Fréttablaðið - 15.04.2009, Side 2
2 15. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR
Björgvin, hefur þú gefið gó á
þetta?
„Að sjálfsögðu gefur Bó gó á Bo
hans Obama.“
Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur
fengið sér hund en sá hefur fengið nafn-
ið Bo. Björgvin Halldórsson hefur lengi
gengið undir viðurnefninu Bó.
SKOÐANAKÖNNUN Fylgi Samfylk-
ingar er nú 34,3 prósent og fengi
flokkurinn fjóra kjördæmakjörna
þingmenn í Reykjavíkurkjördæmi
norður, samkvæmt nýrri könn-
un Capacent Gallup fyrir RÚV og
Morgunblaðið. 29,1 prósent styður
Vinstri græn og fengi flokkurinn
þrjá þingmenn. Fylgi Sjálfstæð-
isflokksins fer úr 36,4 prósenta
kjörfylgi í 22,0 prósenta fylgi nú
og fengi flokkurinn tvo þingmenn.
Aðrir flokkar ná ekki inn manni.
8,1 prósent styður Borgarahreyf-
inguna, 5,3 prósent styðja Fram-
sóknarflokkinn, 1,1 prósent styður
Frjálslynda flokkinn og 0,2 prósent
Lýðræðishreyfinguna.
Svarhlutfall var 60,5 prósent. - ss
Könnun í Reykjavík norður:
Fylgi Sjálfstæð-
isflokks hrynur
Opin og heiðarleg stjórnsýsla
Vinnum gegn spillingu með því að styrkja upplýsinga- og stjórnsýslu-
lög, efla eftirlitsstofnanir og styðja við frjáls félaga- og neytenda-
samtök. Aukum gagnsæi í starfsemi ríkisstjórnar og Alþingis og
sjáum til þess að stjórnsýslunni verði settar siðareglur.
FÓLK Íbúar á Kjalarnesi segja bæði
mengun og ógn stafa af skotsvæði
á Álfsnesi og vilja það burt.
Skotvæðið á Álfsnesi var tekið
í notkun sumarið 2005. Hjónun-
um Eiríki Hans Sigurðssyni og
Sigrúnu Árnadóttur, sem fluttu á
Skriðu undir Esju tveimur árum
áður til að njóta kyrrðarinnar, var
illa brugðið þegar þau komu heim
úr ferðalagi síðdegis einn júlídag
og settust út á verönd með kaffi-
bolla. Skothvellir glumdu við:
„Við sáum okkur þann kost
vænstan að flytja okkur í hús með
kaffið og þannig hefur það verið
síðan,“ segja hjónin í bréfi sem
sent var í janúar 2007 til Björns
Inga Hrafnssonar, þáverandi for-
manns borgarráðs.
Skotsvæðið sem um ræðir er á
vegum Skotfélags Reykjavíkur og
Skotveiðifélags Reykjavíkur sam-
kvæmt samningi við borgina sem
gildir til 2020. Bæði einstakling-
ar á Kjalarnesi og íbúasamtökin í
heild hafa barist gegn starfseminni
á þessum stað. Ástandið magnist
upp vegna endurvarps skothvell-
anna af klettum í nágrenninu.
Fuglalíf sé ekkert.
Í nýju bréfi íbúasamtakanna er
þess enn krafist að skotsvæðinu
verði lokað. Hávaðinn trufli íbúa
í allt að fimm kílómetra fjarlægð
og sé svo mikill um kvöld og helg-
ar að einstaka íbúar hafi hreinlega
flutt á brott vegna hans. Að auki
brjóti skotmenn reglur með æfing-
um utan opnunartíma.
„Okkur óar við þessari starfsemi
– svo nálægt byggð hjá okkur og
útivistarsvæði – ein kúla á rangri
leið getur kostað mannslíf,“ segir
í bréfi íbúasamtakanna til Hönnu
Birnu Kristjánsdóttur borgar-
stjóra. Málið var einnig rætt við
Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, þáver-
andi borgarstjóra, í ágúst 2006.
Áðurnefnd hjón segja í nýju
bréfi að þótt borgin hafi gengist
fyrir hljóðmælingum við skot-
svæðið hafi þær verið tilviljana-
kenndar og ekki náð að skrá hávað-
ann eins og hann getur orðið. Gera
þurfi faglegar hljóðmælingar.
„Það þarf að fá fleiri en einn ein-
stakling með öflugar haglabyssur
til að skjóta á leirdúfur sem kast-
að er upp frá kösturum sem snúa
í skotátt hingað. Á meðan skulum
við bjóða viðkomandi hlustendum
í kaffi hér úti á pallinum,“ skrifa
Eiríkur og Sigrún.
Í samtali við Fréttablaðið segja
Sigrún og Eiríkur að jafnvel þótt
hús þeirra hjóna sé þrjá kílómetra
frá skotsvæðinu sé hávaðinn óþol-
andi. „Þegar menn eru með öfl-
ugar haglabyssur og skotáttin er
hingað að okkur þá magnast hvert
einasta skot upp og bergmálar hér
margfalt í klettunum fyrir aftan
húsið.“ - gar
Kjalnesingar vilja lát
á skothríð á Álfsnesi
„Ein kúla á rangri leið getur kostað mannslíf“ segir í ályktun íbúasamtaka Kjal-
arness sem krefjast þess að skotsvæði á Álfsnesi verði lokað. Hjón sem fluttu í
sveitakyrrðina segjast ekki hafa drukkið kaffi á veröndinni síðan í júlí 2005.
KOSNINGAR Formenn yfirkjör-
stjórna hafa gert athugasemdir
við framboðslista Borgarahreyf-
ingarinnar og Lýðræðishreyfing-
arinnar. Listarnir uppfylla ekki
32. grein kosningalaga þar sem
kveðið er á um að hverjum fram-
boðslista fylgi yfirlýsing frá öllum
frambjóðendum um að þeir hafi
gefið leyfi fyrir að nöfn þeirra séu
sett á lista í tilteknu kjördæmi.
Þetta er samkvæmt túlkun kjör-
stjórnanna á lagagreininni.
Málið verður til umfjöllunar hjá
yfirkjörstjórnum í dag. Verði það
niðurstaðan að framboðslistarnir
standist ekki kröfur, gefst fram-
boðunum kostur á að laga það sem
kjörstjórnum þykir upp á vanta til
þess að listarnir standist lög.
Komi til ógildingar framboðs-
listanna á vettvangi yfirkjör-
stjórna hafa framboðin rétt á að
skjóta þeim úrskurði til landskjör-
stjórnar, sem hefur lokaorðið. - shá
Framboð til alþingiskosninga:
Framboðslistar
ófullnægjandi
EIRÍKUR H. SIGURÐSSON
OG SIGRÚN ÁRNADÓTTIR
Hjónin fluttu úr Mosfells-
bænum í sveitasæluna
undir Esju en segjast búa
við óþolandi hávaða frá
byssumönnum á Álfsnesi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Össur á aðalfundi
Félagið Ísland-Palestína heldur aðal-
fund sinn í Norræna húsinu í kvöld
klukkan átta. Kosið verður í stjórn en í
upphafi fundarins flytur Össur Skarp-
héðinsson utanríkisráðherra erindi.
ÍSLAND-PALESTÍNA
STJÓRNMÁL Þrír fyrrverandi for-
menn Framsóknarflokksins voru
á Kanaríeyjum um páskana.
Allir mættu þeir á laugardaginn
á opinn fund á Íslendingastaðn-
um Klörubar í verslunarmiðstöð-
inn Yumbo á Ensku ströndinni á
laugardaginn. Fréttablaðið hefur
ekki náð í þau Halldór Ásgríms-
son, Guðna Ágústsson og Val-
gerði Sverrisdóttur en einn fund-
argesta sem rætt var við segir að
létt hafi verið yfir framsóknar-
leiðtogunum fyrrverandi. Hall-
dór mun meðal annars hafa rætt
um upphaf stjórnmálaferils síns.
Guðni hélt upp á sextugsafmæli
sitt ytra á skírdag. - gar
Framsóknarmenn á Klörubar:
Þrír formenn
á páskafundi
ATVINNUMÁL Starfsmenn Lang-
holtsskóla hafa sent Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur borgarstjóra bréf
og krafist svara um hvernig á að
verja störf í skugga niðurskurðar
hjá borginni. Skólastjóri Langholts-
skóla telur óumflýjanlegt að fækka
stöðugildum.
Bréfið er sent í kjölfar starfs-
mannafundar í skólanum þar
sem Hreiðar Sigtryggsson skóla-
stjóri kynnti fyrirhugaðar aðgerð-
ir sem grípa þarf til vegna nýsam-
þykktrar fjárhagsáætlunar
Reykjavíkurborgar. Skólum verð-
ur gert að skera niður. Í Langholts-
skóla lítur út fyrir að hópur fast-
ráðinna starfsmanna, sérstaklega
kennara, missi störf sín frá og með
næsta hausti.
Sæmundur Helgason, trúnaðar-
maður í Langholtsskóla, telur lík-
legt að stöðugildum verði fækkað
um sex til sjö. „Við höfum heyrt
að þetta sé raunin í öðrum skólum
einnig. Það þýðir því ekki að slá sér
á brjóst og segja að störfin í borg-
inni hafi verið varin.“
Hér vísar Sæmundur til fréttar
frá borgarstjórn þar sem segir:
„… Markmið við endurskoðun fjár-
hagsáætlunar var að hagræða um
rúma 2,3 milljarða í samræmi við
samþykkta fjárhagsáætlun og með
því að standa vörð um grunnþjón-
ustu við íbúa borgarinnar, störf
borgarstarfsmanna og gjaldskrár.
Þessi markmið hafa nú náðst …“
Ekki náðist í borgarstjóra við
vinnslu fréttarinnar. - shá
Starfsmenn Langholtsskóla segja borgaryfirvöld ekki verja störf, þvert á loforð:
Krefjast svara um atvinnumál
FRÁ LANGHOLTSSKÓLA Starfsfólk Lang-
holtsskóla krefst svara frá borgarstjóra
um með hvaða hætti á að verja störf í
borginni. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGURÐUR JÖKULL
NORÐUR-KÓREA, AP Stjórnvöld í
Norður-Kóreu segjast hætt allri
þátttöku í viðræðum um kjarn-
orkuafvopnun og segjast einnig
ætla að gangsetja eina kjarnaofn
sinn á næstunni.
Þetta segja þau viðbrögð sín við
ályktun öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna, sem fordæmdi harðlega
geimskot Norður-Kóreu í síðustu
viku. Norður-Kóreumenn segj-
ast aðeins hafa sent gervihnött
út í geiminn, og tilgangurinn sé
friðsamlegur. Önnur ríki fullyrða
hins vegar að um tilraun með
langdrægt flugskeyti hafi verið
að ræða, sem hægt væri að beina
gegn Bandaríkjunum.
Samkvæmt ályktun öryggisráðs
SÞ frá árinu 2006 er Norður-Kór-
eumönnum óheimilt að gera til-
raunir með flugskeyti. - gb
Norður-Kóreustjórn:
Hætt að ræða
kjarnorkumál
VIÐSKIPTI Búist er við því að kaup MP Banka á úti-
búaneti SPRON og Netbankanum gangi í gegn á
allra næstu dögum, jafnvel í dag. Þetta segir Marg-
eir Pétursson, stjórnarformaður MP.
MP Banki hefur beðið samþykkis Fjármálaeft-
irlitsins fyrir kaupunum síðan skilanefnd SPRON
gekk að 800 milljóna tilboði í útibúanetið. Að sögn
Mar geirs bíður Fjármálaeftirlitið þess nú að Seðla-
bankinn veiti umsögn sína um samkomulag MP
Banka og Nýja Kaupþings.
Samkomulagið felur í sér að MP Banki mun lána
Kaupþingi fyrir þeim innstæðum sem gamlir við-
skiptavinir SPRON kunna að flytja með sér yfir
í nýja SPRON hjá MP Banka. Innlánsreikningar
SPRON fluttust allir yfir til Kaupþings við hrun
SPRON og óttuðust fulltrúar Kaupþings að eins
konar áhlaup yrði gert á bankann þegar gamlir við-
skiptavinir SPRON flykktust með fé sitt yfir í MP
Banka. Það gæti Kaupþing illa staðist.
Margeir segir að MP Banki stefni að því að opna
þrjú útibú á ný undir merkjum SPRON „eins fljótt
og því verði tæknilega komið við“. Ólíklegt sé að
það verði í vikunni en hann vonar að það geti gerst
strax eftir helgi.
Margeir segir að betra hefði verið að ljúka mál-
inu fyrr. „En ég held að fólk átti sig á því að þetta
er kannski eini valkosturinn við ríkisbankakerfið í
framtíðinni.“ - sh
FME bíður umsagnar Seðlabankans um kaup MP Banka á útibúaneti SPRON:
Stefnt að opnun SPRON eftir helgi
SPRON MP Banki hyggst opna þrjú útibú undir merkjum
SPRON. FRÉTTABLAÐIÐ / VALLI
BANDARÍKIN, AP Fidel Kastró, fyrr-
verandi Kúbuleiðtogi, segir til slak-
anir Bandaríkjanna á ferðum og
fjártilfærslum til Kúbu vissulega
jákvætt skref, en þó frekar lítið.
Hann skorar á Barack Obama
Bandaríkjaforseta að samþykkja
frekari tilslakanir.
Bandaríkin hafa undanfarna
áratugi lagt strangar hömlur á
ferðalög til Kúbu og viðskipti við
Kúbu, með þeim afleiðingum að
efnahagur Kúbu hefur átt erfiðara
með að ná sér á strik en ella.
Obama hafði lofað því í kosn-
ingabaráttunni að gera breytingar
á þessu. Á mánudag aflétti hann
svo að hluta til hömlum. - gb
Kastró skorar á Obama:
Vill fá frekari
tilslakanir
SPURNING DAGSINS