk- efnastaðan góð. Gutenberg er elsta prentsmiðja landsins, stofnuð 1904. Kassagerðin hóf starfsemi 1932 og Oddi 1943. Þrjár prentsmiðjur í eigu Kvosar sameinast undir nafni Odda Betur í stakk búið til sóknar Morgunblaðið/Golli Stjórinn Jón Ómar hefur tekið við sem framkvæmdastjóri Odda. Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is ● STJÓRN hálfopinbera bandaríska íbúðalánasjóðsins Fannie Mae styð- ur forstjórann, Daniel Mudd, í til- raunum hans til að reisa sjóðinn við. Fannie Mae hefur farið mjög illa út úr þeim hremmingum sem verið hafa á bandarískum húsnæðismarkaði að undanförnu. Mudd hefur meðal annars sagt upp þremur af æðstu stjórnendum sjóðsins. Fjármálastjórinn Stephen Swad er einn þeirra sem hafa misst vinnuna, en hann var áður yfirend- urskoðandi bandaríska fjármálaeft- irlitsins. gretar@mbl.is Hreinsað til í yfir- stjórn Fannie Mae

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.