Fréttablaðið - 15.04.2009, Page 48

Fréttablaðið - 15.04.2009, Page 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Jóns Sigurðar Eyjólfssonar Ég fór að sjá Draumalandið í fyrrakvöld og eins og við var að búast kom það á nokkru hug- arróti. Við eigum nefnilega öll okkar draumaland og ég fór að pæla í mínu en langt er síðan ég hef hróflað við því. Ég er nefni- lega eins og fleiri mun upptekn- ari af því að hlýða á aðra lofa mér sínu draumalandi frekar en að spyrja sjálfan mig, líkt og Stef- án Hilmarsson forðum, hvar er draumurinn? NÚ er stutt í kosningar og stjórn- málamenn reyna eftir fremsta megni að selja okkur sína sýn af draumalandi. Meira að segja nú þegar bráður vandi er á höndum og kosningabaráttan ætti að snú- ast um bráðaaðgerðir þá standast stjórnmálamennirnir ekki freist- inguna og reyna að selja okkur aðgang að draumalandinu sínu og bjóðast til að tryggja okkur gegn því að við lendum í tortím- ingarlandi andstæðinganna. Allt þetta fyrir eitt atkvæði sem virð- ast reyfarakaup. EN ekki eru öll draumalönd innan seilingar í þessu lífi. Ég man þegar ég spurði einn trúfast- an kunningja í mosku einni hvort ekki væri erfitt að neita sér um öll lífsins þægindi fyrir trúna. Hann þverneitaði því og sagði þetta líf vera stutt og ekki jafn mikilsvert og það sem biði handan móðunn- ar miklu. Standi hann sína plikt á þessari stuttu vakt muni hann njóta allra hugsanlegra þæginda á löngu vaktinni hinum megin. EFTIR að ég kom út úr kvik- myndahúsinu í Smáralind í fyrrakvöld fékk ég mér kaffi með Sigurði Maríasi sem er indí- ánafræðingur mikill. Sagði hann svipaða sögu af indíána sem taldi það ekki tiltökumál að hinn hvíti maður hefði tekið landið af honum í Ameríkunni því land indíánanna væri ekki af þessum heimi. Þegar ég hélt svo heim á leið stöðvaði mig ungur maður, nokkuð illa á sig kominn eftir vergang og ólyfjan. Hann bað mig vinsam- legast að gera sér þann greiða að kaupa fyrir sig sprittflösku í apótekinu þar sem hann fengi ekki afgreiðslu lengur. Pening- ana hafði hann tilbúna. MÉR fannst ég vera kominn býsna langt frá draumalandinu mínu. En ég held ég hafi gert það eina rétta og mun ég vonandi hafa þann háttinn á næst þegar ég þarf að taka ákvörðun. Ég spurði mig: Hvað yrði gert í þessari stöðu í draumalandinu mínu? Draumalandið Í dag er miðvikudagurinn 15. apríl, 105. dagur ársins. 5.56 13.28 21.02 5.33 13.12 20.54 H E I L S U R Ú M EITT MESTA ÚRVAL LANDSINS AF SVEFNSÓFUM Án efa einn stærsti og glæsilegasti svefnsófasýningarsalur landsins. Tilboð á svefnsófum af öllum stærðum og gerðum. Margir litir í boði. COMODO Svefnsófi Áður 398.950 kr. NÚ 279.263 kr. TILBOÐ!20-30% AFSLÁTTUR! T140 Svefnsófi Áður 229.700 kr. NÚ 183.760 kr. TILBOÐ! OZI gestarúmÁður 64.900 kr. NÚ 51.920 kr. TILBOÐ! SOPHIA SvefnsófiÁður 87.330 kr. NÚ 69.864 kr. TILBOÐ! COUPLE Svefnsófi Áður 109.750 k r. NÚ 87.800 kr. TILBOÐ! 1 2 3 Rekkjan ehf ≤≥ Suðurlandsbraut 48 (Bláu húsin í Faxafeni) ≥≥ 108 Reykjavík ≥≥ 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.iS ≥≥ Opið virka d. 10–18 og lau 11–16

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.