Fréttablaðið - 15.04.2009, Page 46
38 15. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT
2. nautasteik, 6. tveir eins, 8. duft, 9.
bein, 11. gelt, 12. þyrping, 14. urga,
16. tveir eins, 17. ennþá, 18. eyrir, 20.
tveir eins, 21. traðkaði.
LÓÐRÉTT
1. iðja, 3. kringum, 4. græðgi, 5. ham-
fletta, 7. endalaus, 10. viðmót, 13.
atvikast, 15. sál, 16. flík, 19. kyrrð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. buff, 6. ee, 8. mél, 9. rif,
11. gá, 12. klasi, 14. ískra, 16. ff, 17.
enn, 18. aur, 20. dd, 21. tróð.
LÓÐRÉTT: 1. verk, 3. um, 4. fégirnd,
5. flá, 7. eilífur, 10. fas, 13. ske, 15.
anda, 16. fat, 19. ró.
„Ég hlusta mikið á nýju Morr iss-
ey-plötuna, Years of Refusal,
þessa dagana og ef ég kveiki á
útvarpinu dettur mér ekki í hug
að hlusta á aðra en Harma-
geddon-bræðurna á Xinu.“
Atli Fannar Bjarkason, ritstjóri Mónitors.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Benedikt Guðmundsson.
2 Bo.
3 Steinþór Gunnarsson og
Þorsteinn Metúsalem Jónsson.
RÚV og Stöð 2 verða með ólíkar
kosningavökur þegar kosið verður
til Alþingis laugardaginn 25. apríl.
Kosningasjónvarp RÚV verð-
ur með hefðbundnu sniði en öll
skemmtiatriði hafa verið afþökk-
uð. Kosningavaka Stöðvar 2 verður
hins vegar langur skemmtiþáttur.
„Þórhallur Gunnarsson og Mar-
grét Marteinsdóttir verða stjórn-
endur kosningasjónvarpsins,“
segir Ingólfur Bjarni Sigfússon
sem verður maðurinn á bak við
tjöldin í kosningasjónvarpi RÚV
þetta árið. „Bogi Ágústsson mun
síðan rýna í tölurnar en hann er
orðinn nokkuð vanur því að standa
inni í grænu herbergi sem lítur
út fyrir að vera fullt af alls kyns
tækjum og tólum.“ Ingólfur telur
að kosningasjónvarp RÚV verði
svolítið 2007, ekki þá í þeirri
merkingu að það verði íburðar-
mikið og fullt af glamúr held-
ur verði litlu bætt við þá tækni
sem notast var við í kosningun-
um 2007. Sú nýbreytni verður
þó höfð að Egill Helgason tekur á
móti spekingum í sjónvarpssal og
fer yfir gang mála.
Stöð 2 hyggst ekki bjóða
upp á hefðbundna kosn-
ingavöku heldur mun
L og i B erg m a n n
Eiðsson taka á móti
góðum gestum í sjón-
varpssal. „Tölurnar
renna síðan bara yfir
skjáinn og fólk ætti
því ekki að missa af
neinu.“ Logi nýtur aðstoðar þeirra
Sveppa og Audda sem ætla að
þeysast um bæinn og taka hús á
fólki allt kvöldið en þjóðþekkt-
ir skemmtikraftar munu halda
uppi fjörinu og jafnvel bregða sér
í hlutverk stjórnmálaspekúlanta
þegar líður á nóttina. - fgg
Stöðvarnar með ólíkar kosningavökur
ÓLÍK HLUTVERK Ingólfur Bjarni verður
maðurinn á bak við tjöldin í
kosningasjónvarpi RÚV en þar
verða engin skemmtiatriði.
Logi Bergmann tekur
hins vegar á móti
skemmtikröftum
á kosningavöku
Stöðvar 2.
Tæplega fimm þúsund manns sáu
Draumalandið, heimildarmynd
Andra Snæs Magnasonar og Þor-
finns Guðnasonar, um páska-
helgina. Þetta þýðir að með sömu
aðsókn gæti Draumalandið skákað
Sólskinsdreng Friðriks Þórs Frið-
rikssonar en tæplega fjögur þús-
und manns sáu hana fyrstu sýning-
arhelgina. Alls sáu yfir tólf þúsund
manns myndina um Kela og varð
hún aðsóknarmesta heimildar-
myndin í sögu Íslands en Drauma-
landið gæti hæglega skákað henni
ef fram heldur sem horfir.
Andri Snær Magnason var að
vonum kampakátur yfir þess-
um tölum en sagði þá félaga setja
markið hátt. „Við ætlum okkur
auðvitað að skáka Stuðmanna-
myndinni Með allt á hreinu,“ segir
Andri Snær en sú ágæta klassík er
talin vera aðsóknarmesta mynd-
in í hinni ungu kvikmyndasögu
Íslands. Bókin um Draumalandið
seldist ákaflega vel á sínum tíma,
í um tuttugu þúsund eintökum,
en hún var svo sannarlega ekki
allra, var harðlega gagnrýnd af
virkjanasinnum. Andri Snær von-
ast auðvitað til þess að þeir setji
ágreining sinn til hliðar og kynni
sér hina hliðina á málinu í gegnum
myndina. „Nú er tími gagnrýninn-
ar hugsunar.“ - fgg
Fimm þúsund sáu Draumalandið
ÁNÆGÐUR MEÐ VIÐTÖKURNAR Andri Snær Magnason er ánægður með þá aðsókn
sem Draumalandið fékk fyrstu sýningarhelgina. Hann segir aðstandendur myndar-
innar setja markið hátt. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Já, Jo Nesbö og einnig Sara Blæd-
el eru væntanleg til landsins í lok
maí í boði Uppheima. En þá stendur
til að halda hér á landi mikið glæpa-
sagnaþing,“ segir Kristján Kristj-
ánsson, útgefandi hjá Uppheimum.
Norski glæpasagnahöfundurinn
Jo Nesbö trónir nú á toppi metsölu-
lista Eymundsson með bók sína
Rauðbrystingur – sem er athygl-
isvert í ljósi þess að höfundurinn
var nánast óþekktur. En það virð-
ist skipta máli að bókin hlaut afar
lofsamleg ummæli þeirra Kolbrún-
ar Bergþórsdóttur og Páls Bald-
vins Baldvinssonar í bókmennta-
þætti Egils Helgasonar, Kiljunni.
Velgengni Rauðbrystingsins þarf
hins vegar ekki að koma á óvart
því að Nesbö er hinn íslenski Arn-
aldur Indriðason. Hann hefur gefið
út einar átta bækur og var í fyrra
og hittifyrra með söluhæstu bækur
Noregs, Snjókarlinn og Hausaveið-
arann. Nesbö hefur meðal annars
afrekað það að eiga fimm af þeim
tuttugu bókum sem oftast eru lán-
aðar út í norskum bókasöfnum.
Þessi maður er væntanlegur til
landsins og Kristján er að vonum
ánægður með það. En Uppheimar
eru á góðri siglingu að sögn for-
leggjarans.
„Já, Nesbö skaust beint í toppsæt-
ið og er það eina sem kom í veg fyrir
að Lisa Marklund, sem við gefum
einnig út, væri þar,“ segir Kristj-
án – ánægjuleg tíðindi fyrir hið til-
tölulega litla forlag sem á varnar-
þing á Akranesi. Uppheimar eiga
nú þrjár bækur á topp tíu-listanum
sem aldrei hefur gerst áður í sögu
forlagsins. „Þetta er hluti af þeirri
starfsemi sem við köllum Undir-
heima sem eru glæpasagnahluti
Uppheima. Við einbeitum okkur að
því að gefa út skandinavíska glæpa-
sagnahöfunda. Já, já, Uppheimar
eru á fínni siglingu sem telst gott
mál og afrek út af fyrir sig að vera
ekki farinn á hausinn.“
jakob@frettabladid.is
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON: NORRÆNIR KRIMMAR NJÓTA VINSÆLDA
Norskur metsöluhöfundur
mætir á glæpasagnaþing
JO NESBÖ Trónir á toppi metsölulista Eymundsson og er væntanlegur til Íslands í lok maí. NORDICPHOTOS/GETTY
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON Undirheimar,
hliðarverkefni Uppheima sem snýst
um útgáfu glæpasagna, gengur vonum
framar.
Bíóhúsin, SAM-bíó og Sena, mæt-
ast í knattspyrnuleik í Sporthúsinu
á föstudaginn. Sagan segir að
Senumenn, með þá glaðbeittu Jón
Gunnar Geirdal og Guðmund
Breiðfjörð í broddi fylkingar, hafi
gert samkeppnisaðilanum djarft
tilboð á þá leið að sigurvegarinn
fengi sýningarréttinn
á nýjustu Harry
Potter-myndinni
sem væntanleg er
í sumar. SAM -
bíóin féllust ekki á
það enda sýningar-
rétturinn þeirra og
niðurstaðan sú að
sigurlaun eru
frír borgari á
Players.
Þó víða sé lágt á mönnum risið
á það ekki við um innlenda
kvikmyndagerð. Einkum er völlur
á Baltasar Kormáki sem er með í
það minnsta tvö risavaxin verkefni
í deiglunni: Grafarþögn og Víkinga.
Hafa menn í hinum til þess að gera
litla geira vart séð annað eins og
er sú staða upp komin að Baltasar
er kominn í samkeppni við sjálfan
sig um fagfólk í geiranum. Hvort
þetta hefur svo áhrif á Sumarland
Gríms Hákonarsonar,
sem einmitt Baltasar
Kormákur framleiðir,
er óvíst en Grímur
stefnir loks á tökur
í sumar en mynd
hans hefur verið
árum saman á
teikniborðinu.
Mikael Torfason rithöfundur skrif-
ar sem mest hann má næstu bók
sína sem heitir Vormenn Íslands.
Mikael hefur sent frá sér fjórar
bækur og flestar hefur
JPV gefið út. Mikael
hefur nú söðlað
um og er kominn á
mála hjá spútnikk-
inum Tómasi
Hermanns-
syni hjá
Sögum.
- jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
Stepp ehf Ármúla 32 Sími 533 5060 www.stepp.is stepp@stepp.is
G
ra
fí
ka
2
0
0
8
GÓLFEFNI ÞEKKING ÞJÓNUSTA
TEPPI Á STIGAGANGINN
250
ÓKEYPIS
KROSSGÁTUR
NÝ GÁTA
Í HVERRI VIKU
w
w
w
.t
h
is
.i
s
/k
ro
s
s
g
a
tu
r
w
w
w
.t
h
is
.i
s
/k
ro
s
s
g
a
tu
r
Auglýsingasími
– Mest lesið