Morgunblaðið - 29.08.2008, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2008 39
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
Þú færð 5 %
endurgreitt
í SmárabíóSími 564 0000
www.laugarasbio.isSÝND HÁSKÓLABÍÓI
Steve Carell fer hamförum í frábærri gamanmynd sem
fór beint á toppinn í USA.
Ekki missa af skemmtilegustu gamanmynd sumarsins - Get Smart.
"ÓBORGANLEG SKEMMTUN SEM ÆTTI AÐ
HALDA ÞÉR BROSANDI ALLANTÍMANN."
-TOMMI - KVIKMYNDIR.IS
"EIN BESTA GRÍNMYNDIN Í LANGANTÍMA"
-GUÐRÚN HELGA - RÚV
Sýnd kl. 5:40, 8 og 10:15
eeee
- Ó.H.T, Rás 2
eee
- L.I.B, Topp5.is/FBL
Stærsta mynd ársins 2008
84.000 manns.
Sýnd kl. 6 og 9
-Kvikmyndir.is
“Fínasta skemmtun. Myndin
er skemmtileg og notaleg.”
- Mannlíf
Tropic Thunder kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 16 ára
Tropic Thunder kl. 5:30 - 8 - 10:30 LÚXUS
Make it Happen kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ
Rocker kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 7 ára
Mamma Mia kl. 5:30D - 8D - 10:30D LEYFÐ
ar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
-bara lúxus
Sími 553 2075
Sýnd kl. 5:40, 8 og 10:15
VINSÆLASTA MYNDIN Í
BANDARÍKJUNUM Í DAG
- 2 VIKUR Á TOPPNUM
FRÁ BEN STILLER KEMUR EIN KLIKKAÐASTA GRÍNMYND ÁRSINS!
VINSÆLASTA MYNDIN Í BANDARÍKJUNUM Í DAG
- 2 VIKUR Á TOPPNUM
FRÁ BEN STILLER KEMUR EIN KLIKKAÐASTA GRÍNMYND ÁRSINS!
SÝND SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
-L.I.B.TOPP5.IS/FBL -DV -L.I.B.TOPP5.IS/FBL -DV
SÝND SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
Geggjuð gamanmynd
Frá leikstjóra Full Monty
-Empire
Ámorgun segir sá lati yfir-leitt, en nú er það sá árvök-uli sem segir: á morgun.
Það er nefnilega nauðsynlegt að
plana morgundaginn vel og vand-
lega ef maður ætlar sér að komast
klakklaust í gegnum Akureyrar-
vökuna. Hér eru þrjú hollráð:
1 Taka daginn snemma. Njótalífsins og rölta miðsvæðis.
Verslanir eru með tilboð og tónlist-
armenn á hverju götuhorni, þannig
að allar líkur eru á að maður rambi
á eitthvað gott í morgunsárið.
2 Vera hreyfanlegur. Menninginnær allt frá Brekkunni, niður í
Listagil upp að Brekkugötu og frá
Ráðhústorgi og niður á Marína. Það
er því viðbúið að maður verði að
labba þvers og kruss um bæinn.
Af myndlist verður t.d. af nógu
að taka. Í öllum galleríunum í Lista-
gilinu verða opnaðar spennandi
nýjar sýningar sem vert er að
staldra við og skoða. Þar að auki
sýna Tóti Blöndal og Hanna Hlíf í
Gallerí Víðáttu og Baltasar og
Kristjana Samper í Dalí gallerí og í
Amtsbókasafninu er sýning.
Þannig að til þess að komast yfir
allt sýningaflóðið þarf að færa sig
frá Gilinu upp í Brekkugötu. Þá er
t.d. ágætt að staldra við á Ráðhús-
torgi um kl. 14 og smakka á skyr-
drykkjum sem þar eru í boði á sama
tíma og þar fer fram samkirkjuleg
guðsþjónusta.
3Mjög mikilvægt: Lúslesa bækl-inginn sem allir hafa fengið inn
um lúguna heima hjá sér og finna
eitthvað við sitt hæfi. Setja saman
sína eigin dagskrá. T.d. mun mín
snúast um peninga og ást.
Aurapúkinn í mér mun hanga all-an liðlangan daginn fyrir utan
Frúna í Hamborg og bíða eftir að
frúin gefi peninga. Þó mun ég ná að
skreppa og hlusta á boðskapinn í
erindi Jóns Björnssonar, rithöf-
undar og sálfræðings: Hvert fara
þeir ríku? Stutt kynning á helvíti.
Eftir það mun ég líka storma inn á
ókeypis tónleika með Sinfóníu
Norðurlands á Marínu á Sögu dát-
ans. Svo ætla ég að bruna í öllum
fansinum upp í Listagilið og hirða
upp allar ókeypis kræsingarnar í
boði Rub 23 í Gilinu. Aurapúkinn í
mér endar svo að sjálfsögðu á tón-
leikum Bubba Morthens, einnig í
boði Rub 23.
Til að jafna út peningadrýldninayfir daginn enda ég á að skoða
Ástarsafnið fyrir framan Sam-
komuhúsið ofan í kjölinn eftir kl.
22. Þar ætla ég að drekkja mér í ást
Akureyringa sem hefur verið safn-
að í allt sumar og háma í mig Ást-
arkökuna sem MS gefur bæj-
arbúum. Rétt áður en ég hleyp
niður að Hofi til að sjá Önnu Rich-
ards verpa afurð ástarinnar.
Ég reikna svo með því að í kjöl-farið endi ég í brjálaðri ást-
arkarnívalstemningu í miðbænum,
þar sem allir tónlistarmenn hátíð-
arinnar slá saman í eina risastóra
kjötkveðjuhátíð á meðan þekktir
broddborgarar dansa inn í nóttina í
sambabúningum. Svo fljúga svín.
Óekkí. Morgundagurinn verðurskrautlegur. En því miður
engin leið að komast yfir allt á ein-
um degi. Akureyrarvakan í ár er
allt of stór kokteill til að hægt sé að
gleypa hann í heilu lagi, en jafn-
framt of spengilegur til að maður
vilji missa af nokkru sem þar er í
boði. Fólk verður því að velja,
hafna og stundum bara taka því
sem að höndum ber. Best er að játa
það fyrir sjálfum sér á setningarhá-
tíðinni í Lystigarðinum í kvöld yfir
rjúkandi heitu kakói og rúnalestri,
á meðan Retro Stefson og D. Rang-
ers leika af fingrum fram.
hsb@mbl.is
Ást, peningar og Akureyrarkarníval
AF LISTUM
Hjálmar Stefán Brynjólfsson
»Ég reikna svo meðþví að í kjölfarið endi
maður í brjálaðri ástar-
karnívalstemningu í
miðbænum.
Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson
Frúin í Hamborg Dansar sólarsamba og gefur vegfarendum peninga í ár.