Morgunblaðið - 29.08.2008, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2008 17
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT Norð-
urlands, í samstarfi við Leikfélag
Akureyrar, flytur leikhúsverkið
Sögu dátans eftir Igor Stravinsky
á Akureyrarvöku á morgun.
Guðmundur Óli Gunnarsson er
stjórnandi hljómsveitarinnar.
Hann segir verkið samið á árum
fyrri heimsstyrjaldarinnar, en
Stravinsky bjó þá Sviss.
„Stravinsky skrifar verkið fyrir
sjö manna hljómsveit,“ segir Guð-
mundur Óli. „Hann var snillingur í
að skrifa fyrir hljóðfæri og hljóm-
sveitir og útkoman er þannig að
maður gæti haldið að hljóðfærin
væru miklu fleiri.
Verkið er krefjandi fyrir hljóð-
færaleikarana en er samt býsna
áheyrilegt, þótt það hafi verið
nýjabragur á því þegar það var
frumflutt árið 1918.“
Saga dátans er skrifað fyrir
þrjá leikara og ballerínu en er oft
flutt með sögumanni, eins og á
morgun, þar sem Aðalsteinn Berg-
dal leikles.
Fyrir nokkrum árum flutti Guð-
mundur Óli verkið ásamt Caput
fyrir skólabörn í Kópavogi. Hann
þekkir það því vel.
„Þetta er ádeiluverk um
græðgi,“ segir hann. „Sagt er frá
dátanum Jósef sem er á leið heim
í frí, með fiðlu í farteskinu. Hann
hittir mann sem fær hann til að
selja sér fiðluna, í skiptum fyrir
bókarskruddu. Í bókinni sést hvað
gerist í nánustu framtíð. Dátinn
fer í þrjá daga heim til mannsins,
sem kennir honum hvernig hann
geti notað bókina til að efnast.
Þetta er vitaskuld Kölski sjálfur
og þegar dátinn fer heim hafa 30
ár liðið. Jósef græðir á tá og fingri
en tapar líka.
Þetta er saga um mann sem sel-
ur djöflinum sál sína fyrir pen-
inga. Ég tel að þetta verk eigi
mikið erindi við okkur í dag, þar
sem græðgisvæðingin hefur farið
hamförum og ýmsir sitja eftir með
sárt ennið.“
Saga dátans er flutt á Marínu,
Strandgötu 53, klukkan 17 á
morgun, laugardag, og er aðgang-
ur ókeypis. „Komi sem allra flest-
ir. Þetta er ekki langt, tæpur
klukkutími eða eins og einþátt-
ungur í leikhúsi,“ segir Guð-
mundur Óli.
Verk sem á erindi við okkur
Stjórnandinn „Útkoman er þannig að maður gæti haldið að hljóðfærin
væru miklu fleiri,“ segir Guðmundur Óli Gunnarsson um verk Stravinskys.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands flytur Sögu dátans á Akureyrarvöku
LJÓSMYNDIN hefur á síðustu áratugum fest sig í sessi
sem sjálfstætt listform innan samtímamyndlistar. Ljós-
myndarar eiga þó enn stundum erfitt uppdráttar því oft
notar fólk viðmið annarra greina innan ljósmyndunar til
að nálgast verk þeirra, eða skoðar þær á tæknilegum for-
sendum sem listamaðurinn hefur etv. ekki einu sinni
áhuga á.
Katrín Elvarsdóttir er ein þeirra ungu listljósmyndara
sem fram hafa komið á síðustu árum hérlendis. Myndir
hennar eru gjarnan af frásagnarlegum toga og svo er um
sýningu hennar í Galleríi Ágústi, Margsaga. Litljós-
myndirnar hér minna á kyrrmyndir úr kvikmyndum.
Þær sýna td. gluggatjöld, innanstokksmuni sem erfitt er
að henda reiður á, baksvip persóna og innviði húsa. Ein
saga eða margar sögur og litrófið og birtan kalla sterkt á
kvikmyndir David Lynch. Baksvipur gráhærðrar konu
minnir á mömmu Norman Bates í kvikmyndinni Psycho,
þó hún sé ekkert lík henni, en það er einhver undirliggj-
andi óhugnaður í loftinu. Baksvipirnir minna líka á ljós-
myndir eftir finnska ljósmyndarann Marjaana Kella og
frásögn myndanna á myndir eftir Elinu Brotherus sem
sýndi í Gerðarsafni fyrir ekki mjög löngu. Þannig skipar
Katrín sér í hóp ungra, norrænna kvenna sem leitast við
að birta eigin hugarsýn í gegnum ljósmyndamiðilinn en
minnir líka á eldri verk í víðara samhengi eins og mál-
verk René Magritte frá árinu 1937 „La Reproduction
Interdit“ sem sýnir mann sjá baksvip sinn í spegli, það
má greina í verkum Katrínar súrrealíska undirtóna.
Sýning Katrínar er heilsteypt og vandlega unnin á lág-
stemmdum nótum, hún lætur áhorfandanum það eftir að
skapa tengsl milli mynda og þá frásögn sem gefin er í
skyn. Nálgun hennar eða sú frásagnaraðferð sem hún
notar í myndum sínum er ekki ný af nálinni en hún nálg-
ast viðfangsefni sitt engu að síður á persónulegan hátt.
Bak við tjöldin
MYNDLIST
Gallerí Ágúst
Til 27. september. Opið mið. til lau.
frá kl. 12–17. Aðgangur ókeypis.
Margsaga, ljósmyndir, Katrín Elvarsdóttir
bbbnn
Morgunblaðið/hag
Margsaga Nokkur verka sýningarinnar.
Ragna Sigurðardóttir
INNSETNING
Jónu Hlífar Hall-
dórsdóttur í Lista-
sal Mosfellsbæjar
minnir á ævintýra-
leikmynd þar sem
notast er við ódýr
iðnaðarefni til að
skapa náttúrueft-
irlíkingu. Einhvers
konar heimili, hellir,
tjald eða hrófald er
búið til úr hænsn-
aneti og plasti sem
lýst er upp með eilít-
ið óhugnanlegu
fjólubláu ljósi. Meðfram veggjum
standa tvö mekanísk verk, eins kon-
ar fossarúllubretti sem snúa bak-
hliðinni að áhorfandanum en varpa
óljósu iðandi ljósaspili á veggina
undir upptöku á fuglasöng.
Innsetningin í Mosfellsbæ felur í
sér viðteknar og víðtækar spurn-
ingar um upplifun okkar og fram-
setningu á náttúrunni. Gervilegur
náttúrutilbúningur sýningarinnar er
þó augljóslega ekki tilraun til að
líkja eftir hinni ytri náttúru heldur
mun frekar að nýta ákveðin minni
tengd henni til að skapa menning-
arlegt sálrænt rými.
Kaldhæðni fossavél-
anna vísar í ímynda-
tilbúning myndlist-
arinnar jafnt og
markaðssamfélags-
ins, þar sem afhjúpun
gervileikans og mek-
anismans er mik-
ilvægur hluti hug-
myndafræði verksins.
Þetta dugar ekki til
að gera innsetn-
inguna eftirminnilega
þrátt fyrir að hún sé
skemmtileg heim að
sækja. Jóna Hlíf er
meðal þeirra ungu myndlistarmanna
sem hafa vakið athygli fyrir frum-
leika og fagmennsku í verkum sínum
og er skemmst að minnast síðustu
sýningar hennar í 101 gallerí.
Lítið ævintýr
MYNDLIST
Listasalur Mosfellsbæjar
Sýningin stendur til 6. september. Opið
virka daga kl. 12-19 og laugardaga kl.
12-15. Aðgangur ókeypis.
Jóna Hlíf Halldórsdóttir
HOLE UP innsetning
bbmnn
Þóra Þórisdóttir
TVÆR fyrri tríóplötur Agnars Más,
01 og Láð, eru með því besta sem
gert hefur verið í íslenskum djassi.
Á þeirri fyrstu voru alþjóðleg djass-
áhrif sterkust, þó hinn íslenski tónn
skini víða í gegn, en sú síðari var
heimkoma Agnars. Rímnastef og
annar þjóðlegur fróðleikur grand-
skoðaður. Nú hefur Agnar fengið
vini sína frá New York, Ben Street
og Bill Stewart, sem léku á 01, til að
skapa með sér nýja tónaveröld. Ben
er einstaklega tónfagur og rytm-
ískur bassaleikari og Bill slíkur
galdramaður á trommur að fáir eru
hans jafnokar. Það er styrkur Agn-
ars að hann gjörþekkir þessa menn
þegar á hólminn er komið; ólíkt því
sem oft gerist er menn æða út í heim
og leika með frægum stjörnum og
bakgrunninn vantar. Þetta skilaði
sér líka með sóma og sanni á tónleik-
unum.
Öll lögin voru eftir Agnar og það
fyrsta „Greit“ byggt á „There Is No
Greater love“ og trúlega hefði Isham
Jones lítt kannast við framlag sitt.
„Djúpið“ var næsta verk og dimm
laglínan rökrétt framhald af þjóð-
legum hugleiðingum Agnars á liðn-
um árum. Það var alþjólegri svipur á
„Jukka frá Jótlandi“ og þessi sam-
stiga leikur hægri og vinstri handar,
sem hefur heillað mig allt frá því ég
heyrði Eddie Costa leika á þann veg,
var boppaður þó spennan sem Agn-
ar byggði upp væri oft myrk. Það
var klassískur bragur á upphafi
„Achmus“ og í næsta ópus, ballöðu,
mátti enn greina klassíkt bergmál;
en nær því sem íslensk tónskáld
voru að semja þegar hinn þjóðlegi
tónn ýtti þýska skandínavismanum
til hliðar hérlendis. Sóló Agnars var
tær og hreinn og burstaleikur Bills
töfrandi. Það var ágætt að fá að
slaka á í Tune Up/Count Down eða
„Niðurhali“ þar sem fjórskipt blúsuð
sveifla gældi við hlustirnar. Svo
komu Lína Bína, Yugo og Veðkall,
sem var tileinkað þeim sem misst
hafa Porsche-jeppana sína und-
anfarið. Upphafið var eilítið ell-
ingtonískt, ekki síst bassalínan.
Sterkir hljómar Agnars er á leið
kórónuðu kvöldið.
Þessir tónleikar verða lengi í há-
vegum hafðir af þeim sem viðstaddir
voru – og voru endurteknir seinna
um kvöldið en um það er ekki skrifað
hér.
Draumatríóið
TÓNLIST
Jazzhátíð Reykjavíkur í Vonarsal
Agnar Már Magnússon píanó, Ben
Street bassa og Bill Stewart trommur.
Þriðjudaginn 26.8. kl. 18.
Tríó Agnars Más Magnússonarbbbbm
Vernharður Linnet
UNGUR nikkari að norðan kom
fram á sunnudag við góða aðsókn
miðað við frábært útivistarveður.
Líklega í fyrsta sinn hér syðra á op-
inberum tónleikum, þótt hvorki
stæði neitt um það frekar en hver
umritaði klassísku verkin fyrir
dragspil. Í Mbl-viðtali daginn áður
varð Jón Þorsteinn Reynisson þó
uppvís að að hafa gert það sjálfur,
og má kalla það framtak eftirtekt-
arverðara hjá 19 ára unglingi en
þurfi að liggja í þagnargildi. Varla
hefði poppari á sama reki farið í
launkofa með slíkt, færi rokkið á
annað borð að sækja í sjóð gömlu
meistaranna.
Annars vantaði
helzt eitthvað um
tónlistarmenntun
Jóns – og um hljóð-
færi hans, úr því fá-
ir nema sér-
áhugamenn um
klassískan akkor-
deonleik kunna skil
á þeim tóntólum er
ku með skiptibúnað
í bassa til melódíu-
leiks. Allir gátu
menn þó séð
hnappahljómborðið
í hægri hendi. Það
hefur margsannað tækniyfirburði
sína umfram píanólyklaborðið, þó að
Paul von Janko hafi því miður orðið
of seinn til að innleiða svipað kerfi
fyrir slaghörpuna á ofanverðri 19.
öld. Það er hins vegar leynivopn
hnappadragspilsins, enda má efast
um að píanólyklar næðu mörgu því
er hér gat að heyra. T.a.m. þrem
sjálfstæðum röddum
úr orgelfúgu Bachs
BWV 553 (raunar
talin eftir Krebs) í
einni og sömu hendi.
Jón lék allt blað-
laust að kalla, því
aðeins sást eitt
liggja á gólfi og var
aldrei skipt um. Um-
ritanir hans báru
stöku sinni svolítinn
einföldunarsvip enda
illhjákvæmilegt ann-
að, en voru samt
furðusannfærandi
og lausar við
„busking“-einkenni götumúsíkanta.
Mátti merkilegt heita hvað náðist
mikið af innröddum og kontralínum
frumgerða, og ugglaust vandaðri yf-
irlegu að þakka. Þrátt fyrir fáein
slys á stangli – einna verst í I. þætti
Litlu næturlokku Mozarts (öðrum
þáttum var sleppt) – glitti víða í
virtúóstilþrif, og mótunin var oft
lygilega músíkölsk og þroskuð.
Chopin–Noktúrnan Op. 9,2 hljómaði
á köflum sem frumsamin fyrir
nikku, en þó að tokkötuleg Scar-
latti–sembalsónatan K427 gerði það
síður, var heilmikið flug yfir 24.
Caprísu Paganinis, og seiðandi 7/8
rachenitsa-hrynur Balkan dance
(Motion Trio) kitlaði mann um iljar
sem suðrænn Rammislagur. Nokk-
uð var göslað í Intro og Tokkötu úr
Gotnesku orgelsvítu Boëllmanns, en
frægur II. þátturinn úr Pathétique–
píanósónötu Beethovens rann afar
ljúft niður, sem og Prestóið úr
Sumri Vivaldis.
Þrátt fyrir nokkra hnökra og feil-
nótur þar sem stundum annars
staðar var leikur Jóns í heild hinn
skemmtilegasti og bar vott um
bráðefnilegan hljómlistarmann á ríf-
andi uppleið. Þó konsertrútínan eigi
enn talsvert í land, má því alveg
verja 3½ stjörnu.
Bráðefnilegur nikkari að norðan
TÓNLIST
Fríkirkjan
Umritanir á verkum og þáttum eftir
Mozart, Chopin, D. Scarlatti, Paganini,
Motion Trio, Boëllmann, Beethoven,
J.S. Bach og Vivaldi. Jón Þorsteinn
Reynisson harmónika.
Sunnudaginn 10. ágúst kl. 17.
Harmónikutónleikar bbbmn
Ríkarður Ö. Pálsson