Fréttablaðið - 15.04.2009, Síða 27
MIÐVIKUDAGUR 15. apríl 2009 3
Framsóknarfl okkurinn
Stjórnmál
Í trúnaði
Kjörnir fulltrúar hafa mikil-vægt hlutverk með höndum.
Þeim er trúað fyrir almannahags-
munum og eignum og er ætlað að
fara með þetta af trúmennsku og
heiðarleika. Á þessa staðreynd eru
þeir minntir reglulega og þurfa að
endurnýja umboð sitt í kosningum.
Þeir taka við valdi frá almenningi
sem á þessar eignir, þessa hags-
muni og þetta samfélag.
Fyrir kemur að kjörnir fulltrúar,
þingmenn og sveitarstjórnarfólk
missi sjónar af þessu trúnaðar-
sambandi við sína kjósendur. Slíkt
er ekki bara vaktað af almenningi
sjálfum, heldur ekki síður af pólit-
ískum keppinautum og svo auðvit-
af fjölmiðlum sem hafa gríðarlega
mikilvægu hlutverki að gegna í því
að halda þessari ábyrgð til haga.
Þegar flokkur hefur ríkt lengi
er hætt við því að hann hreiðri um
sig í valdakerfinu öllu, knýi undir
sig framkvæmdarvaldið og jafn-
vel dómsvaldið, fyrirtækin og við-
skiptalífið. Hann missir tengslin
við sína kjósendur og skilninginn
á framsali valdsins, fyllist vald-
hroka og yfirgangi, og skilningur-
inn á réttu og röngu verður óljós.
Gagnrýnisröddum er vísað á bug,
vissan um eigið ágæti og réttinn til
að setja siðferðisleg viðmið verð-
ur algjör. Umboðið frá almenningi
verður aukaatriði og stjórnmála-
mennirnir sjálfir láta eins og vald-
ið sé þeirra eigið, hagsmunirnir
þeirra og eignir almennings leik-
munir í pólitísku sjónarspili.
Þegar rétt og rangt er orðið
heimasmíðað og siðferðið á floti er
auðvelt að kaupa og selja ákvarðan-
ir áform og vilja. Peningar skipta
um hendur og liðkað er til fyrir
niðurstöðum, kaupréttir verða til,
vinabönd myndast milli þeirra
sem með völdin fara í viðskiptum
og stjórnmálum, gjaldmiðillinn er
eignir almennings.
Stjórnmálaflokkar sem missa
sjónar á grundvallaratriðunum,
trúmennsku, og trúnaðarsambandi
við kjósendur þurfa að endurskoða
sitt hlutverk og erindi í stjórnmál-
um. Eftir hrunið, á nýjum byrjun-
arreit samfélagins, þarf að byggja
á heilindum.
Við vinstri græn viljum varð-
veita samfélagið í samstarfi við
allan almenning, gæta eigna og
hagsmuna hans og taka ákvarðanir
í þágu aukins jöfnuðar, félagslegs
réttlætis og gagnsæis. Þessi sjón-
armið eiga ríkt erindi við Ísland á
þessum örlagatímum við endur-
mótun og uppbyggingu samfélags-
ins. Í þágu almennings.
SVANDÍS
SVAVARSDÓTTIR
skipar fyrsta sæti á
lista VG í Reykjavík-
urkjördæmi suður
Reykjavík er nú skipt í tvö kjördæmi, Reykjavík
norður og Reykjavík suður.
Framsóknarflokkurinn býður
fram ungt og kraftmikið fólk
í báðum kjördæmum höfuð-
borgarinnar.
Sigmundur Daðvíð Gunn-
laugsson umhverfishagfræð-
ingur, nýkjörinn formaður
Framsóknarflokksins, er í
efsta sæti listans í norður-
kjördæmi Reykjavíkur. Vig-
dís Hauksdóttir lögfræðing-
ur skipar efsta sæti flokksins
í suðurkjördæmi borgarinn-
ar.
Ekki verður því leynt að
Framsóknarflokkurinn hefur
átt við mótbyr að stríða í
Reykjavík undanfarin ár.
En nú hefur orðið alger upp-
stokkun á forustu flokksins.
Hann gengur endurnýjaður
til kosninga. Framsóknar-
flokkurinn er gróið stjórn-
málaafl. Hann er elsti starf-
andi flokkur landsins og
hefur verið mótandi kraftur
íslensks þjóðfélags í meira en
90 ár og á sér farsæla sögu,
þrátt fyrir mótbyr síðustu
ára. Þess er að minnast að
Framsóknarflokkurinn átti
um áratugaskeið tvo þing-
menn í Reykjavík og þrjá
borgarfulltrúa. Flokkurinn
ætti að geta hresst upp á bak-
land sitt í borginni og endur-
heimt kjörfylgið. Sigmundur
Davíð og Vigdís Hauksdótt-
ir eru glæsilegir fulltrúar
framsækins fólks í Reykja-
vík og ágætlega búin undir
að takast á við vanda líð-
andi stundar og sókn til far-
sællar framtíðar. Þau hafa
m.a. aflað sér góðrar mennt-
unar, sem nýtist þeim vel og
styrkir áhuga þeirra og vilja
til þess að verða landi og lýð
til heilla.
Ég, sem þessar línur rita,
hef verið gagnrýninn á þjóð-
félagsþróunina á undanförn-
um árum. Ég hef ekki legið
á því að Framsóknarflokk-
inn bar af leið í löngu og ein-
hliða samstarfi við Sjálfstæð-
isflokkinn. Forusta flokksins
missteig sig í mörgu og vann
í mótsögn við þau gildi
félagshyggjunnar, sem eru
og áttu að vera leiðarljós for-
ustumanna flokksins þá og
ævinlega. Ég trúi því að ný
flokksforusta bæti úr því sem
aflaga fór. Umskiptin í for-
ustunni lofa góðu um fram-
haldið.
Ný forusta
í Reykjavík
INGVAR GÍSLASON
fyrrverandi ráðherra