Morgunblaðið - 16.09.2008, Page 32

Morgunblaðið - 16.09.2008, Page 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Gamall vinur og velgjörðamaður hefur kvatt okkur óvænt og skyndi- lega og langt um aldur fram. Ég hafði hitt Helga deginum áður úti á Reykjavíkurflugvelli og átt við hann langt spjall, ekki gat mér dottið í hug á þeirri stundu að það yrði síðasta skiptið, enda virtist hann hinn hress- asti. Ég hafði byrjað flugnám hjá flugskólanum Þyt veturinn 1962, en þótti tíminn ekki hentugur og ákvað því að bíða sumars, sem aftur varð svo frekari seinkun á af ýmsum ástæðum. Ég kynntist svo Helga seinna er við störfuðum saman hjá Bræðrunum Ormsson. Hann var þá nýbúinn að festa kaup á Cessnu 140, TF-AIB og hugðist fara með hana vestur til Ísa- fjarðar og hefja þar flugkennslu. At- vikin höguðu þessu síðan þannig til að ég varð fyrsti nemandinn hjá flug- skóla Helga Jónssonar í Reykjavík með loforð um starf seinna ef úr rætt- ist með reksturinn, við það var staðið og tel ég mig lánsaman hvernig til tókst. Hann átti síðar sinn þátt í því að ég fékk starf í Suður-Ameríku við flug DC-3-véla, sem svo aftur leiddi til starfa hjá Cargolux í Lúxemborg. Af þessari upptalningu má sjá að það er ekki að ástæðulausu sem ég tala um hann sem minn velgjörðamann. Helgi var farsæll flugmaður, enda engin leið að reka flug á Íslandi um áratugaskeið nema vera dugandi og áræðinn. Hann sótti hart, en var um- fram allt gætinn og hafði góða dóm- greind þegar vega þurfti og meta við erfiðar aðstæður. Sem flugkennari var hann frábær og hafði öryggið allt- af í fyrirrúmi. Mikill fjöldi Íslenskra flugmanna hefur útskrifast frá flug- skólanum í gegnum tíðina og starfa þeir flestir hjá íslensku flugfélögun- um en einnig hjá flugfélögum út um víða veröld. Rekstur lítilla flugfélaga á Íslandi hefur ávallt verið erfiður og sveiflu- kenndur. Þar hafa margir reynt fyrir sér, en orðið frá að hverfa eftir mis- langan tíma, til dæmis vegna erfiðs fjárhagsumhverfis og óblíðrar veðr- áttu. Þarna hefur Helgi sýnt einna mesta úthaldið eða í nærri 45 ár. Við höfum ekki haft mikið samband hin seinni ár en hittumst samt alltaf öðru hverju. Við viljum nú að leiðarlokum þakka fyrir góð kynni og sendum eftirlifandi eiginkonu og börnum samúðarkveðj- ur. Kolbeinn Sigurðsson. Mig langar með þessum orðum að minnast vinar míns til margra ára Helga Jónssonar. Leiðir okkar lágu fyrst saman þegar ég hóf flugnám hjá honum fyrir um 20 árum. Eftir námið voru erfiðir tímar í fluginu og lítið um atvinnutækifæri, en Helgi virtist hafa trú á mér og kom að máli við mig og bauð mér starf hjá sér við flugkennslu og leiguflug. Starfaði ég hjá þeim hjónum í allnokkur ár, en þegar kom að því að tækifæri sköpuðust til að sinna brennandi áhuga mínum á þyrluflugi var Helgi ómetanleg hjálp og talaði mínu máli til þess að sá draumur gæti orðið að veruleika. Það bar árangur og fyrir það verð ég Helga ævinlega þakklátur. Helgi var ekki allra og synti ekki endilega alltaf með straumnum, en þeim sem urðu þeirrar gæfu aðnjót- andi að ná til hans þótti öllum mjög vænt um hann líkt og mér. Fáir hafa stundað flugið með jafn mikilli festu alla ævi og Helgi þrátt fyrir að hlut- irnir hafi nú kannski ekki alltaf reynst auðveldir, en hans verður minnst sem eins af stóru nöfnunum í íslenskri flugsögu. Með kærri þökk og kveðju, Sigurður Ásgeirsson. Frábær flugkennari, hugsjóna- maður í fluginu, brautryðjandi og varnarspilari í stöðu einkaflugsins, stöðu litlu flugvélanna, stöðu þess persónulega í fluginu sem sífellt er sótt að af gerilsneyddu kerfinu. Helgi Jónsson hefur um langt árabil verið einn af föstu póstunum á Reykjavík- urflugvelli, öflugur liðsmaður þeirra sem reyna að smíða úr litlu og fikra sig áfram á vettvangi flugsins. Flug- skóli Helga Jónssonar hefur verið eins konar brú milli gamla og nýja tímans með andrúm hinnar einstöku stemmningar sem er svo snar þáttur í þjálfun og lífsstíl flugmanna. Þetta hefur sjaldnast verið dans á rósum, vinna, þrautseigja, þolinmæði, bar- áttuvilji og leikgleði sem hefur alltaf náð að flétta kaðalinn lengra og lengra. Með einstakri stóískri ró hefur Helgi siglt í gegn um þrengingar sem léttari leiðir og það var aðdáunarvert hvernig hann og Jutta kona hans gáf- ust aldrei upp þótt á móti blési. Það var aldrei hávaðanum fyrir að fara hjá Helga, en seiglan þeim mun meiri og margar voru skemmtilegar loturnar sem hann tók í fluginu, m.a. með brautryðjendastarfi á Austur- strönd Grænlands. Dugnaður hans og þeirra hjóna er aðdáunarverður, því þetta hefur verið barátta og meiri barátta, vinna og meiri vinna í umhverfi sem var ekki sérlega vænt, hefur takmarkað svig- rúm fyrir það persónulega. Það per- sónulega þarf að verja, stílinn þar sem eðli flugsins er grandskoðað og fær að gerjast, persónulega innlifunin að stjórna flugvél og bera ábyrgð í veröld sem til skamms tíma var að- eins veröld fugla himinsins. Við Helgi áttum langa samleið, en það var sér- lega ánægjulegt og þakkarvert að fylgjast með því þegar hann kenndi og útskrifaði son minn sem flugmann .Það hefur verið sótt að rými Flug- skóla Helga Jónssonar en vonandi tryggja framsýnir og velviljaðir menn að þessi skóli haldi velli eftir vilja þeirra sem að honum standa. Það er mikill söknuður að Helga Jónssyni og það væri mikill sjónarsviptir að skóla hans, slíkt myndi lækka gildismatið á persónuleika flugsins á Íslandi þótt Kristmundur Helgi Jónsson Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Heilsa You? Icelander! Us? www.vemma.is Léttist um 22 kg á aðeins 6 mánuðum LR-kúrinn er ótrúlega auðveldur og einfaldur. Dóra 869-2024, www.dietkur.is Heilsuátak. Byggðu upp betri heilsu. Bókin fæst í bókabúðum. Bókaútgáfan Hólar Húsnæði í boði Til leigu við Bjallavað 1-3, 110 Rvk. Glæsileg 3ja herbergja íbúð til afhendingar strax. Sérinngangur, bílageymsla og lyfta í húsinu. Langtímaleigusamningur, sjá www.leigulidar.is eða 517-3440. Einbýlishús til leigu í Vesturbergi 160 fm, 6 herbergja einbýli til leigu. Laus 1. nóv. 2008. Verð: 200 þús. + hiti og rafm. Uppl. 639-7815. 9 herb. húsnæði til leigu Hentugt húsnæði fyrir stóra hópa, húsnæðið skiptist í 5 tveggja manna herb. og 4 einstaklings herbergi og er vel staðsett í 105. Hentar sérstaklega vel fyrir skólahópa, verktaka, gisti- heimili o.fl. Frekari upplýsingar í síma 770-0710. 4ra herb. íbúð í Hfj til langtímaleigu 4ra herb. björt og falleg 93 m² íbúð á Völlunum í Hfj til langtímaleigu. Sérgeymsla á hæðinni. Leik- og grunnskóli í örstuttu göngufæri. Leiga 135 þ. Uppl. í 867 1078. Atvinnuhúsnæði Til leigu nýinnréttuð skrifstofu- herbergi í 104 Rvk. Securitas- öryggiskerfi. Tölvulagnir. Góð samnýting. Uppl. í síma 896 9629. Geymslur Vetrargeymsla Höfuðborgarsv. Fellihýsi - Hjólhýsi - Bátar - Bílar o.fl. Upphitað og gott húsnæði. Uppl. 661 3131 og 897 2000. Sumarhús Sumarhús - orlofshús. Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratuga reynsla. Höfum til sýnis á staðnum fullbúin hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is Stórglæsilegt sumarhús til leigu Til leigu 97 fm sumarhús, þar af 25 fm milliloft. Húsið er staðsett í Brekkuskógi, um 15 mínútna akstur frá Laugarvatni. Þau gerast ekki mikið flottari! Heitur pottur. Sími 841 0265. Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi. Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum. Einnig til sölu lóðir á Flúðum. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Til sölu Hellur til sölu Til sölu eru um 40 m² af 20 x 20 mm hellum frá BM-Vallá. Hellurnar eru á brettum. Sanngjarnt verð. Nánari upplýsingar í síma 695-5125. Handslípaðar kristalljósakrónur frá Tékklandi og Slóvakíu. Mikið úrval. Frábær gæði og gott verð. Slóvak kristall, Dalvegi 16b, Kópavogi. S. 544 4331. Viðskipti Skelltu þér á námskeið í netviðskiptum! Notaðu áhugasvið þitt og sérþekk- ingu til að búa þér til góðar tekjur á netinu. Við kennum þér nákvæmlega hvernig! Skoðaðu www.kennsla.com og kynntu þér málið. Þjónusta Hitaveitur/vatnsveitur Þýskir rennslismælar fyrir heitt og kalt vatn. Boltís sf., símar 567 1130 og 893 6270. Byggingar Stálgrindarhús frá Kína Flytjum inn stálgrindarhús. Allar stærðir og ýmsir möguleikar. Traustur aðili. Blikksmiðja Gylfa ehf., 897-9161. blikkgylfa@internet.is Byggingavörur www.vidur.is Harðviður til húsbygginga. Vatns- klæðning, panill, pallaefni, parket o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði. Sjá nánar á vidur.is. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Málarar Málningarvinna Þaulvanur málari ætlar að bæta við sig verkefnum í sumar. Inni og úti. Vönduð og öguð vinnubrögð. Sann- gjarnt verð. Uppl. í síma 897 2318.Ýmislegt Úrval af vönduðum herraskóm úr leðri á mjúkum sóla Verð: 8.355.- Verð: 12.785 Eigum enn talsvert af skóm á „ gamla verðinu“ eins og td. þessar mjúku mokkasínu í svörtu og brúnu Verð: 5.885.- ..... og þessa sportlegu götuskó Verð: 6.585.- Misty skór Laugavegi 178 sími 551 2070 opið: mán - fös 10 - 18 lau 10 - 14 Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf GreenHouse haust-vetrarvaran er komin. Verið velkomin að sækja frían bækling. Opið í dag, þriðjudag 13-19. GreenHouse, Rauðagerði 26. Coming to Iceland: Vemma! Be the first to know: www.vemma.is BARA flottar mittisbuxur í svörtu og hvítu í stærðum S,M,L,XL á kr. 1.990,- Rosalega þægilegar og fallegar í S,M,L,XL á kr. 1.990,- Misty, Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán-fös 10-18, lau 10 - 14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is Bílar Þeir verða ekki flottari!!! Porsche 911 SC 3.0 ‘82 Bíllinn er í frábæru ástandi innan sem utan eftir teppalagðar götur Kalíforníu. Til sölu ef viðunandi tilboð fæst Uppl í síma 840-6045 VW Passat árg. '03 ek. 71 þús. km Passat 1600, 11/03, ek. 71 þ. 5 g. Fallegur og rúmgóður. Listav. 1.190 þ. Tilboð óskast. 400 þ. lán getur fylgt, 27 þ. á mán. Skoða skipti á ódýrari. S. 892 7567. Til sölu Toyota Prius Hybrid árg, 12/7. Ekinn aðeins 1780km, 5 dyra. Toppbíll. Ásett verð, 3.2. Uppl. í síma: 868 2352. Einkamál Stefnumót.is "Þar sem Íslendingar kynnast". Ertu í makaleit? Leitar þú nýrra vina? Vant- ar þig dansfélaga? Ferðafélaga? Göngufélaga? Spjallfélaga? Nýttu þér vandaðan vef til að kynnast fólki á þínum forsendum. Stefnumót.is Vertu ævinlega velkomin/n. Þjónustuauglýsingar 5691100 Íbúð til leigju á svæði 104: 4ra herbergja kjallaraíbúð til leigu í þriggja hæða blokk beint á móti Holtagörðum. Leiga 165 þús. á mán. + rafmagn, hiti og hússj. S: 868 8509 og 897 8934, Sigurður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.