Morgunblaðið - 16.09.2008, Side 1

Morgunblaðið - 16.09.2008, Side 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 6. S E P T E M B E R 2 0 0 8 STOFNAÐ 1913 253. tölublað 96. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er DAGLEGTLÍF HVER VILL EIGA MIG? SPYRJA GÆÐABLÓÐ ÍÞRÓTTIR Æsispennandi loka- sprettur í boltanum E N N E M M /S ÍA /N M 3 2 16 5 – Línurnar í lag! L&L Þú leggur línurnar Létt & laggott! Leikhúsin í landinu >> 37 JÓANNES Eidesgaard, lögmaður Færeyja og leiðtogi Jafnaðarflokks- ins, sleit í gær stjórnarsamstarfinu við Þjóðveldisflokkinn og Miðflokk- inn, aðeins sjö mánuðum eftir að stjórnin var mynduð. Eidesgaard kvaðst ekki vilja að efnt yrði til kosninga og hyggst hefja viðræður við leiðtoga annarra flokka um myndun nýrrar stjórnar. Eidesgaard rakti stjórnarslitin til deilu hans við Högna Hoydal um af- not af skrifstofu í Tinganesi þar sem færeysku stjórnarskrifstofurnar eru til húsa. Hoydal sagði hins vegar að Eides- gaard notaði þá deilu sem tylli- ástæðu til að slíta stjórnarsamstarf- inu. Líklegra væri að Eidesgaard hefði sprengt stjórnina vegna þess að hann hefði búist við erfiðri deilu um fjárlagafrumvarp sem stjórnin hafði unnið að. Þjóðveldisflokkurinn hafði beitt sér fyrir því að fjárhags- aðstoð Dana við Færeyjar yrði minnkuð verulega. | 17 Færeyska stjórnin fallin Eidesgaard rekur stjórnarslitin til deilu um skrifstofu en Hoydal telur hann hafa óttast deilur um fjárlagafrumvarp Jóannes Eidesgaard Högni Hoydal VALGERÐUR Kristín Guðbjörnsdóttir eignaðist dreng í verkfalli ljós- mæðra aðfaranótt fimmtudagsins 11. september og var send heim dag- inn eftir þrátt fyrir meðgöngueitrun. Hún segir erfitt að þurfa að fara heim svo skömmu eftir fæðingu því fyrstu sólarhringarnir eftir hana séu sérlega krítískir þegar um með- göngueitrun sé að ræða. | 7 Morgunblaðið/Frikki Glímir við eftirköst meðgöngueitrunar Eftir Bjarna Ólafsson og Björn Jóhann Björnsson TVEIR stærstu fjárfestingarbanka Bandaríkjanna riðuðu til falls í gær, eða því sem næst, og varð af- leiðinganna vart um heim allan. Dow Jones hluta- bréfavísitalan bandaríska lækkaði um 4,42% í gær og er það mesta lækkun á einum degi frá árinu 2001. S&P 500 lækkaði um 4,71% og Nasdaq um 3,60%. Fjárfestingarbankinn Lehman Brothers óskaði í gær eftir greiðslustöðvun fyrir móðurfélag sitt og þá var greint frá kaupum JPMorgan Chase á fjár- festingarbankanum Merrill Lynch. Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar Seðla- banka Íslands, segir gjaldþrot Lehman vera mikil tíðindi. „Þetta eru miklar hremmingar á alþjóðleg- um fjármálamarkaði. Lánsfjárútvegun, sem hefur verið erfið fyrir allt kerfið, verður ekki auðveldari í bráð og kannski um alllanga hríð. Þetta er til þess fallið að skapa vantraust á fjármálakerfinu.“ Álagið hækkar Skuldir Lehman nema um 55.700 milljörðum króna og ruku fjárfestar til og reyndu að selja skuldabréf bankans og kaupa bréf traustari fjár- málastofnana. Þrýsti það skuldatryggingarálagi á skuldabréf í Bandaríkjunum og Evrópu upp. Vísi- tala tryggingarálags í Bandaríkjunum hækkaði um 25,7% og svipuð vísitala í Evrópu hækkaði um 26,8%. Tryggingarálag á íslensku bankana hækkaði í gær, hvað mest hjá Landsbankanum, eða um 8,02%. Álagið á bréf Kaupþings hækkaði um 5,16% og Glitnis um 2,97%. Íslensku bankarnir hafa flestir tekið þátt í skuldabréfaútgáfum með Lehman, en Guðni Aðal- steinsson, framkvæmdastjóri fjárstýringar hjá Kaupþingi, segir að áhrif gjaldþrots Lehman verði óveruleg fyrir Kaupþing. Um áhrifin á íslenskan fjármálamarkað almennt segir Guðni að gjaldþrotið og örlög Merrill Lynch muni seinka þeim viðsnúningi sem beðið hefur verið eftir í efnahagslífinu. Íslensku bankarnir muni hins vegar ekki tapa stórum fjárhæðum á gjaldþrotinu. Versti dagur frá 2001  Fjárfestingarbankarnir Lehman Brothers og Merrill Lynch gefast upp  Til þess fallið að skapa vantraust á fjármálakerfinu, segir seðlabankastjóri  Einn af jötnum | 14-15  Íbúar í Selja- hverfi fjöl- menntu á fund með lögreglunni sem haldinn var í Ölduselsskóla í gærkvöldi. Þar rakti Stefán Ei- ríksson, lög- reglustjóri höfuðborgar- svæðisins, þróun afbrota í hverfinu. Íbúar greindu frá reynslu sinni og báru fram fyrirspurnir. Fólk sem orðið hafði fyrir innbrotum lýsti áfallinu sem fylgir þegar heim- ili eru fótumtroðin af ræningjum. Það beindi spurningum og gagn- rýni til lögreglunnar. » 2 Fórnarlömb innbrota greindu frá reynslu sinni Stefán Eiríksson lögreglustjóri.  „Við munum vekja snærisþjófinn til lífsins,“ segir Bjarni Jónsson leikskáld en hann er með leikverk um Jón Hreggviðsson í smíðum fyr- ir Akranesbæ. Sem kunnugt er er Jón Hreggviðsson frá Rein ein frægasta sögupersóna Halldórs Laxness og um leið einn frægasti Skagamaðurinn. Bjarni vinnur auk þess að útvarpsverki upp úr skáld- sögu Sjóns, Augu þín sáu mig, ásamt hljómsveitinni múm. » 40 Skagamenn vilja leikverk um Jón Hreggviðsson 55.700 milljarðar Skuldir Lehman Brothers á núvirði. 26,8% Hækkun vísitölu skuldatrygg- ingarálags 125 stærstu fyrirtækja Evrópu. 5.400 milljarðar Tap hluthafa Lehman frá árinu 2007.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.