Morgunblaðið - 06.10.2008, Page 24
24 MÁNUDAGUR 6. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Sævar var skóla-
bróðir pabba og hélst
þeirra vinskapur öll
þau ár sem við bjugg-
um erlendis og til dagsins í dag.
Sigrún og Sævar voru vinir, en
hann var líka fjölskyldulæknir okk-
ar. Alltaf var leitað til Sævars ef
eitthvað var að, engum var treyst
betur en honum hvað lækningu
varðaði.
Eftir að Sævar hætti að vinna
var iðulega hægt að finna hann í
hesthúsinu um kl. 14 hjá hestunum
sínum. Ef maður vildi fá reiðfélaga,
þá var bara að mæta þangað á
þessum tíma og skella sér á bak.
Ef börnin okkar, tæplega 8 ára,
voru veik, þá var læknistími líka
uppi í hesthúsi um kl. 14. Bara
hringja fyrst um morguninn. Ekki
þýddi að vera með samviskubit yfir
að hringja í hann, börnin voru
„börn“ Sævars og hann hugsaði um
sín börn. Börnin kölluðu hann allt-
af afa Sæva, eini læknirinn sem
mátti skoða að vild, enda náði hann
einstaklega vel til þeirra.
Betri vin getur engin fjölskylda
átt og hans verður sárt saknað. Við
hjónin vottum Sigrúnu, Dóru Soffíu
og Lindu Sif okkar dýpstu samúð.
Halldóra og Víkingur.
Sælir eru hjartahreinir
því þeir munu Guð sjá. (Matt. 5.8)
Elsku Sævar minn. Það er sárt
að horfa á eftir þér. En nú ertu
kominn til Fjarskanistan. Fyrsti
læknirinn sem tók á móti þér var
að sjálfsögðu Tóti okkar. Ég varð
þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast
þér í barnæsku. Þá var ég mikið
veik á Landakoti. Þú komst þá
ungur og ferskur til vinnu á barna-
deildina og með einu augnatilliti
bjargaðir þú lífi mínu. Þann dag
mynduðust sterk tengsl milli mín
og þín, þú varst spítala-pabbi minn,
án þín hefði ég ekki orðið eldri en
fjögurra ára. Á Landakoti í gamla
daga var gott að vera, mér leið allt-
af vel þrátt fyrir mikil veikindi, ég
hlýddi þér líka í einu og öllu og hjá
þér var ég alltaf örugg. Þú varst í
sérstöku uppáhaldi hjá mér enda
hélt ég að þú værir pabbi minn. Þú
sagðir mér hvað þú værir heppinn
að eiga eina Lindu heima og aðra á
spítalanum. Þegar mér var illt og
grét þegar þú varst að fara heim
tóku nunnurnar við, þær hugguðu
okkur með bænum sínum. En svo
kom nýr dagur og þú komst eins
og sólin til okkar langveiku
barnanna.
Þú kenndir mér snemma að tak-
ast á við dauðann, og að hjólastóll-
inn klæddi mig svo illa, hann væri
bara hjálpartæki í stuttan tíma. Ég
var ákveðin í að verða læknir eins
og þú. Skemmtilegur, öruggur og
ákveðinn. Ég kom til að sýna þér
afastrákinn sem er nú að læra að
verða læknir eins og þú. Ég elskaði
það þegar þú tókst utan um mig
þegar þú varst búinn að skoða
hann, kysstir mig og sagðir: „Þú
ert náttúrlega ein elskan, þú ert
líka svo ófríð.“ Þú varst alltaf svo
stríðinn. Ég kom aftur til að monta
mig en nú af stelpunni. Stelpan var
lögð inn strax með sprungna hljóð-
himnu báðum megin. Þú sagðir:
„Linda mín, þú ert heppin ef hún
verður farin að tala um fermingu.“
Aftur bjargaðir þú og nú heyrninni
hennar. Það var þér að þakka að
hún er ekki heyrnarlaus í dag. Tóti
sonur þinn reyndist mér góður vin-
ur. Það var mikil sorg þegar hann
dó. Þegar ég kom svo með blóm til
þín og fjölskyldu þinnar vegna and-
láts hans sagðir þú mér að ganga
inn bakdyramegin því þar gengi
Sævar Halldórsson
✝ Þorlákur SævarHalldórsson
barnalæknir fædd-
ist í Reykjavík 25.
júní 1934. Hann lést
föstudaginn 19.
september síðastlið-
inn og var jarðsung-
inn frá Langholts-
kirkju 2. október.
fjölskyldan inn.
Næsta skipti sem ég
hitti þig, elsku Sævar
minn, var á Lansan-
um, við vorum bæði
að koma frá læknum.
Ég fékk að faðma þig
og kyssa í hinsta
sinn. Ég kom aftur
heim til þín með
blóm, til að hvetja þig
til að lifa. Ég hringdi
til að vita hvort vel
stæði á, Sigrún þín
svaraði. Hún sagði að
þið yrðuð heima.
Loksins hitti ég hana Sigrúnu þína.
Hún sagði að þetta væri dauða-
stríðið þitt, ég bað fyrir kveðju til
þín. Hver er sinni meyju háður,
mikil var ástin í augum hennar, ég
var fegin.
Ég vil senda Sigrúnu, Dóru
Soffíu, Lindu Sif og barnabörnum
mínar innilegustu samúðarkveðjur.
Ég vil enda þetta á ljóði eftir föð-
urafa minn:
Æðsta boðorð allra er trúa,
er eilíft líf og þakkargjörð.
Sér sjálfum gleyma að öðrum hlúa,
er leiðin sanna hér á jörð.
Þakklát sál vill veita og gefa,
velur veg um trúarstig.
Þeim hjálpar guð þarf ekki að efa,
ef man hann aðra en sjálfa sig.
(Gunnar Skagfjörð Sæmundsson)
Linda Williams.
Meira: mbl.is/minningar
Elsku Sævar.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibj. Sig.)
Þú varst mikil blessun í lífi okk-
ar, elsku Sævar. Þakka þér fyrir
einstaka vináttu, allar yndislegu
heimsóknirnar og skemmtilegu
símtölin. Við munum aldrei gleyma
þér og eigum eftir að segja strák-
unum okkar frá þér þegar þeir
verða eldri. Við kveðjum þig með
söknuði og biðjum algóðan Guð um
að blessa minningu þína.
Ástvinum Sævars vottum við
okkar dýpstu samúð. Megi birta
minninganna milda söknuð ykkar
og sorg.
Þínir vinir,
Guðrún Þóra, Kjartan Haukur,
Jón Eggert og Tómas Haukur.
Einstakur maður er fallinn frá.
Fyrir nær 30 árum kynntist ég
Sævari Halldórssyni er hann varð
læknirinn hans Dedda, fjölfatlaðs
sonar míns. Deddi varð á fyrstu ár-
um ævinnar mjög oft að leggjast
inn á spítala og alltaf var Sævar
reiðubúinn að aðstoða okkur, hvort
sem var að nóttu eða degi og veitti
mér ómetanlegan styrk.
Nokkrum árum síðar urðum við
nágrannar er við byggðum húsin
okkar næstum hlið við hlið á Vest-
urbrún. Vináttan óx og Sævar varð
fjölskylduvinur, þau voru ófá skipt-
in sem hann leit við hér hjá okkur.
Ég eignaðist fleiri börn og að sjálf-
sögðu var Sævar læknir þeirra sem
og barna systra minna enda af-
burða barnalæknir.
Með þessum fátæklegu orðum vil
ég þakka Sævari fyrir alla þá
ómetanlegu hjálp sem hann veitti
mér og fjölskyldu minni, fyrir alla
vináttuna, fyrir hans góðu nærveru
og kímnigáfu. Við eigum alltaf eftir
að minnast hans með mikilli hlýju í
hjarta.
Elsku Sigrún og dætur, við fjöl-
skyldan vottum ykkur okkar inni-
legustu samúð og vitum að góður
guð mun blessa ykkur. Ég veit að
minningin um góðan og einstakan
mann mun lifa og veita ykkur
styrk.
Kristín Helga Waage.
Okkur langar í örfáum orðum að
minnast Sævars læknis, eins og
hann var ávallt kallaður okkar á
milli. Við kynntumst honum fyrir
10 árum þegar Grétar sonur okkar
varð fyrir bíl og slasaðist alvarlega.
Sævar var læknir á barnadeild í
Fossvogi og hafði með hans mál að
gera. Þá kynntumst við því hve
einstakur maður Sævar var og
reyndist hann okkur sem læknir
sérstaklega vel. Hann tók ávallt á
öllum málum af festu og fag-
mennsku. Umhyggja hans fyrir
okkur var einstök og náði hún
langt út fyrir hans vinnutíma og
skyldur, hann var okkur innan
handar jafnt á nóttu sem degi.
Hann mætti t.d. jafnan á fundi í
skólanum til að ráðleggja hvernig
best væri að taka á málum Grétars
á þeim tíma.
Þrátt fyrir að Sævar væri hætt-
ur störfum sökum aldurs vorum við
alltaf í sambandi og fylgdist hann
vel með hvernig gengi og hélt
áfram að gefa okkur góð ráð. Síð-
ast töluðum við saman fyrir nokkr-
um vikum. Sævar reyndist okkur
frábærlega vel, bæði sem fagmaður
og einnig var hann mikill stuðn-
ingur við okkur sem fjölskyldu. Öll
faðmlögin og hlý orð á erfiðum
stundum voru okkur ómetanleg.
Um leið og við þökkum Sævari
samfylgdina viljum við votta eig-
inkonu hans, dætrum og fjölskyld-
um þeirra okkar dýpstu samúð.
Sigríður Sigurðardóttir,
Grétar Óskarsson,
Grétar Freyr Grétarsson.
Fallinn er frá Sævar Halldórs-
son, einn af höfðingjunum í lækna-
stétt. Okkar kynni hófust fljótlega
eftir fæðingu sonar míns árið 1984.
Þegar ljóst var að hann þyrfti bæði
mikla og langvarandi læknisþjón-
ustu var Sævar kallaður til. Með
því hófst vinátta sem hélst alla tíð.
Vakinn og sofinn var hann tiltækur
okkur feðgum. Alltaf tilbúinn og
taldi aldrei eftir sér aukaviðvik.
Næmur á blæbrigði og svo mikill
mannvinur að hann tók nærri sér
þegar illa áraði og gladdist með
þegar vel gekk.
Sævar fór sjálfur ekki varhluta
af lífsins ólgusjó og því voru djúpar
hugsanir honum eiginlegar. Við
áttum oft spjall saman um stóru
spurningarnar í lífinu. Um hlutverk
sársaukans og innihald hamingj-
unnar, tilgang og eðli lífsins. Á
þessu öllu hafði Sævar skoðanir og
deildi þeim gjarnan. Ekki voru til
svör við öllum spurningunum, en
einhvern veginn kom það ekki að
sök því að stundum er leitin að
svörunum svo miklu mikilvægari
en svörin sjálf. Með slíkri leit
þróast sérstök vinátta sem leiddi af
sér samverustundir sem náðu út
fyrir öll læknisverk.
Hann var virtur og dáður af
bæði fullorðnum og börnum. Alltaf
tími fyrir aukaspjall og alltaf tími
til að láta sér koma við. Ekki að-
eins læknisfræðilega heldur heild-
rænt manneskjulega. Hann hafði
stundum á orði að margt af þeim
læknisverkum sem að syni mínu
sneru væru ekki bein læknisfræði
heldur meira í áttina að list. Á
þann hátt var hann líka listamaður.
Hann náði að sameina læknisfræð-
ina heimspeki, lífsýn og mennsku á
þann hátt að á erfiðustu augnablik-
um var alltaf gott að hafa hann sér
við hlið.
Eftir að Sævar hætti formlega
starfi á barnadeildinni passaði
hann upp á „sitt fólk“ og lét í hend-
ur þeirra kollega sem hann treysti
best í hverju tilfelli. Eftir það hitt-
umst við sjaldnar en áður. En sam-
bandið hélt samt og faðmlagið var
þétt þegar við hittumst. Við mætt-
um í jarðarfarir sonanna sem við
misstum. Það voru þung skref. Þó
að orðin væru ekki mörg var margt
sem við skildum vel hvor hjá öðr-
um. Það var greypt í lífssöguna og
vitund beggja.
Ég kveð með virðingu og sökn-
uði en mest með væntumþykju
góðan vin sem markaði spor í líf
mitt.
Aðstandendum öllum votta ég
mína dýpstu samúð.
Andrés Ragnarsson.
Þegar hún tengda-
móðir mín hefur kvatt
þetta jarðneska líf fyllist hugur minn
tómleika en þó þakklæti fyrir að hafa
átt samleið með henni öll þessi ár.
Þegar við hittumst fyrst tók hún afar
vel á móti mér en ég var þó strax var-
kár gagnvart þessari glæsilegu og
góðu konu. Varkárni mín var fyrst
og fremst af völdum bókanna eftir
Guðrúnu frá Lundi sem ég hafði les-
ið um stjórnsemi tengdamæðra á
heimilum sona sinna og tengda-
dætra. Hún Sigga tengdó átti nefni-
lega aðeins einn son sem er eigin-
maður minn. Hún vildi leiðbeina
þessari einu tengdadóttur sinni en
ég spyrnti við fótum og fyrstu árin
gerði ég allt öðruvísi en hún lagði til.
Árin liðu og smátt og smátt fór ég að
laðast meira að þessari duglegu
konu og það er margt sem henni
tókst að kenna mér. Hún fann fljót-
lega áhuga minn á prjónaskap og þar
áttum við sameiginlegt áhugamál.
Ég reyndi oft að baka flatbrauð og
rúgbrauð eins og hún með misjöfn-
um árangri því að uppskrift sá ég
hana aldrei nota. Að lokum tókst
mér að búa til sæmilega eftirlíkingu
af þessum ómissandi brauðum á jól-
um og öðrum hátíðum.
Þó að henni félli aldrei verki úr
hendi man ég aldrei eftir að hafa séð
hana vaska upp enda kenndi hún
börnum sínum það um leið og þau
gátu og þó að dæturnar væru átta að
Sigríður Helga
Stefánsdóttir
✝ Sigríður HelgaStefánsdóttir
fæddist á Sjöunda-
stöðum í Flókadal í
Skagafirði 25. ágúst
1917. Hún lést á
líknardeild Landa-
kotsspítala 10. sept-
ember síðastliðinn
og fór útför hennar
fram frá Kópavogs-
kirkju 24. sept-
ember.
tölu sleppti hún ekki
einkasyninum við upp-
vaskið eða önnur hús-
verk. Þetta hefur kom-
ið mér til góða eins og
svo margt. Gaman var
að taka slátur með
Siggu tengdó og þó að
ég þykist fljót að
sauma vambir hafði ég
aldrei roð við henni.
Allar fallegu norsku
peysurnar sem hún
prjónaði og gaf okkur
og börnum okkar eru
ógleymanlegar. Hún
þurfti alltaf að vera að gefa, ekki
bara á jólum eða afmælum heldur
einnig ef við buðum þeim hjónum í
mat þá gat hún aldrei komið tóm-
hent.
Ég gleymi ekki hlýju hennar þeg-
ar við urðum fyrir sorginni stóru
þegar Steini okkar dó. Þá var besti
staðurinn að liggja með höfuðið í
kjöltu hennar og gráta. Hún strauk
mér um kollinn eins og litlu barni,
hún þekkti sorgina og skildi mig svo
vel.
Í mörg ár hafa þau Sigga og Árni
borðað hjá okkur á jóladagskvöld.
Eftir matinn höfum við Sigga alltaf
fengið kaffi og koníak og setið tvær í
stofunni og spjallað saman um allt
mögulegt. Ég er hrædd um að mér
muni finnast einmanalegt að sitja ein
að þessum veitingum en ég trúi að
hún verði hjá mér í anda og þá skál-
um við eins og við vorum vanar.
Síðustu mánuðir voru Siggu erf-
iðir, heilsan var á þrotum, hún gat
ekki einu sinni tekið lykkjuna og þá
fannst mér hún tilbúin til brottfarar.
Ég þakka tengdamömmu fyrir
samfylgdina og vona að þegar við
hittumst á ný getum við skroppið á
félagsvist eða annað sem okkur þótti
báðum gaman að. Ég veit að hennar
bíða vinir í varpa í himnaríki.
Þín einkatengdadóttir
Anna R Jónatansdóttir (Ranna).
Ástkæra amma okk-
ar, Magga.
Í dag kveðjum við
þig með söknuði í hjörtum okkar eft-
ir þín langvarandi veikindi sem þú
barðist svo hetjulega við. Margs er
að minnast frá æskuárum okkar með
ykkur afa Bjössa og strákunum;
ferðirnar í Vaglaskóg í hjólhýsið,
veiðiferðirnar allar sem við fengum
að fara með í, víðs vegar um landið –
og byrjaði veiðidella Björns og hefur
haldist síðan þá, ætli hann hafi bara
ekki smitast af nafna sínum, afa.
Amma, þú fylgdir ávallt með sem
kokkur.
Elsku amma, takk kærlega fyrir
allar afmælisveislurnar sem haldnar
voru í hjólhýsinu í Vaglaskógi.
Ávallt var glatt á hjalla í Skarðs-
hlíðinni um jól og hátíðar, alltaf gekk
maður að brúnkökunni þinni góðu
Margrét
Sigurðardóttir
✝ Margrét Sigurð-ardóttir fæddist
í Sandgerði í Gler-
árþorpi í Glæsibæj-
arhreppi 18. nóv-
ember 1926. Hún
lést á Dvalarheim-
ilinu Hlíð 24. ágúst
síðastliðinn og fór
útför henar fram
frá Glerárkirkju í
10. september.
sem þú áttir alltaf til
inni í ísskáp sem borin
var fram með ískaldri
mjólk. Amma okkar
var gestrisin kona og
dýrindiskokkur, alltaf
var gott að koma til
þín, elsku amma.
Stórt skarð mynd-
aðist eftir fráfall afa og
Jónasar er þeir feðgar
létust með aðeins 10
mánaða millibili.
Nú hefur þú sofnað
svefninum langa og
hefur nú hitt afa og
Jónas og alla ástvini þína sem einnig
hafa kvatt þessa jarðvist okkar, við
treystum því að þeir hafi tekið vel á
móti þér, elsku amma.
Við systkinin og börn okkar kveðj-
um þig hinstu kveðju, þangað til við
sameinumst á ný.
Syngdu mig í svefninn, ljúfi blær.
Sorgmæddu hjarta er hvíldin jafnan vær.
Draumgyðjan ljúfa, ljá mér vinarhönd,
og leið mig um þín töfraglæstu friðarlönd.
Ég er þreyttur, ég er þreyttur,
og ég þrái svefnsins fró.–
Kom draumanótt, með fangið fullt af friði
og ró.
(Jón frá Ljárskógum.)
Bless, elsku amma, og góða nótt.
Arna Rún, Björn Þór og börn.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Minningargreinar