Morgunblaðið - 16.09.2008, Qupperneq 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Söguleg skáldsaga um framtíð þjóðar
Allt sem gerst hefur, getur gerst
og allt sem getur gerst, gerist
– í tímans eilífu elfu.
VÁFUGL
NÝ ÍS
LENSK
SKÁL
DSAG
A
Útgá
fuda
gur
7. ok
tóbe
r 20
08
Eftir Alfons Finnsson
Snæfellsbær | Framkvæmdir við
vatnsverksmiðju Icelandic Glacier
Product á Rifi er hafin á nýjan leik.
Talsverðar tafir hafa orðið á verk-
inu vegna deilna í eigendahópi fyr-
irtækisins en það mál hefur nú ver-
ið leyst, að sögn Sverris Pálmars-
sonar, talsmanns fyrirtækisins.
„Við höfum fest kaup á tíu þús-
und fermetra límtréshúsi og verður
það Stálfélagið sem sér um að
koma því upp. Það kemur til lands-
ins í októberlok, en lengd hússins
er 130 metrar og breiddin á því 75
metrar,“ segir Sverrir og bætir við
að Íraklettur frá Grundarfirði sjái
um að steypa sökklana undir húsið.
Sverrir segir ennfremur að stefnt
sé að því að um 30 til 40 manns
starfi í vatnsverksmiðjunni þegar
hún verður fullkláruð og bætir við
að unnið verði á tvískiptum vökt-
um, en í fyrstu verði keyrt með eina
framleiðslulínu. Ef vel gangi verði
annarri línu bætt við. Það myndi
kalla á fleira starfsfólk.
Flytja út vatn í gámablöðrum
Sverrir segist eiga von á því að
verksmiðjan verði tekin í notkun á
næsta sumri „en við eigum enn eft-
ir að semja um kaup á tækjum til
átöppunar og erum með nokkur til-
boð sem við erum að skoða.“
Einnig mun fyrirtækið flytja út
vatn í gámablöðrum og segir Sverr-
ir að fyrstu mánuðina sé áætlað að
flytja út 20 til 30 gáma, „ef söluplön
ganga eftir munum við flytja út 100
gáma á mánuði.en það vatn mun
verða notað í vodkaframleiðslu og
snyrtivöruframleiðslu og til þeirra
sem þurfa að nota hágæðavatn.“
Fram kemur í máli Sverris að
þegar sé byrjað að leggja vatns-
lögnina frá vatnslindum í Fossdal
og sé það fimm kílómetra leið að
vatnsverksmiðjunni.
Sverrir segir markaðina mjög
góða fyrir hágæða-vatn, við erum
að markaðssetja okkur á Bandarík-
in, Evrópu og Miðausturlönd.
Óttast ekki samkeppnina
Sverrir er spurður að því hvort
hann óttist ekki samkeppina við
aðra vatnsútflytjendur frá Íslandi.
„Nei, ég óttast ekki samkeppnina,
við erum einfaldlega með besta
vatnið í heimi.“
Sverrir segir að þessa dagana sé
verið að hanna nýja flöskur, þær
verði kynntar innan skamms, og
bætir við að plastflöskurnar verði
unnar í verksmiðjunni á Rifi en
glerflöskurnar keyptar erlendis
frá.
Morgunblaðið/Alfons
Steypa Starfsmenn Írakletts eru að steypa sökklana á vatnsverksmiðjunni sem er í byggingu á Rifi á Snæfellsnesi.
Telja sig vera með
besta vatn í heimi
Framkvæmdir við vatnsverksmiðjuna á Rifi hafnar á nýjan leik
„ÍSLENSKA vatnið kemur mjög vel út úr öllum mælingum,“ segir Inga
Þórsdóttir, prófessor í næringarfræði við HÍ, þegar hún er spurð á vís-
indavef Háskóla Íslands hvort íslenska vatnið sé betra en vatn annars stað-
ar í heiminum.
Niðurstaða reglulegra mælinga leiðir í ljós að minnst 95% sýna eru að
jafnaði í lagi. Ef vandamál finnast eru þau smávægileg. Á þeim fáu stöðum
(einum fimm) þar sem yfirborðsvatn er notað hér á landi er vatnið ágeislað
með útfjólubláu ljósi til sótthreinsunar og hefur það reynst vel. Hér á landi
er engin klórmeðhöndlun á vatni eins og algengt er erlendis og bragðgæði
því mikil. Hvað efnamælingar varðar er óhætt að segja að íslenska vatnið
sé í sérflokki. Varnarefni og ýmis önnur lífræn efni hafa til dæmis aldrei
greinst í íslensku vatni og af nítrati, sem er víða vandamál erlendis, finnst
aðeins afar lítið ef nokkuð.
Íslenskt vatn er mjög gott
NÚ í september verður Breið-
holtsdagurinn haldinn hátíðlegur í
sjötta sinn og að þessu sinni nær
dagskráin til heillar viku, eða frá
gærdeginum til laugardagsins 20.
september.
Helstu markmið Breiðholtsdaga
eru að stuðla að aukinni sam-
heldni, samveru og hverfisvitund
íbúa þar sem fólk á öllum aldri
kemur saman á ýmsum stöðum til
að auðga andann og skemmta sér á
jákvæðan og uppbyggilegan hátt,
segir í fréttatilkynningu. Af nógu
er að taka því menningarstarf í
Breiðholti er öflugt og framsækið.
Forseti Íslands Ólafur Ragnar
Grímsson og Dorrit Moussaieff
voru sérstakir gestir setningarhá-
tíðarinnar og opnaði forsetinn um
leið málverkasýningu heyrnar-
lausra myndlistarmanna í Fé-
lagsmiðstöðinni Árskógum.
Í hátíðarathöfn Breiðholtsdaga,
laugardaginn 20. september kl. 14.
mun Hanna Birna Kristjánsdóttir
borgarstjóri ávarpa gesti og af-
henda heiðursviðurkenningar í
Íþróttahúsinu Austurbergi. Alla
morgna verður pottakaffi í Breið-
holtslaug kl. 7.30 og verður Óskar
Bergsson, formaður borgarráðs,
gestur í pottakaffi fimmtudaginn
18. september.
Breiðholtsdagar stuðla
að aukinni samheldni
COSPAS-Sarsat-gervihnattakerfið
hættir að vinna úr merkjum neyð-
arsenda á 121,5/243 MHz frá 1.
febrúar 2009. Allir eigendur og not-
endur neyðarsenda ættu að byrja
að undirbúa að skipta út neyðar-
sendum á 121,5/243 MHz og setja í
staðinn 406 MHz neyðarsenda eins
fljótt og auðið er, segir í frétt á
heimasíðu Landhelgisgæslunnar.
Aðeins ein af 50 neyðarsend-
ingum á 121,5/243 MHz er raun-
verulegt neyðartilvik. Þetta hefur í
för með sér veruleg áhrif á vinnu
leitar- og björgunarstöðva. Hægt er
að draga verulega úr fölskum neyð-
arsendingum með notkun 406 MHz
neyðarsendanna, en 1 af 17 reynast
raunveruleg,
Hægt að draga úr fölskum
neyðarsendingum
Morgunblaðið/RAX
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
BÆJARSTJÓRN Hafnarfjarðar
ræðir í dag samning um vatnstöku í
Kaldárbotnum vegna átöppunar-
verksmiðju á hafnarsvæðinu í bæn-
um, en framkvæmdaráð bæjarins
hefur fyrir sitt leyti samþykkt samn-
inginn.
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í
Hafnarfirði, segir að um sé að ræða
samning við vatnsveituna fyrir hönd
Hafnarfjarðarbæjar um útvegun á
vatni og greiðslu fyrir það og aðra
þjónustu. Viðræður hafi verið við
fyrirtækið GlacierWorld frá því í
fyrra, en félagið sé í eigu íslenskra
og arabískra fjárfesta. Það hafi gert
samning við Hafnarfjarðarhöfn um
átöppunarverksmiðju á svæðinu og
greiðslu tilfallandi gjalda. „Þetta er
fyrst og fremst hagur og aukin við-
skipti fyrir höfnina, sem skiptir hana
miklu máli,“ segir Lúðvík og bendir
á að verksmiðjunni fylgi töluverð
skipaafgreiðsla og -umferð.
Samningur GlacierWorld við
vatnsveituna er til 25 ára, en fyrir-
tækið fær einkarétt á allt að 40 l á
sekúndu úr skilgreindri holu í vatns-
bóli bæjarins í Kaldárbotnum. Lúð-
vík áréttar að samningurinn útiloki
ekki aðra frá því að gera sambæri-
lega samninga um vatn úr vatnsból-
inu.
Lúðvík segir að GlacierWorld
leggi út fyrir öllum kostnaði og
greiði ákveðið vatnsgjald en pípurn-
ar, sem verða tvær, verði eign bæj-
arins og hann hafi aðgang að þeim ef
á þurfi að halda.
Stefnt er að því að starfsemin
verði komin á fullt næsta haust.
Átöppunarverk-
smiðja í Hafnarfirði