Morgunblaðið - 25.10.2008, Side 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 2008
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
GEIR H. Haarde forsætisráðherra
sagðist aðspurður skora á íslenska
auðmenn að flytja heim til Íslands þá
peninga sem þeir
ættu erlendis.
Þetta sagði Geir í
viðtali í Íslandi í
dag á Stöð 2 í gær-
kvöld.
„Það væri auð-
vitað mjög æski-
legt ef menn gerðu
það af fúsum og
frjálsum vilja. Ég
hef reyndar alltaf
talið að það væri óeðlilegt að menn
væru að flytja peningana sína til út-
landa og koma sér fyrir í öðrum lög-
sögum, ef svo mætti segja. Bæði
skiptir það máli vegna skatttekna og
þess að taka þátt í að byggja upp okk-
ar þjóðfélag. Þannig að ég held að
það sé eðlileg ósk til manna,“ sagði
Geir.
Spurður út í það hvort hann væri
tilbúinn að skora á íslenska auðmenn,
líkt og hann skoraði á útflytjendur að
koma með gjaldeyri til landsins,
sagði Geir: „Ég myndi skora á þá
líka, að þeir kæmu hingað heim.“
Að mati sendinefndar Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins þurfa Íslendinga á
um 760 milljarða króna fjármögnun
að halda á næstu tveimur árum. Sjóð-
urinn mun, ef samningar nást, leggja
fram 240 milljarða en eftir er að fjár-
magna 480 milljarða. Aðspurður sagði
Geir að Seðlabanki Íslands hefði í
gær, þegar ósk íslenskra yfirvalda um
samstarf við Alþjóðagjaldeyrissjóð-
inn lá fyrir, sent bréf til Norður-
landanna, Evrópska seðlabankans og
Bandaríkjanna. „Við höfum ástæðu til
að halda að í það minnsta hafi Norð-
urlöndin áhuga á að koma inn í þetta
með okkur.
Það hefur legið fyrir af þeirra hálfu
að þau væru okkur mjög vinveitt og
vildu leggja okkur lið, en vildu gjarn-
an tengja það samstarfi okkar við Al-
þjóðagjaldeyrissjóðinn. Síðan eru
auðvitað viðræður í gangi við Rúss-
ana,“ sagði Geir.
silja@mbl.is
Heim með féð
Forsætisráðherra skorar á auðmenn að flytja peninga heim
til Íslands og taka þátt í því að byggja upp þjóðfélagið að nýju
Geir H. Haarde
LIÐSMENN danska varðskipsins Vædderen notuðu í
gær tækifærið og æfðu þyrlubjörgun úr sjó á ytri höfn-
inni í Reykjavík. Skipverjar hafa til umráða öfluga
Lynx-þyrlu. Ekki er verra að hann blási, það gerir æf-
inguna bara betri því að björgun þarf oft að sinna í
vondu veðri.
Híft á ytri höfninni
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
BÚAST má við einhverjum hækk-
unum á áfengi og tóbaki um mán-
aðamótin í ljósi gengisbreytinga.
Birgjar sjá ÁTVR fyrir vörum og
hafa ekki verið vandkvæði í þeim
efnum að sögn Sigrúnar Óskar
Sigurðardóttur, aðstoðarforstjóra
ÁTVR.
Skattar vega þungt í verðmynd-
un á áfengi. Ef tekið er dæmi af
verðmyndun á 750 millilítra rauð-
vínsflösku þá eru skattar, þ.e.
áfengisgjald og virðisaukaskattur,
um 58% af útsöluverði, innkaups-
verð 33% og álagning ÁTVR að
meðaltali um 9%. Áfengisgjald er
miðað við styrkleika alkóhóls og er
föst krónutala.
Áfengisgjaldið hækkað?
Reiknað var með því í fjárlaga-
frumvarpi fyrir næsta ár, að
áfengisgjald og tóbaksgjald yrðu
hækkuð um 11,5% í ársbyrjun
2009. Áætlað er að áfengisgjald
skili 8,9 milljörðum króna í rík-
issjóð á næsta ári og tóbaksgjald
4,3 milljörðum króna.
Aukning hefur verið í sölu
áfengis það sem af er þessu ári.
Nemur aukningin um 500 þúsund
lítrum eða 6,6%. Heldur hægði á
henni í september og það sem af
er októbermánuði. Það sem af er
ári hefur verið samdráttur í sölu á
tóbaki.
Búist við
hækkun á
tóbaki og
áfengi
"" #
$
"
ÞEIM fjölgar með hverjum deg-
inum sem skrá sig atvinnulausa. Á
aðeins tveimur vikum hefur atvinnu-
lausum t.d. fjölgað um 900 manns.
Fjölgunin meðal karla er mun meiri
á þessu tímabili en meðal kvenna.
Samráðsnefnd félags- og trygg-
ingamálaráðuneytisins og aðila
vinnumarkaðarins hefur mótað til-
lögur til að sporna gegn vaxandi at-
vinnuleysi.
Í þeim felst meðal annars hvati
fyrir atvinnurekendur til að lækka
starfshlutfall starfsmanna sinna
fremur en að grípa til uppsagna.
Miðað er við að réttur fólks til tekju-
tengdra atvinnuleysisbóta verði auk-
inn og jafnframt að tekjur launa-
fólks fyrir hlutastarf skerði ekki
atvinnuleysisbætur eins og verið
hefur.
Þetta kom fram í ræðu Jóhönnu
Sigurðardóttur, á ársfundi Alþýðu-
sambandsins á fimmtudag.
aij@mbl.is
Atvinnulausum hefur fjölgað um
900 á undanförnum tveimur vikum
% &
&'
!
!"
#
$
$
% () *%
#
#
+
#
,
#
Mun meiri fjölgun
er í hópi karla á
atvinnuleysiskrá
BÚAST má við að yfirstandandi
fjármálakreppa verði ofarlega á
baugi á þingi Norðurlandaráðs,
sem hefst í Helsinki í Finnlandi á
mánudag, að sögn Árna Páls Árna-
sonar, formanns Íslandsdeildar
Norðurlandaráðs.
Þingið stendur dagana 27.-29.
október. Árni Páll segir að á mánu-
dag verði fundur forsætisráðherra
og leiðtoga stjórnarandstöðu-
flokka. „Þeir munu ræða hnattvæð-
ingu í ljósi fjármálakreppunnar.
Svo verður fundur utanríkisráð-
herra á þriðjudeginum og almenn-
ar umræður á miðvikudeginum,“
segir Árni Páll.
Ísland tekur við formennsku í
Norðurlandaráði um áramót og
gegnir henni í eitt ár.
Kreppan
rædd í
Helsinki
ÍSLAND hefur löngum verið meðal
dýrustu landa í heimi en fyrir út-
lendinga sem fá t.d. útborgað í evr-
um eða
dönskum
krónum hefur
Ísland sjaldan
verið eins
ódýrt og ein-
mitt nú og
það hafa er-
lendir ferða-
menn óspart nýtt sér undanfarnar
vikur.
Í verslun 66° norður í Banka-
stræti, þar sem ferðamenn eru tíð-
ir gestir, hefur veltan aukist um
40-50% miðað við október í fyrra.
Ninna Hafliðadóttir, fram-
kvæmdastjóri verslunarsviðs 66°,
bendir á að vegna gengisfalls krón-
unnar hafi verð í íslenskum krón-
um lækkað um 50%. Þar að auki
fái útlendingar virðisaukaskatt
endurgreiddan. Aðspurð segir hún
að vörurnar hafi engan veginn
hækkað í takt við lækkandi gengi
enda væri ekki hægt að bjóða Ís-
lendingum upp á slíkt. Líklega
næmi hækkunin 8-15%.
Frostið á gjaldeyrismarkaði hef-
ur ekki haft teljandi áhrif á 66°
norður, ekki síst vegna þess að fyr-
irtækið framleiðir sjálft fatnað í
verksmiðju í Lettlandi.
runarp@mbl.is
Ferðamenn
rífa út 66°