Morgunblaðið - 16.09.2008, Side 15

Morgunblaðið - 16.09.2008, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2008 15 Hafa skotið á Ísland Greiningardeildir Merrill Lynch og Leham Brothers hafa á undanförnum árum sent frá sér nokkrar skýrslur um ís- lensku bankana og efnahagslíf hér á landi. Þær hafa ekki allt- af verið jákvæðar, sér í lagi frá Merrill Lynch, sem í mars 2006 kom með sína fyrstu skýrslu. Ekki er allt sem sýn- ist, sögðu sérfræðingar Merrill þá um bankana og í kjölfarið féllu hlutabréf og íslenska krónan í verði. Hafði bankinn miklar áhyggjur af Íslandi. Síð- an þá hafa skýrslurnar verið heldur jákvæðari þó að ábend- ingum og gagnrýni hafi áfram verið komið á framfæri. Vildi einkavæða Símann Lehman Brothers var meðal 14 fjármála- og endurskoð- unarfyrirtækja sem sendu framkvæmdanefnd um einka- væðingu tilboð um ráðgjöf og aðra þjónustu vegna sölu á hlutabréfum ríkisins í Síman- um fyrir fjórum árum. Svo fór að tilboði Morgan Stanley var tekið. Í viðskiptum við Gildi Lífeyrissjóður sjómanna, sem síðar rann inn í Gildi lífeyr- issjóð, samdi vorið 2002 við Lehman Brothers í London um stýringu á hluta af erlendum eignum sjóðsins. Að sögn Árna Guðmunds- sonar, framkvæmdastjóra Gild- is, er þessi samningur ekki lengur í gildi en hins vegar á Gildi hlut í einum sjóði sem stýrt hefur verið af dótt- urfélagi Lehman Brothers. Árni segir gjaldþrot bankans ekki hafa nein áhrif á þessa eign lífeyrissjóðsins. Hins vegar sé ástæða til að hafa áhyggjur af þróuninni á fjármálamörkuðum almennt. Allar eignir séu nú að lækka í verði. FLEIRA en yfirvofandi gjaldþrot Lehman Brothers olli fjárfestum hugarangri í gær og um helgina. Þegar ljóst varð hvert stefndi með Lehman tóku menn að hafa af því áhyggjur að fjárfestingarbankinn Merrill Lynch yrði næstur í röð fjár- málafyrirtækja sem gefið hafa upp öndina með einum eða öðrum hætti. Því hófu stjórnendur Merrill leit að einhverjum sem gæti komið hinum 94 ára gamla banka til bjargar. Eftir tveggja sólarhringa stanslausar við- ræður var frá því greint í gær að Bank of America myndi kaupa Merr- ill á um 5.500 milljarða króna. BoA var fyrir stærsti banki Bandaríkj- anna og verður því til við samrunann einn stærsti banki veraldar. Sam- runinn er að sjálfsögðu háður sam- þykki hluthafa beggja banka. Tryggingafélagið American Int- ernational Group, átjánda stærsta fyrirtæki í heimi, á einnig undir högg að sækja, en bréf félagsins lækkuðu um 61% í viðskiptum gærdagsins. Hafa fjárfestar, sem og stjórnendur AIG, áhyggjur af því að lánshæfis- matsfyrirtæki muni lækka lánshæf- iseinkunn fyrirtækisins, sem gæti orðið því banvænt. Hefur því verið gripið til þess ráðs að selja verðmæt- ustu eignir þess til að bæta eiginfjár- stöðu AIG auk þess sem reynt verð- ur að afla lausafjár með öðrum leiðum. Staðan virðist þó ekki vera með öllu vonlaus því stjórn AIG hafnaði tilboði J.C. Flowers um inn- spýtingu fjármagns gegn greiðslu hlutabréfa í AIG. Bank of America gleypir Merrill Lynch Reuters Val Stjórnendur Merrill Lynch mátu stöðuna svo að lítið væri annað fyrir þá að gera en að finna kaupendur að bankanum eða ella missa hann alfarið. Í HNOTSKURN » Merrill Lynch er einnstærsti fjárfestingarbanki heims. Námu tekjur hans í fyrra 63 milljörðum dala. » Starfsmenn eru um 60.000talsins í öllum helstu fjár- málaborgum heims. GUÐNI Aðalsteinsson, hagfræðingur og framkvæmdastjóri fjárstýringar hjá Kaupþingi, segir aðspurður að áhrif gjaldþrots Lehman Brothers á Kaupþing séu óveruleg en bankinn hefur tekið þátt í skuldabréfaútgáfum með Kaupþingi í Bandaríkjunum og Suður-Ameríku. Um áhrifin á íslensk- an fjármálamarkað almennt segir Guðni að gjaldþrot Lehman og örlög Merrill Lynch muni seinka þeim við- snúningi sem beðið hefur verið eftir í efnahagslífinu. „Þetta kemur öllum í opna skjöldu. Ég veit til þess að hjá Lehman Brothers hefur starfað mjög hæfileikaríkt fólk. Þegar horft er til sögu bankans síðustu árin, og síð- an hann var brotinn upp frá American Express, hefur hann sýnt mestan hagnað allra banka og mikla hækkun á hlutabréfum. Litið hefur verið til hans með mikilli virð- ingu,“ segir Guðni. Gíruðu sig upp 25-falt Hann segir nú vera ljóst að Lehman hafi skuldsett sig verulega og „gírað“ sig upp 25-falt. Við þær aðstæður þurfi ekki nema litlar breytingar á verði eigna til að eig- infjárhlutfallið nánast hverfi. Um áhrifin á Kaupþing segir Guðni að þau séu „hverf- andi“. Með vaxtaskiptasamningum við flesta af stærstu bönkum séu viðaukar sem eru endurskoðaðir reglulega til að draga úr áhættu hvers af öðrum. Varðandi skulda- bréfaútgáfu Kaupþings segir Guðni að áhrifin verði ekki mikil. Lehman Brothers var meðal banka sem komu að 12 milljarða króna útgáfu í Mexíkó á síðasta ári og þá höfðu Lehman og Merrill Lynch ásamt Citigroup og Credit Suisse umsjón með 210 milljarða útgáfu í Banda- ríkjunum fyrir tveimur árum. „Það fækkar í þessum hópi sem vinnur fyrir okkur vinnuna en þjónustan mun ekk- ert hverfa. Þó að við höfum ekki staðið lengi í skulda- bréfaútgáfu er samkeppnin það mikil á þessum mark- aði,“ segir Guðni. Seinkar viðsnúningi Guðni Aðalsteinsson Reuters Fall Hjá Lehman Brothers starfa tugir þúsunda fólks um allan heim og áhrifin eru því gríðarleg. Guðni Aðalsteinsson segir áhrif á skuldabréfaútgáfu Kaupþings hverfandi Í HNOTSKURN »Guðni Aðalsteinsson starfaði um árabil semforstöðumaður og síðar framkvæmdastjóri hjá Lehman Brothers í London og Frankfurt. »Hann var í samskiptum við sína gömlu vinnu-félaga í gær og segir hann menn vera undr- andi og lifa í mikilli óvissu. Enginn hafi átt von á að svona færi. Afföllin Fyrsta stóra fórnarlamb ársins var íbúðalánafyrirtækið Country- wide, sem var eitt stærsta fyrirtæki sinnar tegundar í Bandaríkjunum. Þá var breski bankinn Northern Rock í raun þjóðnýttur af breska ríkinu þeg- ar ljóst varð að hann rambaði á barmi gjaldþrots. Fyrsti stóri bandaríski fjárfestingarbankinn til að leggja árar í bát var Bear Stearns, sem tekinn var yfir af JPMorgan Chase fyrir lítið fé. Þá hafa á rúmri viku fjórir risar bandarísks fjármálalífs gefið upp öndina. Hinir hálfopinberu íbúðalánasjóðir Fannie Mae og Freddie Mac voru teknir yfir af bandaríska ríkinu og svo fylgdu Merrill Lynch og Lehman í kjölfarið.            "#$ ! %  & # & ' $  %($   )#* + $ + $ + $         ! "   #$% &   ' (  ( )  ( (   $   &  ,% -& % . - %  / ,% - % ( - 0- ,% - % 1  # 2  3'4  ,% -  &  % (  0- 0- ,% - % . - %  / 3 &  5& 6 # 7  %') )%8  7-' % # ++  +     $ 9 % 8%  & 0(*&) %8  7-' 0 .  0-'   DAVÍÐ Oddsson seðlabankastjóri segir gjaldþrot Lehman Brothers vera mikil tíðindi. Áhrifin á Seðla- banka Íslands verði þó engin þar sem Lehman hafi ekki verið með fjárvörslu á gjald- eyrisforða Íslend- inga. Þó að bankinn hafi tekið þátt í skuldabréfaútgáfu fyrir íslensku bankana hafi ekki komið fram nein töp í íslenska bankakerfinu, eftir því sem best sé vitað. „Við höfum átt mjög góð og marg- vísleg viðskipti við þetta ágæta fyr- irtæki í gegnum tíðina, og það er söknuður að því. En við töpum ekki neinum fjármunum þó að þeir [Lehman Brothers – innsk. blm] hafi fallið með þessum hætti í dag,“ segir Davíð. Erfiðara að útvega lánsfé Viðbragðsnefnd um fjármálastöð- ugleika, sem er starfandi hér á landi, hefur ekki verið kölluð saman og Davíð telur ekki vera efni til þess, hvað sem síðar gerist. „Þetta eru miklar hremmingar á alþjóðlegum fjármálamarkaði. Láns- fjárútvegun, sem hefur verið erfið fyrir allt kerfið, verður ekki auðveld- ari í bráð og kannski um alllanga hríð. Þetta er til þess fallið að skapa van- traust á fjármálakerfinu,“ segir Dav- íð Oddsson. „Mikil tíðindi en ekkert tap fyrir okkur“ Davíð Oddsson EINN Íslend- ingur er meðal helstu yfirmanna Lehman Broth- ers í Asíu og því í hópi tugþúsunda starfsmanna bankans sem eru nú í mikilli óvissu um sitt starf. Sig- urbjörn Þorkels- son var á síðasta ári ráðinn yfirmaður hlutabréfa- viðskipta á Asíumarkaði, með aðset- ur í Hong Kong, en hann hefur starf- að í mörg ár hjá bankanum. Ekki náðist í Sigurbjörn í gær, þegar eftir því var leitað. Eftir því sem næst verður komist eru ekki fleiri Íslend- ingar starfandi hjá bankanum. Sigurbjörn hóf fyrst störf hjá Lehman Brothers árið 1992, að loknu framhaldsnámi í Bandaríkj- unum. Árið 1994 flutti hann sig um set til kanadíska bankans CIBC en sneri aftur til Lehman Brothers fyr- ir tíu árum. Stýrði þá hlutabréfa- afleiðusviði og var árið 2001 valinn einn af framkvæmdastjórum bank- ans, með aðsetur í New York. Þaðan fór hann til London sem yfirmaður afleiðuviðskipta og var sem fyrr seg- ir ráðinn á vegum bankans til Hong Kong á síðasta ári. Íslendingur meðal yfir- manna Lehman Brothers Sigurbjörn Þorkelsson Álagið Þeir sem fjárfesta í skuldabréfum kaupa gjarnan tryggingu gegn því að útgefandi bréfs geti ekki staðið við skuldbindingar sínar. Skulda- tryggingarálag endurspeglar þetta verð og hækkar almennt eftir því sem fjárfestingin er metin ótryggari, en fleira spilar þó inn í. Mörg fyrirtæki, bandarísk sem erlend, höfðu keypt skuldabréf af Leh- man og vildu losna við þær fjárfestingar og kaupa í staðinn skuldabréf tryggari banka. Þessi aukna eftirspurn eftir skuldatryggingum, sem og vaxandi óvissa um framtíð á markaði þrýsti skuldatryggingarálögum upp víðast hvar. Til dæmis hækkaði vísitala tryggingarálags 125 stærstu fyr- irtækja Evrópu um 26,8% og 25 stærstu banka Evrópu um 9,5%.     :  (  - ;   *+  +   , - . /,0  -%   , %      % 1122 1222 322 422 522 622 722 822 922 :22 122 2 112 122 32 42 52 62 72 82 92 :2 12 2      ,% ;  <

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.