Morgunblaðið - 16.09.2008, Qupperneq 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
/ KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA
SÝND Í KRINGLUNNI
Saga George Lucas heldur áfram
SÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
-TOMMI - KVIKMYNDIR.ISSÝND Í KRINGLUNNI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
- L.I.B. topp5.is/Fréttablaðið
SÝND Í ÁLFABAKKA
Stórbrotin ævintýramynd sem
allir ættu að hafa gaman af!SÝND Í ÁLFABAKKA
JOURNEY TO THE CENTER OF THE... kl. 5:50 3D - 8 3D - 10:10 3D LEYFÐ 3D - DIGITAL
DEATH RACE kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára
DARK KNIGHT kl. 8:30 B.i. 16 ára
DARK KNIGHT kl. 5:40 - 8:30 B.i. 16 ára LÚXUS VIP
SVEITABRÚÐKAUP kl. 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ
TROPIC THUNDER kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára
THE MUMMY 3 kl. 6 B.i. 12 ára
STAR WARS: C. W. kl. 5:50 LEYFÐ
WALL • E m/ísl. tali kl. 5:50 LEYFÐ
JOURNEY TO THE CENTER OF THE EARTH kl. 63D - 8:103D - 10:203D LEYFÐ 3D - DIGITAL
SMART PEOPLE kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára
DEATH RACE kl. 10:10 B.i. 16 ára
GET SMART kl. 5:50 - 8 LEYFÐ
- H.G.G., POPPLAND
-GUARDIAN
“HUGGULEGT GAMANDRAMA
Í ANDA JUNO OG SIDEWAYS”
-TOMMI, KVIKMYNDIR.IS
EIN FLOTTASTA ÆVINTÝRAMYND ÁRSINS
MEÐ ÍSLENSKU LEIKKONUNNI ANÍTU BRIEM Í EINU AF AÐALHLUTVERKUNUM.
DENNIS QUAID, SARAH JESSICA PARKER,
ELLEN PAGE, OG THOMAS HADEN CHURCH
Frábær gamanmynd frá
framleiðendum Sideways.
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
VIÐ munum vekja snærisþjófinn til
lífsins,“ segir Bjarni Jónsson leik-
skáld, en hann er með leikverk um
Jón Hreggviðsson í smíðum. Fyr-
irhugað er að setja það upp með
atvinnufólki á Akranesi eftir tvö ár.
Jón Hreggviðsson frá Rein við
Akranes, dæmdur „snærisþjófur“,
er sögupersóna Íslandsklukkunnar,
hinnar dáðu skáldsögu Halldórs
Laxness.
„Akranesstofa hefur haft áhuga á
að gera eitthvað um einn frægasta
Skagamanninn, Jón Hreggviðsson.
Þess var farið á leit við mig hvort
ég hefði áhuga á að vinna eitthvað
upp úr þessu efni. Það er ekki mik-
ið til um Jón en samt er búið að
skrifa um hann heila bók, nokkuð
þekkta,“ segir Bjarni og hlær.
Hann bætir við að sér þykir verk-
efnið mjög spennandi og hlakkar til
að þróa það áfram.
„Það er horft til ársins 2010 og
sýningin verður sett upp á Akra-
nesi, væntanlega skipuð stafna á
milli með atvinnufólki.“
Bjarni er þessa dagana að taka
lokahnykkinn á leikverkinu Falið
fylgi. Byrjað verður að æfa það hjá
Leikfélagi Akureyrar í nóvember
og er frumsýning fyrirhuguð í jan-
úar.
Hann er einnig að vinna hljóð-
verk með hljómsveitinni múm upp
úr skáldsögunni Augu þín sáu mig
eftir Sjón. Segir hann það jafnvel
hugsað fyrir jóladagskrá rík-
isútvarpsins.
„Það er mjög spennandi verk-
efni,“ segir Bjarni. „Við múm-liðar
höfum áður unnið saman, að verki
upp úr Svefnhjóli Gyrðis Elíasson-
ar. Þau vildu nú taka fyrir verk
eftir Sjón. Múm er núna að taka
upp plötu en þegar því lýkur fara
þau að semja tónlist fyrir þetta.“
Vekur snærisþjófinn til lífsins
Bjarni Jónsson undirbýr leikverk um Jón Hreggviðsson fyrir Akranesbæ
Vinnur ásamt hljómsveitinni múm að útvarpsverki upp úr skáldsögu Sjóns
Í HNOTSKURN
» Bjarni Jónsson leikskáldvar tilnefndur í ár til Nor-
rænu leiklistarverðlaunanna
fyrir leikritið Óhapp!
» Bjarni hefur verið mik-ilvirkur í íslensku leik-
listalífi síðustu árin, hefur
samið og þýtt fjölda leikrita.
Einnig hefur hann þýtt skáld-
sögur.
» Bjarni vinnur nú að út-varpsleikgerð skáldsög-
unnar Augu þín sáu mig, eftir
Sjón. Hann hefur unnið fleiri
leikgerðir fyrir útvarp, til að
mynda Hinn íslenska aðal,
upp úr skáldævisögu Þór-
bergs Þórðarsonar, og Dáið
er alt án drauma, upp úr
Barni náttúrunnar eftir Hall-
dór Laxness.
Morgunblaðið/RAX
Leikskáldið „Það er ekki mikið til um Jón en samt er búið að skrifa um
hann heila bók, nokkuð þekkta,“ segir Bjarni Jónsson.
Timothy Norris
Lúsiðinn Leikskáldið Bjarni Jónsson er upptekinn maður ef marka má öll
verkefnin sem hann vinnur að um þessar mundir.
EFTIR hafsjó meira og minna heila-
skaddaðra hasarmynda kemur mein-
fyndin, vel leikin og óvenju skyn-
samlega skrifuð gamanmynd um
brotalamir í menntamannafjölskyldu
í Pittsburgh. Heimilisfaðirinn og
ekkillinn Lawrence Wetherhold
(Quaid), er prófessor í bókmennta-
fræði við Carnegie Mellon háskólann
í borginni. Hann er sérvitur, sjálf-
hverfur, og fullur af hroka telur hann
sig hafa andlega yfirburði yfir fjöl-
skyldumeðlimi, nemendur og sam-
kennara. Vanessa dóttir hans (Page),
eldklár, háðsk og ömurlega neikvæð,
hefur tekið sjálfbirgingshátt föður
síns sér til fyrirmyndar og hafa allir
þessir eiginleikar einangrað þessa
annars heillandi stúlku frá öðrum
mannverum. Sonurinn James (Holm-
es) er upprennandi skáld sem er flú-
inn á heimavistina.
Einn er ótalinn, sem er Chuck
(Church), svarti sauðurinn í Wether-
hold-fjölskyldunni, kærulaus, latur
og illa menntaður, enda tökubarn.
Honum er hleypt inn á heimilið þeg-
ar Lawrence slasasast í mynd-
arbyrjun og þarf á bílstjóra að halda.
Óhappið á eftir að draga dilk á eftir
sér því Janet Hartigan (Parker),
læknirinn sem annast hann, er gam-
all nemandi Lawrence og var reynd-
ar hrifin af kennaranum á náms-
árunum.
Vandræði Wetherhold-fjölskyld-
unnar virðast illviðráðanleg þar sem
heimilisfaðirinn er óþægastur ljár í
þúfu og Vanessa er á góðri leið með
að verða gjörsamlega óþolandi fyr-
irbrigði. Þau hafa fengið rausnarlega
tölu á gáfnavísitöluskalanum í vöggu-
gjöf en láta skynsemina lönd og leið.
Samband Lawrence og Janet gengur
ærið brösuglega, eins og flest önnur í
Smart People. En jafnvel forstokk-
aðir hrokagikkir sem alltaf vita bet-
ur, geta náð áttum og Lawrence
skilst að lokum að hann er ekki einn í
heiminum (í orðsins fyllstu merk-
ingu). Qaid leikur þetta leiðindatól af
ósvikinni innlifun. Prófessorinn er og
verður frekar óaðlaðandi, en á sér
von, ekki síst með hjálp Janet, sem
Parker leikur af einurð og þokka.
Page vinnur leiksigur í hverri mynd
auk þess sem hún hefur einstaklega
hrífandi persónuleika sem hefur dá-
leiðandi áhrif á áhorfandann, hún er
Audrey Hepburn okkar tíma. Hvílík
unun að fylgjast með henni og þeim
óborganlega senuþjóf, Church.
Hollywood verður að taka sér tak og
sjá til þess að hann hafi nóg fyrir
stafni í framtíðinni. Hann getur leik-
ið hvort sem er gamanhlutverk eða
dramatísk og hann gefur Smart
People nauðsynlega aukavigt og
mennsku í hlutverki fjölskyldusauðs-
ins sem er eina eðlilega persónan í
myndinni. Handritið er skrifað af
skopskyni, skynsemi og þekkingu á
lífi menntamanna, af Mark Jude
Poirier. Hann kann greinilega jafn
vel við sig í vitrænum átökum kenn-
arastofunnar og að lýsa „óvæntri“
eðlisgreind þeirra sem álitnir eru
skör lægri þegar kemur að auðlegð
andans. Myndinni stjórnar Norman
nokkur Murro og verður forvitnilegt
að fylgjast með hvort hann nýtur
byrjendaheppni að þessu sinni eða er
kominn til að skipa sér í hóp for-
vitnilegri og frumlegri kvikmynda-
gerðarmanna.
Vandamál Wether-
hold-fjölskyldunnar
Quaid, Page og Parker „Page vinnur leiksigur í hverri mynd auk þess sem
hún hefur einstaklega hrífandi persónuleika sem hefur dáleiðandi áhrif á
áhorfandann, hún er Audrey Hepburn okkar tíma.“
Sæbjörn Valdimarsson
KVIKMYND
Sambíóin Kringlunni /
Gagnrýnandinn
Leikstjóri: Noam Murro. Aðalleikarar:
Dennis Quaid, Sarah Jessica Parker,
Thomas Haden Church, Ellen Page, Asht-
on Holmes. 95 mín. Bandaríkin 2008.
Smart People
bbbmn