Fréttablaðið - 15.04.2009, Page 8
8 15. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR
1. Hvað heitir þjálfari ný-
krýndra Íslandsmeistara KR í
körfubolta?
2. Hvað heitir hundur dætra
Bandaríkjaforseta?
3.Hverjir öfluðu ofurstyrkja
fyrir Sjálfstæðisflokkinn fyrir
atbeina Guðlaugs Þórs Þórðar-
sonar?
SVÖR Á SÍÐU 38
ALÞINGI Ríkisstjórninni hefur mis-
tekist algjörlega að styrkja gengi
krónunnar sem hefur fallið um
sextán prósent frá því hún tók við
völdum 1. febrúar.
Þetta sagði Bjarni Benedikts-
son, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, á Alþingi í gær. Gagnrýndi
hann aðgerðaleysi stjórnvalda í
efnahagsmálum og taldi hættu á
að verðbólgubylgja skylli á sem
gæti komið í veg fyrir vaxtalækk-
anir Seðlabankans.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra blés á þennan mál-
flutning Bjarna og sagði rík-
isstjórnina stunda ábyrga og
yfirvegaða hagstjórn. Hann spurði
hvort Sjálfstæðisflokkurinn vildi
að verulegur hluti gjaldeyrisforð-
ans yrði nýttur til að lyfta upp
gengi krónunnar tímabundið og
svaraði því til um leið að slíkt væri
óráð. Ekki mætti nota gjaldeyris-
forðann til að kaupa upp gengi
krónunnar upp á von og óvon.
Bjarni sagði rangt að nota þyrfti
gjaldeyrisforðann að marki, Seðla-
bankinn hefði áður haft áhrif á
gengið með litlum inngripum. Nú
væru á hinn bóginn aðrir siðir í
bankanum og krónan fengi að falla
frjálsu falli.
Síðar á þingfundi gærdagsins
ræddi Steingrímur um sextán pró-
senta gengisfallið síðan núverandi
ríkisstjórn tók við völdum. Benti
hann á að á heilu ári hefði það
fallið um hundrað prósent. Ætti
núverandi stjórn sextán prósent í
því kæmu 84 prósent í hlut fyrri
stjórnar. - bþs
Formaður Sjálfstæðisflokksins gagnrýnir lausatök ríkisstjórnarinnar í hagstjórninni:
Óráð að kaupa upp gengi krónunnar
BJARNI
BENEDIKTSSON
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
STJÓRNMÁL Flest hlutafélög sem
alþingismenn tengjast beint starfa
í fasteignaviðskiptum, fjármála-
þjónustu eða fiskeldi og fiskveið-
um samkvæmt svokallaðri ÍSAT-
skráningu. Þetta kemur fram í
skýrslu sem Creditinfo gerði fyrir
Fréttablaðið um þátttöku þing-
manna í atvinnulífinu og vitnað
var til í blaðinu í gær.
Samkvæmt hlutafélagaskrá
tengjast alþingismenn nú 55 félög-
um sem stjórnarmenn, prókúru-
hafar eða slíkt. Í árslok 2007 tengd-
ust hins vegar fimmtán þingmenn
félögum með eignarhaldi sam-
kvæmt upplýsingum sem Creditin-
fo vann upp úr ársreikningaskrá.
Af félögunum 55 sem alþingis-
menn tengjast starfa ellefu á sviði
fasteignaviðskipta, tíu í fjármála-
þjónustu annarri en starfsemi
tryggingarfélaga og lífeyrissjóða
og níu félög starfa í fiskeldi og
fiskveiðum. Á eftir þessum teg-
undum félaga koma sjö fyrirtæki
í fræðslustarfsemi og fimm í heild-
verslun.
Persónuvernd hefur neitað Cred-
itinfo um leyfi til að miðla per-
sónugreinanlegum upplýsingum
sem fá má úr ársreikningaskrá. Af
þeim ástæðum hefur Fréttablaðið
nú óskað eftir því við þá flokka
sem nú eiga fulltrúa á Alþingi að
gera grein fyrir tengslum sinna
þingmanna við atvinnulífið. Hjá
sumum flokkanna eru talsverð-
ar upplýsingar um þessi atriði á
heimasíðum flokkanna. Þetta á
við um Vinstri græna og Fram-
sóknarflokkinn sem vísa á heima-
síður sínar.
Í svari frá Vinstri grænum
kemur fram að skýrsla Creditin-
fo hafi verið unnin upp úr úrelt-
um gögnum og þingmenn flokksins
þannig sagðir tengjast fleiri félög-
um en efni standa til.
„Hið rétta er að Álfheiður Inga-
dóttir er varamaður í stjórn Pláss-
ins ehf. og Árni Þór Sigurðsson er
stjórnarmaður Sjóminjasafnins í
Reykjavík þar sem hann gegnir
stöðu varaformanns. Sjóminjasafn-
ið er sjálfseignarstofnun. Enginn
annar þingmaður gegnir störf-
um í stjórnum fyrirtækja,“ segir
í svari VG þar sem því er bætt við
til nánari skýringar að Atli Gísla-
on sé ekki lengur endurskoðandi
Friðriks A. Jónssonar ehf. og sitji
ekki lengur í stjórn Friðarhúss hf.
Einnig að Álfheiður Ingadóttir sé
ekki lengur varamaður í stjórn
Sjóminjasafnsins. gar@frettabladid.is
Tengdir fasteignum,
fiski og fjármálum
Af 55 félögum sem Creditinfo segir alþingismenn tengjast eru 29 í fjármála-
starfsemi, fasteignaviðskiptum, fiskeldi eða fiskveiðum. Skorður eru við vinnslu
slíkra gagna um einstaklinga. Fréttablaðið óskar upplýsinga frá þeim sjálfum.
Auglýsingastarfsemi og markaðsrannsóknir
Bygging húsnæðis; þróun byggingarverkefna
Fasteignaviðskipti
Fiskveiðar og fiskeldi
Fjármálaþjónusta, þó ekki starfsemi vátryggingafélaga og …
Framleiðsla á kvikmyndum, myndböndum og sjónvarpsefni; …
Fræðslustarfsemi
Heildverslun, að undanskildum vélknúnum ökutækjum
Lögfræðiþjónusta og reikningshald
Rafmagns-, gas- og hitaveitur; kæli- og loftræstiveitur
Rekstur gististaða
Sérhæfð byggingarstarfsemi
Smásöluverslun, að undanskildum vélknúnum ökutækjum
Starfsemi alþjóðlegra stofnana og samtaka með úrlendisrétt
Starfsemi félagasamtaka
Starfsemi höfuðstöðva, starfsemi við rekstrarráðgjöf
Starfsemi safna og önnur menningarstarfsemi
Útgáfustarfsemi
Vörugeymsla og stoðstarfsemi fyrir flutninga
Önnur sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi
3
3
2
3
1
1
2
1
1
1
2
4
5
7
1
10
9
11
1
2
Sundurliðun á starfsemi fyrirtækja sem þingmenn eru
þátttakendur í, sundurliðað eftir ÍSAT. 3. apríl 2009.
Önnur starfsemi
5
Lögfræðiþj.-
reikningshald
2
Útgáfustarfsemi
2
Sundurliðun á starfsemi
fyrirtækja sem þingmenn
eru þátttakendur í.
Önnur starfsemi
15
Fjármálaþjónusta
6
Fasteignaviðskipti
7
Tækifærin búa hér
www.asbru.is
MENNTUN | NÝSKÖPUN | HEILSA | ORKA | LÍFSGÆÐI | SAMGÖNGUR
Ásbrú er heilt samfélag sem rís á gamla varnarsvæðinu í Reykjanesbæ. Ásbrú snýst
um hreina orku, þekkingu og nýsköpun, alþjóðlega samkeppnishæfni, nálægð við
alþjóðasamgöngur, mannauð, húsnæðiskost, æðri menntun, rannsóknir og heilsu.
Ásbrú er tækifæri – þar býr framtíðin.
Auglýsingasími
VEISTU SVARIÐ?