Fréttablaðið - 15.04.2009, Blaðsíða 12
15. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR
LÖGREGLUMÁL Tvær konur sitja nú
í gæsluvarðhaldi til 21. apríl eftir
að þær reyndu að smygla fíkniefn-
um innvortis til landsins. Konurn-
ar, sem báðar eru erlendar, komu
frá Amsterdam. Tollgæslan stöðv-
aði þær við komuna til landsins og
leiddi röntgenskoðun í ljós að þær
voru með fíkniefni innvortis. Þær
hafa skilað efnunum niður, sem
talin eru vera annaðhvort kóka-
ín eða amfetamín. Magnið lá ekki
fyrir í gær.
Þá rann út í gær gæsluvarðhalds-
úrskurður yfir rúmlega tvítugum
Belga sem gripinn var í Leifsstöð í
byrjun mánaðarins með kókaín inn-
vortis. Þetta er sami maðurinn og
slapp úr haldi lögreglu þegar verið
var að flytja hann í röntgenmynda-
töku á Heilbrigðisstofnun Suður-
nesja. Hans var leitað í um það bil
hálfan sólarhring áður en hann
fannst. Síðan skilaði hann niður af
sér tæpum hundrað grömmum af
kókaíni. Óvíst er hvort maðurinn
hafði náð að losa sig við eitthvað af
efninu á hlaupunum áður en hann
var tekinn aftur. Gæsluvarðhald
yfir honum var í gær framlengt
fram á föstudag.
Þá hafa tveir Litháaar verið
dæmdir í þriggja mánaða fang-
elsi eftir að þeir voru teknir með
hundrað grömm af amfetamíni
hvor innvortis um síðustu mánaða-
mót. Þeir hafa þegar hafið afplán-
un. - jss
Þrjú fíkniefnasmyglmál hafa komið upp í Leifsstöð á skömmum tíma:
Tvær konur í gæsluvarðhaldi
HVÍTT EFNI Fimm manns hafa reynt að
smygla kókaíni eða amfetamíni innvort-
is til landsins að undanförnu.
MENNTUN „Ég tel að þessi ákvörð-
un sé afar mikilvæg, sem og sú
stefna að beina fólki inn í mennta-
kerfið,“ segir Katrín Jakobsdóttir
menntamálaráðherra. Að loknum
ríkisstjórnarfundi í gær tilkynnti
Katrín um þá ákvörðun að auka
eigið fé Lánasjóðs íslenskra náms-
manna (LÍN) um 650 milljónir
króna til að bregðast við fjárþörf
sjóðsins vegna sumarlána. Þetta
þýði að LÍN geti varið alls einum
og hálfum milljarði króna í sum-
arlán.
Að sögn Katrínar er gert ráð
fyrir að sú upphæð nægi láns-
þörf milli þrjú og fjögur þúsund
nemenda í sumar. Könnun sem
stúdentaráð Háskóla Íslands (HÍ)
gerði í síðasta mánuði bendir til að
allt að 13.000 háskólanemar gætu
verið án atvinnu í sumar. Aðspurð
segir Katrín að skoða þurfi málin
upp á nýtt fari svo að fleiri nem-
endur sæki um sumarlán en LÍN
ráði við. „Við verðum að sjá hvort
þessi aukafjárveiting mæti þörf
sjóðsins, hversu margir sækja
um og svo framvegis. Ef svo fer
þarf að vega og meta málin, það
er ljóst.“
Katrín segir að háskólunum
verði veitt fjárveiting upp á 50 til
100 milljónir til að standa straum
af kostnaði við aukinn fjölda nem-
enda í sumar. Fram hefur komið
að Háskólinn í Reykjavík og Bif-
röst muni bjóða upp á sumarnám-
skeið. Viðskiptadeild HÍ tilkynnti
í síðustu viku að fimm námskeið
yrðu kennd við deildina í sumar,
en engar frekari útfærslur hafa
verið kynntar á sumarnámi við
skólann. Katrín mun funda með
skólayfirvöldum í HÍ um þessi mál
í vikunni. „HÍ er veigamesti póst-
urinn, og það er ljóst að einhver
námskeið verða kennd og próf
verða haldin í haust. Við munum
vinna að því að klára þessi mál í
vikunni,“ segir Katrín.
Hildur Björnsdóttir, formaður
Stúdentaráðs HÍ, segir ákvörðun-
ina um aukið fé LÍN ánægjulega.
„Þetta sýnir velvilja. Við stönd-
um enn við kröfur okkar um að
boðið verði upp á fjarnám í 500
námskeiðum, til að tryggja breitt
námframboð í sumar. Við fundum
með skólayfirvöldum í vikunni, og
það er gott að við fáum að koma
að ákvarðana-
tökum.“
Einar K. Guð-
finnsson, þing-
maður Sjálf-
stæðisflokks
og meðlimur í
menntamála-
nefnd Alþing-
is, segist fagna
ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar
varðandi aukið eigið fé LÍN. „Ég
hef ekki séð nákvæmar útfærsl-
ur, en allt sem gerir nemendum
kleift að þurfa ekki að eyða sumr-
inu í aðgerðarleysi er auðvitað
jákvætt.“
Hvorki náðist í rektor né vara-
rektor HÍ við vinnslu fréttarinn-
ar.
kjartan@frettabladid.is
Fjögur þúsund nem-
endur fái sumarlán
Eigið fé LÍN verður aukið um 650 milljónir vegna sumarlána. Menntamálaráð-
herra segir sjóðinn geta lánað allt að fjögur þúsund nemendum í sumar. Há-
skólarnir fá 50 til 100 milljóna króna fjárveitingu vegna aukins fjölda nemenda.
NÁMSMENN Ákvörðun um sumarannir hjá Háskóla Íslands ætti að liggja fyrir í lok
vikunnar, samkvæmt menntamálaráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
KATRÍN
JAKOBSDÓTTIR
HILDUR
BJÖRNSDÓTTIR
EINAR K.
GUÐFINNSSON
KOSNINGAR Borgarahreyfingin mun bjóða fram á
landsvísu í komandi alþingiskosningum 25. apríl.
Hreyfingin kynnti framboðslista allra sex kjör-
dæma landsins í gær og frambjóðendur sína í öllum
kjördæmunum sex á fundi í gær. Kom fram að sjö
vikur tók að ná fram fullþroska framboði sem er
afurð búsáhaldabyltingarinnar.
Tvö mál voru á dagskrá fundarins auk kynningar
frambjóðenda. Í fyrsta lagi sú krafa hreyfingarinn-
ar að reglur um fjárveitingar eða styrki atvinnulífs-
ins til stjórnmálaflokka og hreyfinga verði breytt.
Jóhann Kristjánsson, þriðji maður á lista Reykjavík
norður, hafði orð fyrir sínu fólki. „Við höfnum þeirri
leið að atvinnulífið sé að veita fé til stjórnmála-
hreyfinga.“
Jóhann sagði að umræða síðustu daga um styrki
til stjórnmálaflokkanna skýrði að fullu afstöðu síns
flokks. Í öðru lagi sú ákvörðun Ríkisútvarpsins að
hætta við tíu mínútna gjaldfrjálsan kynningarþátt
fyrir framboð til Alþingis. Það hafi komið sér afar
illa fyrir Borgarahreyfinguna. - shá
Borgarahreyfingin gagnrýnir fjárveitingar og styrki fyrirtækja til stjórnmálaflokka:
Listar í öllum kjördæmunum
FULLTRÚAR HREYFINGARINNAR Það tók sjö vikur að koma
saman listum svo unnt væri að bjóða fram á landsvísu.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N