Fréttablaðið - 15.04.2009, Síða 40
32 15. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari íslenska
knattspyrnulandsliðsins, var um helgina í
Svíþjóð og sá leik Kristianstad og Djurg-
ården, í þarlendu úrvalsdeildinni, sem
síðarnefnda liðið vann, 3-2. Í þessum leik
voru fimm Íslendingar í byrjunarliðum
liðanna. Þær Erla Steina Arnardóttir, Hólm-
fríður Magnúsdóttir og Guðný Björk
Óðinsdóttir hjá Kristianstad og þær
Guðbjörg Gunnarsdóttir markvörður
og Guðrún Sóley Gunnarsdóttir hjá
Djurgården.
Erla Steina skoraði fyrra mark
Kristianstad í leiknum eftir
sendingu Hólmfríðar.
Elísabet Gunnarsdóttir
er þjálfari Kristian-
stad.
„Þetta var hörku-
leikur tveggja hörkuliða,“ sagði Sigurður
Ragnar. „Ég átti svo fund með leikmönn-
unum og Elísabetu eftir leik sem var mjög
jákvætt. Þetta var góð ferð fyrir mig.“
Hann segir að það sé nokkur munur
á íslensku deildinni og þeirri sænsku,
sérstaklega eftir að fjöldi íslenskra lands-
liðskvenna fór til Svíþjóðar að loknu
síðasta tímabili.
„En ef við miðum við bestu lið
Landsbankadeildarinnar á síðasta
tímabili þá held ég að þau lið gætu
spjarað sig vel í þeirri sænsku í dag,“
sagði Sigurður Ragnar. „En stærsti
munurinn er að í Svíþjóð virðast
öll lið geta unnið hvert annað
– deildin er mjög jöfn og margir
góðir leikmenn í henni. Það
var líka áberandi hve góð liðin
eru að halda boltanum innan liðsins. Það er
eitthvað sem íslensku liðin þurfa að bæta.“
Kristianstad hefur nú tapað öllum þremur
leikjum sínum til þessa í deildinni en Sigurð-
ur Ragnar hefur trú á að Elísabet og hennar
leikmenn nái að rífa sig upp.
„Þær eru með betra lið en ég bjóst við og
sköpuðu sér mikið af færum í leiknum. Það
er þeim líka til vorkunnar að liðið missti út
alla varnarlínuna frá síðasta tímabili og er
með 5-6 nýja leikmenn í liðinu. Í vörninni
nú er til að mynda leikmaður sem aldrei
áður hefur spilað vörn. En í þessum leik voru
þær að spila gegn sterkum andstæðingi og
spjöruðu sig ágætlega.“
Hann segir að Elísabet þurfi einfaldlega
tíma til að fínpússa liðið. „Það eru margir
virkilega góðir leikmenn í liðinu. Ég tel að
liðið fari fljótlega að hala inn stig.“
SIGURÐUR RAGNAR EYJÓLFSSON: SÁ FIMM ÍSLENDINGA Í EINUM LEIK Í SVÍÞJÓÐ
Bestu lið síðasta árs myndu spjara sig í Svíþjóð
> Rakel hætt hjá Bröndby
Rakel Hönnudóttir hefur ákveðið að hætta fyrr en áætlað
var hjá danska liðinu Bröndby þar sem
hún var í láni nú í vetur. Rakel átti að
vera með liðinu fram í byrjun maí. Hún
hins vegar meiddist á hné og vildi komast
undir íslenskar læknishendur. „Ég veit ekki
hvað er nákvæmlega að í hnénu. Ég var
oft sprautuð til að geta spilað en mun á
morgun hitta lækni landsliðsins sem telur
meiðslin þó ekki of alvarleg,“ sagði hún
á heimasíðu Þórs í gær. Rakel mun leika
með Þór/KA í efstu deild kvenna í sumar
eins og undanfarin ár.
Meistaradeild Evrópu
Chelsea - Liverpool 4-4 (7-5 samal.)
0-1 Fabio Aurelio (19.), 0-2 Xabi Alonso, víti (28.),
1-2 Didier Drogba (51.), 2-2 Alex (57.), 3-2 Frank
Lampard (76.), 3-3 Lucas (81.), 3-4 Dirk Kuyt
(82.), 4-4 Frank Lampard (89.).
Bayern München - Barcelona 1-1 (1-5)
1-0 Frank Ribery (47.), 1-1 Seydou Keita (73.).
Fyrsti leikur Barcelona og Chelsea fer fram á Nou
Camp í Barcelona 28. apríl næstkomandi.
Danska úrvalsdeildin
Esbjerg - Nordsjælland 1-2
Gunnar Heiðar Þorvaldsson kom inn á sem
varamaður á 75. mínútu. Kári Árnason er frá
vegna meiðsla.
Norska úrvalsdeildin
Fredrikstad - Stabæk 0-1
Garðar Jóhannsson sat allan tímann á bekknum
- Pálmi Rafn Pálmason lék allan leikinn í framlínu
Stabæk.
Þetta var fyrstu sigur Stabæk í deildinni en liðið
hafði gert jafntefli í fyrstu þremur leikjum sínum
á tímabilinu.
ÚRSLIT
KÖRFUBOLTI Það er útlit fyrir því
að bæði Íslandsmeistaraliðin í
körfunni skipti um þjálfara fyrir
næsta tímabil.
Benedikt Guðmundsson, þjálf-
ari karlaliðs KR, telur það sjálf-
ur best fyrir KR að hann stígi til
hliðar eins og kemur fram í við-
tali við hann í næstu opnu og þá
var það ákveðið í gær að Yngvi
Gunnlaugsson yrði ekki áfram
með kvennalið Hauka.
„Ég er búinn að vera lengi
hjá Haukunum og það var kom-
inn ágætis tímapunktur núna
að reyna fyrir sér á öðrum víg-
stöðvum. Það er léttara að fara
frá Haukum í þessari stöðu
þegar maður er búinn að vinna
síðasta leikinn hjá félaginu og
tryggja því Íslandsmeistaratitil-
inn,“ sagði Yngvi. Hann er búinn
að þjálfa hjá Haukum í átta ár
og hefur á þeim tíma unnið níu
Íslandsmeistaratitla og fimm bik-
armeistaratitla með félaginu.
Yngvi Gunnlaugsson tók við
meistaraflokki kvenna hjá Hauk-
um af Ágústi Björgvinssyni eftir
að liðið hafði orðið Íslandsmeist-
ari tvö ár í röð en síðan misst
marga lykilmenn. Undir hans
stjórn varð liðið deildarmeist-
ari og tryggði sér síðan Íslands-
meistaratitilinn með sigri á KR
í oddaleik.
„Ég er opinn fyrir öllu. Það
væri gaman að fara í karla-
boltann en ég ætla að skoða það
sem er í boði hvort sem það er
yngri flokkur eða meistaraflokk-
ur. Maður er bara 31 árs og er
ekki að fara á eftirlaun. Ég er
rólegur yfir þessu en ef eitthvað
spennandi kemur upp þá að sjálf-
sögðu skoða ég það,“ sagði Yngvi
að lokum.
Haukarnir hafa ekki fund-
ið eftirmann Yngva en von er á
yfirlýsingu frá Haukum á næstu
dögum um hver muni taka við lið-
inu. - óój
Íslandsmeistaralið körfunnar skipta um þjálfara:
Yngvi er hættur
með Haukaliðið
SÍÐASTI LEIKURINN Yngvi Gunnlaugs-
son gerði Hauka að Íslandsmeisturum
í sínum síðasta leik. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
skipta um dekk hjá Max1
Umfelgun og ný dekk á góðu verði
Umfelgun og jafnvægisstilling á 4 fólksbíladekkjum á 12–16 tommu
stálfelgum 6.458 kr. Kauptu sumardekkin hjá Max1 á góðu verði.
Spyrðu okkur hvað við getum gert meira fyrir þig.
Við erum góðir í að gera hlutina fljótt og vel og ódýrt – skoðaðu: www.max1.is
Reykjavík, sími 515 7190: Bíldshöfða 5a,
Bíldshöfða 8, Jafnaseli 6, Knarrarvogi 2.
Akureyri, sími 462 2700: Tryggvabraut 5.
Skoðaðu www.max1.is
Sparaðu, láttu
Ný sumardekk
Dekkjaskipti
Aðalfundur
Knattspyrnudeildar Fylkis 2008
Aðalfundur Knattspyrnudeildar Fylkis verður haldinn
í Fylkishöll fi mmtudaginn 19. mars 2009 kl. 20.30.
Dagskrá;
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál
Stjórn Íþróttafélagsins Fylkis.
HANDBOLTI Rhein-Neckar Löwen
vann mikilvægan 34-33 sigur á
HSV Hamburg í baráttunni um
silfrið í þýsku úrvalsdeildinni í
handbolta í gær.
Eftir leikinn munar aðeins einu
stigi á liðunum en Kiel er í sér-
flokki í deildinni og á meistara-
titilinn vísan. HSV Hamburg er í
2. sætinu með 41 stig en Rhein-
Neckar Löwen komst upp fyrir
Lemgo í 3. sætið.
Guðjón Valur Sigurðsson spil-
ar mjög vel þessa dagana og
hann var markahæsti leikmað-
ur Rhein-Neckar Löwen ásamt
Mariusz Jurasik en þeir skoruðu
báðir átta mörk í leiknum.
Jackson Richardson lék sinn
fyrsta leik með Rhein-Neck-
ar Löwen í þessum leik en hann
leysir af Pólverjann Grzegorz
Tkaczyk sem meiddist illa á dög-
unum. - óój
Þýski handboltinn í gær:
Guðjón Valur
með átta mörk
GUÐJÓN VALUR FAGNAR Rhein-Neckar
Löwen vann mikilvægan sigur í gær.
NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Einn besti leikur í Meist-
aradeildinni frá upphafi fór fram
á Brúnni í gær þegar Chelsea og
Liverpool gerðu 4-4 jafntefli í
seinni leik liðanna í átta liða úrslit-
um. Chelsea náði að vinna upp
tveggja marka forustu Liverpool
og tryggja sér sæti í undanúrslit-
um á móti Barcelona.
Þetta var kannski ekki besti leik-
urinn þegar kemur að fagurfræði
fótboltans en hvað varðar mörk,
marktækifæri og mistök þá bauð
þessi leikur nánast upp á allt.
Liverpool átti nánast ómögu-
legt verkefni fyrir höndum fyrir
leikinn en eftir að Liverpool-menn
komust í 2-0 í fyrri hálfleik var
allt í einu allt galopið. Fabio Aur-
elio skoraði þá lúmskt mark beint
úr aukaspyrnu og Xabi Alonso
kom Liverpool í 2-0 með marki úr
vítaspyrnu eftir tæpan hálftíma
leik.
Guus Hiddink, stjóri Chelsea,
ákvað að breyta liði Chelsea strax
og bæta við sóknina. Hiddink tók
Salomon Kalou útaf eftir 35 mín-
útur og setti inn Nicolas Anelka.
Þessi breyting átti eftir að borga
sig því Anelka og Didier Drogba
áttu eftir að stríða Liverpool-vörn-
inni það sem eftir var leiks.
Didier Drogba minnkaði muninn
í upphafi seinni hálfleiks áður en
Alex jafnaði í 2-2 með stórkostlegu
marki beint úr aukaspyrnu. Frank
Lampard kom síðan Chelsea í 3-2
eftir undirbúning Drogba og aftur
var eins og vonir Liverpool væru
að engu orðnar.
Liverpool gafst hins vegar ekki
upp og komst yfir með mörkum
frá Lucas Leiva og Dirk Kuyt með
mínútu millibili. Þá þurfti Liver-
pool bara eitt mark til viðbótar en
það var hins vegar Frank Lampard
sem skaut sínum mönnum í undan-
úrslitin með því að jafna metin í 4-
4 mínútu fyrir leikslok.
„Þetta var frábær fótboltaleik-
ur. Við gerðum okkur erfitt fyrir
í fyrri hálfleik með því að spila
mjög illa. Við sýndum okkar sterka
karakter með því að snúa þessu
við og ná að jafna leikinn,“ sagði
Frank Lampard sem bar fyrirliða-
band Chelsea þar sem John Terry
var í leikbanni.
„Við erum vonsviknir með að
fjögur mörk á útivelli hafa ekki
dugað til að vinna leikinn,“ sagði
Rafael Benitez, stjóri Liverpool,
eftir leikinn.
Barcelona hafði fjögur mörk
í veganesti frá því í fyrri leikn-
um á móti Bayern á Nou Camp
og því var sætið í undanúrslitun-
um ekki í mikilli hættu. Frank
Ribery kom þó Bayern yfir sem
sýndi allt annan og betri leik en
á Spáni. Barcelona-menn tryggði
sér síðan jafntefli með sannkall-
aðari meistarasókn sem endaði
með að Xavi gaf á Seydou Keita
sem skoraði. Eiður Smári Guð-
johnsen sat á bekknum allan tím-
ann og hefur ekki komið við sögu
í Meistaradeildinni á þessu ári.
Ashley Cole, vinstri bakvörð-
ur Chelsea, fékk gula spjaldið í
leiknum og verður því í banni í
fyrri leiknum sem eru ekki góðar
fréttir fyrir Guus Hiddink enda
þarf hann að finna nýjan vinstri
bakvörð sem fær það erfiða verk-
efni að eiga við Lionel Messi hjá
Barcelona og það á hinum risa-
stóra Nou Camp. Fyrsti leikur
Barcelona og Chelsea fer fram
28. apríl.
ooj@frettabladid.is
Átta marka klassík á Brúnni í gær
Chelsea og Barcelona tryggðu sér sæti í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í gær. Sæti Barcelona var
aldrei í hættu. Hetjuleg barátta Liverpool kom heimamönnum í Chelsea í opna skjöldu en dugði ekki til.
ÓVÆNT Didier Drogba sést hér skora
markið sitt og minnka muninn í 2-1.
NORDICPHOTOS/AFP
MIKILVÆG MÖRK Frank Lampard gerði út um vonir Liverpool með tveimur mörkum í
lok leiksins. NORDICPHOTOS/AFP