Fréttablaðið - 15.04.2009, Qupperneq 9
NÝI TÖLVU- OG VIÐSKIPTASKÓLINN - VIÐURKENNDUR EINKASKÓLI Á FRAMHALDSSKÓLASTIGI - HLÍÐASMÁRA 9 : KÓPAVOGI : SÍMI 544 4500 : WWW.NTV.IS
DIPLÓMANÁM Í FORRITUN
Lengd námskeiðs: 282 stundir Verð: 469.000 kr. (Allt innifalið) Einingar til stúdentsprófs: 18
Kjör fyrir atvinnulausa: 351.750 kr. (25% afsláttur) og geta einnig sótt um 70.000 kr. styrk hjá VMST*.
Tími námskeiðs: 25.05 - 27.08 (Frí 31.07- 16.08) Kennsludagar og tími: Mán, þri, mið og fim 8:30-12:30
Inntökuskilyrði: Þeir sem hyggja á þetta nám þurfa að hafa stúdentspróf eða hliðstæða menntun og reynslu
og góða enskukunnáttu en flestar bækur eru á ensku. Einnig góða almenna tölvukunnáttu
Forritun hefur verið kennd hjá NTV frá stofnun skólans 1997 og hafa um 250
nemendur útskrifast úr forritunarnámi frá skólanum. Í náminu er leitast við
að leggja traustan þekkingargrunn og byggja ofan á hann með skriflegum og
verklegum æfingum.
Að námi loknu eiga nemendur að hafa góða undirstöðuþekkingu og yfirsýn
yfir þær aðferðir sem helst eru notaðar í nútíma hugbúnaðargerð. Námið
byggir að miklu leiti á stöðluðum námskeiðum frá Microsoft og að námi loknu
eiga nemendur að vera færir að taka eftirfarandi 3 alþjóðleg próf: 070-316,
070-502 og 070-561 sem eru innifalin í verði námskeiðsins
BÓKARANÁM FRAMHALD
Lengd námskeiðs: 168 stundir Verð: 198.000 kr. Einingar til stúdentsprófs: 12
Kjör fyrir atvinnulausa: 148.500 kr. (25% afsláttur) og geta einnig sótt um 70.000 kr. styrk hjá VMST*.
Kennsludagar og tími: Mán, þri og fim 8:30-12:30 Tími námskeiðs: 02.06 - 26.08 (Frí 10.07- 03.08)
Inntökuskilyrði: Grunnþekking á bókahaldi og Excel
Námskeiðið er ekki eiginlegt bókhaldsnám þar sem gert er ráð fyrir því að
nemendur hafi þekkingu á almennu bókhaldi. Lögð er áhersla á að styrkja
nemendur í sjálfstæðum vinnubrögðum og auka færni þeirra við færslu og
uppgjör bókhalds.
Að loknu námskeiðinu eiga nemendur að vera færir að sjá um viðskipta-
mannakerfi, launakerfi og vera færir um að framkvæma einföld uppgjör á
bókhaldi ásamt öllum þeim afstemmingum og lokafærslum sem nauðsynlegar
eru. Að námi loknu verða nemendur mun verðmætari starfsmenn í
fyrirtækjum og geta hagnýtt upplýsingar úr bókhaldi á hagnýtan hátt.
Námið byggir á mikilli verkefnavinnu og þess gætt að verkefni sem nemendur
leysa séu hagnýt. Gera má ráð fyrir nokkurri heimavinnu. Námskeiðið
er algjörlega óháð reynslu nemenda á mismunandi bókhaldskerfum þar
sem námið er að mestu leyti unnið í Excel. Í takt við það munu nemendur
ennfremur styrkja þekkingu sýna á hagnýtri notkun á Excel.
ALVÖRU VEFSÍÐUGERÐ
Lengd námskeiðs: 210 stundir Verð: 209.000 kr. Einingar til stúdentsprófs: 8
Kjör fyrir atvinnulausa: 156.750 kr. (25% afsláttur) og geta einnig sótt um 70.000 kr. styrk hjá VMST*.
Tími námskeiðs: 25.05 - 31.07 Kennsludagar og tími: Mán, þri, mið og fim 8:30-12:30
Inntökuskilyrði: Þeir sem hafa hug á þessu námi þurfa að hafa haldgóða tölvukunnáttu og þekkja vel
til Windows stýrikerfisins og notkun Internetsins. Þar sem mestur hluti námsgagna er á ensku þarf góð
enskukunnátta einnig að vera fyrir hendi.
Undanfarin misseri hafa gagnagrunnstengdar vefsíður rutt sér mjög til rúms
og hönnunartækni í vefsíðugerð hefur fleygt fram.
Með gagnagrunnstengdum vefjum er hægt að minnka alla umsýslu sem og
sjálfvirknivæða viðhald og birtingar á gögnum eftir fyrirfram skilgreindum
forsendum.
Þegar nemandinn hefur lokið þessu námskeiði hefur hann haldgóðan skilning
á bæði á hefðbundnum og gagnagrunnstengdum vefsíðum.
Nemendur læra að hanna, viðhalda og setja upp gagnagrunna og læra
grundvallaratriði SQL fyrirspurnarmálsins og að tengja vefsíður við
gagnagrunna. Nemandinn öðlast þar að auki skilning og færni í að nota
CSS stílsnið til að stýra útliti vefsíðna. Mikið er um verklegar æfingar og fá
nemendur þannig tækifæri til þess að fara í gegnum verkferli vefsíðugerðar. Í
lok námskeiðsins vinna nemendur lokaverkefni.
KERFISUMSJÓN
Lengd námskeiðs: 180 stundir Verð: 249.000 kr. (Allt innifalið) Einingar til stúdentsprófs: 8
Kjör fyrir atvinnulausa: 186.750 kr. (25% afsláttur) og geta einnig sótt um 70.000 kr. styrk hjá VMST*.
Tími námskeiðs: 08.06 - 29.07 Kennsludagar og tími: Mán, þri, mið og fim 8:30-12:30
Inntökuskilyrði: Nemendur þurfa að kunna skil á notendaumhverfi Windows stýrikerfisins og geta lesið ensku,
þar sem stór hluti námsefnis er á ensku. Reynsla af rekstri tölvukerfa er ekki nauðsynleg.
Nám fyrir þá sem vilja hasla sér völl sem kerfisumsjónarmenn hjá minni
fyrirtækjum og stofnunum. Nemendur öðlast víðtækan skilning á uppsetningu
netkerfa, viðgerðum og bilanagreiningu á almennum vélbúnaði og
uppsetningu stýrikerfa.
Námið samanstendur bæði af kennslu og verklegum æfingum. Mest er
um verklegar æfingar í sérútbúinni viðgerðarstofu. Allar kennslugreinar eru
kenndar frá grunni og er rétt að gera ráð fyrir nokkurri heimavinnu.
SUMARSKÓLI NTV
FJÖGUR SPENNANDI NÁMSKEIÐ SEM STYRKJA STÖÐU ÞÍNA OG GERA ÞIG AÐ HÆFARI SRARFSKRAFTI
Upplýsingar og skráning: 544 4500 / www.ntv.is
* Þarf að sækja um hjá ráðgjafa vinnumálastofnunnar
Upplýsingar og
skráning:
544 4500 / ww
w.ntv.is