Fréttablaðið - 15.04.2009, Page 15
MIÐVIKUDAGUR 15. apríl 2009 15
STJÓRNSÝSLA Skýrsla Ríkisend-
urskoðunar um einkavæðingu
helstu ríkisfyrirtækja frá árinu
2003 þykir enn forvitnilegt les-
efni.
Í ársskýrslu Ríkisendurskoð-
unar fyrir síðasta ár er listi
yfir mest opnuðu skýrslurnar á
vef stofnunarinnar. Var skýrsla
um framkvæmd fjárlaga ársins
2007 oftast opnuð á síðasta ári,
skýrsla um Lögreglustjórann á
Suðurnesjum frá 2008 var í öðru
sæti og í þriðja til fjórða sæti
voru skýrsla um samgöngu-
framkvæmdir 2008 og einka-
væðingu ríkisfyrirtækja frá
2003. - bþs
Skýrslur Ríkisendurskoðunar:
Einkavæðingar-
skýrslan vinsæl
HARMLEIKUR 96 létu lífið á Hillsbor-
ough-leikvanginum í Sheffield hinn 15.
apríl 1989. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
ENGLAND Almenningssamgöng-
ur í Liverpool á Englandi verða
stöðvaðar í tvær mínútur í dag
til að minnast þeirra sem létu
lífið í harmleiknum á Hillsbor-
ough-vellinum, versta íþróttaslysi
í sögu Bretlands. Í dag eru tveir
áratugir liðnir frá atburðinum.
Níutíu og sex aðdáendur Liver-
pool-liðsins létu lífið í miklum
troðningi á Hillsborough-vellin-
um í Sheffield þegar Liverpool
og Nottingham Forest léku til
undanúrslita í ensku bikarkeppn-
inni árið 1989. Allar lestir, ferjur
og strætisvagnar í Liverpool og
nágrenni verða stöðvaðar klukk-
an 15.06, sem er sami tími og var
þegar undanúrslitaleikurinn var
flautaður af fyrir tuttugu árum.
Einnig verður öll umferð um
Mersey-göngin stöðvuð. - kg
Tuttugu ár frá Hillsborough:
Umferð stöðv-
uð í Liverpool
Upplýsi um keypta ráðgjöf
Fulltrúar minnihluta Sjálfstæðisflokks-
ins í bæjarráði Hafnarfjarðar hafa
óskað eftir upplýsingum um greiddan
kostnað vegna aðkeyptra ráðgjaf-
arverkefna árin 2004 til 2008. Þeir
spyrja um öll verk sem verkfræðistof-
ur, ráðgjafarfyrirtæki eða einstaklingar
hafa innt af hendi.
HAFNARFJÖRÐUR
DÓMSMÁL Þrír menn um tvítugt
hafa verið dæmdir í fangelsi
fyrir hrottalega líkamsárás. Sá
sem þyngstan dóm fékk á að sitja
átta mánuði inni. Hinir tveir voru
dæmdir í þriggja og fjögurra
mánaða fangelsi, hvoru tveggja
skilorðsbundið.
Mönnunum var gefið að sök að
hafa í sameiningu ráðist á mann
við skemmtistað á Selfossi. Þeir
börðu hann ítrekað og spörkuðu
í hann eftir að hann hafði fallið í
jörðina. Maðurinn slasaðist veru-
lega við árásina, einkum í andliti.
Mennirnir voru dæmdir til að
greiða fórnarlambinu rúmlega
800 þúsund krónur í skaðabætur.
- jss
Fangelsi og skaðabætur:
Þrír stórslösuðu
fórnarlambið
Ritið er aðgengilegt á vef Samfylkingarinnar | www.xs.is
Skal gert
Leiðir jafnaðarmanna
í efnahags-, atvinnu-
og velferðarmálum
Opinn morgunfundur
á Grand hótel
fi mmtudaginn
16. apríl kl. 8:30
Samfylkingin hefur skýra og ábyrga stefnu í efnahagsmálum. Hún er rakin og rökstudd ítarlega í nýju riti,
Skal gert, leiðir jafnaðarmanna í efnahags-, atvinnu- og velferðarmálum. Ritið, sem verður kynnt á morgun,
gefur vandað og greinargott yfi rlit yfi r helstu áskoranir stjórnmálanna; ríkisfj ármálin, endurreisn fj ármála-
kerfi sins, brýnustu aðgerðir fyrir heimilin og baráttuna gegn atvinnuleysinu. Einnig er rökstutt að samning-
ur við ESB er lykill að kraftmikilli uppbyggingu atvinnulífs og bættum lífskjörum á Íslandi. Höfundar eru
sérfræðingar úr atvinnulífi nu, háskólum og verkalýðshreyfi ngunni auk fulltrúa Samfylkingarinnar.
Dagskrá
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra
– Inngangsorð
Jón Sigurðsson, hagfræðingur
– Endurreisn fj ármálakerfi sins og peningamálastefna
framtíðarinnar
Katrín Ólafsdóttir, lektor
– Fjármál hins opinbera, bráðaaðgerðir gegn atvinnu-
leysi og efl ing atvinnulífs til framtíðar
Stefán Ólafsson, prófessor
– Varðstaða um velferð heimilanna
Aðalsteinn Leifsson, forstöðumaður
– Evrópumál eru fj ölskyldu og atvinnumál
Framtíðarsýn – pallborðsumræður
Kristín Pétursdóttir, forstjóri Auðar Capital
Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ
Össur Skarphéðinsson, utanríkis- og iðnaðarráðherra
Margrét Kristmannsdóttir, forstjóri Pfaff , formaður SVÞ
og Félags kvenna í atvinnurekstri
Vilhjálmur Þorsteinsson, stjórnarformaður CCP
o.fl . nýsköpunarfyrirtækja
Fundarstjórar:
Jón Þór Sturluson, hagfræðingur
Katrín Júlíusdóttir, formaður iðnaðarnefndar Alþingis
Húsið opnar kl. 8:00. Allir velkomnir!
Skal gert
Vinna og velf
erð
KIRKJAN „Við vonumst til þess að
hann taki skynsamlega ákvörð-
un í þessu máli sjálfur svo það
verði ekkert meira havarí,“ segir
Eysteinn Ó. Jónasson, formað-
ur sóknarnefndar Selfosskirkju.
Biskupsstofa hefur ákveðið að
séra Gunnar Björnsson fái að
snúa aftur til starfa í kirkjunni
1. júní.
Upphaflega stóð til að Gunnar
sneri aftur 1. maí. Það undraðist
sóknarnefndin enda hafði verið
farið fram á að presturinn sem
nú gegnir starfinu fengi að ljúka
fermingum, en fermt er fram í
maí. Raunar sendi sóknarnefnd-
in þegar í desember bréf til bisk-
ups þar sem farið var fram á að
séra Gunnar fengi alls ekki að
snúa aftur til starfa við kirkjuna.
Þótt hann hefði ekki verið fund-
inn sekur um kynferðisbrot gegn
sóknarbörnum sínum nyti hann
samt ekki tilskilins trausts.
Eysteinn segir að ákvörð-
un Biskupsstofu nú þýði ekki að
afstaða hafi verið tekin til þeirr-
ar beiðni sóknarnefndarinnar.
Hann telur að enn sé unnið í því
máli og verið sé að reyna að semja
við séra Gunnar og lögmann hans
um lyktir málsins.
Við þetta má bæta að séra
Gunnar hefur ákveðið að fara
fram á skaða- og miskabætur frá
Biskupsstofu vegna þess að hann
var settur í tímabundið leyfi frá
störfum þegar mál hans kom upp
á sínum tíma. - sh
Biskupsstofa hefur ákveðið að séra Gunnar Björnsson snúi aftur til starfa 1. júní:
Vona enn að séra Gunnar komi ekki
EKKI VELKOMINN Sóknarnefnd Selfoss-
kirkju telur að enn sé unnið að því að
fá séra Gunnar ofan af því að mæta til
starfa að nýju.
DÓMSTÓLAR Karlmaður af
erlendu bergi brotinn hefur
verið dæmdur í Hæstarétti til að
sæta gæsluvarðhaldi meðan mál
hans er fyrir þeim dómi eða til
19. júní.
Maðurinn var nýverið
dæmdur í Héraðsdómi Reykja-
víkur í tveggja ára fangelsi
fyrir að ráðast á og ræna
aldraðan mann í Reykjavík.
Þeim dómi áfrýjaði hann til
Hæstaréttar. Hann var í
farbanni en reyndi að komast af
landi brott með flugi til Noregs
fyrr í mánuðinum. Var hann
stöðvaður við vopnaleitarhlið í
Leifsstöð. - jss
Settur í gæsluvarðhald:
Reyndi að fara
af landi brott