Morgunblaðið - 16.09.2008, Qupperneq 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Þorbjörg MöllerLeifs fæddist
20. ágúst 1919 á
Sauðárkróki. Hún
lést á hjúkrunar-
heimilinu Drop-
laugarstöðum 7.
september síðastlið-
inn. Foreldrar
hennar voru hjónin
Þorbjörg Pálma-
dóttir Möller, f.
24.6. 1884, d. 29.5.
1944 og Jóhann
Georg Möller,
kaupmaður á
Hvammstanga, síðar verslunar-
stjóri á Sauðárkróki, f. 15.4. 1883,
d. 18.12. 1926. Systkini Þor-
bjargar voru 1) Jóhann Georg, f.
1907, d. 1955, maki Edith Poul-
sen, f. 1907, d. 1976. 2) Jóhanna
María, f. 1909, d. 1983, maki
Guido Bernhöft, f. 1901, d. 1997.
3) Stefanía Ólöf, f. 1910, d. 1976,
maki Magnús Andrésson, f. 1904,
d. 1966. 4) Jón Ólafur Möller, f.
1911, d. 1965, maki Dóróthea
Óskardóttir, f. 1926. 5) Alda
fríður Jónsdóttir húsfreyja. Á
unglingsárum fluttist Þorbjörg til
Reykjavíkur og stundaði nám í
Verslunarskólanum. Síðar vann
hún við skrifstofustörf hjá Slipp-
félaginu. Þorbjörg fluttist til
Kaupmannahafnar þar sem hún
hélt heimili fyrir Jakob Möller
frænda sinn, sendiherra Íslands í
Kaupmannahöfn, ásamt því að
stunda skrifstofustörf í sendi-
ráðinu um árabil. Eftir að hún
fluttist til Íslands 1951 vann hún á
skrifstofu Þjóðleikhússins þar til
hún giftist Jóni Leifs. Þorbjörg og
Jón hófu búskap að Freyjugötu 3
árið 1956. Á heimili þeirra var
skrifstofa Stefs til húsa þar til
1969 er skrifstofan var flutt að
Laufásvegi 40. Þorbjörg starfaði
þar sem úthlutunarstjóri til ársins
1984. Einnig sat hún í stjórn Stefs
um áratugaskeið. Þorbjörg flutt-
ist að Hávallagötu 17 um líkt leyti
og hún hætti störfum hjá Stefi og
bjó þar uns hún fluttist að Drop-
laugarstöðum 12. sept. 2003. Þar
bjó hún til æviloka og naut mjög
góðrar aðhlynningar starfsfólks-
ins.
Útför Þorbjargar verður gerð
frá Dómkirkjunni í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
Alvilda, f. 1912, d.
1948, maki Þórarinn
Kristjánsson, f. 1906,
d. 1988. 6) Lovísa, f.
1914, d. 1966, maki
Sigurður Samúels-
son, f. 1911. 7) Sig-
urður, f. 1915, d.
1970, maki 1. Emelía
Samúelsdóttir, f.
1916, d. 1994. 2. Guð-
rún Jónsdóttir, f.
1926, d. 2005. 8) Þór-
anna, f. 1917, d.
1946. 9) Lucinda Sig-
ríður, f. 1921, d.
1965, maki Eiríkur Sigurbergs-
son, f. 1903, d. 1968. 10) Pálmi, f.
1922, d. 1988, maki Málfríður
Óskarsdóttir, f. 1925, d. 1996.
Eiginmaður Þorbjargar var Jón
Leifs tónskáld, f. 1.5. 1899, d.
30.7. 1968. Sonur þeirra er Leifur
Leifs, f. 5.4. 1957.
Fyrstu árin ólst Þorbjörg upp á
Sauðárkróki en fluttist til afa síns
og ömmu eftir andlát föður síns
1926. Þau voru Pálmi Þóroddsson
prestur á Hofsósi og Anna Hólm-
Þorbjörg Möller Leifs, móður-
systir mín og vinkona, er látin.
Þorbjörg, sem oftast var kölluð
Dídí í mínum uppvexti og síðar
Dídí frænka hjá mér og börnum
mínum, átti mjög sérstakan sess í
okkar huga. Hún lifði lengst af
stórum hópi systkina sem flestöll
dóu langt fyrir aldur fram. Þor-
björg sýndi okkur mikla alúð og
umhyggju alla sína tíð og bætti þar
með upp af fremsta megni það
stóra skarð sem varð við fráfall
móður minnar og systkina hennar.
Það var alltaf ævintýraljómi yfir
Dídí, hún var mikil stemnings-
manneskja og hrifnæm með af-
brigðum og þar af leiðandi var allt-
af gaman að deila með henni öllu
því sem upp á kom í lífinu, einnig
draumum og plönum sem hún tók
ríkan þátt í, hvatti mann áfram eða
sagði manni til syndanna eftir því
sem við átti.
Dídí frænka giftist Jóni Leifs
1956 sem þá kom inn í líf okkar og
ári síðar fæddist Leifur frændi.
Mikil vinátta var með fjölskyldum
okkar og þar af leiðandi mikill
samgangur. Leifur var gullfallegt
barn og hress strákur, hann var
einnig mikill prins enda einkabarn
aldraðra foreldra til þess að gera.
Jón eignaðist tvær dætur í fyrra
hjónabandi með Anný Leifs, þær
Snót, f. 1923, og Líf, f. 1929. Líf
drukknaði 17 ára gömul í skerja-
garðinum í Stokkhólmi 1947 en
Snót lifir enn.
Við bróðir minn og faðir vorum
tíðir gestir á Freyjugötunni eftir
að móðir mín veiktist og þá gjarn-
an boðin í sunnudagsmat.
Fyrstu árin á Freyjugötunni var
skrifstofa Stefs í annarri stofunni
en um helgar var henni breytt í
borðstofu þar sem Dídí frænka
opnaði á milli stofanna og dekkaði
upp af miklu listfengi dýrindis
veisluborð eins og henni var einni
lagið.
Dídí frænka og Jón voru mjög
samhent um að leiða mig og aðra
unglinga í fjölskyldunni inn í
heimsmenninguna, okkur frænkun-
um fannst það stundum fyndið og
hlógum okkar á milli að „tiktúrun-
um“ en höfðum mjög gaman af.
Við systkinin áttum alltaf gott
skjól hjá Dídí frænku og Jóni, þar
var ævintýrið alltaf á næsta leiti.
Siggi bróðir var stóri frændi Leifs
og var að sjálfsögðu í mun meira
dálæti hjá honum en ég og það var
fjör þegar þeir frændur hittust.
Mér var hins vegar uppálagt að
lesa um ástina og þá dugði sko ekk-
ert minna en Viktoría eftir Hams-
un.
Þetta voru góð ár á Freyjugöt-
unni en 1968 missti Dídí Jón sinn
og Leifur þá aðeins 11 ára og tóku
þá við erfiðari tímar.
Við Siggi bróðir, sem búsettur er
í Bandaríkjunum, áttum alltaf
hauk í horni hjá Dídí og við vorum
ekki þau einu. Fyrir okkur og börn
okkar var hún fulltrúi móðurfólks
okkar sem gæddi minninguna um
þau lífi og innsæi.
Ég kveð frænku mína með sökn-
uði og þakklæti.
Sif Sigurðardóttir.
Ég ætla að leyfa mér að tala til
þín, Dídí mín, eins og við værum að
rifja sameiginlega upp ýmsar
minningar liðinna daga.
Við kynntumst í Versló. Þú bjóst
á Hávallagötu, hjá systur þinni,
Stellu, og Magnúsi Andréssyni,
manni hennar.
Ég bjó á Sólvallagötu 4, hjá for-
eldrum mínum, ásamt fjórum
systkinum og oft fleiri ættingjum,
ásamt starfsstúlkum. Svo stutt var
á milli heimilanna að við gátum
kallast á milli svala húsanna og
gerðum oft.
Dídí varð fljótt ein af hópnum og
kærum heimilisvinum, í eftirmið-
dags kakódrykkju o.fl. Húmor
hennar féll vel saman við okkar.
Já, það var oft gaman og ekkert
vantaði upp á hugmyndaflugið,
sem ekki var þó alltaf fylgt eftir,
enda hefði það ekki alltaf komið
sér vel!
Ég ætla ekki að minna á mörg
prakkarastrik hér, en þau fólust
aðallega í miklu gríni og glensi.
Þó skaðar það nú varla neinn,
eftir öll þessi ár, að rifja það upp
þegar við Dídí létum kalla Krist-
ínu, föðursystur mína, Ólafsdóttur,
til nágrannakonu á stútungsaldri,
sem átti reyndar mörg uppkomin
börn, en var þarna löngu komin úr
barneign, á þeim forsendum að hún
væri alveg komin að því að fæða.
Kristín frænka var, eins og
Þorbjörg Möller Leifs
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og tengdasonur,
ÓLAFUR GUÐMUNDSSON
fóðurfræðingur,
Þinghólsbraut 22,
Kópavogi,
sem andaðist á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi fimmtudaginn 11. september, verður
jarðsunginn frá Kópavogskirkju föstudaginn
19. september kl. 13.00.
Lilja Ólafsdóttir,
Sigríður Ólafsdóttir, Ingi Freyr Rafnsson,
Ólöf Ólafsdóttir, Stefán Halldór Magnússon,
Guðmundur Ólafsson,
Dagbjört Guðjónsdóttir.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÞÓRA RANNVEIG SIGURÐARDÓTTIR,
Marklandi 2,
Reykjavík,
lést á kvennadeild Landspítalans laugardaginn
13. september.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn
22. september kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknardeildina í Kópavogi og
Krabbameinsfélag Íslands.
Sigrún Þórarinsdóttir, Ólafur Þór Kjartansson,
Sigurður Þórarinsson,
Helga Sigríður Þórarinsdóttir,
Edda Ólafsdóttir, Rúnar Helgason,
Þóra Ólafsdóttir, Vignir Óðinsson,
Óli Valur Ólafsson,
Ásbjörn Þórarinn Sigurðsson,
Helga Þóra Siggeirsdóttir,
Viktoría og Adam Fannar Vignisbörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
ÁRNI I. MAGNÚSSON,
Nönnugötu 16,
Reykjavík,
andaðist föstudaginn 12. september.
Útför fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík
fimmtudaginn 18. september kl. 15.00.
Guðfinna Gissurardóttir,
Jón Arnar Árnason og fjölskylda,
Halla Margrét Árnadóttir og fjölskylda.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÁSTHILDUR GUÐRÚN GÍSLADÓTTIR
KÖNIGSEDER,
er látin.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Már Wolfgang Mixa, Kristín Loftsdóttir,
Halla Guðrún Mixa,
Jörg Albert Königseder, Mirijam Wolfgruber,
Mímir, Alexía og Sól.
✝
Föðursystir okkar,
INGIBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR,
Skáldstöðum,
lést á dvalarheimilinu Barmahlíð sunnudaginn
14. september.
Útförin verður auglýst síðar.
Ebenezer Jensson,
Eiríkur Jensson,
Helgi Jensson.
✝
Sonur minn, bróðir okkar og mágur,
EMIL AUÐUNSSON,
Mölleparken,
Toftlund,
Danmörku,
lést á heimili sínu sunnudaginn 7. september.
Minningarathöfn fer fram í Toftlund Kirke
16. september kl. 14.00.
Jarðarför á Íslandi verður auglýst síðar.
Auðunn Bragi Sveinsson,
Sveinn Auðunsson, Erika Steinmann,
Kristín Auðunsdóttir, Haukur Ágústsson,
Ólafur Auðunsson, Helena Stefánsdóttir.
✝
Faðir okkar, tengdafaðir og bróðir,
BÁRÐUR F. SIGURÐARSON
löggiltur endurskoðandi,
lést á dvalarheimilinu Grund fimmtudaginn
11. september.
Hann verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 17. september kl. 15.00.
Guðrún Kalla Bárðardóttir, Hilmar Sigurþórsson,
Gyða Bárðardóttir, Þórhallur Maack,
Auður Bárðardóttir, Guðbrandur Elíasson,
Sigurður Kr. Bárðarson, Álfhildur Ólafsdóttir,
Bárður Örn Bárðarson, Ólöf Margrét Snorradóttir,
Þorsteina Sigurðardóttir.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
KRISTÍN GESTSDÓTTIR,
Goðabraut 22,
Dalvík,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri sunnu-
daginn 14. september.
Útförin verður auglýst síðar.
Friðþjófur Þórarinsson,
Þorsteinn Friðþjófsson, Harpa Sigfúsdóttir,
Björn Friðþjófsson, Helga Níelsdóttir,
Atli Viðar, Silja, Kristinn Þór, Andri Freyr,
Rúnar Helgi og Daníel.