Morgunblaðið - 16.09.2008, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 16.09.2008, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2008 43 Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Heimsferðir bjóða frábært sértilboð á síðustu sætunum til Búda- pest 23. október. Búdapest er ein fegursta borg Evrópu og haust- ið er einstakur tími til að heimsækja borgina. Fararstjórar Heims- ferða gjörþekkja borgina og kynna þér sögu hennar og heillandi menningu. Fjölbreytt gisting í boði. Búdapest býður einstakt mannlíf, menningu og skemmtun að ógleymdri getrisni Ungverja auk frábærra veitinga- og skemmtistaða. Tryggðu þér sæti! Þetta eru síðustu lausu sætin til Búdapest í haust! Verð kr. 34.990 Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með sköttum. Verð kr. 59.990 - helgarferð Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi í 3 nætur á Hotel Mercure Duna *** með morgun- mat. Sértilboð 23. okt. Helgarferð á einstökum tíma! Búdapest 23. október frá kr. 34.990 - kemur þér við Sérblað um hús fylgir blaðinu í dag                            !!     " #   $          %                     "     &  #  ''                 ()        '" *+    ,       - ) ()   ,   -           '  .       '  %  "/     $  0" " 1 % '        ) 2  3  ,       (             " 0   '   1     '  4!         )   '% '     54 '663  !"#$%## "&'(%#")*%+ ,  -.// "& ' %#"01/2&#$%03% Jafnréttiskærur eru tilgangslausar Enga blaðakassa segir bæjarstjórn Árborgar Ríkislögreglustjóri boðar miðstýringu Búa til listaverk úr gömlum prófum í MA Ragnhildur Steinunn býður Gott kvöld á RÚV í vetur Hvað ætlar þú að lesa í dag? KARKARI er önnur plata hljóm- sveitarinnar Mammút. Sú fyrri, sem kom út árið 2006, var sam- nefnd sveitinni og firnasterkt byrj- unarverk, og líkt og Karkari öll sungin á íslensku. Ýmislegt hefur gengið á hjá þessari ungu hljómsveit sem meðal annars hefur fengið nýj- an bassaleikara til liðs við sig og barist fyrir sjálfstæði sínu til að gera hlutina á sinn hátt og sem betur fer haft sigur úr býtum og náð að þróast og þroskast á sínum eigin forsendum. Sveitin hefur tekið miklum framförum og má það glögglega greina á Karkari. Mammút sýnir gríðarlegt öryggi í spilamennsku sinni og lagasmíð- um, meðlimir nálgast efnið af dirfsku og hugmyndaauðgi en tón- listin er líkt og áður ekta nýbylgja með séríslensku kryddi. Það er gaman frá því að segja að Karkari er jákvæð, kraftmikil og skemmtileg plata. Hér er ekki verið að teygja lopann, ekkert uppfyllingarefni, ekkert kjaftæði. Þetta eru ellefu lög, ekki of löng og ekki of stutt, og útkoman er rúmlega þrjátíu mínútur af eð- alrokki. „Endir“ er upphaf skíf- unnar og sjaldan eða aldrei hefur endir verið jafngóð byrjun. Bassa- leikur Vilborgar Ásu grípur mann strax og melódían hrífur um leið. The Cure, Strokes og David Bowie (á Let’s Dance) koma upp í hug- ann þó að Bowie-samlíkingin eigi sér ekki frekari samsvörun en í bassalínunni í byrjun. Helsti styrkleiki Mammút liggur einmitt í góðum og grípandi lagasmíðum en lykillinn að sérstöðu sveit- arinnar er þó söngkonan Katrína Mogensen sem er einnig aðal- textasmiður Mammút. Það þarf engan snilling til að heyra ákveð- inn samhljóm við Björk á sínum yngri árum í söngstíl Katrínu. Það er hins vegar ekkert athugarvert við það og í raun unaðslegt þegar svo ber undir því Katrína er óhrædd við að vera hún sjálf og þó að skrækir og gól tengi hana við drottningu íslenskrar popp- tónlistar þá er það bara töff – hún kemst einfaldlega upp með það. En það er meira en raddbeiting sem fær mig til að leggja fram þennan samanburð því textarnir minna einnig á hina sætu Mola sem Björk fór fyrir. Absúrd og skemmtilega súrrealískir textar, fullir af merkingu og myndmáli eru aðalsmerki Katrínu. Ástin og umhyggjan fyrir vinum og elsk- hugum, hvort heldur sem er þegar allt er í blóma eða í tómum hræri- graut, birtist á táknrænan hátt í textum Katrínu og ég leyfi mér að efast um að margir standist henni snúning þegar kemur að því að lýsa tilfinningum af jafnmikilli ákefð og á jafn skrítinn hátt í ís- lenskri rokktónlist dagsins í dag. Platan er heilsteypt en lögin sem mér finnst standa upp úr eru hið Lush-skotna „Drekasöngvar“ (Drekasöngur samkvæmt góðri textabók), titillag skífunnar, hið erótíska „Í leyni“ og lagið sem á sér engan jafnoka og er tvímæla- laust eitt það besta sem heyrst hefur í ár, hið stórkostlega lag „Svefnsýkt“. Hljómur plötunnar er stórfínn, töff, og því má hrósa Ax- el Árnasyni sérstaklega fyrir list- rænan metnað við alla hljóð- hönnun Karkari. Í fáum orðum sagt þá er Kark- ari frábær rokkplata, ekki langt frá því að vera fullkomin, og hún inniheldur besta rokklag ársins – ekki amalegt það. Risastór Mammút TÓNLIST Geisladiskur Mammút – Karkaribbbbn Jóhann Ágúst Jóhannsson ÞEGAR útsendarar tímaritsins People spurðu leikkonuna Felicity Huffman að því hvort samstarfs- kona hennar í þáttunum Desparate Housewives ætti von á barni var svarið skýrt og skorinort: „Hún er bara feit, það er svo einfalt!“ Þrá- látur orðrómur hefur verið um að Longoria sé ólétt undanfarnar vik- ur eftir að hún náðist á mynd á ströndinni þar sem greinilegt var að hún var aðeins meiri um sig en venjulega. Longoria segir að hún hafi bætt á sig nokkrum kílóum til þess að leika hina aðþrengdu Gabby í þátt- unum. Til viðbótar við hina nátt- úrlegu bólstrun mun hún klæðast búningi sem gerir hana enn þykk- ari eftir því sem persóna hennar fitnar. Í víðum kjól Longoria á tískusýn- ingu í New York í síðustu viku. Ekki ólétt, bara feit

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.