Morgunblaðið - 16.09.2008, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 16.09.2008, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2008 17 ERLENT Eftir Randi Mohr í Þórshófn í Færeyjum EFTIR aðeins sjö mánaða stjórnarsamstarf hefur Jóannes Eidesgaard, lögmaður Færeyja og leið- togi Jafnaðarflokksins, slitið samstarfinu við Þjóð- veldisflokkinn og Miðflokkinn. Ljóst er að mynda þarf nýja stjórn. Þjóðveldis- flokkurinn, undir forystu Högna Hoydals, og Mið- flokkurinn eru ekki með meirihluta á færeyska þinginu. Eidesgaard rakti stjórnarslitin til deilu um af- not af skrifstofu í Tinganesi þar sem færeysku stjórnarskrifstofurnar eru til húsa. Embætti lög- mannsins hefur notað skrifstofuna en Hoydal vildi að utanríkisráðuneytið fengi hana til afnota. Fram kom í færeyskum fjölmiðlum að Hoydal hefði tvisvar sinnum fengið lásasmið til að opna skrif- stofuna þegar hann kom að henni læstri. „Ég get ekki sætt mig við að formaður Þjóð- veldisflokksins, Högni Hoydal, grafi undan valdi mínu með þessum hætti,“ sagði Eidesgaard á blaðamannafundi í gær. Hann bætti við að ljóst væri að þeir gætu ekki lengur unnið saman vegna trúnaðar- brests. Hoydal kvaðst hins vegar hafa verið gerður að blóra- böggli því deilan um skrifstof- una væri aðeins tylliástæða til að slíta stjórnarsamstarfinu. Hann sagði líklegra að Eides- gaard hefði sprengt stjórnina vegna þess að hann hefði búist við erfiðri deilu um frumvarp til fjár- laga næsta árs. Færeyska stjórnin hefur verið að vinna að fjár- lagafrumvarpinu og Þjóðveldisflokkurinn, sem vill að Færeyjar verði sjálfstætt ríki, hefur beitt sér fyrir því að árleg fjárhagsaðstoð Dana verði minnkuð úr 616 milljónum danskra króna í 500 milljónir (úr 10,7 milljörðum íslenskra króna í 8,7 milljarða). Hver deilan á fætur annarri Stjórnarslitin komu ekki á óvart því stjórnin hefur einkennst af mikilli pólitískri óeiningu frá kosningunum til færeyska lögþingsins í janúar. Deila um forgangsröðun jarðganga varð til þess að jafnaðarmaðurinn Gerhard Lognberg hætti að styðja stjórnina og hún missti þar með meirihluta sinn á þinginu. Stjórnin hélt þó áfram með sextán þingmenn af 33 á bak við sig og hóf samstarf við Sjálfstjórnar- flokkinn. Deila í Þjóðveldisflokknum um sóknar- daga í fiskveiðistjórnunarkerfinu hefur einnig valdið titringi í stjórninni. Auk flokkanna þriggja sem voru í stjórninni eiga þrír flokkar sæti á færeyska lögþinginu: Sjálfstjórnarflokkurinn, Fólkaflokkurinn og Sam- bandsflokkurinn. Stjórnarsamstarfi slitið í Færeyjum Í HNOTSKURN » Jóannes Eidesgaard, lög-maður Færeyja, kvaðst ekki vilja að efnt yrði til kosn- inga vegna stjórnarslitanna svo skömmu eftir síðustu þing- kosningar í janúar. » Eidesgaard hyggst þess ístað ræða við leiðtoga ann- arra flokka til að reyna að mynda nýja færeyska land- stjórn. » Takist það ekki verðuröðrum veitt umboð til stjórnarmyndunar. Jóannes Eidesgaard UM 1.250 börn hafa veikst og tvö dáið í Kína af völdum mjólkurdufts sem innihélt hættulegt efni. Um 34 barnanna eru enn á sjúkrahúsi og 53 þeirra eru alvarlega veik, að sögn heilbrigðisráðuneytis landsins í gær. Kínverskir fjölmiðlar segja að efninu melamine, sem er notað í iðnaði, hafi verið blandað í mjólkur- duftið til að það virtist prótínrík- ara, en það hafi orðið til þess að börnin hafi fengið nýrnasteina. Fyrirtækið sem framleiddi mjólkurduftið, Sanlu Group, er að hluta í eigu stærsta mjólkurbús Nýja-Sjálands. Helen Clark, for- sætisráðherra landsins, sagði að mjólkurbúið hefði reynt vikum saman að fá kínversk yfirvöld til að innkalla mjólkurduftið en án árang- urs þar til sendiherra Nýja-Sjá- lands hafði samband við kínversk stjórnvöld. bogi@mbl.is Um 1.250 börn veiktust vegna dufts VLADÍMÍR Pút- ín, forsætisráð- herra Rússlands, segist hafa lofað að kenna Nicolas Sarkozy, forseta Frakklands, júdó. Pútín, sem er með svarta beltið í júdó, skýrði frá þessu í viðtali við franska dagblaðið Le Figaro. „Hann hefur áhuga á sjálfsvarnarlistum og við höfum ákveðið að æfa saman,“ sagði Pút- ín. Líklegt er að Pútín taki hraust- lega á Sarkozy því þeir hafa ekki verið miklir mátar að undanförnu. bogi@mbl.is Hyggst kenna Sarkozy júdó Vladímír Pútín HÁVAÐI í heimshöfunum veldur hvölum og öðrum sjávarspendýrum miklum vandamálum, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Al- þjóðlega dýraverndunarsjóðsins, IFAW. Í skýrslunni segir að hávaði neð- ansjávar trufli bæði samskipti og fæðuöflun dýranna. Talið er að fjöl- mörg sjávarspendýr hafi drepist af völdum hljóðsjáa herskipa, að sögn fréttavefjar breska ríkisútvarpsins, BBC. Á sumum svæðum tvöfaldast há- vaðinn í hafinu á hverjum áratug og að sögn IFAW er ekki nóg að gert til að vernda dýrin. Mikilvægt sé að alþjóðasamfélagið grípi þegar í stað til aðgerða til að minnka há- vaða af mannavöldum í höfunum. Of mikill há- vaði fyrir hvali HVERFIÐ Porong í útjaðri borgarinnar Surabaya í Indónesíu hefur verið á kafi í leðju undanfarin tvö ár. Þá hóf leðja að flæða upp úr gas-borholu sem ekki hefur tekist að stöðva ennþá og þykir lítil von til þess að það takist. Nú nær leðjan yfir tæplega 7 ferkílómetra svæði og hefur valdið stórtjóni og heilsufarsvandamálum meðal íbúanna. Brennisteinsfnyk leggur af gráleitri og vatnskenndri leðjunni, en yfirvöld fullyrða að hún sé ekki heilsuspillandi. Íbúar hafa þó í auknum mæli orðið varir við ofnæmisviðbrögð. Flóðið er af vísindamönnum talið hið stærsta sinn- ar tegundar í heiminum, en svipuð flóð hafa orðið annars staðar í Indónesíu sem og á Ítalíu og í Kína. Yfirvöld hafa gert orkufyrirtækinu Lapindo Brantas, sem talið er eiga sök á flóðinu, að greiða íbúum og öðrum sem orðið hafa fyrir tjóni sem nem- ur rúmum 36 milljörðum króna í skaðabætur. Tals- menn fyrirtækisins segja það ekki eiga sök á því hvernig fór, en skaðabæturnar verði samt sem áður greiddar. Mikil reiði ríkir meðal íbúanna sem vilja að Lap- indo Brantas greiði skaðabæturnar þegar í stað. jmv@mbl.is            ? ;7!  ;559             @ ! 1 A      B+ C A             #        CC D      A   45 CC  A  B  6 )$B7,(0$+ ;$366($&(<(K%%,- ;$582&(>96%4,553? ! "#"  "#" $#%"##& '  (  E  B   ,&E'&$(F% )   /CC          ?   A   N3&3%D g$062&I N3&3%D b,63&$79 a$%91$%9%D9 OhahF_ 2!(g,6%(9D(D,0(< *952%%3(;,58, i*JDD3j(0$+ 0:&$%D3&(>$&D3B? ;!(E31355(.&/063%D2& /63&(5$B72(9D(D,03 2::(L&(*952%%3? 4!(Y'%D8(5$B72%%,& ;$582&(03D3? <!(#$55,+'%82% ,2B;$58,&(;J1;,I 06&$'+3(2:: K('43&>9&B3B?  ^27,%D 1,506$3%07,&B5,D  B , #   C A  2>575 N6K54QB&3%D    ;>3<5 "1$* G (0),&%H (((((h&124'&3&6A13B(OX(),:3%89(@&,%6,0(0$D3&(,B(7,&B017K5463 6;$3+2&(8JD2+(4'&&(*$4B3(19+3B(5$B7206&,2+%2+(,4(06,B? (((((b,&B4&AB3%D,&(0$D7,(7,&B017K546,%%(635;3572%? @9&2%,&06,B2&3%%($&(\""(1+(4&K(2::6J12+(7,&B017K546,%0? H43&;J58(*,4,(D$&6(),:3%89(,B(>9&D,('43&(\](+3557,&B, 1&Q%,(<(01,B,>A62&(635(4Q&%,&5,+>,(9D(;$D%,(67Q%0? &  *+, ) *--+ ""(+                  ()$E,* 1$-&% $.@/&&%* ((((()$B7,%(%A&(%L('43&(2+(]-e(1+(0;AB3? (((((k+( "?"""(+,%%0(*,4,(+3006(*$3+353(0<%(,21 .$00(0$+(01Q5,&(9D(;$&10+3B72&(*,4,(4,&3B(K(1,4? (((((#2%8&2B2+(06$':2152+:,(;,&(*$%6(94,%(<(+'%%3($58I 47,5503%0(K&3B(!""f(<(;9%(2+(,B(06JB;,(45AB3B($%(.,B(+306Q106?            0   >    ? Risavaxið leðjuflóð hefur valdið stórtjóni í Indónesíu Santíagó. AP. | Forsetar Suður-Am- eríkuríkja komu saman í Santíagó í Chile í gær til að reyna að afstýra frekari blóðsúthellingum og pólitísk- um glundroða í Bólivíu. Evo Morales, forseti Bólivíu, mætti á leiðtogafundinn eftir að stjórn hans hafði í raun misst yfirráð yfir helmingi landsins. Andstæðing- ar Morales hafa lokað þjóðvegum, náð opinberum byggingum á sitt vald, lokað landamærastöðvum og unnið spellvirki á gasleiðslum. Um tíma stöðvaðist helmingur alls út- flutnings Bólivíu á jarðgasi til Bras- ilíu vegna óeirðanna. Mótmælin eiga rætur að rekja til tilrauna héraða, þar sem jarðgasið er unnið, til að fá aukin sjálfstjórnar- réttindi og stærri hluta af tekjunum af jarðgasinu. Leiðtogar héraðanna krefjast einnig þess að Morales hætti við þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá sem myndi auka völd og réttindi frumbyggja Bólivíu. Sendiherrum vísað úr landi Ríkissaksóknari Bólivíu hefur sagt að hann hyggist ákæra héraðs- stjóra Pando, héraðs við landamærin að Brasilíu, fyrir að hafa fyrirskipað fjöldamorð. Morales segir að 30 stuðningsmenn sínir hafi verið skotnir til bana með vélbyssum í árás úr launsátri í Pando á fimmtu- daginn var og það varð til þess að hann setti herlög til að koma í veg fyrir frekara ofbeldi í héraðinu. Morales hefur vísað sendiherra Bandaríkjanna úr landi og sakað hann um að hafa hvatt til óeirðanna. Hugo Chavez, forseti Venesúela, vís- aði einnig bandaríska sendiherran- um í Caracas úr landi til að sýna Morales samstöðu. Bandaríkjastjórn svaraði í sömu mynt. bogi@mbl.is AP Í vanda Evo Morales mætir á leið- togafund í Santiago í gær. Reynt að afstýra stjórnleysi Leiðtogafundur um óeirðir í Bólivíu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.