Morgunblaðið - 16.09.2008, Page 18

Morgunblaðið - 16.09.2008, Page 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF KPMG lét af störfum sem endur- skoðandi XL Leisure í október árið 2006 eftir að stjórn XL Leisure virti að vettugi athugasemdir KPMG um óreglu í bókhaldi fyrirtækisins. Fjármálaeftirlitið skoðaði á síð- asta ári meint bókhaldsbrot XL Leisure, dótturfyrirtækis Avion Group, sem var forveri Eimskips. Ekkert kom í ljós sem sýndi fram á að stjórnendur Avion hefðu haft vitneskju um óreglu í bókhaldinu. Samkvæmt frétt í Sunday Times lét KPMG af störfum eftir að starfs- fólk XL Leisure bjó þannig um hnútana að greiðslu á reikningum til veitingafyrirtækisins Alpha Air- ports var frestað, að því er virðist til þess að fegra stöðu fyrirtækisins. thorbjorn@mbl.is Frestuðu greiðslum Stjórn XL virti að vettugi athugasemd endurskoðanda um óreglu í bókhaldi ● SKAMMT er stórra högga á milli á dönskum bankamarkaði þessa dag- ana. Í gær gekk Forstædernes Bank inn í Nykredit og Handelsbanken keypti Norðursjálenska Lokalban- ken. „Við höfum ekki séð fyrir end- ann á sameiningu banka,“ segir Per H. Hansen, prófessor í Viðskiptahá- skólanum í Kaupmannahöfn, á vef Berlingske. Ástæðuna segir hann vera skyndilegan skort á lánsfé. Í síðustu viku lokaði til að mynda þýski bankinn HSH Nordbank fyrir frekari lán til danskra banka. camilla@mbl.is Bankar sameinast @A   ! " #$ % &'"() &#$ *+,- ! ./012 )'"2 B? +  ? %/ %$   - 3  + %$ .-- 5 3  + %$ <=  %$ 3  ( - %$ %$ <-+%># ; ?/  3  + %$ @ +4 # . - %$ : ( - ;  %$   %$ !1 AB !   C. & ) ') %$($ %$ D %$ C - B @    /  E8   / 1   1F <- . - G 8 . - BH  ' %$ 68 %$ I   5& %$   "  D  2 8    2$ . 3   %$ +&' %$  %,   ! "# " "! " #  ##  # # "## " !"## ### ### !### ##  # # "###             !             !    I&-+  #  6(& 0 - # @ + ! J$JK$ $ $J $K$K J$$ $ J$J$JJ $$ J$ $K$JK$K  $K$JJ$  $J$JJ JK$K $ $ J$  $K$  J$$ $$ K$ K$ C C C $J$ C C KL L L KL L KL L KL  L L L  L J L KL L L JL C C C L C C KLJ LK L KL L KL L KL  L LJ L L L L KL  L L  LJ L C JL L L '5 &-+  K J      K    KJ  C  K  C C C  C C "#  # &-$  & $$ $$ $$ $$ $$ $$ $$ $$ $$ $$ $$ $$ $$ $$ $$ $$ $$ K$J$ $$ $K$ $$ $$ J$$ 6 6 6 AM AM " # " $" $"# N N AM E .M " " $ $ N N "E  BO #!  # $ $" N N 6!< "M # # $"! $ N N AM '  AM " " ! !# $ $ N N ÞETTA HELST ... ● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallarinnar lækkaði um 1,73% í viðskiptum gær- dagsins og var lokagildi hennar 3.898,36 stig. Bréf Föroya Banka hækkuðu um 0,64% og bréf Alfesca stóðu í stað. Bréf Eimskips lækkuðu um 21% og bréf Eikar Banka um 15,56%. Krónan veiktist um 1,39% og var lokagildi gengisvísitölunnar 169,9 stig. bjarni@mbl.is Miklar lækkanir ● Líklegra er nú en áður að sam- dráttur fylgi fjár- málakreppunni sem skekur Bandaríkin og al- þjóðlega fjár- málamarkaði sagði Alan Greenspan fyrrum seðlabankastjóri Bandaríkjanna í gær. Ástandið myndi ekki lagast fyrr en jafnvægi næðist á húsnæðismarkaði. Sagði hann að svona hlutir gerð- ust bara einu sinni á hverri öld. Þetta væri versta ástand á fjár- málamarkaði sem hann hefði kynnst á sinni ævi. Fleiri stórir bankar myndu hætta rekstri. Það þyrfti ekki að vera slæmt og ekki ætti að bjarga öllum frá falli. bjorgvin@mbl.is Gerist á 100 ára fresti Alan Greenspan ● GEORGE W. Bush Bandaríkja- forseti sagði í gær að bandaríska hagkerfið væri nægilega öflugt til að ráða við þau umbrot sem nú eru á fjármálamarkaði vegna hruns fjár- festingarbankans Lehman Brothers og erfiðleika annarra fyrirtækja. Bush gaf yfirlýsinguna á blaða- mannafundi með John Kufour, for- seta Gana, sem er í heimsókn í Washington. Sagði Bush að Banda- ríkjamenn væru að vonum áhyggju- fullir en bandarísk stjórnvöld fylgd- ust grannt með þróuninni og myndu grípa til ráðstafana til þess að draga úr áhrifum þessara atburða á hag- kerfið í heild. thorbjorn@mbl.is Bush reynir að róa Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is Á ÖÐRUM ársfjórðungi 2008 var tekjuafkoma hins opinbera neikvæð um 1,9 milljarða króna en það er verulega óhagstæðari afkoma en á öðrum ársfjórðungi 2007 er hún var jákvæð um 11,8 milljarða króna. Fara þarf aftur til þriðja ársfjórð- ungs 2004 til að finna neikvæða af- komu í rekstri hins opinbera. „Þetta sýnir að þessir sjálfvirku sveiflujafnarar, sem voru innleiddir í opinbera útgjalda- og tekjukerfið, virka,“ segir Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla Ís- lands. „Þetta voru fyrirséð tíðindi og ég átti nú jafnvel von á þessu fyrr,“ bætir Þórólfur við. Sem hlutfall af landsframleiðslu var tekjuhallinn 0,1% og sem hlutfall af tekjum hins opinbera 1,2%. Þessi óhagstæða afkoma skýrist af bæði neikvæðri tekjuafkomu ríkis- sjóðs og sveitarfélaga, en afkoma al- mannatrygginga var hins vegar já- kvæð á umræddum ársfjórðungi. Aukin útgjöld hins opinbera Tekjur ríkissjóðs hækkuðu um 1,3% á öðrum ársfjórðungi 2008 frá sama ársfjórðungi 2007, en lækkuðu hins vegar um 4,6% frá fyrsta árs- fjórðungi 2008 eða 5,4 milljarða króna og munar þar mest um lækk- un skatttekna af vöru og þjónustu. Á sama tíma hækkuðu útgjöldin um 13,8% milli ára og um 10,4% milli fyrsta og annars ársfjórðungs 2008. Munar þar miklu um aukna fjárfest- ingu ríkissjóðs og aukin fjárframlög til almannatrygginga. Á komandi misserum má ætla að dragi úr tekjum ríkissjóðs, sérstak- lega í formi skatta sem eru hag- sveiflukenndir eins og innflutnings- tollar og -gjöld og virðisaukaskattur. Verði útgjöldum ekki haldið niðri til samræmis má ætla að hallarekstur verði á ríkissjóði þar til hjól efna- hagslífsins taka að snúast á nýjan leik, samkvæmt upplýsingum frá greiningardeild Glitnis. Neikvæð í fyrsta sinn í fjögur ár L L L L L PL  % QNR %  % &         ? ?? ??? ?I  ? ?? ??? ?I  ? ?? ??? ?I K ? ?? ??? ?I J ? ?? ??? ?I  Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is HLUTUR íslenskra lífeyrissjóða í hlutabréfum og hlutabréfasjóðum minnkaði um tæpa 26 milljarða í júlí á þessu ári, samkvæmt hagtölum Seðlabankans. Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum skýrist þriðjungur minnkunar á endurmati, þ.e. verð- rýrnunar á hlutabréfamörkuðum, en tveir þriðju í seldum hlutabréfum. „Við sofum alveg róleg á nóttunni yfir þessum tölum,“ segir Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða. Hrafn segir að það sem skipti mestu máli fyrir rekstur lífeyrissjóða sé trygg- ingafræðileg staða sjóðanna til lengri tíma. „Tryggingafræðileg staða um síðustu áramót var mjög góð og hún kemur ekki til skoðunar að nýju fyrr en í vor,“ segir Hrafn. Allar líkur á neikvæðri ávöxtun Hrafn segir allar líkur á að ávöxt- un lífeyrissjóða verði neikvæð á þessu ári þótt engar tölur liggi fyrir ennþá. „Innlendur hlutabréfamark- aður hefur verið afar slakur. Krónan hefur hins vegar veikst mjög mikið gagnvart dollar sem er aðalgjald- miðillinn sem lífeyrissjóðirnir eiga í. Það hefur því aukið eignir sjóð- anna.“ Alfreð Hauksson, sjóðsstjóri Al- menna lífeyrissjóðsins, segir að sjóð- urinn hafi losað nokkurt magn af er- lendum hlutabréfum í litlum þrepum samhliða veikingu krónunnar und- anfarna mánuði. „Miðað við fjárfest- ingarstefnu höfum við verið með undirvigt í erlendum hlutabréfum undanfarin ár,“ segir Alfreð. Tryggvi Tryggvason, forstöðu- maður eignastýringar hjá Gildi líf- eyrissjóði, segir að sjóðurinn hafi lít- illega innleyst hlutdeildarskírteini í erlendum hlutabréfasjóðum í júlí- mánuði. Sjóðirnir selja grimmt  Hlutur íslenskra lífeyrissjóða í hlutabréfum og hlutabréfasjóðum minnkaði um tæpa 26 milljarða í júlí  Allar líkur á neikvæðri ávöxtun lífeyrissjóða á þessu ári Í HNOTSKURN »Hlutur lífeyrissjóða í hluta-bréfum minnkaði um 26 milljarða, þar af 24 milljarða í erlendum hlutabréfasjóðum. »Landssamtök lífeyrissjóðabenda á að lífeyrissjóðirnir fjárfesti til langtíma og eigi að standa af sér niðursveifluna. »Sjóðfélagalán lífeyrissjóð-anna jukust um 4,6 millj- arða í júlí. Samkvæmt LL hafa lántakendur snúið sér í aukn- um mæli til lífeyrissjóðanna. ● AFGANGUR Norðmanna af vöru- skiptum við útlönd nam 41,1 millj- arði norskra króna í ágúst, jafnvirði rúmlega 650 milljarða króna, og jókst um 62,5% frá ágúst í fyrra. Er þetta mesti afgangur sem orðið hef- ur á vöruskiptum í einum mánuði í Noregi en ástæðan er hækkandi olíuverð. Útflutningur Norðmanna jókst um 23,2% milli ára, m.a. vegna 39,5% meiri olíusölu og 21% meiri útflutnings á jarðgasi. Milli ára hækkaði verð á hráolíu um 45%. Inn- flutningur Norðmanna hefur á sama tíma dregist saman um 3,2%. Ef olía og gas er undanskilið var 7,6 millj- arða norskra króna halli á vöruskipt- um í ágúst. thorbjorn@mbl.is Mikill afgangur af norskum vöruskiptum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.