Fréttablaðið - 15.04.2009, Blaðsíða 6
6 15. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR
STJÓRNMÁL „Við höfum enga heimild til að ann-
ast svona úttekt sem hann er að vitna til,“ sagði
Sveinn Arason ríkisendurskoðandi aðspurð-
ur hvernig hann myndi taka bón Guðlaugs Þórs
Þórðarsonar, fyrrverandi stjórnarformanns
Orkuveitu Reykjavíkur og þingmanns Sjálfstæð-
isflokks. Guðlaugur sagði í yfirlýsingu á mánu-
dagskvöld að hann hygðist biðja ríkisendur-
skoðanda að gera úttekt á störfum sínum sem
stjórnarformaður. Í tilkynningunni sagðist hann
ekki una við óvandaða umfjöllun og dylgjur um
störf sín og því teldi hann mikilvægt að ríkisend-
urskoðandi gerði úttekt á þeim svo að hið sanna
kæmi í ljós.
Sveini hafði ekki borist erindi Guðlaugs þegar
Fréttablaðið talaði við hann. „Málefni Orkuveitu
Reykjavíkur heyra ekki undir okkur og okkar
valdsvið, það er alveg á hreinu,“ segir Sveinn til
frekari útskýringar. Hann sagðist þó ekki vilja
tjá sig um það hverjum bæri að gera slíka úttekt.
Eins sagðist hann ekki vita til þess að ríkisendur-
skoðanda hefði nokkurn tímann borist bón um að
gera álíka úttekt.
Ekki náðist í Guðlaug Þór í gær. - jse
Ríkisendurskoðanda óheimilt að taka út störf fyrrverandi stjórnarformanns OR:
Skoðar ekki störf Guðlaugs
GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐARSON Fyrrverandi stjórnarformaður
Orkuveitu Reykjavíkur verður að leita annað en til ríkisendur-
skoðanda til að fá sanngjarna úttekt á störfum sínum.
www.ms.is/gottimatinn
nýjung
!
þykk, fersk
og
rjómakenn
d
jógúrt
grískur gleðileikur
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
9
-0
1
9
2
SMÁLÚÐA, LAXAFLÖK OG
FULLT AF ÖÐRU GÓMSÆTU
SELJUM EINNIG FISK Í MÖTUNEYTI
ATH ERUM ALDREI FISKLAUSIR
GLÆNÝ
STÓRLÚÐA
ALÞINGI „Ég ætla ekki að láta það
verða mitt síðasta verk hér á
Alþingi að svipta Alþingi stjórnar-
skrárgjafarvaldinu. Og ég mun
hér tala eins oft og ég þarf til
þess að koma í veg fyrir að svo
verði.“
Þessi orð Björns Bjarnasonar,
þingmanns Sjálfstæðisflokksins,
á Alþingi í gær urðu til þess að
framsóknarmenn ákváðu að láta
af kröfu sinni um að bráðabirgða-
ákvæði um stjórnlagaþing verði
fært í stjórnarskrána. Þar með er
útséð um að efnt verði til stjórn-
lagaþings á nýju kjörtímabili – í
það minnsta með þeim hætti sem
lagt var upp með í stjórnarskrár-
frumvarpi allra flokka utan Sjálf-
stæðisflokks.
„Sjálfstæðismenn tóku stjórn-
lagaþingið í málþóf enda keppi-
kefli þeirra að koma í veg fyrir
að völdin færu til fólksins í land-
inu,“ segir Siv Friðleifsdóttir,
þingflokksformaður Framsókn-
arflokksins. „Þeir hótuðu að tala
um málið dag og nótt fram að
kosningum og því var þessu eig-
inlega sjálfhætt,“ segir hún.
Fjórar greinar voru í stjórn-
arskrárfrumvarpinu; um stjórn-
lagaþing, um að auðlindir verði í
þjóðareign, um þjóðaratkvæða-
greiðslur og um hvernig breyta
skuli stjórnarskránni í framtíð-
inni.
Sjálfstæðismenn hafa verið
andsnúnir öllum greinunum fjór-
um en þó lýst sig reiðubúna til
viðræðna um ákvæðið sem lýtur
að því hvernig breyta beri stjórn-
arskránni.
Óvíst var í gærkvöldi hvert
framhald málsins yrði; hvort sam-
komulag næðist um þau ákvæði
sem eftir standa eða hvort mál-
þófshótun vofði einnig yfir vegna
þeirra.
Meðal þess sem lagt hefur verið
til er að vísa frumvarpinu til með-
ferðar sérnefndar um stjórnar-
skrármál milli annarrar og þriðju
umræðu. Þar mætti reyna að ná
samkomulagi um breytingar. Sú
leið var talin býsna líkleg í gær-
kvöldi.
Enn eru nokkur önnur mál í
þinginu sem ríkisstjórnin telur
brýnt að verði samþykkt fyrir
kosningar. Að sama skapi eru
þar nokkur mál sem sjálfstæðis-
menn leggja áherslu á. Er líklegt
að fjárfestingasamningur Helgu-
víkurálversins og íslenskt ákvæði
í loftlagssamningum verði sam-
þykkt fyrir þinglok. Að sama
skapi er talið ólíklegt að stjórn-
arfrumvarp um eignaumsýslufé-
lag verði að lögum.
bjorn@frettabladid.is
Stjórnlagaþingið úti
en ósamið um annað
Framsóknarflokkurinn lét í gær af kröfu sinni um stjórnlagaþing. Björn
Bjarnason sagðist ætla að tala eins oft og hann þyrfti til að koma í veg fyrir
framgang málsins. Ósamið er um önnur ákvæði stjórnarskrárfrumvarpsins.
ÞINGMENN Björn Bjarnason sagðist
tala eins oft og hann þyrfti til að
koma í veg fyrir stjórnlagaþing. Siv
sagði málinu sjálfhætt.
LÖGREGLUMÁL „Ef lögreglan kemur ekki þá
þýðir það að hún er hrædd. Og það er af því
að við sýnum samstöðu!“ var hrópað af stiga-
palli fyrir utan Vatnsstíg 4, þar sem hópur
ungmenna hefur gert sig heimakominn í áður
tómu húsinu. Lögreglan hafði gefið hústöku-
fólkinu frest til klukkan fjögur í gær til að
rýma húsið, en lét hins vegar ekki sjá sig.
Nokkur mannfjöldi hafði safnast saman
fyrir utan húsið og innandyra og hugðist veita
lögreglunni mótspyrnu. Meðal annars var
kveiktur eldur fyrir utan.
Aðspurður segir varðstjóri lögreglu að
það hafi verið oftúlkun að ætla að lögreglan
myndi grípa strax til aðgerða yrði fólkið ekki
við tilmælum hennar um að rýma húsið. Af
orðum hans mátti skilja að málið væri ekki
litið ýkja alvarlegum augum.
Húsið er í eigu Ágústs Friðgeirssonar. Til
stendur að rífa það og byggja verslunar- og
íbúðarhúsnæði. Ágúst óskaði eftir aðgerðum
lögreglu vegna þess að fólkið væri í húsinu á
hans ábyrgð.
„Í vetur hef ég verið látinn koma útigangs-
fólki út sem hefur borist þarna inn og halda
húsinu lokuðu. Ég sé engan mun á því fólki
og þessu. Það er sama hætta á að þetta fólk
kveiki í og aðrir,“ segir Ágúst. Hann segir
eignarréttinn heilagan. „Ef þú átt laust her-
bergi í íbúðinni þinni, á þá hver sem er að geta
flutt inn í það?“ spyr Ágúst. - sh
Hústökufólki á Vatnsstíg veittur frestur en lögregla lét ekki sjá sig:
Lýstu yfir sigri gegn lögreglu
VIÐ ÖLLU BÚNIR Hústökufólkið var tilbúið að láta hart
mæta hörðu – en lögreglan kom hins vegar aldrei á
staðinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
KJÖRKASSINN
Borðaðir þú fisk yfir páskana?
Já 43,8
Nei 56,2
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Vilt þú að nektardans verði
bannaður með lögum?
Segðu skoðun þína á vísir.is