Morgunblaðið - 16.09.2008, Síða 36
Kannski er það fylgi-
fiskur kreppunnar að
litavalið er einfalt …41
»
reykjavíkreykjavík
„ÞAÐ var aðfaranótt laugardags
sem Ásdís fór að finna fyrir miklum
verkjum í kviðnum. Ég hafði sam-
band við liðslækninn sem hafði svo
samband við sérfræðinga hér á
sjúkrahúsinu og þeir hvöttu okkur
til að koma strax í skoðun. Þá kom í
ljós að hún var með töluverðar inn-
vortis blæðingar vegna æxlis sem
hafði myndast og rofið eggjastokk-
inn,“ segir Garðar Gunnlaugsson,
knattspyrnumaður og barnsfaðir
Ásdísar Ránar Gunnarsdóttur. Þeg-
ar Morgunblaðið náði tali af Garðari
sat hann ásamt tengdamóður sinni
við rúmstokk Ásdísar á sjúkrahús-
inu í Sofíu þar sem Garðar leikur
knattspyrnu.
Að sögn Garðars gekk uppskurð-
urinn vel og æxlið, sem var góð-
kynja, var fjarlægt en læknarnir
tjáðu þeim að Ásdís hefði verið að-
eins nokkrum klukkutímum frá
bráðri lífshættu. „Þeir skoðuðu Ás-
dísi aftur í morgun [gærmorgun] og
það lítur allt út fyrir að þeir hafi
komið í veg fyrir frekari blæðingar.
Hún þarf samt að liggja hérna í fjóra
til fimm daga í viðbót áður en hún
má fara heim og svo tekur við nokk-
urra mánaða hvíld.“
Bjartsýn engu að síður
Spurður út í aðbúnaðinn á
sjúkrahúsinu segir Garðar að vel sé
séð um Ásdísi og skurðlæknarnir
séu greinilega mjög færir á sínu
sviði þrátt fyrir spítalinn sjálfur sé
nokkru lakari en Landspítalinn.
Garðar sem nýverið sagði skilið
við Norrköping í Svíþjóð og gekk til
liðs við CSKA Sofia, átti að leika
sinn fyrsta leik á sunnudaginn gegn
nágrannaliðinu PFC Slavia Sofia.
„Það kom að sjálfsögðu ekki til
greina að ég spilaði og það skildu
náttúrlega allir í liðinu. Fjölskyldan
hefur alltaf forgang.“ Engu að síður
eru þau bæði bjartsýn á góðan bata,
sem og dvölina í Búlgaríu. „Lækn-
arnir eru bjartsýnir á fullan bata og
Búlgarar eru mjög hjálpsamir þann-
ig að það ætti allt að ganga vel. Það
fer líka mjög vel um okkur hérna úti.
Við erum komin með íbúð og bíl og
ég er byrjaður að rata á æfingar og
aftur heim.“ hoskuldur@mbl.is
Greindist með æxli í kviði
Morgunblaðið/Eggert
Á góðri stundu Ásdís Rán og Garðar Gunnlaugs ásamt vinum sínum Önnu
Lind Björnsdóttur (t.v) og Pattra Sriyanonge (t.h.).
Ásdís Rán hætt komin í Búlgaríu vegna innvortis blæðinga
Sveitabrúð-
kaup, kvikmynd
Valdísar Ósk-
arsdóttur, tekur
þátt í kvik-
myndahátíðinni í
London (London
Film Festival) sem hefst hinn 15.
október næstkomandi. Myndin mun
keppa um svokölluð Sutherland-
verðlaun sem ku vera veitt fyrir
fyrstu eða aðra mynd leikstjóra.
Hin fransk/íranska teiknimynd
Persepolis hlaut verðlaunin í fyrra.
Eins og fram hefur komið var
Sveitabrúðkaup sýnd á kvik-
myndahátíðinni í Toronto fyrir
stuttu og vakti mikla athygli en
samkvæmt vefsíðunni logs.is hefur
sýningarréttur að myndinni verið
seldur til Frakklands, Ástralíu,
Kanada, Ísraels, Sviss og Mexíkó. Í
Ástralíu verður myndin frumsýnd í
um 40 kvikmyndasölum.
Sveitabrúðkaup á
fleygiferð um heiminn
Bræðrabylta Gríms Há-
konarson vann fyrir skömmu að-
alverðlaunin á Aye Aye Film
Festival í Nancy í Frakklandi.
Þetta munu vera sextándu verð-
laun stuttmyndarinnar.
16 verðlaun í húsi
Nú styttist í
að smáskífan
„Dull Flame of
Desire“, þar sem
Björk syngur
dúett með Ant-
ony Hegarty,
komi út en áætlaður útgáfudagur
er 22. september. Myndbandið við
lagið er þegar komið á netið og
var unnið með þeim hætti að
Björk valdi þrjá leikstjóra úr
hópi hundraða sem sendu inn til-
lögur. Björk og Antony sungu svo
lagið fyrir framan grænskjá og
svo var það leikstjóranna þriggja
að setja saman eitt myndband
hver. Þeim myndböndum var svo
að lokum steypt í eitt loka-
myndband. Einfaldlega flókið,
eða hvað?
Þrefalt myndband
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
N
ý íslensk sjónvarpsþáttaröð, Svartir
englar, hefur göngu sína í Ríkis-
sjónvarpinu á sunnudaginn kemur
og er hún byggð á bókum eftir
Ævar Örn Jósepsson. Eins og oft
tíðkast í spennusögum sem þessum er fylgst með
lögreglumönnum í lífi og starfi en þættirnir ger-
ast í Reykjavík.
Sigurjón Kjartansson samdi handrit upp úr
tveimur bókum Ævars Arnar, með Margréti
Örnólfsdóttur, og hann er einnig einn framleið-
anda þáttanna, ásamt leikstjóranum Óskari Jón-
assyni og Sagafilm. Þættirnir eru sex, fyrri þrír
byggjast á bókinni Skítadjobb en hinir þrír á
Svörtum englum.
„Ákveðin framhaldsmál lögreglumannanna
fjögurra, Stefáns, Katrínar, Guðna og Árna,
ferðast milli þessarra tveggja skáldsagna,“ segir
hann.„Þau glíma ekki bara við sakamál – þetta
eru bæði opinber mál og einkamál.“
Sögur Ævars Arnar eru talsvert dimmar og
Sigurjón segist telja að ágætlega hafi gengið að
halda þeim anda við þáttagerðina.
„Áður er lagt var upp í tökur var farið í djúpa
umræðu um útlit seríunnar. Við vinnum þættina
svipað og þáttaröðina Pressu, sem var líka verk
okkar Óskars. Ég hafði yfirumsjón með handrit-
inu og við Óskar unnum mjög náið saman.
Við ræðum útlínur og plott og sitjum yfir
handritinu. Eftir tökur liggjum við síðan yfir
klippunum. Það má líkja þessu við nefndarvinnu
en það er mikilvægt að það sé samræða um verk-
ið, allt ferlið. Og þannig hef ég alltaf unnið, alveg
frá því ég var í Fóstbræðrum.“
Sjónvarp hentar betur en bíó
Þegar Sigurjón er spurður út í spennusagna-
æðið á Íslandi síðustu misserin segir hann Arnald
Indriðason vera kveikjuna að því, honum hafi
tekist að gera þetta á sannfærandi hátt.
„Það liggur beint við að gera bíómyndir og
sjónvarpsþætti úr þessu efni, og sjálfum finnst
mér spennusagnaelementið eiga betur heima í
sjónvarpi en bíó,“ segir Sigurjón. „Með því að
gera seríu upp úr sögu, er hægt að fara betur inn
í persónulegu málin og kynnast karakterum á allt
annan hátt en í 90 mínútna bíómynd. Galdurinn
liggur svolítið í því að hætta ekki fyrr en karakt-
erarnir eru orðnir þrívíðir.
Í þáttum af þessu tagi hangir sagan svo mikið
á karakterum. Það er ekki farandi af stað með
söguþráðinn fyrr en þú ert kominn með heim að
kanna og sannfærandi karaktera í heiminum.“
Þegar bent er á að stundum hafi verið sagt að
íslenskur veruleiki henti ekki fyrir saka-
málasögur, hnussar í Sigurjóni.
„Það er bara rugl,“ segir hann. „Hinn sænski
veruleiki í Ystad, sem er 15.000 manna bær,
hentar aldeilis vel fyrir Kurt Wallander. Alls
staðar er hægt að koma glæpum fyrir. Við erum
að uppgötva að það er hægt að búa til drama á
Íslandi.
Við erum alveg eins og fólk í Bandaríkjunum,
Bretlandi eða Danmörku, þetta er bara spurning
um að vinna þættina á sannfærandi hátt – sem ég
vona að okkur hafi tekist að gera í Svörtum engl-
um.“
Glæpadrama á Íslandi
Sigurjón Kjartansson, annar handritshöfundur sjónvarpsþáttaraðarinnar
Svartra engla, segir að alls staðar sé hægt að koma glæpum fyrir
Ljósmynd/Sigurjón Ragnar
Á glæpavettvangi Óskar Jónasson, leikstjóri Svartra engla, segir lögreglumönnum til á tökustað.
SJÓNVARPSÞÆTTIRNIR Svartir englar eru
byggðir á bókunum Skítadjobb og Svartir
englar eftir Ævar Örn Jósepsson.
Sagan gerist í Reykjavík og eru aðalpersón-
urnar fjórir lögreglumenn sem eru sammála
um að á Ísland sé allt að fara til fjandans.
Heyja þeir örvæntingarfulla baráttu við
glæpamenn, við erfiðar aðstæður, og blandast
einkamál í söguna.
Leikstjóri er Óskar Jónasson og meðal leik-
enda eru Sigurður Skúlason, Sólveig Arnars-
dóttir, Steinn Ármann Magnússon, Davíð Guð-
brandsson, Helgi Björnsson og Magnús
Jónsson.
Handritshöfundar eru Sigurjón Kjartansson
og Margrét Örnólfsdóttir. Sagafilm framleiðir.
Glímt við glæpi