Morgunblaðið - 25.10.2008, Page 1
L A U G A R D A G U R 2 5. O K T Ó B E R 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
292. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
MENNING
ORÐ GUÐS, TRÚIN OG
TÚLKUN LISTAMANNA
DAGLEGLÍF
Systur sem kikna
ekki í kreppunni
Leikhúsin
í landinu >> 49
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur og
Silju Björk Huldudóttur
ÞAÐ mun taka Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um
tíu daga að skoða formlega ósk ríkisstjórnar-
innar um lán frá sjóðnum. Upphæð lánsins
mun nema ríflega tveimur milljörðum Banda-
ríkjadala eða um 240 milljörðum íslenskra
króna miðað við gengi Seðlabankans í gær.
Stefnt verður að því að endurgreiða lánið á ár-
unum 2012 til 2015.
Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi Geirs
H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra í Ráð-
herrabústaðnum í gær. Með lántökunni á að
koma efnahagslegum stöðugleika á í landinu.
Ráðherrarnir vildu ekki gefa upp hverjir vext-
irnir yrðu á láninu. Það tíðkist ekki í samninga-
viðræðum við sjóðinn að gefa forsendur við-
ræðnanna upp. Hins vegar sögðu þeir að þegar
sjóðurinn og stjórnin hefðu náð endanlega
saman í viðræðum sínum fengjust 830 milljónir
dala afhentar, jafnvirði 100 milljarða króna.
Þá hefði ríkisstjórnin borið undir sjóðinn
efnahagsáætlun um það hvernig stöðugleikan-
um verði náð. Ekki sé tímabært að gefa upp
hver áætlunin sé en viðræðunefnd sjóðsins
styðji áætlanir ríkisstjórnarinnar. Í grunninn
væri fyrsta skrefið að endurvekja traust á ís-
lenskum efnahag og styrkja stöðu krónunnar,
Ósk um 240 milljarða lán
Ríkisstjórnin óskar eftir samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn 100 milljarðar kæmu til greiðslu
strax við samþykki sjóðsins Næsta ár verður Íslendingum erfitt, segir talsmaður sjóðsins
Erfiðir tímar framundan | 6
annað að styrkja stöðu ríkissjóðs og það þriðja
að endurreisa íslenska bankakerfið.
Á blaðamannafundi sendinefndar Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins sagði Paul M. Thomsen, for-
maður sendinefndarinnar, næsta ár vafalítið
mundu verða Íslendingum erfitt þar sem
landsframleiðsla mundi dragast saman um
10% með tilheyrandi atvinnuleysi. Benti hann
á að Íslendingar hefðu áður tekist á við breytt-
ar þjóðfélags- og efnahagsaðstæður með góð-
um árangri og því væru allar líkur til þess að
þjóðin myndi komast hratt og örugglega upp
úr þeim öldudal sem framundan væri.
Í HNOTSKURN
»Að mati Pauls M. Thomsen þarf Ís-land á jafnvirði 730 milljarða króna
fjármögnun að halda á næstu tveimur
árum.
»Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn munileggja fram 240 milljarða en eftir er
að fjármagna 480 milljarða. Líklegt er
talið að hinar Norðurlandaþjóðirnar
muni koma að því verkefni. Hins vegar
er ekki útilokað að Japanar og Rússar
gætu komið til aðstoðar.
HALDIÐ var upp á það í gær að 35 ár eru síðan
Barnaheimilið Ós við Bergþórugötu í Reykjavík
tók til starfa, en um er að ræða elsta sjálfstætt
starfandi leikskóla landsins. Afmælinu var fagn-
að að hætti hússins og kunnu börnin vel að meta
kræsingarnar sem fram voru bornar.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Glatt á hjalla á Barnaheimilinu Ósi
Elsti sjálfstætt starfandi leikskóli landsins 35 ára
ALLS munu
starfa 3.050
manns í rík-
isbönkunum
þremur.
Er það mikil
fækkun frá síð-
ustu áramótum,
en þá störfuðu
7.900 manns
heima og erlendis hjá bönkunum
þremur, sem farnir eru í þrot.
Í gær lá fyrir að rúmlega 1.100
manns mundu starfa hjá Nýja
Kaupþingi. Um 150 starfsmönnum
Kaupþings var ekki boðið áfram-
haldandi starf. | 22
Mikil fækkun
starfsfólks
Paul Roberts heldur því fram í
nýrri bók, The End of Food, að mat-
vælaiðnaðurinn sé að hruni kom-
inn. Ástæðan sé meðal annars ódýr
matur og ofát.
Matvælaiðnður að
hruni kominn
Arnar Eggert Thoroddsen segir
samsuðu Of Montreal á skringileg-
heitum og hjartfólgnum melódíum
minna á sýrulegna tíma Bítlanna.
En bylting er stórt orð.
Er ný plata Of
Montreal bylting?
Guðni Elísson rýnir í bifreiða-
auglýsingar uppgangstímanna og
sjálfsritskoðunina sem hann telur
hafa rist dýpra en margur heldur í
veröldinni sem var.
Þegar útvaldir
óku Range Rover
LESBÓK
FULLTRÚAR vinnumálastofnana
sjö Evrópulanda munu koma hing-
að til lands eftir fjórar vikur til að
kynna atvinnutækifæri í löndum
sínum.
Að sögn Vinnumálastofnunar
munu þeir efna til kynningar í Ráð-
húsi Reykjavíkur vegna fyrir-
sjáanlegs samdráttar hérlendis.
Vinnumálastofnun hafa þegar
borist fjölmargar fyrirspurnir frá
Íslendingum um tækifæri erlendis.
Enn er vinnu að fá í flestum at-
vinnugreinum í Noregi. | 30
Atvinnutæki-
færi erlendis