Morgunblaðið - 16.09.2008, Page 14

Morgunblaðið - 16.09.2008, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTASKÝRING Eftir Bjarna Ólafsson og Björn Jóhann Björnsson SEGJA má að síðasti naglinn hafi verið rekinn í líkkistu bandaríska fjárfestingarbankans Lehman Brothers þegar fjármálaráðherra Bandaríkjanna lýsti því yfir um helgina að hið opinbera myndi ekki koma bankanum til bjargar. Gjald- þrot Lehman Brothers er stærsta gjaldþrot fjárfestingarbanka í 18 ár, en skuldir bankans námu um 55.700 milljörðum íslenskra króna. Þá var ákveðið í gær að Bank of America myndi kaupa fjárfestingarbankann Merrill Lynch á um 4.600 milljarða króna. Ótrygg bandarísk fast- eignalán reyndust banabiti Lehman, eins og reyndar margra annarra fjármálafyrirtækja. Strax í ágúst 2007 virðast stjórnendur bankans hafa rennt grun í hvert stefndi. Þá var dótturfyrirtæki bankans, BNC Mortgage, lokað, en það sérhæfði sig í útgáfu ótryggra fasteignalána. Tap Lehman á þessu ári átti sér ekki fordæmi hjá fyrirtækinu, en á fyrstu sex mánuðum ársins nam það um 600 milljörðum króna á núvirði. Á sama tímabili lækkaði gengi bréfa bankans um 73%. Neyddist bankinn til að selja mikið af eignum sínum og segja upp starfsfólki. Þurftu hjálpar við Þótti því ljóst að bankinn gæti vart staðið óstuddur og leituðu menn því dyrum og dyngjum að hugs- anlegum bjargvættum. Í ágúst gekk sá orðrómur að kóreskur ríkisbanki gæti hugsanlega komið að sem fjár- festir. Þær vonir urðu hins vegar að engu þegar kóreski bankinn sagði að erfitt væri að finna samstarfsaðila að verkefninu auk þess sem eftirlits- stofnanir í Kóreu væru því mót- fallnar. Í kjölfarið féll gengi bréfa Lehman um tæp 45% á einum degi hinn 9. september sl. Í raun má segja að þegar svo var komið gæti ekkert bjargað fjárfest- ingarbankanum annað en krafta- verk. Þrátt fyrir það gerðu stjórn- endur hans sitt besta til að rétta við reksturinn. Kynntu þeir áform um umfangsmikla eignasölu og aðra hagræðingu í rekstri. Þá hófust við- ræður við Barclays og Bank of Am- erica um hugsanlega yfirtöku á Lehman, en á laugardag bárust fréttir af því Barclays hefði ekki lengur áhuga á kaupunum. Stjórnendur helstu fjármálafyr- irtækja á Wall Street funduðu stíft á laugardag til að leita leiða til að forða Lehman frá gjaldþroti. Sama dag virðist sem svo að tilburðir Bank of America til yfirtöku hafi að engu orðið þar sem seðlabanki Bandaríkj- anna hafi neitað að taka þátt í fjár- mögnun hennar. Þar sem öll sund virtust lokuð gátu stjórnendur Lehman lítið annað gert í gær en að óska eftir greiðslustöðvun fyrir hönd móðurfélagsins, en dótturfélög bankans munu hins vegar starfa áfram í bili. Í skrifstofum bankans um allan heim mátti sjá starfsfólk yfirgefa byggingar með eigur sínar. Af fimm stærstu fjárfesting- arbönkum Bandaríkjanna 2007 eru nú aðeins tveir eftir, Goldman Sachs og Morgan Stanley. Reuters Óvissa Starfsmaður Lehman yfirgefur skrifstofur fyrirtækisins í Lundúnum með föggur sínar í pappakassa. Starfsmenn bankans eru 26.000 talsins, en framtíð þeirra er eðlilega mjög óljós nú.  !""" !""                                        ! "        #    $"%& '()%* $+,* -*$,.(/(+0.1/& 2345647 2385687 2395697 23:56:7 2335637 2375677 2755657 2725627 27;56;7 27<56<7 2745647 2785687 2795697 27:56:7 2735637 2775677 2344= #$%&'()$*+,%- ./012&(3%%45'67,%83-(9:%,& 5365,(;$&052%(<(=5,>,+,? 2385= @&AB2&(#$%&'-(.$3& C+,%2$5(9D(E,'$&-(45'67, ;$062&(9D(;$&052%3%(4A&(%,4%3B )$*+,%(@&96*$&0? 2383=()$*+,%(9:%,& 01&3406942(<(F$G(H9&1? 233:=()$*+,%(;$&B2&(+$BI 53+2&(<(1,2:*J553%%3(<(F$G(H9&1? 2337=()$*+,%(47K&+,D%,&(4'&06, *526,47K&L6>9B3B-(4'&3&(M%6$&I %,639%,5(N6$,+(O2+:(P9+:,%'? 2795=(N1&340694,(9:%2B(<(O,&<0? 27;7=()$*+,% P9&:9&,639%($&(0694%,B? #526,47K&L6>9B(4'&06,(07Q%;,&:0I 6A17,4&,+5$3B,%8,%0-(82E9%6- $&(47K&+,D%,B? R7K&+,D%,&(*526,47K&L6>9B S3D36,5($T23:+$%6 9D(#$&6U? 2734=(=+$&3V,%(CW:&$00 1,2:3&()$*+,%(9D 0,+$3%,&(N*$,&09%? 2739=(E$B53+2&(< 1,2:*J553%%3(<()9%89%? 2733=(E$B53+2&(< 1,2:*J553%%3(<(X91'9? ;552=(Y&/063%D2&(K(R258(2+(,B 8&,D,(L&(1906%,B3?(Z(06,B(.$00 ,B(0$D7,(2::(06,&404Q513(K1;$B2& *,%%(,B(5A11,(5,2%(9D(D&$3B, 4&$1,&(+$B(*526,>&[42+? ;55;=()$*+,%(0694%,& $3D%,06/&3%D,&8$358(9D(1,2:3& 01258,>&[4,8$358()3%V95% P,:36,5(E,%,D$+$%6? ;55:=(#,D%,B2&()$*+,% @&96*$&0(,58&$3(+$3&3(9D($& .,B(47Q&B,(K&3B(<(&JB(0$+ +$63B($&(05$D3B? R'&3&6A13B($&(2+0;34,+$063 ,B353%%(<(1,2:*J553%%3(<(F$G(H9&1 9D($&(+$63B(K(\](+3557,&B,(8,5,? ;55<= ^,2:3&(F$2>$&D$& @$&+,%(9D(P&900&9,80 _&92:? ;553= R7K&4$06,&(6,:,(6&L%%3(K )$*+,%(.,&(0$+($4%,*,D0I &$31%3%D2&(>,%1,%0($&(01$1162& +7JD(;$D%,(`](+355,&B,(8,5, 47K&4$063%D2(<(Q6&'DD2+ >,%8,&<012+(4,06$3D%,5K%2+? 27:;=(C3%%(4'&063(47K&4$063%D,&I >,%13%%(635(,B(9:%,(01&3406942 <()9%89%? 277<=(=+$&3V,%(CW:&$00 0$52&(N*$,&09%(9D()$*+,% 06,&4,&(K(%/(2%83&($3D3% %,4%3? 2774= )$*+,%(@&96*$&0 #9583%D0(01&KB(<(1,2:*J553%, <(F$G(H9&1(9D(;3B013:63 *$47,06(+$B(*526,>&[4 4'&3&6A1303%0?(a3V*,&8(R258 ;$&B2&(49&067Q&3()$*+,%? 2777>(#$42&(0,+06,&4(;3B(@,%1 94(X91'9IE3602>30*3(2+(2+07Q% +$B('43&6J12+(9D(0,+&2%2+(< b,:,%? 27:8=(^,2:3&(=>&,*,+(c(P9? ;555 ;552 ;55; ;55< ;554 ;558 ;559 ;55: ;553  ?(0$:6?(d"e 5>;8(8955,&,& `?(4$>&L,&(d"f 38>35(8955,&,& ?(7L%<-(d` 4>8<(8955,&,& " !" `" ]" e" "" E,&1,B0;$&B(K(*526(<(591(*;$&&,&(;312 !""e Einn af jötnum Wall Street fallinn Bankakreppa í Bandaríkjunum TÍU af stærstu bönkum heims hafa ákveðið að leggja saman í risastóran lausafjársjóð til draga úr afleiðingum gjaldþrots Lehman Brothers á fjár- málamarkaðinn. Sjóðurinn á að innihalda um 70 milljarða dala, andvirði um 6.500 milljarða króna. Er í raun um sjálfstryggingu bankanna tíu að ræða, en hver þeirra mun geta tekið út úr sjóðnum einn þriðja af heildar- upphæðinni gegn veði í margvíslegum eignum, s.s. fasteignum, sem ekki er hægt að leggja að veði gegn láni frá seðlabönkum. Seðlabanki Bandaríkjanna ákvað í gær að slaka umtalsvert á reglum um aðgengi þarlendra banka að lausafé frá seðlabankanum. Munu fjár- festingarbankar nú geta lagt að veði eignir sem þeir gátu ekki áður, svo sem hlutabréf og lánasöfn. Báðum aðgerðunum er ætlað að halda í skefjum truflunum á milli- bankamarkaði vegna gjaldþrots Lehman, en fjárfestingarbankar sækja stærstan hluta sinnar skammtímafjármögnunar á þann markað. Í frétt Financial Times er haft eftir fjármálaráðherra Bandaríkjanna, Hank Paulson, að samræmdar aðgerðir seðla- og viðskiptabanka myndu skipta sköpum í að viðhalda virkum fjármálamörkuðum. Flestir séu þó á þeirri skoðun að aðgerðirnar geti ekki komið í veg fyrir að markaðirnir verði fyrir höggi, heldur aðeins mildað það. Bankar bjarga bönkum Fjármálamarkaðir heimsins voru felmtri slegnir í gær eftir að Lehman Brothers óskaði eftir greiðslustöðvun og Merrill Lynch samþykkti yfirtöku. Hremmingar á fjármálamörkuðum versna enn og fórnarlömbunum fjölgar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.