Fréttablaðið - 15.04.2009, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 15.04.2009, Blaðsíða 16
16 15. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR nær og fjær „ORÐRÉTT“ ■ Á Vísindavef Háskóla Íslands kemur fram að niðurstöður rannsókna bendi til þess að ástæða þess að við getum ekki kitlað okkur sjálf tengist hæfi- leika heilans til þess að greina á milli þeirra ógrynna af taugaboðum sem honum berast stöðugt. Þegar aðrir kitla okkur þá er um að ræða áreiti sem við eigum ekki von á, jafnvel þótt við vitum að það eigi að kitla okkur, og við sýnum viðbrögð. Þegar við reynum hins vegar að kitla okkur sjálf þá á heilinn von á áreitinu, býr sig undir að skynja snertinguna og útiloka viðbragð. HVÍ GETUM VIÐ EKKI KITLAÐ OKKUR SJÁLF? „Ég er á fullu að undirbúa Ferðafagnað á laug- ardaginn þar sem aðilar í ferðaþjónustu kynna það sem er á boðstólum,“ segir Skúli Gautason, viðburðastjóri hjá Höfuðborgarstofu. „Ég er fyrst og fremst að kynna þau verkefni eða þá viðburði sem ferðaþjónustuaðilar bjóða upp á og búa til vef, koma þessu í fjölmiðla og setja saman heildardagskrá þannig að það verði skemmtilegur heildarsvipur á þessu. Dagskráin er orðin rosa- lega flott. Það kemur mér mjög skemmtilega og þægilega á óvart hve margt er í boði hér á næstu grösum.“ Skúli nefnir sem dæmi um spennandi hluti að sig dauðlangi „að fara á sjó- stöng úti á Faxaflóa eða fara á hestbak, fara í reiðtúr um svæðið eða að fara í litbolta til að rækta strákinn í mér“. Ferðafagnaðurinn er viðburður sem stendur frá fimmtudegi fram á laugardag þar sem blásið er til hugmyndatorgs á Höfuðborgarstofu á fimmtudag, föstudag og laugardag þar sem auglýst er eftir nýjum hug- myndum í ferðaþjónustu og þeir sem ganga með hugmyndir að nýjungum geta komið og fengið aðstoð við að hrinda þeim í framkvæmd. „Svo er ég kominn á fullt við að undirbúa hátíð hafsins í byrjun júní og svo er undirbúningur hafinn að menningarnótt í sumar. Ég ætla að flytja smá erindi á fimmtudagsmorguninn um gleðina í vinnunni á starfsmannafundi hér á Höf- uðborgarstofu. Mér finnst svo gaman í vinnunni að alltaf á morgnana þegar það er hlýtt og notalegt undir sæng- inni og erfitt að fara fram úr fer ég að hugsa um hvað þarf að gera í vinnunni og sprett þá á fætur eins og stálfjöður.“ HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? SKÚLI GAUTASON, VIÐBURÐASTJÓRI HJÁ HÖFUÐBORGARSTOFU Sprett á fætur eins og stálfjöður Víðs fjarri hasarnum „Ég hef reynt að halda mig sem lengst frá þessu.“ GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐARSON SEGIST EKKI VITA HVERJIR STYRKTU HANN Í PRÓFKJÖRI Fréttablaðið 14. apríl Óvænt hlið „Hann sýndi sálfræðilega hlið á sér sem kom mikið á óvart.“ KÖRFUKNATTLEIKSMAÐURINN JÓN ARNÓR STEFÁNSSON VAR STEIN- HISSA Á TÖKTUM ÞJÁLFARA SÍNS, BENEDIKTS GUÐMUNDSSONAR. Fréttablaðið 14. apríl „Veita persónulega ráðgjöf.“ Kona, 39 ára. Í dag, miðvikudag, sitja ráðgjafar okkar lengur við símann. Ráðgjafar Eignastýringar, Almenna lífeyrissjóðsins og Fjármögnunar svara spurningum ásamt ráðgjöfum Íslandsbanka. Hringdu í okkur á milli kl. 17 og 21 í síma 440 4000. Getum við aðstoðað? Á islandsbanki.is getur þú einnig pantað fjármála- viðtal þar sem við bjóðum þér að setjast niður með okkur og fara ítarlega yfir stöðuna. H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA 0 9 -0 3 4 0 Frá því í nóvember höfum við kallað eftir skoðunum viðskiptavina í útibúum og á heimasíðu okkar um það hvernig þeir vilji að nýr banki starfi. Við notum þessar ábendingar til að móta nýjan banka. Blaðberinn bíður þín Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 8-17. ...góðar fréttir fyrir umhverfið Blaðberinn... Fyrir tveimur áratugum voru á bilinu 70 til 80 kaup- menn á horninu á höfuð- borgarsvæðinu. Nú eru þeir um tíu. En þeir bera sig vel þessa dagana því svo virðist sem landinn sæki frekar til þeirra nú en í góðærinu. „Það var 24 prósenta aukning hjá okkur á síðasta ári og þegar ég ber saman það sem af er liðið þessu ári þá er það jafnvel enn meira,“ segir Agnar Árnason, kaupmaður í versluninni Rangá í Skipasundi í Reykjavík. Hann hefur rekið versl- unina frá árinu 1971 og hefur haldið mörgum viðskiptavinum frá fyrstu tíð. „Þeir eru með reikning, svona upp á gamla mátann, og svo er bara gert upp um mánaðamót.“ Hann hefur nú auglýst verslunina til sölu. „Ég er kominn á þann aldur að það er kominn tími til að slaka á,“ segir hann. Aðrir kaupmenn á horninu sem Fréttablaðið talaði við una hag sínum einnig afar vel. Pétur Guð- mundsson, verslunarstjóri Mela- búðarinnar, segist finna fyrir því að fólk leiti frekar í smáu verslan- irnar. „Við erum aftur orðnir sam- keppnishæfir við stóru verslanirnar þegar kemur að verði,“ segir Agnar. En svo eru það félagslegu þættirn- ir sem kaupmennirnir segja vinna með minni matvöruverslununum. „Já, fólk kemur líka til að spjalla,“ segir Gunnar Jónasson í Kjötborg. „Ekki bara við okkur Kristján [bróðir hans sem rekur verslunina með honum] heldur veit það hvenær einhver annar kúnni kemur til að versla og það mætir því á sama tíma og kaupir og spjall- ar.“ Í Pétursbúð á Ránargötu er hægt að kaupa sér kaffibolla á 200 krónur og segir Björk Leifsdóttir, kaupmaður þar, að margir nýti sér það. „Ekki síst á sumrin, þá sitja oft margir á bekknum fyrir utan hjá okkur með kaffibolla.“ Þrjú ár eru liðin síðan hún tók við versluninni og segir hún viðskiptin aukast með ári hverju. En þeir bræður Gunnar og Kristj- án eru þó ekki á því að litlum mat- vöruverslunum muni fjölga í bráð. „Það er varla nokkur leið fyrir nýja menn að komast inn í þetta,“ segir Kristján. „Það er búið að breyta verslunarhúsnæðinu í íbúðir en aðalvandamálið er að það er mjög erfitt fyrir nýja menn að koma inn í greinina. Hann yrði að borga allt staðgreitt til heildsala, það er engum treyst í þessu árferði og hvað þá á milli landa. Þannig að það er ekki gott að segja til um hvort fólki verði að ósk sinni með þetta.“ jse@frettabladid.is Óveðrið blæs ekki í hornin AGNAR Í RANGÁ Hann hefur staðið vaktina í 38 ár enda þýðir ekki að skipta um hest í miðri Rangá. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM GUNNAR OG KRISTJÁN Sumir viðskiptavinir njóta sérstakrar hylli. Jón Kr. Ólafsson söngvari, sem sést á myndum í baksýn, hefur fengið sendar vörur vestur á Bíldudal. MENNTUN „Ég er gríðarlega stolt- ur af krökkunum. Þessi keppni er mjög virt og gjarnan hefur það tekið aðra skóla áratugi að ná viðlíka árangri og við náðum nú,“ segir Garðar Víðir Gunnars- son lögfræðingur. Garðar var far- arstjóri liðs lagadeildar Háskól- ans í Reykjavík (HR) sem hafnaði í 5. til 8. sæti í Willem C. Vis-mál- flutningskeppninni, sem hald- in var í Vínarborg í Austurríki dagana 3. til 9. apríl. Alls tóku 233 háskólar víða að úr heimin- um þátt í keppninni, sem er ein sú stærsta sem haldin er á alþjóða- vettvangi. Keppnin snýst um að laganem- endur útbúa sóknar- og varnar- skjöl í tilbúnu ágreiningsefni, sem síðan er flutt frammi fyrir alþjóðlegum gerðardómi. Að sögn Garðars býr mikil undir- búningsvinna að baki þessum góða árangri. „Undirbúningur- inn er hluti af námskeiði sem ég kenni við HR. Ágreiningsefninu er dreift á skólana í byrjun októb- er og síðan tekur við mikil vinna við að útbúa sóknarskjal, sem er dreift til annarra skóla sem svara. Þetta er því margra mánaða starf, þar sem ferðin til Vínarborgar er hápunkturinn,“ segir Garðar, sem sjálfur tók þátt í keppninni fyrir hönd HR fyrir þremur árum. Lið HR hlaut einnig heiðurs- verðlaun fyrir varnarskjal liðsins. Hjördís Birna Hjartardóttir, einn liðsmanna, fékk sömuleiðis heið- ursverðlaun fyrir góða frammi- stöðu í málflutningi. „Það er mjög gott að hafa góðan árangur í þess- ari keppni á ferilskránni,“ segir Garðar Víðir Gunnarsson. - kg HR varð í 5. til 8. sæti í málflutningskeppni: Stoltur af krökkunum

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.