Morgunblaðið - 25.10.2008, Blaðsíða 11
Fréttir 11INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 2008
GUNNAR Kristinn
Bergsteinsson, fyrrum
forstöðumaður Sjó-
mælinga Íslands og síð-
an forstjóri Landhelg-
isgæslunnar, lést í
Reykjavík síðastliðinn
fimmtudag, 85 ára að
aldri.
Gunnar var fæddur í
Reykjavík 29. ágúst
1923, sonur Bergsteins
Jóhannessonar og
Ragnhildar Magnús-
dóttur. Eftirlifandi eig-
inkona Gunnars er
Brynja Þórarinsdóttir.
Börn þeirra eru Þórarinn Dúi, Ragn-
hildur Ása, Bergsteinn Örn og Theó-
dóra.
Gunnar varð stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1942. Hann
stundaði nám við norska sjóliðsfor-
ingjaskólann í Ósló 1945-1950. Hann
starfaði þá meðal annars á ýmsum
norskum herskipum. Eftir heim-
komuna frá Noregi var Gunnar ráð-
inn til starfa hjá Skipa-
útgerð ríkisins, sem
stýrimaður á varðskip-
um.
Þegar Landhelgis-
gæslan var gerð að
sjálfstæðri stofnun ár-
ið 1952 varð Gunnar
fulltrúi hjá þeirri stofn-
un og jafnframt sjó-
mælingamaður hjá ís-
lensku sjómælingun-
um fram til 1969.
Veturinn 1968-69 var
hann við nám í varnar-
málaskóla NATO í
Róm.
Árið 1970 var Gunnar ráðinn for-
stöðumaður Sjómælinga og árið 1981
var hann jafnframt skipaður for-
stjóri Landhelgisgæslunnar.
Gunnar var prófdómari við Stýri-
mannaskólann í Reykjavík 1955-
1981 og gegndi ýmsum öðrum trún-
aðarstörfum sem tengdust hans að-
alstarfi. Honum voru veittar margar
viðurkenningar, m.a. Fálkaorðan.
Andlát
Gunnar Bergsteinsson
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
15% afsláttur
af öllum yfirhöfnum
Nýtt - Nýtt
YFIR-
HAFNIR
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið í Bæjarlind laugard. 10-16
Opið í Eddufelli laugard. 10-14
Laugavegi 63 • S: 551 4422
SKOÐIÐ SÝNISHORN Á LAXDAL.IS
20% AFSLATTUR TIL 1. NÓV.
Af völdum stöndum
HAUSTFATNAÐUR
L
jó
sm
.:
M
a
ry
E
ll
e
n
M
a
rk
VINNUMÁLASTOFNUN hyggst
standa fyrir starfskynningu dagana
21.-22. nóvember í Ráðhúsi Reykja-
víkur sem sérstaklega er ætluð
starfsfólki byggingariðnaðarins,
jafnt faglærðu sem ófaglærðu.
„Þessi starfskynning er hugsuð
bæði fyrir Íslendinga og þá erlendu
ríkisborgara sem hér eru staddir,“
segir Valdimar Grétar Ólafsson,
Eures-ráðgjafi hjá Vinnu-
málastofnun. Valdimar segir fyrir-
komulag starfskynningarinnar sótt
í smiðju Íra sem hafi fyrir um hálfu
ári staðið fyrir samskonar kynn-
ingu með góðum árangri. Að sögn
Valdimars er von á fulltrúum frá
a.m.k. sjö stórum byggingar-
verktökum sem starfa á meginlandi
Evrópu. Einnig er von á fulltrúum
átta Evrópulanda, þar sem skortur
er á vinnuafli. Meðal þeirra landa
eru Noregur, Svíþjóð, Þýskaland,
Holland, Belgía og Pólland.
silja@mbl.is
Kynna
störf og
vinnumarkaði
BRAUTSKRÁNING kandídata frá
Háskóla Íslands fer fram í Háskóla-
bíói í dag, laugardag. Háskólahátíð
hefst kl. 13.00 en henni lýkur um kl.
15. Brautskráðir kandídatar verða
448 að þessu sinni.
Á hátíðinni verður lýst kjöri
þriggja heiðursdoktora frá Háskóla
Íslands á hátíðinni en þeir eru: Jón-
atan Þórmundsson og Sigurður Lín-
dal, frá lagadeild og Søren Langvad
frá verkfræðideild.
Jónatan Þórmundsson varð lektor
við lagadeild Háskóla Íslands árið
1967 og var skipaður prófessor við
deildina árið 1970. Hann lét af störf-
um í árslok 2007 eftir 40 ára starfs-
feril.
Sigurður Líndal var skipaður lekt-
or við lagadeild Háskóla Íslands
1967 og síðar prófessor við deildina
1972. Því embætti gegndi hann til
2001 er hann lét af störfum fyrir ald-
urs sakir, eftir um 34 ára starf við
deildina. Á síðasta ári var hann ráð-
inn prófessor við lagadeild Háskól-
ans á Bifröst.
Søren Langvad kom fyrst til Ís-
lands 13 ára gamall þegar faðir hans
Kay vann við byggingu Ljósafoss-
virkjunar. Hann innritaðist í verk-
fræðideild Háskóla Íslands sama
haust og lauk fyrrihlutaprófi þaðan
árið 1945. Að því búnu hélt hann til
Danmerkur til frekara náms og lauk
síðari-hlutaprófi í byggingarverk-
fræði frá Danmarks Tekniske Høj-
skole árið 1948. Starfsferil sinn sem
verkfræðingur hóf Søren við Írafoss-
virkjun, þar sem hann starfaði fyrir
Fosskraft sem var samsteypa E.
Pihl og Søn og sænsks fyrirtækis.
Þrír nýir heiðursdoktorar
Háskóli Íslands brautskráir 448 kandídata í dag
Heiðursdoktorar við lagadeild og verkfræðideild
Fréttir á SMS