Morgunblaðið - 25.10.2008, Side 15

Morgunblaðið - 25.10.2008, Side 15
Fréttir 15INNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 2008 OPINN borgarafundur um stöðu þjóðarinnar verður í Iðnó, nk. mánudag kl. 20. Tilgangur fund- arins er að leyfa hinum almenna borgara að koma hugmyndum sín- um og skoðunum á framfæri á óvissutímum. Fjórir frummælendur hefja um- ræðuna: Einar Már Guðmundsson rithöfundur, Björg Eva Erlends- dóttir blaðamaður, Lilja Mós- esdóttir hagfræðingur og Vil- hjálmur Bjarnason viðskipta- fræðingur. Borgarafundur um stöðuna VINSTRI græn ætla að leggja fram þingsályktunartillögu „við fyrsta tækifæri“ um að fella niður fyr- irhugaða loftrýmisgæslu Breta við Ísland. Í ályktuninni segir: „Alþingi ályktar að fela utanríkisráðherra að tilkynna breskum stjórnvöldum og yfirstjórn NATO að fyrirhugað loftrýmiseftirlit Breta við Ísland í desember nk. falli niður. Jafnframt verði utanríkismálanefnd falið að endurskoða áætlun Atlantshafs- bandalagsins um loftrýmisgæslu yf- ir Íslandi sem samþykkt var í júlí 2007, með það að markmiði að hætta öllu slíkum æfingum.“ Bretarnir komi ekki að vörnum landsins GÓÐGERÐARRÁÐ Verzlunarskóla Íslands mun í samstarfi við UNI- CEF halda fótboltaleik í Kórnum kl. 19-21 á morgun, laugardag. Leikurinn er haldinn til styrktar vatnsverkefnis í Gíneu-Bissá. Lið Verzlinga mun mæta liði sem þjóð- þekktir Íslendingar skipa. Frítt er á leikinn en allur ágóði af veitingasölu, sem verður á staðn- um, rennur til verkefnisins. DJ verður svo á staðnum til að halda uppi stemmingunni. Safnað í Kórnum Á MÁNUDAG nk. mun Sigurlaug G. Ingólfsdóttir, stofnandi Kær- leikssamtakanna flytja fyrirlest- urinn „Þunglyndi án lyfja“, í menn- ingarmiðstöðinni Gerðubergi kl. 19-21. Fyrirlesturinn fjallar um reynslu Sigurlaugar af langvarandi þung- lyndi, kvíða og streitu, aðstæðum í lífi hennar ásamt því hvernig upp- lifun hennar í gegnum vanlíðan, lit- uð af uppeldinu og umhverfinu mótaði þá stefnu sem hún tók. Sig- urlaug segist ætla að leggja áherslu á hvernig hún hefur til margra ára unnið sig markvisst út úr þessum vítahring án lyfja, í gegnum andleg málefni og með óhefðbundnum að- ferðum sem m.a. urðu til þess að Kærleikssamtökin voru stofnuð fyrir fjórum árum. Fyrirlestur um þunglyndi án lyfja Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is NÝR forseti Alþýðusambands Ís- lands, Gylfi Arnbjörnsson, var kjör- inn í gær. Gylfi hlaut um 59% fylgi, eða 166 atkvæði. Mótframbjóðand- inn, Ingibjörg R. Guðmundsdóttir varaforseti, hlaut 114 atkvæði, rúm 40%. Fyrirfram var mikil óvissa um úrslitin og sigurinn því kannski meira afgerandi en búist var við. Ingibjörg situr áfram sem varafor- seti, a.m.k. fram á haust 2009. Í þakkarræðu sinni sagði Gylfi það brýnast á næstunni að sigla félags- mönnum ASÍ í gegnum þrenging- arnar. Hann sagðist mundu leggja sig allan fram við að standa undir því trausti sem honum var sýnt. Stefna á Evrópusambandið Veigamesta ályktun fundarins var um aðgerðir til að endurheima fjár- málastöðugleika. Sannfæra þurfi fjármálamarkaði um að Ísland geti og muni komast á lygnan sjó aftur á næstu árum. Í því skyni styður ASÍ umsókn um aðstoð Alþjóðagjaldeyr- issjóðsins. Þá sé eina færa leiðin að kanna aðild að ESB og upptöku evru. Með því skapist líka trúverð- ugleiki fyrir meiri festu í skráningu krónunnar, þangað til hægt verður að taka upp evruna. Í þriðja lagi að kjarasamningar á almennum vinnu- markaði verði framlengdir og sam- komulag gert við samtök opinberra starfsmanna um sameiginlega launastefnu, þar sem öllu launafólki verði tryggðar sambærilegar launa- hækkanir á þessu ári og næstu tveimur árum. Fundurinn ályktaði líka um jöfn- un lífeyrisréttinda alls vinnandi fólks á Íslandi, án skerðinga fyrir al- mennt launafólk. Þá var kynnt ný stefna ASÍ um ungt fólk, samfélagið og verkalýðshreyfinguna. Tilfinningarík kveðjustund Í lok ársfundar voru Grétari Þor- steinssyni þökkuð störfin fyrir verkalýðshreyfinguna. Gylfi kvað hann hafa starfað af einstakri trú- mennsku, en Ingibjörg sagði engan mann prúðari eða betur til þess fall- inn að starfa fyrir ASÍ. Á þeim tíma- punkti báru tilfinningar forystu- sveitina ofurliði og féllust þau Ingibjörg og Grétar í faðma með tárin í augunum. Starfsmenn skrif- stofu ASÍ kvöddu hann einn af öðr- um, en Grétar felldi tár á meðan. „Kærar þakkir fyrir allt, enn og aft- ur,“ sagði Grétar klökkur eftir hafa verið klappað lof í lófa drykklanga stund. Því næst var fundið slitið. Morgunblaðið/Ómar Ársfundur Samþykktar voru ályktanir um fjármálastöðugleika, lífeyrisréttindi, kjaramál og málefni ungs fólks. Lokastundin var þó tilfinningaríkust, þegar starfsfólk ASÍ kvaddi forseta sinn til tólf ára, Grétar Þorsteinsson. Nýr forseti í öldurótinu Gylfi Arnbjörns- son hlaut um 59% greiddra atkvæða „OKKUR finnst sérstakt að því sé haldið fram að Reykjavíkurborg vilji ekki eiga viðskipti við innlendan iðn- að,“ segir Benedikt Einar Gunnars- son, framkvæmdastjóri Ólafs Gísla- sonar og Co. hf., sem nýlega tók þátt í útboði á vegum borgarinnar ásamt Sigurjóni Magnússyni ehf. vegna smíðar fjögurra nýrra slökkvibíla fyrir Slökkvilið höfuðborgarsvæðis- ins á vegum borgarinnar. 29. sept- ember ákváðu innkaupadeild Reykjavíkur og nefnd á vegum slökkviliðsins að ganga til samninga við Ólaf Gíslason og Co. hf. um slökkvibílana, en þeir eru smíðaðir í Póllandi. Sigurjón Magnússon, fram- kvæmdastjóri Sigurjóns Magnússon- ar ehf., sem smíðar slökkvibíla hér á landi, gagnrýndi þetta og benti m.a. á 3,5% vörugjöld sem ríkið leggur á innlenda framleiðslu. Benedikt segir það ekki rétt, sem haft var eftir Sigurjóni í frétt í Morg- unblaðinu á miðvikudag, að verðmun- urinn á tilboðunum hefði verið 17%, heldur hafi hann verið 2% á opnunar- degi tilboða en í útboðsreglum gilti verðið 40%. Benedikt bendir jafn- framt á að Sigurjón Magnússon hafi áður selt SHS slökkvibifreiðar, en „það höfum við líka gert að undan- gengnum útboðum“. Hann segir að smíði á slökkvibif- reið sé því miður að litlum hluta ís- lensk. Þær séu gerðar þannig að und- irvagn sé keyptur í tilteknu landi. „Síðan eru bifreiðarnar sendar á þann stað þar sem á að smíða yfir þær. Við látum gera þetta í Póllandi. Við erum það heppin að eiga sam- skipti við Pólverja sem vilja vinna í sínu eigin heimalandi, en [Sigurjón] hefur sjálfur haft Pólverja í vinnu.“ Fáum ekki opinberan stuðning Hjá Ólafi Gíslasyni og Co hf. starfi tíu manns, en fyrirtækið hefur aðset- ur í Reykjavík. Alls hafi fyrirtækið séð um smíði 36 slökkvibifreiða, en þar af hafi 13 verið smíðaðar í Pól- landi. „Við þessa iðju okkar höfum við ekki notið stuðnings opinberra sjóða eins og t.d. Byggðastofnunar, sem Sigurjón Magnússon ehf. fær og fyrri fyrirtæki Sigurjóns Magnússonar hafa fengið,“ segir Benedikt. Benedikt segir að Sigurjón Magn- ússon ehf. hafi kært niðurstöðu Reykjavíkurborgar um að ganga til samninga við Ólaf Gíslason og Co hf. um smíði slökkvibílanna, en ákvörð- un um það var tekin 29. september sl. Benedikt segir fyrirtæki sitt hafa sent kærunefndinni álit sitt og um- sögn vegna kærunnar. Nú sé málið hins vegar í uppnámi vegna þess að Slökkvilið höfuðborg- arsvæðisins hafi hætt við samkeppn- isviðræðuferli að sinni vegna efna- hagsástandsins. elva@mbl.is Aðeins íslenskt að litlu leyti Hætt að sinni við kaup á slökkvibílum vegna efnahagsástandsins í landinu Íslendingum fer fram í Hors- ens á Jótlandi á sunnudag og sá þriðji í Óðins- véum á Fjóni á miðvikudag. Svavar segist gera ráð fyrir því að halda áfram að funda með Íslend- ingum í Danmörku meðan það ástand sem uppi er varir. Eftir um það bil mánuð haldi hann annan fund í Kaupmannahöfn. Hann segir að mikið sé hringt í sendiráðið þessa dagana, af ýmsum ástæðum. M.a. sé hringt vegna yf- irfærsluvanda milli banka, en hann hafi lagast frá því sem var. „Svo er mikið um að útlendingar spyrji um hvað sé að gerast á Íslandi, bæði fjölmiðlar og sendiherrar annarra ríkja, m.a. frá Ástralíu og Úganda.“ elva@mbl.is „TILGANGURINN með þessu er að hitta fólk, tala við það og heyra í því hljóðið,“ segir Svavar Gestsson, sendiherra Íslands í Kaupmanna- höfn. Hann hélt á miðvikudag fund með Íslendingum búsettum á Kaup- mannahafnarsvæðinu og hyggst á næstunni halda tvo sambærilega fundi annars staðar í Danmörku. Svavar segir að heyra megi á því fólki sem hann hafi þegar rætt við að það sé áhyggjufullt. „En það er auðvitað á misjöfnu stigi. Í Dan- mörku eru 10.000 Íslendingar og þar af um 1.200 námsmenn á lánum frá Lánasjóði íslenskra náms- manna. Þá eru hér um 400 elli- og örorkulífeyrisþegar. Það eru að- allega þeir síðastnefndu sem gefa sig fram við okkur,“ segir hann. Flest þetta fólk búi í öllum meg- inatriðum við dönsk kjör, þannig að vandinn heima valdi þessu fólki fyrst og fremst áhyggjum, en ekki efnahagslegu höggi. Næsti fundur sendiherrans með Áhyggjur fremur en efnahagshögg Svavar Gestsson Vesturröst - Laugavegi 178 - S. 551 6770 - www.vesturrost.is Rjúpnavesti Poki á baki og framan fyrir rjúpu, vasar fyrir skot og aukahluti. kr. 12.900. Gönguskór Góðir gönguskór, nauðsynlegir í Rjúpuna Trezeta Gönguskór, úr leðri, fáir saumar, Goretex sokkur, vatnsheldir, mjög sterkir og hafa reynst vel á Íslandi síðustu 10 ár. kr. 25.900. Legghlífar Vatnsheldar með vír undir skó kr. 5.500. HINN nýi forseti er fimmtugur að aldri, fæddur í Keflavík. Móðir hans verslunarmaður úr Grindavík en faðirinn sjómaður úr Keflavík. Gylfi er kvæntur Arnþrúði Ösp Karlsdóttur textílhönnuði. Saman eiga þau fjögur börn á aldrinum 15 til 27 ára. Sjálfur er Gylfi úr hópi sjö systkina. Hann er með verslunarpróf frá Samvinnuskólanum á Bifröst og cand. merc. gráðu frá Verslunarhá- skólanum í Kaupmannahöfn. Áður en hann hóf störf fyrir ASÍ var hann verslunarstjóri í Kaupfélagi Suðurnesja og deildarstjóri við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki. 1989 fór hann til ASÍ, fyrst sem hagfræðingur kjararannsókn- arnefndar, svo sem hagfræðingur sambandsins. 1997-2001 var Gylfi fram- kvæmdastjóri Alþýðubankans en hefur verið fram- kvæmdastjóri ASÍ síðan. Hann hefur óbilandi áhuga á útivist hvers konar, gönguferðum, jeppaferðum, skotveiðum og stangveiðum. Hann þykir áræðinn, hefur stundum hátt og vill keyra mál hratt áfram. Eftir forsetakjörið í gær minnti keppi- nauturinn, Ingibjörg R. Guðmunds- dóttir, hann á að stundum er mik- ilvægara að hlusta en að tala! Málglaður fjölskyldumaður og útivistargarpur Gylfi Arnbjörnsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.