Fréttablaðið - 15.04.2009, Síða 23
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
GÖNGUFERÐ í Póllandi er meðal þess sem verður í boði hjá ÍT-
ferðum í sumar. Ferðin stendur frá 17. til 25. júní og gengið í Babia
Gora-þjóðgarðinum, Tatrafjöllunum, Pieneny-fjöllunum og
farið á hæsta tind Póllands, Rysy, sem er 2.499 metra hár.
Einhver stærsti ratleikur sem
nokkurn tímann hefur farið fram
á Íslandi er á næsta leiti. Hann er
hluti af dagskrá Ferðafagnaðar,
hátíðar ferðaþjónustunnar, sem
fer fram á laugardag. „Ég eyddi
páskafríinu mínu í að búa til eina
34 pósta en þeim verður komið
fyrir við strandlengjuna frá Korp-
úlfsstaðagolfvelli að Ása torgi
í Hafnarfirði,“ segir Sesselja
Traustadóttir grunnskólakennari,
varaformaður fjallahjólaklúbbs-
ins og höfundur ratleiksins.
Leikurinn, sem hentar sérstak-
lega hjólreiðafólki, spannar tæp-
lega 50 kílómetra leið og eru frá
0,6 til 2 kílómetrar á milli pósta.
„Einungis er gert ráð fyrir því að
þátttakendur finni fimm pósta á
innan við tíu kílómetra leið og er
því ekki nauðsynlegt að þeir fari
leikinn endana á milli,“ segir Sess-
elja og heldur áfram að útskýra
leikreglurnar: „Á hverjum pósti
má finna lýsingu á því hvar þann
næsta er að finna. Þátttakendur
hafa meðferðis þátttökuseðil sem
má finna á slóðinni www.ferda-
fagnadur.is en á hann þurfa þeir
að safna fimm lykilnúmerum, sem
er að finna á póstunum, og fimm
stimplum frá fyrirtækjum sem
kynna starfsemi sína á Ferðafagn-
aði. Á hverjum pósti eru upplýs-
ingar um fyrirtæki í grenndinni.
Þátttökuseðlum má síðan skila inn
á alla þá staði sem stimpla í leikn-
um eða til Höfuðborgarstofu til og
með síðasta vetrardegi en dregið
verður úr innsendum lausnum á
Rás 2 og eru glæsilegir vinning-
ar í boði.“
Sesselja telur það ekki eftir sér
að hafa varið páskafríinu í það að
undirbúa leikinn enda mikil hjól-
reiðakona. „Ég hef fengið viður-
nefnið hjóladrottningin þó ég fari
nú ekki hátt með það,“ segir hún
og hlær. Hún segir leikinn kjör-
ið tækifæri fyrir þá sem vilja
kynna sér ferðamöguleika sem í
boði eru á höfuðborgarsvæðinu
og víðar auk þess sem hann býður
upp á góða útivist, hreyfingu og
spennu.
vera@frettabladid.is
Risaratleikur á hjólum
Sesselja Traustadóttir varði páskunum í að undirbúa umfangsmikinn hjólaratleik sem mun ná frá
Korpúlfsstaðagolfvelli að Ásatorgi í Hafnarfirði. Leikurinn er einn af dagskrárliðum á Ferðafögnuði.
Sesselja, sem er höfundur leiksins, er mikil hjólreiðakona og hefur fengið viðurnefnið hjóladrottningin. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Verkalýðsfélagsins Hlífar verður
haldinn miðvikudaginn 15. apríl 2009
kl: 20:00, í Skútunni, Hólshrauni 3. Hafnarfi rði.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning í kjörstjórn.
3. Önnur mál.
Kaffi veitingar.
Stjórnin.
Reykjavíkurvegi 64 - 220 - Hafnarfjörður
Sími 5550944 - Fax 5654055 - Netfang: hlif@hlif.is
20