Morgunblaðið - 06.10.2008, Page 40

Morgunblaðið - 06.10.2008, Page 40
MÁNUDAGUR 6. OKTÓBER 280. DAGUR ÁRSINS 2008 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 250 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700 ÞETTA HELST» Enginn aðgerðapakki  Að loknum fundum ríkisstjórn- arinnar með aðilum vinnumarkaðar- ins og forsvarsmönnum viðskipta- bankanna í ráðherrabústaðnum í gær voru þingmenn Sjálfstæð- isflokks og Samfylkingar boðaðir á þingflokksfundi í alþingishúsinu seint í gærkvöldi. Forsætisráðherra sagði fyrir fundinn að eftir helgina væri ekki lengur talið nauðsynlegt að „vera með sérstakan pakka með aðgerðum“. » Forsíða Kauphöllin lokuð?  Í gær var athugaður sá möguleiki að hafa Kauphöll Íslands lokaða í dag, mánudag, vegna aðstæðna á mörkuðum. Þórður Guðjónsson, for- stjóri Kauphallarinnar, útilokar ekki að Kauphöllin verði lokuð en það komi ekki til greina nema í algjörum neyðartilvikum. » 6 Víða gripið til aðgerða  Ríkisstjórn Þýskalands hefur samþykkt áætlun upp á 50 milljarða evra sem ætlað er að bjarga einum stærsta banka landsins. Þá náðist í gær samkomulag milli danskra stjórnvalda og bankakerfisins um að bankar mundu á næstu þremur ár- um greiða yfir 30 milljarða danskra króna sem notaðir yrðu til að mæta fjármálaáföllum. » 12 SKOÐANIR» Ljósvakinn: Martröð í eldhúsinu Staksteinar: Góð eða slæm fyr- irmynd? Forystugrein: Rökin fyrir ESB- aðild UMRÆÐAN» Geðheilsa á tímum kreppunnar Er sanngjarnt að vera með fordóma? Hver er sannleikurinn um sjóð 9 Heitast 8° C | Kaldast 2° C Austan 13-20 m/s og rigning sunnanlands og -vestan en úrkomu- lítið á austanverðu landinu. » 10 Þrátt fyrir að ástandið í efnahags- lífinu sé erfitt heldur Páll Óskar ótrauður áfram og gefur út safnpakka. » 37 TÓNLIST» Palli gefst ekkert upp TÓNLIST» Rapparar voru heiðraðir fyrir vel unnin störf. »36 Theresa Himmer er manneskjan á bak- við Fossinn og Jök- ulinn sem báðir hafa vakið athygli í mið- bænum. » 35 MYNDLIST» Fossinn og Jökullinn FÓLK» Flugan fór í bíó um helgina. » 32 LEIKLIST» Janis 27 er bara mjög góð skemmtun. » 37 Menning VEÐUR» 1. Biðlað til helstu vinaþjóða 2. Lífeyrissjóðir hafa flutt fé heim 3. Sáttahöndin að þreytast 4. Veislan búin á Íslandi Ástin er diskó, lífið er pönk Þjóðleikhúsinu Ljósmynd/Anna Lára Eðvarðsdóttir Toppkonur Margrét, Sigurlína, Kristín og Anna Lára með leiðsögumönnum á hæsta tindi Kilimanjaro. Eftir Andrés Þorleifsson andresth@mbl.is „ÞETTA gerum við bara einu sinni á ævinni,“ segir Margrét Halldórs- dóttir með nokkru stolti í röddinni. Í lok september síðastliðins komst Margrét ásamt þremur ferða- félögum sínum á hinn 5.895 metra háa tind Kilimanjaro. Ferðin upp á hinn eftirsótta tind tók sjö daga og náðist takmarkið loks að morgni dags 26. septem- ber. Fengu leiðangursmenn þá um korter til að njóta útsýnisins áður en haldið var aftur ofan. Gangan niður tók þó mun skemmri tíma eða um einn og hálfan dag. „Við vorum ekki vissar um að við kæmumst upp því það var búið að segja manni þvílíkar hryllings- sögur af ýmsu,“ útskýrir Margrét, en ferðin á tindinn gekk áfallalaust fyrir sig. Helst óttuðust þær hina svokölluðu háfjallaveiki, sem hrjáir marga sem reyna við Kilimanjaro. „Mér fannst hvíldin erfiðust af þessu,“ viðurkennir Margrét, en nóttinni eyddu þær í miklum kulda í tjaldi. „Gangan var léttari en hvíldin.“ Í sama streng tekur Anna Lára Eðvarðsdóttir. „Maður svaf ekkert rosalega vel,“ útskýrir hún og segir að hallinn á tjaldstæðinu hafi verið það mikill að þær hafi þurft að halda sér í tjaldsúlurnar. „Bara svona eins og konur á fimmtugs- og sextugsaldri eru,“ segir Margrét aðspurð hvort leið- angursmenn séu ekki í góðu formi eftir ævintýrið. „Við erum bara venjulegar konur,“ bætir hún við hæversk. Kökur og klósettpappír Hugmyndin að ferðinni kviknaði fyrir um ári þegar Ferðafélagið gaf út bækling um Kilimanjaro. Undirbúningurinn hefur því tekið um eitt ár og hafa leiðangursmenn m.a. haldið kökubasara og selt kló- settpappír til að safna fyrir ferð- inni. Þrjár kvennanna eru hjúkr- unarfræðingar á heila- og taugaskurðdeild Landspítalans í Fossvogi og hafa gengið saman á fjöll í um þrjú ár. Sú fjórða er síð- an systir eins hjúkrunarfræðings- ins. Svo vel vildi til að aðstandandi sjúklings á þeirra deild þekkti vel til Kilimanjaro og var þeim innan handar við undirbúninginn. Frá kökubasar til Afríku Seldu klósett- pappír til að kom- ast á Kilimanjaro Í KREPPUNNI geta jafnvel óðals- bændur ekki leyft sér að vera með stórsteikur í öll mál og þá er gott að geta af og til verið með góðan, ís- lenskan heimilismat eins og slátur. En dýrt er drottins orðið. Hagsýna húsmóðirin í Vestur- bænum tekur slátur og fær það þannig á hagstæðasta verðinu en við hin kaupum það í búðinni. Um helgina bauð Bónus frosna, ósoðna lifrarpylsu á 399 kr. kílóið (merkt verð 665 kr.) og frosinn blóðmör á 359 kr. kílóið (merkt verð 598 kr.). Sambærilegt verð í Nettó var 479 kr. (merkt verð 798 kr.) fyrir lifr- arpylsu og 449 kr. (merkt 748 kr.) fyrir blóðmör. Merkt verð hjá Nóa- túni var 887 kr. og 927 kr. en veitt- ur 30% afsláttur. Verðið því 621 kr. fyrir blóðmör og 650 kr. fyrir lifr- arpylsu. Blóðmör í Krónunni kost- aði annars vegar 887 kr. kg og hins vegar 638 kr. Hagkaup seldu blóð- mör á 638 kr. og lifrarpylsu á 698 kr. Ótrúlegur verðmunur. Slátur er herramannsmatur, en reyndar virðist verðið almennt vera frekar hátt fyrir utan tilboðsverðið í Bónus og jafnvel spurning um að halda sig áfram við stórsteikurnar. steinthor@mbl.is Auratal KRISTJÁNI Jóhannssyni var fagnað af slík- um krafti er hann söng aríuna Vesti la Giubba í óperunni Pagliacci í gærkvöldi að þegar fagnaðarlátunum loks linnti gaf hann hljóm- sveitarstjóranum merki og endurtók aríuna sem er ein sú frægasta í óperusögunni. „Það var ekki hægt annað af því að fólkið stóð á fætur og hrópaði og stappaði og ætlaði aldrei að hætta að fagna,“ sagði Kristján eftir sýninguna í gærkvöldi. „Þetta var yndislegt og eins og í útlandinu.“ Hann kvaðst telja að þetta hefði ekki verið gert áður í flutningi óperunnar hér á landi. Kristján söng í báðum óperunum í Íslensku óperunni í gærkvöldi, hlutverk Turiddus í Cavalleria Rusticana og Canios í Pagliacci. Kristján endurtók aríuna Kilimanjaro er hæsta fjall Afríku, en hæsti tindur þess er í um 5.895 metra hæð yfir sjávarmáli. Það er í Norðaustur-Tansaníu, skammt frá landamærunum að Kenía. Þrátt fyrir að vera mjög nálægt miðbaug er lítill jökull á toppnum, nokkuð sem menn áttu erfitt með að trúa í Evrópu á 19. öld. Tindurinn var færður á heimsminjaskrá UNESCO árið 1987. Þúsundir reyna við tindinn ár hvert og hafa fjölmargir Íslend- ingar lagt leið sína þangað á síð- ustu árum. Var þannig gert ráð fyr- ir að á annað hundrað hefðu reynt við tindinn í fyrra. Sem dæmi má nefna að í vor var frásögn í Morg- unblaðinu af ungri stúlku sem fékk fjallgönguna í fermingargjöf og í fyrra urðu tveir Íslendingar fyrir háfjallaveiki á ferð sinni á fjallið. Margir Íslendingar reyna við tindinn ár hvert BLÖл Haustið er komið og fyrsti snjórinn er fallinn Rauðrófur með tilbrigðum Þarfaþing í kreppunni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.