Morgunblaðið - 16.09.2008, Síða 30

Morgunblaðið - 16.09.2008, Síða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Fanney Sigur-baldursdóttir fæddist á Ísafirði 4. nóvember 1924. Hún lést á líknardeild Landakotsspítala hinn 29. ágúst síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Sig- urbaldur Gíslason, skipstjóri á Ísafirði, f. 25.1. 1898, d. 7.1. 1983, og Petrína Þórðardóttir, hús- freyja á Ísafirði, f. 22.4. 1900, d. 6.10. 1971. Systkini Fanneyjar eru: Þór- veig Hulda, húsfreyja í Kópavogi, f. 21.5. 1921, d. 28.5. 1955. Maki Bóas Daði Guðmundsson, f. 20.3. 1919, d. 5.1. 1969. 2) Baldur, f. 26.1. 1930, skipstjóri í Grindavík. Maki Val- gerður María Guðjónsdóttir. 3) Richard, f. 17.12. 1934, bókari í Reykjavík. Maki Dagný Jóna Guð- laugsdóttir. 4) Guðrún Erna, f. 3.12. 1935, húsfreyja í Reykjavík. Maki Sigurður Hólm Þorsteinsson. Sigurbaldur og Petrína, foreldrar Fanneyjar, tóku í fóstur og ólu upp sem sinn son Kristin Sigurvin Karlsson, sjómann, f. 30.10. 1932, d. 7.3. 2004. Maki Stella Eyrún Clau- sen. Móðir Kristins var Þórey Sól- veig Þórðardóttir, systir Petrínu. Eftir andlát Þórveigar Huldu ólst einnig upp á heimilinu Baldur Þór sambýliskona Kristín Þórðardóttir, dætur þeirra Herdís Birna og Arna Katrín, b) Bergvin, sambýliskona Ásgerður M. Þorsteinsdóttir. Fyrir átti Fanney 4) Ástu Dóru Egils- dóttur húsfreyju á Ísafirði, f. 5.3. 1942, maki Jón Jóhann Jónsson, f. 19.10. 1922. Faðir Ástu Dóru er Eg- ill Klemens Kristjánsson, f. 17.7. 1920. Ásta Dóra ólst upp hjá Har- aldi Óskari Kristjánssyni, f. 22.6. 1911, bróður Egils. Synir Ástu Dóru og Jóns: a) Kristinn Magdal, sambýliskona Inga Óskarsdóttir og eru dætur þeirra Inga Ósk og Geira Sól. Fyrir átti Kristinn Krist- björgu Magdal, maki Elías Freyr Guðmundsson, barn Freyja. b) Steingrímur, maki Katrín Sig- tryggsdóttir, börn þeirra Stein- grímur Jón og Fríða Ástdís. c) Gunnar Kristján, maki Miriam Pena Reyes. Fyrir átti Gunnar Birgittu Rut og Gunnar Atla. d) Veigar Sigurður, maki Þórdís Jóna Jakobsdóttir, börn þeirra Fanney Dóra og Jakob Jóhann. Fyrir átti Veigar Guðmund Smára og Almar Má. e) Haraldur Kristvin. Fanney ólst upp á Ísafirði en flutti til Reykjavíkur 19 ára gömul. Fanney starfaði víða á sinni starfs- ævi, meðal annars sem matráðs- kona á sjúkrahúsinu Sólheimum við Tjarnargötu, Hvítabandinu og Landakotsspítala við umönnun sjúklinga. Árið 1980 hóf hún störf á skóladagheimilinu í Auðarstræti, síðar Stakkakot, þar sem hún starf- aði í 12 ár, eða allt til ársins 1992 er hún fór á eftirlaun. Útför Fanneyjar fer fram frá Fella- og Hólakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Bóasson, f. 23.6. 1944, útgerðarmaður á Siglufirði. Maki Hrólfdís Hrólfsdóttir. Fanney giftist 14.5. 1944 Bergvini Jóns- syni, starfsmanni í Sjálfstæðishúsinu í Reykjavík, f. 1.8. 1918, d. 18.6. 1963. Börn þeirra eru: 1) Petrína Margrét starfsstúlka í Reykja- vík, f. 24.12. 1944. Giftist Gísla Óla Jóns- syni, f. 1.6. 1940. Þau skildu. Börn þeirra: a) Bergvin, b) Jón, f. 14.1. 1967, d. 6.6. 1967, c) Margrét, maki Karl Kristján Hreinsson, börn þeirra Agnar Már, Ragnar Ingi, Gísli Örn og Ísabella Nótt, d) Anna, synir hennar Jón Kristinn og Halldór Torfi Magn- ússynir. 2) Þórveig Hulda hjúkr- unarfræðingur í Reykjavík, f. 22.4. 1955. Maki Gunnar Hallsson, f. 18.10. 1950. Synir þeirra: a) Hallur, maki Andrea Sigrún Hjálmsdóttir, dætur þeirra Fönn og Dögun, b) Brynjar, sambýliskona Hlín Finns- dóttir. Fyrir átti Þórveig Hulda c) Davíð Bjarnason, maki María Birna Arnardóttir, dætur þeirra Ísafold Filippía og Laufey. 3) Jón rekstr- arfulltrúi í Reykjavík, f. 22.8. 1957, maki Ingibjörg Viggósdóttir, f. 8.5. 1958. Synir þeirra: a) Viggó Arnar, Elsku amma Fanney. Þú varst búin að vera veik lengi og varst hetja í bar- áttunni þinni við þennan banvæna sjúkdóm. Þegar þú hresstist eftir bar- áttuna fyrir ári sáum við hversu mikil baráttumanneskja þú varst, komst aftur heim og allt leit þokkalega út. Bjartsýnin tók við en svo allt í einu varstu orðin svo veik aftur. Þú settir þér markmið, að komast í ferminguna hans Halldórs Torfa í apríl og þú komst, að vísu í hjólastól en við vorum öll svo glöð að þú komst og hittir okk- ur öll. En svo versnaði heilsan og þú varst lögð inn á Landakot en fékkst að koma heim aftur en þá varstu orðin svo veik og varst lögð inn aftur og komst ekki til baka. En sem betur fer átti ég stundir með þér þar, þó þú vissir ekki af nær- veru minni, ég strauk um höfuð þér og kyssti ótal sinnum og sagðist elska þig, það var svo sárt að sjá þig þjást svona og litla hjartað mitt brast í hvert sinn. Ég missti því miður af því þegar þú kvaddir þennan heim en gott fólk var hjá þér og það er hugg- un. Ég fer að hugsa um allar góðu stundirnar okkar, t.d. þegar ég datt ofan í grunninn þegar það var verið að byggja Gerðuberg, þá labbaði ég hundvot heim til þín og þú klæddir mig úr blautu fötunum og settir mig í hlýja rúmið þitt, sast hjá mér og hlýj- aðir mér. Allar heimsóknirnar til þín á skóla- dagheimilið á Auðarstræti þar sem við systurnar komum ósjaldan til að fá brauð í grilli. Það var toppurinn að koma til þín eftir skóla. Allir ullar- sokkarnir og vettlingarnir, já og lopa- peysurnar sem þú prjónaðir. Strák- ana vantaði aldrei neitt fyrir veturinn. Það var alltaf gaman að koma og heimsækja þig, þó ég hefði mátt vera duglegri við það, enda þú eina amman sem ég átti. Þú hafðir góðan húmor og varst alltaf svo jákvæð. Ég man þegar ég flutti til mömmu eftir skilnað minn, þá bjugguð þið hlið við hlið í Suður- hólunum. Þú stóðst svo vel við bakið á mér og varst svo stolt af mér þegar ég kom hlaupandi með lyklana að fyrstu leiguíbúðinni og skildir svo að ég vildi vera sjálfstæð og flytja frá ykkur. Takk fyrir þann stuðning. Þú komst í þrítugsafmælið mitt og skemmtir þér ekkert minna en við unga fólkið og þegar ég ákvað að skíra drengina mína árið 2004 og bað þig og mömmu um að vera skírnar- vottar varð ég svo glöð að þú skyldir segja já og ég man hversu stolt þú varst. Bara við móðurfjölskyldan heima hjá mér, svo falleg stund, takk fyrir það. Ég, Nonni og Halldór eigum eftir að sakna þín sárt en við vitum að nú ertu loks komin til afa Bergvins og Jóns bróður og þú gætir okkar um ókomna framtíð. Hvil í friði, elsku amma, við elskum þig. Anna, Jón Kristinn og Halldór Torfi. Elsku amma Fanney. Þó við höfum kvatt þig innilega þegar við fluttum til Vancouver í Kan- ada fyrir rúmu ári, vitandi að senni- lega gæti þetta verið eitt af síðustu skiptunum sem við fengjum að knúsa þig, þá er samt svo ótrúlega erfitt að kveðja. Það er með trega sem við setj- umst niður og skrifum þér þessa kveðju. En það er nú samt þannig að þrátt fyrir söknuð og sorg þá eigum við svo margar skemmtilegar minn- ingar um þann tíma sem við áttum saman. Þið Fönn byggðuð undirstöð- ur einstakrar vináttu fyrsta sumarið hennar þegar við dvöldumst öll sam- an í Litluhlíðinni, hún tregar þig nú gömlu vinkonuna sína. Við áttum ótal góðar stundir yfir fiskibollum í Suðurhólunum þar sem málefni líðandi stundar voru krufin af miklum móð. Eftir að við fluttum norður fækkaði samverustundunum en þær stundir sem við áttum voru alltaf jafn-nærandi og góðar. Það er okkur ómetanleg í minningunni vikan sem þú dvaldir hjá okkur á Ásveg- inum. Þá var ýmislegt brallað og þú hélst í flug frá Akureyri með ægifag- urt húðflúr á upphandleggnum sem Fönn hafði dundað við að teikna á þig með glimmerapennunum sínum. Er ekki rétt munað að húðflúrið góða hafi verið í stanslausri vinnslu á með- an þú dvaldist hjá okkur og var þar af leiðandi orðið með skrautlegra móti þegar þú hélst heim. Það er ómögulegt að minnast þín án þess að prjónarnir komi upp í hug- ann og þessi góða vika var þar engin undantekning. Gestahosurnar sem þú prjónaðir fyrir okkur þá hafa komið að góðum notum og bíða þess í köss- um að verða notaðar á ný. Elsku amma Fanney, þú verður okkur ávallt fyrirmynd hvað lífsvið- horf varðar og vonandi öðlumst við þann þroska að taka til fyrirmyndar það jákvæða viðhorf til lífsins sem þig einkenndi. Um glaðværð þína höfum við mikið rætt undanfarna daga og í sameiningu höfum við ákveðið að hún muni fylgja okkur hvert sem við för- um og muni aldrei gleymast. Við náum því miður ekki að fylgja þér í dag en hér í Vancouver munum við syngja Vísur Vatnsenda-Rósu þér til heiðurs. Vísurnar kenndir þú Fönn þegar þú dvaldist hjá okkur á Akur- eyri, þær eru í miklu uppáhaldi, og það má segja að undir þínum áhrifum höfum við æft stíft síðustu vikuna: Augun mín og augun þín, ó! þá fögru steina. Mitt er þitt og þitt er mitt, þú veist hvað ég meina. (Vatnsenda-Rósa.) Elsku amma, þú átt þinn stað í hjörtum okkar, Hallur, Andrea, Fönn og Dögun. Elskuleg frænka mín, Fanney, er látin. Við andlát hennar sækja á mig ótal minningar um einstaklega góða og trygga frænku. Fanney var yndisleg manneskja og sýndi mér og minni fjölskyldu alla tíð mikla væntumþykju. Fyrir það verð ég ævinlega þakklát. Fanney hafði létta lund og átti auðvelt með að sjá spaugilegar hliðar mannlífsins. Hún hafði gaman af allri handavinnu og var allt sem hún gerði einstaklega fal- legt og vandað. Síðustu tvö árin voru Fanneyju erf- ið vegna veikinda en hún tók þeim af miklu æðruleysi. Nú ertu laus úr veik- um og þreyttum líkama og komin á betri stað. Hafðu hjartans þakkir fyr- ir allt, elsku Fanney, þú munt ætíð eiga stóran sess í hjarta mínu og minning þín lifir. Hlýjar samúðarkveðjur sendi ég börnum Fanneyjar og fjölskyldum þeirra. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir) Hólmfríður (Fríða). Í dag kveðjum við ástkæra móð- ursystur mína, Fanneyju. Fanney fæddist á Ísafirði og ólst þar upp á dæmigerðu íslensku al- þýðuheimili. Faðir hennar, Sigur- baldur Gíslason skipstjóri, sótti stíft sjóinn og því kom daglegt uppeldi barnanna á heimilinu í hlut móður Fanneyjar, Petrínu Þórðardóttur. Það var oft líf og fjör á heimili Fann- eyjar í Fjarðastræti 38 enda voru þau Sigurbaldur og Petrína með sjö börn á framfæri sínu. Fanney gekk í barnaskóla Ísafjarð- ar, var mjög góður námsmaður sem þurfti lítið að hafa fyrir náminu og lauk grunnskólanum með ágætisein- kunn. Á Ísafirði um 1940 voru ekki sömu möguleikar til menntunar og bjóðast í dag. Er aldrei að vita nema hún hefði leitað sér frekari menntun- ar ef lífsbaráttan hefði verið með öðr- um hætti. Fanney var 19 ára þegar hún fór suður til Reykjavíkur og hóf fljótlega eftir það að vinna hjá Hjálpræðis- hernum. Þar kynntist hún verðandi eiginmanni sínum, Bergvini Jónssyni. Þau hófu búskap og giftu sig 1944. Á árinu 1963 varð fjölskyldan fyrir þeim sára missi að fjölskyldufaðirinn lést vegna veikinda, einungis 45 ára að aldri. Fanney var aðeins 38 ára gömul þegar hún missti mann sinn og var það henni mikið áfall enda þá með þrjú börn á sínu framfæri. Þegar Bergvin lést bjó fjölskyldan á Skúlagötu 72 og þar bjó hún um þrettán ára skeið, en árið 1980 fluttist Fanney í Efra-Breiðholt. Mér fannst ávallt notalegt að koma í heimsókn til hennar og er mér t.d. minnisstætt það fína úrval af góðgæti sem þar stóð ávallt gestum til boða. Matarboð Fanneyjar á jólunum voru einnig ákaflega ánægjuleg. Fanney starfaði víða á sinni starfs- ævi, meðal annars á Hvítabandinu og Landakotsspítala við umönnun sjúk- linga. Á árunum 1980-1992 starfaði hún á skóladagheimilinu í Auðar- stræti, þar til hún fór á eftirlaun. Fanney gerði mikið af því á tímabili að ferðast til annarra landa þegar hún var komin á sextugsaldur, fór þá með- al annars í ferðir til Mallorka, Kan- aríeyja í tvígang, Júgóslavíu, Dan- merkur, Írlands, Skotlands og Englands. Fanney hafði mikið yndi af því að skoða sig um í þessum ferðum og hefði án efa gerst enn víðförulli ef hún væri ung kona í dag með þeim ferðatækifærum sem bjóðast. Í dag finnst mér það bera vott um mikla víðsýni hjá frænku minni að hafa af- rekað það að heimsækja og kynnast sögu og menningu Júgóslavíu árið 1980 er 35 ára valdaskeiði Tito lauk sem og að hafa komið á slóðir Hróa hattar í Nottingham og í hinar fornu víkingabyggðir í York á Bretlandi. Nú þegar ég hef stiklað á stóru í margbrotnu lífshlaupi móðursystur minnar, Fanneyjar, er mér efst í huga þakklæti fyrir að hafa haft tækifæri til að alast upp í kringum hana. Þegar litið er yfir farinn veg er ekki hægt að segja annað en að frænka mín geti verið sátt við lífsferilinn enda skilað sínu til samfélagsins, heilsa hennar mestan hluta ævinnar var góð en henni tók síðan að hraka síðustu tvö árin. Að lokum sendi ég innilegar sam- úðarkveðjur þeim Ástu Dóru, Petrínu Margréti, Huldu og Jóni og fjölskyld- um þeirra. Pétur Örn Sigurðsson. Elsku Fanney frænka. Takk fyrir hvað þú varst alltaf góð við okkur. Takk fyrir áhugann sem þú sýndir okkur. Takk fyrir stundirnar sem þú áttir með okkur. Takk fyrir að vera yndisleg frænka. Takk fyrir allt. Guð geymi þig. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni veki þig með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Sigurður, Stefán og Davíð. Fanney Sigurbaldursdóttir  Fleiri minningargreinar um Fann- eyju Sigurbaldursdóttur bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu á næstu dögum. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, FRIÐRIK KETILSSON, Rauðumýri 10, Akureyri, verður jarðsunginn frá Glerárkirkju fimmtudaginn 18. september kl. 14.00. Laufey Bergrós Árnadóttir, Júlíus Fossberg Friðriksson, Árni Ketill Friðriksson, Gígja Hansen, Arnar Magnús Friðriksson, afabörn og langafabörn. ✝ Kærar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, ÓSKARS V. FRIÐRIKSSONAR. Guðlaug Þorleifsdóttir, Stefanía Óskarsdóttir, Jón Atli Benediktsson, Herdís Óskarsdóttir, Sæmundur Valdimarsson, Þorleifur Óskarsson, Kristrún Lilja Daðadóttir og barnabörn. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar KRISTÍNAR HELGU SVEINSDÓTTUR, Hraunbúðum, Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hraunbúða fyrir góða umönnun. Guð blessi ykkur öll. Hafsteinn Reynir Magnússon, Þórey Gunnlaugsdóttir, Sigurður Ingi Lúðvíksson, Anna Ingibjörg Lúðvíksdóttir, Þorvaldur Pálmi Guðmundsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.