Morgunblaðið - 25.10.2008, Side 6

Morgunblaðið - 25.10.2008, Side 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 2008 Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is NÆSTA ár mun vafalaust verða Ís- lendingum erfitt. Hins vegar hefur ís- lenskt samfélag áður tekist á við breyttar þjóðfélags- og efnahagslegar aðstæður með góðum árangri og því eru allar líkur til þess að þjóðin kom- ist hratt og örugglega upp úr þeim öldudal sem framundan er. Á kom- andi ári mun landsframleiðslan hugs- anlega dragast saman um allt að 10% með tilheyrandi auknu atvinnuleysi, ráðgert er að verðbólgan muni ganga hratt yfir og verða 4,5% undir lok næsta árs. Þetta var meðal þess sem fram kom á blaðamannafundi sendi- nefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem haldinn var í húsakynnum rík- issáttasemjara í gær. Á fundinum sagði Paul Marthias Thomsen, aðstoðarframkvæmdar- stjóri Evrópudeildar Alþjóðagjald- eyrissjóðsins og formaður sendi- nefndar sjóðsins hérlendis, að til skamms tíma væri hættan sú að þeg- ar gjaldeyrismarkaðir yrðu opnaðir á ný yrði gjaldeyrisflótti sem myndi leiða til enn frekari lækkunar krón- unnar. Slíkt gæti haft alvarlegar af- leiðingar fyrir skuldsett heimili og fyrirtæki. Því væri meginverkefnið nú að koma á stöðugleika í gjaldeyr- ismálum. Að sögn Thomsen eru við- ræður þegar hafnar við ráðamenn hinna Norðurlandanna, en hins vegar væri ekki útilokað að Japanar og Rússar gætu komið til aðstoðar. Styðja íslensku áætlunina Í máli Petya Koeva Brooks, yfir- hagfræðings Evrópudeildar Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins, kom fram að mik- ilvægt væri að íslenska bankakerfið yrði endurreist sem allra fyrst til þess að það geti stutt vel við efnhagslífið á næstu árum. Spurður um skilyrði lánsins lagði Thomsen áherslu á að mikilvægt væri að tala um samstarf íslenskra yfirvalda við Alþjóðagjald- eyrissjóðinn sem heildarpakka þar sem fyrst og fremst væri verið að leggja áherslu á ítarlega efnahags- áætlun með það að markmiði að koma á efnahagslegum stöðugleika á ný og grynnka á fyrirsjáanlegum skuldum íslenska ríkisins frá og með árinu 2010. Sagði hann sendinefndina heils hugar styðja fram komna efnahags- áætlun íslenskra yfirvalda, enda væri hún forsenda þess að sjóðurinn legði Íslendingum lið. Spurður hvort sam- komulag íslenskra stjórnvalda við bresk stjórnvöld um sátt um stöðu innstæðueigenda á Icesave-reikning- um í Bretlandi væri skilyrði fyrir að- komu og fjárhagsaðstoð Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins hérlendis svaraði Thomsen því neitandi, en tók fram að auðvitað væri mikilvægt að sátt næð- ist um málið. Framsækin efnahagsáætlun Dominique Strauss-Kahn, fram- kvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins, segir á vef stofnunarinnar að Ísland hafi samið framsækna efna- hagsáætlun sem miði að því að end- urvekja traust á bankakerfinu, koma á jafnvægi í gengismálum á næstunni og í ríkisfjármálum til lengri tíma lit- ið. „Ég tel að þessar ákveðnu aðgerðir réttlæti hve aðgengi að fé úr sjóðnum er rúmt, en það samsvarar 1,190% af kvóta Íslands í Alþjóðagjaldeyris- sjóðnum, og verðskuldi stuðning al- þjóðasamfélagsins.“ Erfiðir tímar framundan  Efnahagsáætlun íslensku ríkisstjórnarinnar er þríþætt  Ná þarf stöðugu gengi krónunnar  Undirbúa á markvissar aðgerðir til að styrkja stöðu ríkissjóðs  Endurreisa þarf íslenska bankakerfið Morgunblaðið/Kristinn Stinga saman nefjum Friðrik Már Baldursson, Ásmundur Stefánsson og Paul Marthias Thomsen á blaðamanna- fundi sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þar sem tilkynnt var um samstarf sjóðsins við íslensk stjórnvöld. Í HNOTSKURN »Ísland fær 2,1 milljarðBandaríkjadala að láni hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum til tveggja ára til að styðja við uppbyggingu efnahags- lífsins. »Framkvæmdastjórn sjóðs-ins mun nú fara yfir áætl- un Íslands, en ráðgert er að formlegt samkomulag geti legið fyrir í byrjun nóvember. »Strax við staðfestingustjórnar sjóðsins koma 830 milljónir dala til greiðslu. FORYSTUMENN ríkisstjórnarflokkanna vona að með yfirlýsingunni um að formlega verði leitað eftir láni hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum komist gjaldeyr- isviðskiptin í lag. Geir H. Haarde skoraði jafnframt á útflytjendur að koma með gjaldeyri til landsins. Með falli Glitnis, Landsbankans og Kaupþings hrundu milli- bankaviðskipti íslenskra banka við erlenda. Þó að tryggð hafi verið innlend bankastarfsemi sem og inni- stæður Íslendinga þarf sem fyrst að koma upp virkum gjaldeyrismark- aði hérlendis, enda gæti langtímastöðvun gjaldeyrisviðskipta haft geig- vænleg áhrif á íslenskt efnahagslíf. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Paul Marthias Thomsen. Sagði Thomsen að halda yrði fast um peningamálastefnuna hérlendis á næstunni til þess m.a. að hindra að fjármagn hverfi út úr kerfinu með áframhaldandi falli krónunnar. „Til að hindra þetta mun sjóðurinn leggja Íslendingum til fjármagn og einnig eru miklar líkur til þess að önnur lönd muni verða reiðubúin að leggja ykkur til fjármagn á grund- velli þessa samnings sem hægt verður að nota til að ná gengi krónunnar stöðugu,“ sagði Thomsen og nefndi í því sambandi að líklegt væri að hinar Norðurlandaþjóðirnar myndu taka með jákvæðum hætti þátt í því verkefni. Spurður hvort fastheldin peningamálastefna fæli í sér hækkun stýrivaxta vildi Thomsen ekki svara því og sagði það myndi koma í ljós á næstu dögum. gag@mbl.is, silja@mbl.is Gjaldeyrisviðskiptin í lag AÐ MATI Paul Marthias Thomsen verður verkefnið til lengri tíma að koma á jafnvægi í ríkisbúskapnum. Segir hann að mikil umskipti muni nú verða á stöðu íslenska ríkisins sem hafi verið lítið skuldsett en verði nú mjög skuldugt. Ekki liggi hins vegar fyrir hverjar skuldirnar verði í raun fyrr en eftir nokkur ár þegar ljóst verður hver verðmæti íslensku bankanna í útlöndum séu. Einn- ig segir hann ljóst að minnkandi skatttekjur muni leiða til aukins halla á ríkisrekstri. Þau Geir H. Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir voru spurð um skattahækkanir á blaðamannafundi sínum og sögðu þau að það væru ekki gerðar kröfur frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum um að hér yrðu hækkaðir skattar. Ingibjörg sagði hins vegar að vel gæti verið að skera þyrfti niður og hækka skatta á næstu tveimur eða þremur árum á meðan farið yrði í gengum versta kúfinn. „En það er þá sjálfstætt pólitískt ákvörð- unarefni okkar hér innanlands.“ gag@mbl.is, silja@mbl.is Skattahækkanir mögulegar „VIÐ þurfum að auka hagvöxtinn til að geta skapað ný störf svo að þeir sem eru að missa vinnuna hérna fái störf við hæfi. Þetta eru verkefni sem blasa við,“ sagði Geir H. Haarde þegar hann kynnti ákvörðun ríkisstjórn- arinnar um formlega umsókn um lán frá Alþjóðagjald- eyrissjóðnum. Með falli bankanna þriggja, þ.e. Glitnis, Landsbankans og Kaupþings, hafa að minnsta kosti fimm hundruð manns misst vinnuna. Að sögn Petya Koeva Brooks þarf að endurskoða regluverkið og eft- irlitið með fjármálastofnunum hérlendis til þess að tryggja að svipaðir at- burðir geti ekki gerst aftur. „ Auk þess þarf að setja upp skipulagða form- gerð sem hefur það að markmiði að endurheimta eignir bankanna sem lentu í erfiðleikum. Einnig þarf að tryggja að matið á eignum bæði gömlu og nýju bankanna fari fram eins hratt og kostur er“ gag@mbl.is, silja @mbl.is Endurskoða þarf eftirlitið FRÉTTASKÝRING Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttir gag@mbl.is GERA þarf úttekt sérstaklega á því hvort eftirlitsstofnanir, svo sem Seðlabankinn, Fjármálaeftirlitið og ráðuneytin, hafi ekki virkað sem skyldi í eftirliti sínu með mark- aðnum. Það kom fram í máli for- sætisráðherra, Geirs H. Haarde, og utanríkisráðherra, Ingibjargar Sól- rúnar Gísladóttur, á blaðamanna- fundi í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í gær. Þá var tilkynnt um að ríkisstjórnin hygðist sækja formlega um lánveitingu frá Al- þjóðagjaldeyrissjóðnum. „Ég tel að þingið þurfi að koma að [úttektinni] og við þurfum að fá að- ila erlendis frá til að aðstoða okkur svo fullt traust og trúverðugleiki ríki um að tengsl og hagsmunir ráði ekki för,“ sagði Ingibjörg Sólrún. Undir það tók Geir H. Haarde. Hún sagði jafnframt sjálfgefið að rík- issaksóknaraembættið skoðaði hvort einhver lögbrot hefðu átt sér stað í tengslum við fjármálakrepp- una. Þá sagði Geir að ný umgjörð um peningamálastefnu Seðlabankans kæmi vel til greina. Hins vegar yrðu breytingar ekki gerðar fyrr en efna- hagsþrengingar þjóðarbúsins væru afstaðnar. Hlutverk Seðlabankans nú væri að annast tengslin við Al- þjóðagjaldeyrissjóðinn. Hann ítrek- aði einnig að ekki stæði til að skipta um menn í brúnni í bankanum á þessari stundu. Hann réði því. Dökk staða framundan Geir sagði stöðuna í samfélaginu erfiða. „Myndin sem blasir við er sú að það verður verulegt fall í þjóð- arframleiðslu. Það verður verulega aukinn halli á ríkisbúskapnum. Það er óvissa um verðbólguna á meðan gengið er ekki komið í fastar skorð- ur.“ Þetta væru verkefnin sem þyrfti að fást við. Næstu sex mán- uðir yrðu mjög erfiðir. Komin væri mynd á hvernig staðan yrði en ekki væri tímabært að gefa upp spá rík- isstjórnarinnar. „Við viljum ekki eiga á hættu að setja viðræðurnar í uppnám með óvarlegum orðum,“ sagði Ingibjörg Sólrún. Fólk standi saman Geir sagði að nú væri mikilvægt að fólk missti ekki kjarkinn. Það stæði saman og styddi hvað annað á þessum erfiðu tímum. „Ég býst við því að nú séu margir sárir og reiðir en nú er ekki tíminn til þess að leita að blórabögglum,“ sagði hann. „Þegar við komumst út úr þessu óveðri verður nægur tími til að velta því fyrir sér hverjum er um að kenna og hvort einhver hafi brotið af sér og hvort og þá hverja eigi að sækja til saka. En fyrst verðum við að bjarga hér efnahagslífinu.“ Óljóst væri hvenær rétti tíminn kæmi, en ríkissaksóknaraembættið rannsak- aði nú hvort lög hefðu verið brotin. Geir og Ingibjörg vilja trausta úttekt Morgunblaðið/Golli Forsætisráðherra og utanríkisráðherra Geir H. Haarde og Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir leita formlega eftir láni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.