Morgunblaðið - 25.10.2008, Qupperneq 26
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
Áherslan í vetrarförðuninniliggur í dökkri augnaum-gjörð að sögn Hörpu
Haraldsdóttur, snyrtifræðings
og vörumerkjastjóra Yves Saint
Laurent hjá Halldóri Jónssyni.
„Tískan gengur alltaf í hringi
og nú eru litirnir farnir að dekkj-
ast á nýjan leik og þessi svokall-
aða „smokey“ augnmáling er
komin aftur,“ segir Harpa. Þeg-
ar svo sterk áhersla er lögð á
augun er vörunum yfirleitt hald-
ið frekar hlutlausum.
26 Daglegt lífTÍSKA
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 2008
Harpa notaði fjólubláu litapallettuna Colour Harmony nr. 4 á Her-
dísi Jónsdóttur. Ljósasti litinn notar hún í augnkrókinn og á augn-
beinið. Örlítið skærari litur er síðan settur á miðsvæðið og
dekkri litur loks notaður til að skyggja augnlokin við út-
jaðrana. Hún rammar að því loknu augnumgjörðina inn með
svörtum „eye-liner“ pensli og maskara, en heldur vör-
unum hlutlausum.
Sterk augnumgjörð
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Við opnuðum fyrstu búðinaokkar á Laugaveginum ár-ið 1993 en það var VeroModa sem var í raun fyrsta
fataverslunin á Íslandi sem var með
ódýrar vörur. Enda varð allt brjálað
og biðröð langt út á götu,“ segja syst-
urnar Helga og Marta Árnadætur
sem nýlega opnuðu sína tíundu versl-
un á Reykjavíkursvæðinu, verslunina
Selected í Smáralind. „Fólk var alveg
gapandi yfir þessu brjálæði að opna
nýja búð, nú þegar kreppan hellist
yfir okkur. En við vorum löngu farn-
ar af stað með undirbúning fyrir opn-
un þessarar verslunar. Þegar við vor-
um að brjóta niður veggi og gera
klárt í nýju búðinni, þá brast á með
kreppu og auðvitað fengum við hnút í
magann. En við eigum líka von á því
að fólk sæki meira í lágverðsversl-
anir á samdráttartímum.“ Systurnar
voru forsjálar í sumar og fjárfestu í
dönskum krónum. „Það kemur sér
vel, því við kaupum allt inn frá Dan-
mörku. Við getum því alveg leyst út
jólavörurnar og það verður enginn
vöruskortur hjá okkur.“
Dætur verslunarkonu
Tíu ár eru á milli þeirra systra.
Marta fæddist í Svíþjóð á meðan fað-
ir hennar var þar í læknanámi en
þegar hún var sex ára fluttist fjöl-
skyldan heim til Íslands og settist að
á Akranesi. „Ég fæddist því á Skag-
anum fjórum árum eftir heimkom-
una og við ólumst þar upp,“ segir
Helga en Árni faðir þeirra var yf-
irlæknir á Akranesi.
„Mamma okkar, Margrét Jóns-
dóttir, hefur alla tíð verið mjög virk
og hugmyndarík kona. Á uppvaxt-
arárum okkar skapaði hún sér vinnu
á Akranesi með því að opna þar
verslunina Valbæ. Þar seldi hún
snyrtivörur og fatnað. Hún opnaði
líka fyrsta skyndibitastaðinn á Akra-
nesi sem hét Glóðin, en það þótti nú
ekkert sérstaklega fínt að lækn-
isfrúin stæði innan við borðið og
steikti hamborgara, en hún lét það
ekki stoppa sig.“ Margrét var með
verslanirnar Sonju í Suðurveri og
Taxi í Kringlunni í gamla daga og
systurnar ólust því upp við versl-
unarrekstur. „Okkur fannst
skemmtilegt að standa við kassann í
búðunum og setja pening í hann. Við
vorum líka alltaf að pakka inn og ég
pakkaði einu sinni öllu í herberginu
mistökum og kunnum þetta orðið
nokkuð vel. Það er eins og hver ann-
ar ævintýraheimur að standa í versl-
unarrekstri og okkur finnst alltaf
gaman í vinnunni. Það endist enginn
í þessu nema hafa brennandi áhuga.
Við stöndum líka við búðarborðið og
afgreiðum ef á þarf að halda, enda
verðum við að vita hvað viðskiptavin-
irnir vilja. Mér finnst reyndar lang-
skemmtilegast að afgreiða í búð-
unum,“ segir Helga.
Ólíkar en góðar saman
Marta segir að þær systur séu
mjög ólíkar en að þær bæti hvor aðra
upp. „Við erum bestu vinkonur og
eiginlega er ótrúlegt hvað við erum
góðar saman þegar tekið er tillit til
þess að við erum nánast alltaf sam-
an.“ Eins og gefur að skilja er mikil
vinna í kringum svona mikinn rekst-
ur og starfsmannahaldið er þar stór
hluti, en þær eru með um sjötíu
manns í vinnu, ef með er talið allt
aukafólkið. Þær hafa brugðist við
óróanum í þjóðfélaginu með sínum
hætti. „Við tókum þá ákvörðun að
leggja okkur allar fram við að halda
verði á okkar vörum eins neðarlega
og hugsast getur meðan á „fárviðr-
inu“ stendur. Verðhækkanir hafa
verið mjög litlar og það hefur ekki
farið framhjá viðskiptavinum okkar
og þeir hafa svo sannarlega verið
ósparir að tjá okkur ánægju sína.
Það hefur verið okkur mikil hvatning
og með hjálp birgja okkar þá munum
við halda okkur við þessa verðstefnu
áfram,“ segja systurnar sem ætla í
lok mánaðarins óbangnar að halda
upp á fimmtán ára afmæli sitt í versl-
unarrekstri.
Systur láta kreppu
ekki draga úr sér kraft
Árið 1993 opnuðu syst-
urnar Helga og Marta
Árnadætur sína fyrstu
fataverslun. Sú átti held-
ur betur eftir að slá í
gegn. Þær opna nú nýja
verslun og segja engan
vöruskort verða hjá sér.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samstíga systur Helga og Marta Árnadætur í Selected. „Við erum búnar að læra af alls konar mistökum og kunnum þetta orðið nokkuð vel,“ segja þær.
Augnumgjörðin
dökk í vetur
„Þeir hjá Yves Saint Laurant
hafa alltaf verið þekktir fyrir að
vera djarfir í litanotkun og þora
að setja saman ólíkar litasam-
setningar,“ segir hún um einkar
líflegar augnskuggapallettur
þessa vetrar.
Ekki þola þó allar konur mjög
sterka augnförðun og segir
Harpa því best að dekkja augn-
farðann smám saman – lag fyrir
lag. „Það er best að prufa sig
einfaldlega áfram og finna hvað
maður þolir. Stundum er líka
gott að hafa í huga að minna get-
ur verið meira, enda er auðveld-
ara að byggja litina upp en að
draga úr þeim eftir á.“
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
F
ri
kk
i
Litríki Wood Tones
og Rose Tones
augnskuggar frá
Shisheido.
Dulúð Silver Look
augnskuggar frá Dior
og Diorshow Iconic
maskari.
Verslanir Mörtu og Helgu:
Vero Moda
Only
Jack and Jones
Selected
Vila
Name it
Outfitters Nation
mínu inn í pappír í svefni,“ segir
Helga og hlær. Það má því ljóst vera
að þær hafa verið sofandi og vakandi
yfir verslunarrekstri allt frá barn-
æsku.
Alltaf sami birgirinn
„Mamma byrjaði að versla við
Danann Troels Holch Povlsen fyrir
þrjátíu árum, þegar ég var fimm ára
og Marta fimmtán,“ segir Helga og
bætir við að Troels hafi stofnað Best-
seller sem er móðurfyrirtæki allra
þeirra tíu verslana sem þær systur
eru með á Íslandi í dag. „Við höfum
því í þau fimmtán ár sem við erum
búnar að vera í verslunarrekstri,
verslað við þennan eina birgi, þó svo
að í búðunum okkar fáist ólíkar
vörur.“
Verslanir þeirra systra eru allar í
Smáralind og Kringlunni og sumar
þeirra á báðum stöðum. Þær segja
reynslu undanfarinna fimmtán ára
hafa verið dýrmæta. „Við erum bún-
ar að læra af allskonar
Líflegar litasamsetningar
Yves Saint Laurent Colour
Harmony augnskuggapal-
lettur nr. 4, 5 og 6.