Morgunblaðið - 25.10.2008, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 25.10.2008, Blaðsíða 14
14 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 2008 Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is FJÁRFESTINGARSTEFNA kirkjunnar er meðal þeirra mála sem fjallað verður um á kirkjuþingi þjóð- kirkjunnar sem hefst í Grensás- kirkju klukkan 10 fyrir hádegi í dag. Fimmtíu ár eru liðin frá því að þingið var fyrst haldið og þess er einnig minnst að 75 ár eru liðin frá því að kirkjuráð tók fyrst til starfa. Þjóðkirkjan hefur að undanförnu unnið að stefnumótun á ýmsum svið- um kirkjustarfsins. Nú liggur fyrir þinginu tillaga að fjárfestingar- stefnu þar sem lögð er áhersla á fjár- festingarkosti í ljósi samfélagslegrar ábyrgðar og kristinna siðgilda. Besta ávöxtun fjármuna með eins lítilli áhættu og kostur er Í tillögunni segir m.a.: „Þjóðkirkj- an leggur áherslu á að tryggja bestu ávöxtun fjármuna sinna, með eins lítilli áhættu og kostur er á hverjum tíma og meti fjárfestingarkosti í ljósi samfélagslegrar ábyrgðar og krist- inna siðgilda. Peningar skulu eink- um ávaxtaðir í vel tryggðum verð- bréfum eða með innlánum hjá traustum innlánsstofnunum. Kirkju- ráð mótar á þessum grundvelli ár- lega nánari fjárfestingarstefnu. Ennfremur segir í tillögunni: „Þjóðkirkjan heldur í eigu sinni þeim fasteignum, kirkjum, prests- setrum, skrifstofuhúsnæði og öðrum eignum sem styðja þjónustu hennar og markmið. Gæta skal samræmis um það hvar prestssetur eru lögð til á sama þjónustusvæði. Meta skal að- stæður, ef sérstök söguleg eða menningarleg rök eða kvaðir mæla með öðru.“ Hjálparstarf kirkjunnar styrkt í stað hátíðahalda Þrátt fyrir ýmis tímamót á kirkju- þingi nú verður hátíðahöldum stillt mjög í hóf vegna þrenginga í efna- hagsmálum þjóðarinnar, að því er segir í fréttatilkynningu. Þess í stað mun kirkjuráð veita Hjálparstarfi kirkjunnar 1,5 milljónir króna í styrk og er þess vænst að framlagið verði nýtt í innlent hjálparstarf fyrir jólin. Meðal mála er nú liggja fyrir eru áfangaskýrsla nefndar um endur- skoðun á lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar. Í ár eru 10 ár frá gildistöku laganna og hefur endurskoðun á þeim verið hafin. Drög að samþykktum um innri málefni kirkjunnar liggja einnig fyr- ir þinginu. Þessar samþykktir snúa að framkvæmd mála, svo sem skírn og fermingu, sem Þjóðkirkjan fékk sjálf fullt forræði yfir með lögum um kirkjuráð árið 1932. Ýmis lög, starfs- reglur og stjórnvaldsákvæði og kirkjuleg siðvenja vísa iðulega til hefða sem hvergi eru skilgreindar með aðgengilegum hætti, segir í til- kynningunni. Þá verður rætt um skipan þjón- ustu kirkjunnar þar sem skilgreint er hvaða þjónustu sóknarbörn eiga að geta vænst og leitast við að skipu- leggja samstarf prestakalla til að tryggja sem jafnasta þjónustu. Tillaga að staðfestingu stofnskrár fyrir Rannsóknarsetur í trúar- bragðafræðum og guðfræði liggur einnig fyrir þinginu. Lagt er til að Rannsóknarsetrið verði til húsa í Kapellu ljóssins á Suðurnesjum, þar sem áður var herstöð. Kirkjuþing ræðir fjárfestingar  Fimmtíu ár liðin frá því að kirkjuþing var fyrst haldið  Hátíðahöldum stillt í hóf vegna efnahagsþrenginga  Rannsóknasetur verði til húsa í Kapellu ljóssins Morgunblaðið/G.Rúnar Málin rædd Séra Kristín Þórunn Tómasdóttir og Hulda Guðmundsdóttir á síðasta kirkjuþingi, en þar eiga sæti 29 kjörnir fulltrúar, leikir og lærðir. Í HNOTSKURN »Á kirkjuþingi eiga sæti 29kjörnir fulltrúar, 12 vígðir menn og 17 leikmenn, auk þess biskup Íslands, tveir vígslubiskupar og einn fulltrúi guðfræðideildar HÍ með mál- frelsi og tillögurétt. »Forseti kirkjuþings er kos-inn til fjögurra ára úr röð- um leikmanna og er Pétur Kr. Hafstein, fyrrverandi hæsta- réttardómari, forseti Kirkju- þings 2006-2010 »Kirkjuþing kemur samaneinu sinni á ári í um það bil eina viku. Sjá kirkjuthing.is Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is ENN gengur útgerðarmönnum illa að fá greiðslur í gjaldeyri fyrir seldan fisk, að sögn Friðriks J. Arngríms- sonar, framkvæmdastjóra LÍÚ. Þessi samskipti eru erfiðust við Bretland, en þangað hafa Íslendingar ævinlega selt mikið af ferskum og frosnum fiski. Einhverjir útgerðarmenn hafa, að minnsta kosti um sinn, hætt þess- um útflutningi og setja fiskinn á aðra markaði eða í vinnslu. „Eftir því sem tíminn líður hefur þetta meiri áhrif,“ segir Friðrik. „Upphafið að vandræðunum er til- skipun um frystingu eigna Lands- bankans í Bretlandi. Við megum hins vegar alls ekki láta þessa erfiðleika hafa áhrif á þær viðræður sem standa yfir vegna óbilgjarnra krafna Breta á hendur okkur vegna Icesave. Þessi staða þjónar ekki heldur hagsmunum Breta því þar í landi er fullt af fólki sem vinnur við vinnslu á fiskinum okkar. Viðskiptin þurfa að ganga sem greiðlegast og Bretar fara vonandi fljótlega að horfa á þetta með þeim augum,“ sagði Friðrik. Hann benti á að þessi erfiða staða væri í raun atvinnulífið í hnotskurn, en sem stjórnarmaður í SA kemur Friðrik að málinu frá fleiri hliðum. Spurður hvort hann hefði upplýs- ingar um að innflytjendur reyndu að kaupa gjaldeyri af útflytjendum sagð- ist hann ekki geta fullyrt um slíkt. „Ég hef heyrt af því að innflytjendur hafi viðrað slík viðskipti, en veit ekki hvort eða í hversu miklum mæli þetta á sér stað,“ sagði Friðrik. Einhverjir hætt- ir að selja fisk til Bretlands Morgunblaðið/ÞÖK Útgerðarmönnum gengur illa að fá greitt AÐALFUNDUR LÍÚ verður hald- inn 30. og 31. október. Efnahags- málin verða örugglega ofarlega á baugi á fundinum, meðal annars í erindum Friðriks Más Bald- urssonar, prófessors við Háskól- ann í Reykjavík, og Unnars Más Péturssonar, fjármálastjóra Ramma hf. Geir H. Haarde, for- sætisráðherra, og Einar K. Guð- finnsson, sjávarútvegsráðherra, ávarpa fundinn. Þá verður fjallað um ábyrgar fiskveiðar, vottun og merki á ís- lenskar sjávarafurðir, stofnmæl- ingar og röll Hafrannsóknastofn- unar, veiðarfæri framtíðarinnar, makríl og grálúðu. Ræða efnahagsmál Félags- og tryggingamálaráðuneytið Málþing um fjölskyldumál á Íslandi "Höfum við hagsmuni barna að leiðarljósi" Mánudaginn 27. október 2008 á Grand Hóteli kl. 12.30-17.00 12.30 Málþing sett Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra. Kynning á starfi nefndar um einstæða og forsjárlausa foreldra. Ágúst Ólafur Ágústsson, formaður nefndar um einstæða og forsjárlausa foreldra og stjúpforeldra. 13.00 Félagsleg staða barna í mismunandi fjölskyldum - líðan barna - að hafa hagsmuni barna að leiðarljósi - "réttur" foreldra vs. "réttur barns" - ráðgjöf og fræðsla Framsögumenn (10 mín. hver) - í lok framsöguerinda verða umræður - Sigrún Júlíusdóttir prófessor í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands - Ársæll Már Arnarsson lektor í sálfræði við Háskólann á Akureyri - Gunnar Hersveinn heimspekingur 14.00 Lagaleg staða barna eftir mismunandi fjölskyldugerðum - sameiginleg forsjá - lögheimili - umgengni - stjúpfjölskyldur - forsjárlausir foreldrar - sáttaleiðir - heimildir dómara Framsögumenn (10 mín. hver) - í lok framsöguerinda verða umræður - Valborg Snævarr lögmaður - Dögg Pálsdóttir lögmaður - Jóhann Loftsson sálfræðingur 15. 00 Kaffi. 15.30 Fjárhagsleg staða barna eftir mismunandi fjölskyldugerðum - fátæk börn - meðlag - barnabætur - fjárhagsaðstoð - sérstakur stuðningur ríkis og sveitarfélaga Framsögumenn (10 mín. hver) - í lok framsöguerinda verða umræður - Guðný Björk Eydal deildarforseti félagsráðgjafardeildar Háskóla Íslands - Ásta S. Helgadóttir forstöðumaður Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna - Laufey Ólafsdóttir formaður Félags einstæðra foreldra 16.30 Barnið í framtíðarfjölskyldunni Ragnhildur Sverrisdóttir blaðamaður, Morgunblaðinu. 16.45 Ráðstefnuslit. Ráðstefnustjóri verður Lára Björnsdóttir skrifstofustjóri í félags- og tryggingamálaráðuneytinu. Málþingið er opið öllum og er aðgangur ókeypis. LANDSVIRKJUN hyggst fresta framkvæmdum sem fyrirhugaðar höfðu verið á næsta ári við ysta enda svonefndrar Hraunaveitu, sem nemur um það bil 0,5% af orkugetu Kárahnjúkavirkjunar. Þetta kom fram á fundi Friðriks Sophussonar, forstjóra Lands- virkjunar, með heimamönnum á Austurlandi í vikunni, en á fund- inum voru kynntar náttúrufars- rannsóknir. Ekki vegna heimskreppunnar „Við höfum allt þetta ár hugleitt hvort við ættum að fresta þessari framkvæmd,“ segir Sigurður Arn- alds, upplýsingafulltrúi Kára- hnjúkavirkjunar. Hann tekur fram að frestunin tengist ekki heims- kreppunni. Um sé að ræða fram- kvæmd upp á 350-400 milljónir króna. Ástæðan fyrir frestuninni tengist veðurfari og rennsli á svæðinu. Það hafi verið með meira móti eftir aldamót en var áður. „Við viljum sjá til með þessa veitu og bíða átekta. Þetta er fram- kvæmd sem við getum hlaupið í með um hálfs árs fyrirvara,“ segir hann. Sigurður segir að ekkert komi í staðinn fyrir þessa fram- kvæmd, en Landsvirkjun hafi séð sér leik á borði með að fresta framkvæmdinni og sjá eigi til hvort vatnsbúskapurinn á svæðinu gangi. Ef kólni aftur megi fara í framkvæmdina. Sigurður segir að Hraunaveitan hafi að öðru leyti verið kláruð í sumar. Næsta sumar verði ein- göngu eftir að snyrta, fjarlægja vinnubúðir og vinna við upp- græðslu. elva@mbl.is Sjá til með ysta enda Hraunaveitu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.